Morgunblaðið - 08.06.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.06.2003, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR eru 32 og 38 ára ogsynir Magnúsar Bjarn-freðssonar fréttamannsog Guðrúnar Árnadótturbókavarðar. Páll og Árni Magnússynir hafa komið með áber- andi hætti inn í íslenska pólitík en líklega hefur kosninganóttin hvergi verið jafnspennandi og innan fjöl- skyldunnar. Bræðurnir skiptust á að vera inni á þingi og úti alla nóttina. Fyrstu tölur á kosninganótt sýndu Árna frambjóðanda Framsóknar- flokksins í Reykjavíkurkjördæmi Norður og nýskipaðan félagsmála- ráðherra inni. Næstu tölur sýndu að Páll bróðir hans og frambjóðandi Framsóknarflokksins í Suðvestur- kjördæmi hafði skotið honum út. Daginn eftir kom hins vegar í ljós að Árni bróðir hans hafði náð kjöri. „Þegar ég fór að sofa klukkan 4 var ég þingmannslaus, það var ég líka þegar ég vaknaði klukkan 8. Klukkan hálftíu var Árni svo kominn inn og það kom okkur verulega á óvart,“ segir Magnús pabbi þeirra um tíðindi kosninganæturinnar. „Í mínum huga eru úrslit kosning- anna mjög góð. Þetta var það skársta sem gat gerst, fyrst ég komst ekki inn þá komst bróðir minn að minnsta kosti inn,“ segir Páll. „Árni hafði ímugust á pólitík“ Þótt Árni og Páll starfi nú báðir í stjórnmálum, Árni sem félagsmála- ráðherra og Páll sem aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, leit lengi vel ekki út fyrir að þeir myndu báðir starfa á þessu sviði. „Árni hafði ímugust á pólitík og ætlaði alls ekki að blanda sér í hana,“ segir Magnús sem jafnframt á tvö önnur börn sem standa alfarið fyrir utan stjórnmálin. „Páll var hins vegar félagsmála- frík frá upphafi og varð snemma mjög pólitískur. Hann tók virkan þátt í félagslífi strax í grunnskóla og varð snemma formaður í nefndum og ráðum, var forseti Menntaskólans í Kópavogi og formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Það kemur mér því ekki á óvart að hann skuli lifa og hrærast í stjórnmálum, en með Árna er annað mál,“ segir Magnús. Bræðurnir segjast geta tekið und- ir þessa lýsingu föður þeirra, en hvers vegna var Árni svona mikið á móti stjórnmálum á sínum yngri ár- um? „Ég held að ástæðan geti verið sú að þegar ég var ungur og unglingur var pabbi í bæjarmálapólitíkinni í Kópavogi. Mér fannst þetta ekki nógu gott, ég sá pabba of sjaldan og ákvað á þeim árum að stjórnmál væri eitthvað sem ég ætlaði ekki að koma nálægt. Svo var það ein af þessum tilviljunum í lífinu sem réð því að ég blandaði mér í stjórnmálin. Guðni Ágústsson hringdi í mig haustið 1994 og bað mig að vera kosningastjóra hjá sér. Þá stóð þannig á í mínu lífi að ég var til í að skipta um vinnu og sló til,“ segir Árni sem segist reyndar hafa litið á kosningastjórastarfið sem hverja aðra vinnu, hann hafi ekki verið að taka þátt í stjórnmálum. En ekki varð aftur snúið, hann „tók bakter- íuna“ og er nú orðinn ráðherra Framsóknarflokksins. Páll félagsmálafrík frá upphafi Aðkoma Páls að stjórnmálum er með allt öðrum hætti, hann sýndi pólitíska tilburði strax á bernskuár- unum: „Ég var alltaf mjög pólitískur og ég man að strax í grunnskóla var ég farinn að rífast um stjórnmál. Þegar ég var 23 ára var ég búinn að vera tvisvar í framboði til sveitarstjórnar. Ég stefndi ekki beint að því að verða stjórnmálamaður en maður er alltaf að taka ákvarðanir sem færa mann sífellt meira inn í hringiðu stjórnmál- anna.“ Eins og áður segir var Magn- ús faðir bræðranna bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins og nú hafa bræðurnir báðir fetað í fótspor föður síns og gerst Framsóknarmenn. „Ég hef verið Framsóknarmaður frá því ég man eftir mér og alltaf ver- ið mjög stoltur af því,“ segir Páll sem gegnt hefur starfi aðstoðarmanns iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 1999 auk þess sem hann hefur setið á þingi síðasta kjörtímabil sem varaþingmaður og átt sæti í hinum ýmsu nefndum og ráðum. Öðru máli gegnir um Árna, fram- sóknarhollusta hans er ekki jafn- gömul. „Ég myndaði mér ekki flokkspólitíska skoðun fyrr en raun- verulega 1995. Það var ekki fyrr en ég fór að vinna í stjórnmálum að ég upplifði það þannig að mínar lífs- skoðanir fóru saman við grundvall- arhugsjónir Framsóknarmanna. Fram að því hafði ég til að mynda kosið þann flokk sem mér leist best á í hvert skipti,“ segir Árni en bætir við að Framsóknarflokkurinn hafi þar óneitanlega komið við sögu. Hann segir að hlutirnir hafi gerst hratt eftir kosningar og nú sé hann kominn á fullt í ráðherrastarfið. Þótt hann hafi ekki starfað á Alþingi hafi hann tekið virkan þátt í stjórnmálum undanfarin átta ár, verið aðstoðar- maður iðnaðar- og viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins og bæj- arfulltrúi í Hveragerði. Hann segist hafa ákveðið að fara í framboð í Reykjavík fyrir nýliðnar kosningar, fyrst og fremst til að taka þátt í kosningabaráttu sem hann taldi að gæti verið tímamótabarátta fyrir Framsóknarflokkinn. Framhaldið þekkja allir, hann var kosinn á þing og var óvænt gerður að félagsmálaráðherra. Magnús faðir bræðranna segist enn vera að átta sig á því að elsti sonur hans sé orðinn „hæstvirtur“. Góðir vinir sem treysta hvor öðrum Þrátt fyrir ólíka aðkomu að stjórn- málum eiga þeir bræður margt sam- eiginlegt og eru góðir vinir. Þeir eru báðir Framsóknarmenn, hafa báðir gegnt starfi aðstoðarmanns iðnaðar- og viðskiptaráðherra og verið frétta- menn hjá sjónvarpinu. Þeim er stundum ruglað saman og einkum í fjölmiðlum. Það hefur til dæmis komið fyrir að þeir eru báðir nefndir innan sömu fréttar, þegar aðeins annar á hlut að máli. „Ég held að þótt fólk geti ruglast á okkur sjái allir að við erum mjög ólíkir. Og þrátt fyrir ólíka aðkomu okkar að stjórnmálum þá sjá allir að við erum fyrst og fremst miklir vinir og höfum mikinn styrk hvor af öðr- um. Við tölum mjög mikið saman um stjórnmál og okkar persónulegu að- stæður í stjórnmálum. Hvað sem á dynur getum við alltaf treyst hvor öðrum,“ segir Páll. Árni tekur undir þetta: „Við höf- um alltaf verið góðir vinir. Ég er sex árum eldri og tuktaði Palla til – þangað til hann varð svona stór,“ segir Árni og lítur á yngri en talsvert hávaxnari bróður sinn. Íþróttamaður og antisportisti En þrátt fyrir að vera bræður, bestu vinir og samherjar í stjórnmál- um er eitt sem þeir munu líklega aldrei geta sameinast um: íþróttir. Páll er mikill íþróttaáhugamaður og dyggur stuðningsmaður Liver- pool. Hann hefur spilað fótbolta frá því hann man eftir sér og prófað hin- ar og þessar íþróttir í gegnum tíðina, meðal annars golf, handbolta og am- erískan fótbolta. Árni er hins vegar ekkert fyrir íþróttir gefinn, eyðir frístundum í að dytta að bústaðnum með fjölskyld- unni, sinna bíladellunni og veiðiskap og sparar ekki skoðanir sínar þegar kemur að fótbolta: „Í mínum huga er fótbolti fullkomið tilgangsleysi, það er einn bolti og 22 leikmenn sem sparka honum frá sér um leið og þeir ná honum,“ segir Árni og glottir. Þar með eru þeir bræður komnir í hörku- samræður um gildi knattspyrnu og íþrótta almennt. Á þennan veg voru umræðurnar víst á æskuheimilinu, svo ekki er hægt að segja annað en: snemma beygist krókurinn. Bræður í pólitík Bræðurnir Árni og Páll Magnússynir hafa komið með áberandi hætti inn í ís- lensk stjórnmál. Þótt þeir hafi báðir verið í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í síðustu kosningum leit lengi vel út fyrir að afskipti ann- ars þeirra af stjórnmálum yrðu engin. Ragna Sara Jónsdóttir hitti bræðurna úr Kópavogi sem stundum er ruglað saman. Morgunblaðið/Arnaldur Þeir eru samherjar í stjórnmálum, en ósammála um margt annað. „Við höfum alltaf verið góðir vinir. Ég er sex árum eldri og tuktaði Palla til – þangað til hann varð svona stór,“ segir Árni og lítur upp á yngri, en talsvert hávaxnari, bróður sinn. Þeir Árni og Páll segjast alltaf hafa verið góðir vinir. Hér situr Árni, sex ára, með Pál, sem aðeins var nokkurra mánaða er myndin var tekin. Jólakveðja frá bræðrunum, sem hér sjást á yngri árum . Magnús faðir þeirra segist enn vera að venjast því að sonur hans sé orðinn hæstvirtur. ’ Og þrátt fyrirólíka aðkomu okkar að stjórnmálum þá sjá allir að við erum fyrst og fremst mikl- ir vinir og höfum mikinn styrk hvor af öðrum. Við tölum mjög mikið saman um stjórnmál og okkar persónulegu aðstæður í stjórn- málum. Hvað sem á dynur getum við alltaf treyst hvor öðrum. ‘ rsj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.