Morgunblaðið - 29.06.2003, Síða 10

Morgunblaðið - 29.06.2003, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Innan um sprengjur Lucibi Hmood og Ahmed Khudier eru báðir heimilislausir en hafast við í 576. flugskeytastöðinni í Al Baladiat sem er nú yfirgefin en þar höfðu þjóð- varðliðssveitir fyrrverandi einræðisherrans Saddams Hussein aðsetur. Í stöðinni býr fólk innan um ýmiss konar hættuleg vopn og sprengjur sem eru á víð og dreif. Khudier býr þarna ásamt eiginkonu og tíu börnum en u.þ.b. 60 aðrar fjölskyldur hafast þarna við. Írak flýtur á olíu Mikið er um að eldsneyti sé selt á svörtum mark- aði en mikill skortur er á því. Það skýtur skökku við því Írak er annað olíuauðugasta land í heimi. Munaðarleysingjar Þennan íraska dreng hittum við á Dar Al Hahan-munaðarleysingjahælinu í Bagdad en þar búa um hundrað munaðarlaus fötluð börn. Vegna vanefna er aðbúnaður og umönnun í lág- marki á heimilinu. Thamir og Fatíma Thamir Mahdi Salman, Fatíma, eiginkona hans, og þrjú börn þeirra eru heimilislaus. Thamir kvaðst hafa selt hús fjölskyldunnar til þess að kaupa lyf fyrir bróður sinn sem var alvarlega veikur af krabbameini og koma honum undir læknishendur. Allt kom fyrir ekki og bróðir Thamirs lést. Þau hafa síðustu misserin búið á götunni. Aðstæður þeirra eru ekkert einsdæmi. Lækn- iskostnaður er óheyrilegur fyrir þá efnaminni sem oft missa aleigu sína þegar alvarleg veikindi koma upp. Lífeyrir Gömul kona tekur við styrk frá nýju yfirvöldunum í landinu. Ákveðið var að herliðið myndi greiða ellilífeyr- isþegum, öryrkjum og ríkisstarfs- mönnum 40 dollara á mann til að lifa af. Sumir eiga erfitt með að sækja styrkinn sinn því stundum er um að ræða fársjúkt fólk sem kemst illa leiðar sinnar. Vopn á veginum Maður gengur fram hjá yfirgefnum eldflaugum rétt hjá 576. flugskeytastöðinni í Al Baladiat. Mikið er um að vopn hafi verið skilin eftir á glám- bekk víða í Bagdad. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.