Morgunblaðið - 18.08.2003, Page 1

Morgunblaðið - 18.08.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 221. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Núllfyrir- tækin dafna Walter Powell rannsakar fyrirtæki sem vilja ekki græða Viðskipti 11 Sherrell og Blake vinna sjálf- boðavinnu á Akranesi 10 ESB-aðild eða ekki? Líflegar umræður um Evrópu- stefnu Íslands Miðopna 16-17 KONRÁÐ Eggertsson hrefnu- veiðimaður, gjarnan nefndur Hrefnu-Konni, leysir hér festar við Ísafjarðarhöfn síðdegis í gær þegar bátur hans, Halldór Sigurðsson ÍS-14, lagði af stað til hrefnuveiða í vísindaskyni. Með í för voru tveir vísindamenn frá Hafrannsókna- stofnun. Tveir aðrir bátar lögðu af stað til hrefnuveiða í gær og fyrrinótt, Sig- urbjörg BA-155 frá Reykjavíkur- höfn og Njörður KO-7 frá Kópavogs- höfn. Í gærkvöldi hafði engin hrefna veiðst en mikil leynd hefur hvílt yfir því hvar bátarnir halda sig, auk þess sem myndatökur fjölmiðla hafa ekki verið heimilaðar, að sögn af öryggis- ástæðum. Konráð Eggertsson sagði við Morgunblaðið, er hann var á leið út Ísafjarðardjúpið í gærkvöldi, að óneitanlega væri það sérstök tilfinn- ing að vera á leið til hrefnuveiða að nýju eftir þetta langt hlé. Spenna væri í lofti en þó ekki jafnmikil og á árum áður. Vonaðist hann til þess að fá frið við veiðarnar. „Þetta er eng- inn leikvöllur,“ sagði Konráð, sem hafði orðið var við nokkrar hrefnur í kringum sig. Hrefnu-Konni leysir festar  Hrefnuveiðibátar/4Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson MIKLAR líkur eru á öðru tilræði hryðjuverkamanna í Bandaríkj- unum í líkingu við árásina 11. sept- ember 2001, að því er kemur fram í skýrslu rannsóknastöðvar í London um hryðjuverkahættu í heiminum. Nær öllum ríkjum heims, 186 tals- ins, er þar raðað í samræmi við mat á hættunni sem er sögð mest í Kól- umbíu. Næstlægst á listanum er Ís- land en lægst er Norður-Kórea. Rannsóknastöðin aðstoðar op- inberar stofnanir, banka og önnur stórfyrirtæki í 45 löndum við að meta áhættuna við fjárfestingar. Mest er áhættan talin í Kólumbíu, Ísrael, Pakistan, Bandaríkjunum og á Filippseyjum í þessari röð. Auk Íslands eru Andorra, Hvíta- Rússland, Liechtenstein og Slóven- ía sögð vera mjög örugg lönd. Hryðjuverkaógnin Ísland næst- öruggast London. AP. BANDARÍSKIR vísindamenn segja að noti astmasjúklingar of lengi hefðbundin lyf gegn sjúkdómnum geti það valdið því að einkennin vaxi í stað þess að dvína, að sögn BBC. Astmalyf eru oftast af gerðinni albuterol, ventolin eða salbutamol. Þau auka virkni svonefndra beta 2AR-móttakara í lungnavefjunum. En í vísindaritinu Journal of Clinical Investigation segist hópur vísinda- manna við Cincinnati-háskóla hafa gert tilraunir með mýs og komið hafi í ljós að til langs tíma valdi lyfin því að öndunarfærin verði mjög við- kvæm fyrir áreiti sem komi af stað astma. Breskur sérfræðingur, Mart- in Partridge, segir að lyfin séu ekki endilega hættuleg, en leggja beri áherslu á að finna orsakir astma og leiðir til forvarna. Astmalyf varasöm? LAUN hérlendis hækkuðu um 5,5% á ársgrundvelli á almennum vinnumarkaði á öðrum fjórðungi ársins að því er kemur fram í töl- um Hagstofu Íslands. Laun hækk- uðu enn meira í opinbera geir- anum eða um 5,9%, umreiknað til árshækkunar. Sambærileg hækk- un launa hefur verið 3% að með- altali á ári í ríkjum ESB að sögn Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoð- arframkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins (SA). „Við höfum hækkað laun á Ís- landi tvöfalt og þrefalt meira en í nágrannalöndunum um margra ára skeið,“ segir Hannes. Hann segir að samhliða hafi gengi krónunnar hækkað, hlutfall launa í verðmæta- sköpun vaxið og samkeppnisstaðan versnað. Það hljóti að koma niður á fjárfestingum og framtíðarvexti í atvinnulífinu. „Þetta er ójafnvægi sem hlýtur að leiðréttast. Þetta kallar annaðhvort á aðlögun í gegnum gengið, sem verið hefur hin hefðbundna íslenska leið, eða þá með því að hér verði kostn- aðarþróunin hægari en í viðskipta- löndunum.“ Í tölum Hagstofunnar kemur fram að á milli áranna 2001 og 2002 hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 5,4% en laun op- inberra starfsmanna og banka- manna hækkuðu mun meira eða um tæp 10%. Hannes segir launaþróun hjá hinu opinbera vera áhyggjuefni. Þar sé launaskrið, þ.e. hækkanir umfram samninga, meira en á almenna vinnumark- aðinum. Um síðustu áramót hafi samningsbundin launahækkun ver- ið töluvert meiri á almenna mark- aðinum en þrátt fyrir það hafi laun hækkað meira hjá hinu opinbera. „Þetta er og hefur verið áhyggjuefni um margra ára skeið. Ég tel að þessi mikla kostnaðar- hækkun sem verið hefur hjá hinu opinbera þrýsti upp kostnaðar- hækkunum á almenna vinnumark- aðinum og veiki þannig samkeppn- isstöðu okkar,“ segir Hannes. Meiri hækkun launa en í ESB SA telja hækkanir hins opinbera hækka kostnað á almennum markaði SPRENGT var stórt gat á eina af aðalæðum vatnsveitunnar í Bagdad í gær og flæddi vatnið um göturnar þar til starfsmönnum veitunnar tókst að loka fyrir vatn til borgarinnar meðan gert var við gatið. Eldar loguðu enn á tveim stöðum í olíuleiðslu í norðanverðu Írak. Ahmed Ibrahim, hershöfðingi og nýr yfirmaður írösku lögreglunn- ar, hét því að elta uppi þá sem stæðu fyrir skemmdarverkum. Sagði hann þá vera hóp „samsærismanna sem fá peningagreiðslur frá ákveðnum stjórnmálaflokki“ fyrir að sprengja upp olíuleiðslur. Nokkrir bandarískir hermenn særðust er sprengja sprakk við járn- brautarteina í gær. Skotið var þrem sprengjum að Abu-Ghraib-fang- elsinu í Bagdad aðfaranótt sunnudags og féllu þar sex íraskir fangar auk þess sem 59 særðust. Samir Shakir Mahmoud, félagi í fram- kvæmdaráði Íraks, sagði árásina hafa verið verk „hugleysingja“. Pal- estínskur myndatökumaður Reuters-fréttastofunnar var skotinn er hann var að störfum við fangelsið í gær. Danskur hermaður fellur Liðsmaður í um 420 manna liðstyrk frá Danmörku, sem annast ásamt Bretum öryggisgæslu í og við Basra, féll á laugardag í Al- Madinah, skammt norðan við borgina, ef til vill vegna voðaskots eigin félaga. Flokkur þeirra hafði rekist á vörubíl nokkurra vopnaðra Íraka og vildi athuga hverjir væru á ferð. Í átökum sem þá hófust féllu einnig tveir Írakar, einn særðist og sex voru handteknir. Reuters Íraki kannar skemmdir sem urðu á aðalvatnsæð í norðurhluta Bagdad í gær. Stórt gat var gert með sprengju á leiðsluna sem er um 160 sentimetrar að þvermáli. Vatnsleiðsla í Bagdad sprengd Lögreglustjóri segir spellvirkja fá greiðslur frá „stjórnmálaflokki“ Bagdad, Basra, Tikrit. AP, AFP. ♦ ♦ ♦ Veraldarvinir á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.