Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 2

Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 2
STEVE Holland, einn þekktasti stjórnandi flugvélalíkana í heim- inum, sem dvalist hefur hér á landi undanfarna daga, segir að veðrið á Íslandi sé með því versta sem hann hafi kynnst. „Við höfum kynnst meiri veðurofsa hér en nokkurs staðar annars staðar. Rigningin er meiri en við höfum áður upplifað. Við höfum þó notið veru okkar hér vel og okkur hefur verið sýnd gest- risni hvert sem við höfum farið,“ segir hann. Steve Holland er mjög þekktur í heimi áhugamanna um fluglíkön og hefur ferðast víða um heim til að sýna hæfni sína í þeirri list og unn- ið til margra verðlauna. Íslensku líkönin góð Ein af ástæðum heimsóknar Steves Hollands til landsins er að prufufljúga nokkrum fluglíkönum sem Íslendingar hafa smíðað. „Ís- lendingarnir héldu að þeirra líkön væru verri en þau sem við erum vanir en í raun er því þveröfugt farið. Líkön þeirra eru betri en þau sem við smíðum; sennilega er það vegna þess hve veturinn er lang- ur,“ segir Steve og gefur til kynna að gnægð tíma til þess að sinna áhugamálinu hafi skilað sér í gæð- um afrakstrar vinnu íslensku flug- líkanasmiðanna. „Ég flýg vélunum á sérstakan hátt og er þekktur fyrir hæfileika mína til að fljúga flugvélamódelum. Flugvélarnar sem ég hafði með mér eru frægar. Sú stærri, The Comet, er mjög fræg vél.“ Hún er eftirlíking af vél sem upphaflega var smíðuð til þess að taka þátt í kappflugi frá London til Ástralíu árið 1934. Gerð voru þrjú eintök af vélinni til þess að taka þátt í kappfluginu. Ein vélanna varð vélarvana í Bagdad, ein þeirra varð fyrst í keppninni og sú þriðja hafnaði í þriðja sæti. Þeirri flugvél var snúið til baka til Englands um- svifalaust eftir lendingu í Ástralíu og fór til baka með fréttamyndir af hinni sögufrægu flugkeppni. The Comet er stærsta flugmód- elið á Englandi og er 67 kg á þyngd. Morgunblaðið/Ómar Steve Holland sýndi mikla leikni þegar hann stýrði flugvélamódelum sínum á Hamranesvelli. Honum þótti talsvert snúið að eiga við íslenska veðrið. Steve Holland hefur flogið flugvélalíkönum um heim allan Versta veðrið á Íslandi The Comet er stærsta flugvélin sem Holland kom með til Íslands en hún vegur 67 kg. Vélin er eftirlíking af frægri flugvél sem smíðuð var árið 1934. Steve Holland kom með 10 flug- módel með sér til Íslands. FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ VATNSÆÐ SPRENGD Skemmdarverkamenn eru sagðir hafa sprengt gat á eina af helstu vatnsæðum Bagdad-borgar í gær. Taka varð allt vatn af borginni um hríð en búist var að viðgerð yrði lok- ið fyrir nóttina. Enn loga eldar sem kviknuðu á tveim stöðum á olíu- leiðslu í norðurhluta Íraks í liðinni viku. Eldarnir koma í veg fyrir að hægt sé að dæla olíu til Tyrklands og er fjárhagslegt tjón því mikið. Laun hækka Laun hækkuðu um 5,5% á al- mennum vinnumarkaði á öðrum fjórðungi ársins samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Launahækk- anir hafa verið næstum tvöfalt meiri hér á landi en að jafnaði í samkeppn- isríkjum. Hrefnuveiðar hafnar Þrír bátar hafa lagt af stað til hrefnuveiða í vísindaskyni. Engin hrefna hafði veiðst í gærkvöldi en mikil leynd hvílir yfir hvar bátarnir halda sig. Hryðjuverkahætta lítil hér Bresk stofnun, sem metur hryðju- verkahættu um allan heim, telur mikla hættu á að aftur verði gerð stór árás í Bandaríkjunum. Hættan er sögð næstminnst á Íslandi í ríkj- unum 186 sem gefin er einkunn í þessum efnum, minnst er hættan í Norður-Kóreu. Vill íhuga skattahækkun Aðalráðgjafi leikarans og re- públikanans Arnolds Schwarzen- eggers um lausn á fjárhagsvanda Kaliforníu, auðkýfingurinn og demó- kratinn Warren Buffett, segir hugs- anlegt að hækka verði skatta í sam- bandsríkinu. Eru sumir repúblikanar mjög ósáttir við þá hugmynd. Schwarzenegger býður sig fram til ríkisstjóra í nóvember og er næstefstur í nýrri skoðana- könnun. Laus störf á Austurlandi 354 laus störf voru á Austurlandi og Norðurlandi um síðustu mán- aðarmót og er mikil eftirspurn eftir starfsfólki. Atvinnuástandið er mun betra á landsbyggðinni en á höf- uðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. 2003  MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÁSGEIR ER KOMINN TIL FÆREYJAR TIL AÐ FAGNA SIGRI / B2 LOGI Gunnarsson körfuknattleiksmaður úr Njarðvík samdi um helgina við þýska úrvals- deildarliðið Giessen 46ers. „Ég samdi til tveggja ára og er mjög ánægður með þetta. Ég hafnaði tilboði frá Ulm þar sem ég spilaði í fyrra og einnig frönsku liði. Tvö önnur félög í þýsku úrvalsdeildinni höfðu rætt við mig en ég taldi þetta besta kostinn því það er ekki alltaf best að velja sterkusu liðin og sitja á bekknum hjá þeim,“ sagði Logi í samtali við Morg- unblaðið. Giessen rétt missti af úrslitakeppn- inni í fyrra, endaði í níunda sæti, en komst hins vegar í undanúrslit í bikarnum þar sem liðið féll út á móti meisturum Berlínar. Giessen virðist stefna hátt því búið er að ráða nýjan þjálfara og semja við nokkra sterka leik- menn þannig að Logi segist hlakka til komandi vetrar. Logi kominn til liðs við Giessen Þarna er mikið starf síðustu áraað skila sér og hér í Slóvakíu skilur enginn hvernig þetta er hægt. Ég held að Heimir hafi getað valið úr 135 leikmönnum og það segir sína sögu að það þarf tölvert mikla vinnu til að búa til gott lið úr því. Strák- arnir hafa spilað marga landsleiki og gríðarleg vinna er þarna að skila sér,“ sagði Guðmundur. Spurður um úrslitaleikinn sagði hann: „Liðið sýndi ótrúlegan styrk, það lenti undir í byrjun en síðan ekki söguna meir og íslensku strákarnir voru betri á öllum sviðum, spiluðu fína vörn og markvarslan var góð og hraðaupphlaupin fygldu í kjölfarið. Sóknarleikurinn var fjölbreyttur og góður og það má segja að liðsheildin hafi sigrað. Auðvitað þarf allt liðið að spila vel ætli það sér að verða Evr- ópumeistari, en það eru auðvitað kjölfestur í þessu liði eins og öllum öðrum. Undanúrslitaleikurinn gegn Sví- um var held ég erfiðari. Íslenska lið- ið lék ekki nægilega vel þá, en Sví- arnir sprungu hreinlega á limminu í lokin og okkar strákar, sem eru í gríðarlega góðu formi, náðu að jafna og tryggja framlengingu sem þeir unnu auðveldlega, komust þrjú mörk yfir í henni. Svíarnir voru síðan alveg búnir á því í dag því þeir töpuðu með tíu mörkum gegn Dönum í leik um bronsið. Það var mjög mikið áfall fyrir Svía að tapa fyrir okkur á laug- ardaginn,“ sagði Guðmundur. Hann sagðist horfa björtum aug- um fram á veginn. „Þrír þessara stráka hafa verið að æfa hjá okkur, Arnór og Ásgeir Örn hafa leikið landsleiki og Björgvin hefur æft með okkur þannig að þeir eru aðeins farnir að kíkja við,“ sagði landsliðs- þjálfarinn. Stórkostlegur árangur „ÞETTA er auðvitað ekkert nema stórkostlegur árangur hjá jafnfá- mennri þjóð, það verður að segjast alveg eins og er,“ sagði Guð- mundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir að hann hafði séð Heimi Ríkharðsson stýra 18 ára landsliði Íslands í frækilegum sigri á Þjóðverjum, 27:23, í gær í Slóvakíu, þar sem strákarnir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn. Ásgeir marka- hæstur ÁSGEIR Örn Hallgrímsson, leikmaður úr Haukum, varð markahæsti leikmaður Evr- ópukeppninnar í Slóvakíu, skoraði 55 mörk í sjö leikj- um. Hann var valinn besta örvhenta skyttan í mótinu og besta rétthenta skyttan í mótinu var Arnór Atlason og voru þeir því valdir í úr- valslið mótsins ásamt tveim- ur Þjóðverjum, einum Dana, einum Svía og Slóvena. Rúnar er í 18. sæti íundanúrslitunum í fjölþrautinni, fékk 54,386 stig og keppir því væntanlega í úrslitum en þangað komast 32 bestu fimleikamenn heims, þó ekki fleiri en tveir frá hverri þjóð. Ís- lenskur fimleikamaður hefur aldrei komist í 32 manna úrslit í fjölþraut. Árangur Rúnars á einstökum áhöldum var þannig að í gólfæfingum fékk hann 8,450 stig, 9,537 stig fyrir æfingar sínar á bogahesti, 9,350 stig fyrir hringina, 8,912 stig fyrir stökk, 9,425 fyrir tvíslánna og 8,712 stig fyrir svifránna. Samtals 54,386 stig en efstur er Japaninn Naoya Tsukahara með 57,224 stig, en 189 fimleikamenn kepptu að þessu sinni. Með frammistöðu sinni hefur Rún- ar væntanlega tryggt sér sæti á Ól- ympíuleikunum í Aþenu á næsta ári, en það kemur ekki end- anlega í ljós fyrr en eft- ir HM. Dýri Kristjánsson úr Gerplu hafnaði í 97. sæti með 46,487 stig, Jónas Valgeirsson í 126. sæti með 41,324 stig, Grétar Sigþórsson í 158. sæti með 29,599 stig, Gunnar Sigurðs- son varð í 160. sæti með 28,400 stig og Ant- on Heiðar Þórólfsson varð í 185. sæti með 12,687 stig, en þess ber að geta að þrír síðasttöldu kepptu ekki á öllum áhöldunum. Ísland er með í liðakeppninni einn- ig en fullskipuð sveit er sex þar sem fimm keppa á hverru áhaldi og fjórir bestu telja. Íslenska karlasveitin varð í 30. sæti af 31 sveit með 185,983 stig. Íslensku stúlkurnar hefja keppni í nótt en úrslitin hjá Rúnari verða að- faranótt fimmtudags og föstudags. Rúnar fer væntanlega í úrslitin í fjölþraut RÚNAR Alexandersson, fimleikamaður úr Gerplu, byrjaði vel á heimsmeistaramótinu í fimleikum sem hófst um helgina í Banda- ríkjunum. Rúnar stóð sig mjög vel í fjölþrautinni og allt bendir til að hann komist í úrslit í henni og hugsanlega á bogahesti líka, en nokkrar þjóðir eiga enn eftir að ljúka keppni þannig að þetta liggur ekki endanlega fyrir fyrr en í fyrramálið. Ljósmynd/Viktor Zamborský Ásgeir Örn Hallgrímsson, markahæsti maðu rmótsins og besta örvhenta skytta þess. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 22 Viðskipti 11 Dagbók 24/25 Erlent 12/13 Þjónusta 25 Listir 13 Kirkjustarf 25 Umræðan 14/15 Fólk 26/29 Forystugrein 16 Bíó 26/29 Hestar 18 Ljósvakar 30 Minningar 19/21 Veður 31 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá ELKO. SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hefur látið gera úttekt á því hvaða áhrif einkahlutafélagavæðing hefur haft á fjárhag sveitarfélaganna og telur að sveitarfélögin hafi orðið af allt að 1,2 milljörðum í tekjur vegna breytingar á einkarekstri í einka- hlutafélagsform. Greint var frá því í Morgunblaðinu á sunnudag að einkahlutafélögum í Bolungarvík hefði fjölgað um 58% frá ársbyrjun 2001 en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga, segir Bolungarvík engan veginn vera einsdæmi, svipuð dæmi megi finna víða um land. Missa útsvar en ríkið fær auk- inn fjármagnstekjuskatt Vilhjálmur segist vonast til þess að ríkisstjórnin muni samþykkja á morgun að hefja viðræður við Sam- band íslenskra sveitarfélaga, félags- málaráðherra muni væntanlega leggja erindi þess efnis fyrir ríkis- stjórnina á fundi hennar í fyrramál- ið. „Við teljum að sveitarfélögin verði af tekjum á þessu ári sem nemur ein- um 1,2 milljörðum króna,“ segir Vil- hjálmur. „Við höfum rætt við ríkisvaldið og greint frá því að þetta geti ekki gengið svona. Ég er þar með ekki að mæla gegn því að einstaklingar færi einkarekstur sinn í form einkahluta- félags, það eru margir kostir við það. En þetta snýr þannig að sveitar- félögunum að þau missa útsvar. Þótt hert hafi verið á reglum vegna þeirra launa sem menn eiga að reikna sér dugar það engan veginn. Það er ljóst að menn kjósa að greiða sér arð og greiða síðan fjármagnstekjuskatt af honum. En fjármagnstekjuskattur- inn, sem hefur vaxið gríðarlega, rennur allur í ríkissjóð en ekki í sjóði sveitarfélaga.“ Vilhjálmur segir þetta vera veru- lega breytingu á skattalegu um- hverfi sveitarfélaganna og um leið sé þetta breyting á fjármálalegum sam- skiptum ríkis og sveitarfélaga vegna þess að sveitarfélögin tapi tekjum en ríkið fái aukinn fjármagnstekju- skatt. „Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga óskuðum við eftir því að farið yrði í ákveðna aðgerð til þess að efla sameiningu sveitarfélaga og í öðru lagi að farið yrði í heildarend- urskoðun á fjárhagsgrundvelli sveit- arfélaganna og kannað rækilega hvort þær tekjur sem sveitarfélögin hafa nú dugi til að sinna lögbundnum verkefnum þeirra og eins að farið verði yfir verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, s.s. vegna stofn- kostnaðar, öldrunarmála o.fl. Í þess- ari vinnu munum við einnig ræða um áhrif skattalegra breytinga Alþingis á fjárhag sveitarfélaganna, þ.m.t. áhrifin af gríðarlegri fjölgun einka- hlutafélaga,“ sagði Vilhjálmur í sam- tali við Morgunblaðið. Tekjutap sveitarfélaga vegna fjölgunar einkahlutafélaga Viðræður við sveit- arfélögin á döfinni SUMARBÚSTAÐUR á Vatnsleysuströnd brann til kaldra kola aðfaranótt sunnu- dags. Slökkviliðinu í Reykja- nesbæ barst tilkynning um að eldur væri í húsinu kl. 23.05 og þegar komið var á staðinn skíðlogaði í bústaðnum. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins en vakt slökkviliðs- manna var við rústirnar fram til kl. sex á sunnudagsmorg- un. Enginn var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en samkvæmt upplýsingum slökkviliðs hafði húsráðandi verið þar með matarboð fyrr um kvöldið. Bústaðurinn, sem er um fimmtíu fermetrar að flatar- máli, er gjörónýtur eftir brun- ann. Eldsupptök eru óþekkt. Sumar- bústaður gjörónýt- ur eftir bruna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.