Morgunblaðið - 18.08.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 18.08.2003, Síða 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍR bátar lögðu af stað í gær til hrefnuveiða í vísindaskyni. Sig- urbjörg BA-155 fór fyrst úr höfn í fyrrinótt frá Reykjavík, Njörður KO 7 fór um miðjan dag í gær frá Kópavogshöfn og síðdegis leysti Halldór Sigurðsson ÍS-14 festar á Ísafirði á leið á miðin. Mikil leynd hvílir yfir því hvar bátarnir eru á veiðum en þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt hafði engin hrefna verið veidd. Þó hafði sést til nokk- urra dýra á Faxaflóa og Ísafjarð- ardjúpi. Gefa átti út fréttatilkynn- ingu þegar fyrsta hrefnan hefði verið veidd og er talið líklegt að það gerist í dag. Halldóri Sigurðssyni ÍS var reyndar snúið fljótlega við til hafn- ar vegna smávægilegrar bilunar en fór út aftur um kvöldmatarleytið í gær. Um borð í bátunum þremur eru alls 16 manns, þar af sex vís- indamenn frá Hafrannsóknastofn- un, tveir í hverjum báti. Erlendir frétta- og myndatökumenn fóru í humátt út Faxaflóann á eftir Nirði í gær á tveimur hvalaskoðunarbát- um, Eldingu II úr Hafnarfirði og Gesti frá Njarðvík. Hafrann- sóknastofnun hefur ekki viljað heimila myndatökur um borð í hrefnuveiðibátunum og gefið þau fyrirmæli að aðrir bátar komi ekki nær en eina sjómílu til að trufla ekki veiðarnar. Aðspurður af hverju þessi leynd væri yfir veiðunum sagði Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, að það væri fyrst og fremst gert af öryggisástæðum. Ljóst væri að of mikil nálægð ann- arra báta truflaði veiðarnar, skot- vopnin væru hættuleg og engin áhætta því tekin. Vísinda- og veiði- menn yrðu að fá svigrúm til að sinna sínum störfum. Vonaðist Jó- hann til þess að fjölmiðlar myndu sýna þessum aðstæðum skilning þannig að veiðarnar gætu farið fram óhindraðar. Varðandi synjun á beiðni fjölmiðla um myndatökur um borð í hrefnuveiðibátunum sagði Jó- hann það vera af svipuðum ástæð- um, auk þess sem ekki væri pláss fyrir fleiri menn um borð og engin aðstaða fyrir myndatökumenn. Ekki lá fyrir í gær hve lengi bát- arnir yrðu að veiðum að þessu sinni. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu mega bátarnir veiða 38 hrefnur í þessum mánuði og til loka þess næsta. Samkvæmt áætlun Hafrannsóknastofnunar verður veiðunum dreift á níu svæði um- hverfis landið í hlutfalli við mergð hrefnu á svæðunum samkvæmt talningum undanfarinna ára. Flest- ar hrefnur, eða tíu, á að veiða vest- ur af landinu í Faxaflóa og Breiða- firði. Bátarnir geta hver um sig veitt allt að þrjár hrefnur í hverri ferð. Um borð í bátunum fer fram sýnataka og krufning á hrefnunum, en þær verða svo unnar í landi og kjötið loks selt á neytendamarkað. Ekki náðist samband við Sig- urbjörgu BA í gær en leiðangurs- stjóri um borð í Nirði er Droplaug Ólafsdóttir. Hún sagði við Morgun- blaðið í gærkvöldi að fljótlega eftir að komið var út á Faxaflóann í gær hefði sést til nokkurra hrefna en vegna of mikillar nálægðar við bátana sem eltu Njörð hefði ekki verið hægt að skjóta á dýrin. Bát- arnir hefðu síðan fært sig fjær en þó enn verið í humátt á eftir. „Við erum bara hérna á léttri siglingu fyrir utan að kanna aðstæður fyrsta daginn. Við munum gefa okkur þann tíma sem við þurfum,“ sagði Droplaug. Hrefnuveiði- bátar héldu til veiða í gær Mikil leynd yfir veiðunum en einum bátnum veitt eftirför af erlendum fréttamönnum AP Hvalaskoðunarbáturinn Elding II sigldi út Faxaflóann í gær í humátt á eftir hrefnuveiðibátnum Nirði KO 7. Um borð í Eldingu voru m.a. fréttamenn og myndatökumenn AP-fréttastofunnar. Hrefnurnar létu sjá sig en áhöfn Njarðar mundaði ekki skotvopnin vegna nálægðar Eldingar og annars hvalaskoðunarbáts, Gests. ERLENDIR fjölmiðlar sýna margir hverjir hrefnuveiðum Íslendinga töluverðan áhuga. Umfjöllun um veiðarnar var að finna í gær á vefsíðum margra af stærstu fréttastofum heims, s.s. BBC, Reuters, AFP og AP, auk dagblaða á Nýja-Sjálandi, í Bandaríkjunum og á Norður- löndunum, einkum í Svíþjóð. Í umfjölluninni er m.a. minnst á það að 14 ár séu liðin síðan Íslendingar stunduðu síð- ast hvalveiðar og að með þeim sé fylgst gaumgæfilega af nátt- úruverndarsamtökum og hvalaskoðunarfyrirtækjum. Á einni vefsíðunni segir t.d. eitt- hvað á þá leið að fyrsti hval- veiðibáturinn hafi „skriðið úr höfn í skjóli nætur“. Mikill áhugi erlendra fjölmiðla RAINBOW Warrior, flaggskip um- hverfisverndarsamtaka Grænfrið- unga, er væntanlegt til Íslands síðar í mánuðinum vegna hrefnuveiða Ís- lendinga í vísindaskyni. Grænfriðung- ar hafa nokkrum sinnum komið með skip sín hingað til lands í gegnum árin og af ýmsu tilefni. Flaggskipið Rainbow Warrior, þó ekki hið sama og nú er á ferð, kom hingað til lands í jómfrúrferð sinni árið 1978. Í júní 1979 kom skipið aftur og dvaldi með tuttugu manna áhöfn við höfnina í Reykja- vík. Eftir að skip- verjar höfðu reynt að hindra veiðar íslenskra hval- veiðiskipa krafðist Hvalur hf. lög- banns á hindrun- araðgerðir Græn- friðunga í íslenskri efnahagslögsögu. Fallist var á lög- bannið en þann 18. ágúst hafði áhöfn Rainbow Warrior það bann að engu og hindraði Hval 7 í að skjóta tvo reyðarhvali um 75 sjó- mílur suðvestur af Reykjanesi. Græn- friðungar höfðu farið í gúmmíbát frá Rainbow Warrior og héldu sig á milli hvalanna og hvalbátsins, svo ekki var hægt að skjóta hvalina. Varðskipið Ægir var þá sent á staðinn. Í fyrstu sinnti áhöfn breska skips- ins hvorki skipunum varðskipsins um að stöðva eða draga gúmmíbátinn til baka. En er áhöfn Rainbow Warrior sá að varðskipið mannaði bát, stöðv- aði hún skip sitt og gúmmíbátur Grænfriðunga hvarf til skips síns. Varðskipið sendi þá fjóra menn um borð í Rainbow Warrior og lokuðu þeir loftskeytastöð skipsins. Það var síðan dregið til Reykjavíkur og hafði þá aðalgúmmíbátur hvalaverndar- manna verið tekinn um borð í varð- skipið. Sex árum síðar var Rainbow Warrior sökkt í höfninni í Wellington í Nýja-Sjálandi af frönsku leyniþjón- ustunni. Grænfriðungar boðuðu komu sína aftur árið 1986, til að halda uppi mót- mælum gegn kjarnorkuvígbúnaði, er leiðtogafundur stórveldanna var haldinn í Reykjavík. Skip Grænfrið- unga, Sirius, kom hingað til lands 11. október, en var meinað að leita hafnar í Reykjavík. Í Morgunblaðinu 11. október 1986 er haft eftir Jóni Helgasyni, þáver- andi dómsmálaráðherra, að Græn- friðungum hafi verið sagt að Íslend- ingar hefðu ekkert á móti komu þeirra, en sömu reglur giltu fyrir þá og aðra sem leituðu eftir plássi í Reykjavíkurhöfn á meðan á leiðtoga- fundinum stæði. Daginn eftir lét Sirius úr höfn í Hafnarfirði og sigldi í átt til Reykja- víkur. Þyrla Landhelgisgæslunnar var umsvifalaust send af stað til að fylgjast með ferðum skipsins og þeg- ar það reyndi að sigla inn fyrir hafnarmörk stöðvuðu varð- skipin Týr og Óð- inn för þess. Um borð í skipinu voru 14 skipverj- ar og myndatöku- fólk frá Visnews- fréttastofunni. Ætlun Grænfrið- unga var að sigla inn fyrir hafnar- mörkin og festa borða á skipið þar sem á stæði: „Veröldin krefst þess að samið verði um tilrauna- bann.“ Varðskipið Týr sigldi upp að hlið Siriusar og strukust skipin saman. Bógur varðskipsins Óð- ins var lagður að Siriusi og stukku 12 varðskipsmenn um borð og tóku skip- ið. Óðinn og Sirus sigldu út í Stakks- fjörð og þar var skipið látið liggja þar til leiðtogafundinum lauk rúmum sól- arhring síðar. Árið 1990 komu Grænfriðungar til Íslands á skipinu Solo til að kynna baráttu samtakanna gegn losun geislavirks úrgangs í sjó. Samskipti þeirra og Íslendinga voru á friðsam- legu nótunum í það skipti. Grænfriðungar boða komu Rainbow Warrior til Íslands Varðskipin hafa tvívegis tekið skip Grænfriðunga Varðskipin Týr og Óðinn króuðu Sirius af út af Stakksvík í október 1986, en skipið var þá að reyna að komast frá Hafnarfirði til Reykjavíkur þar sem leiðtogafundur Reagans og Gorbachevs stóð sem hæst. Grænfrið- ungar höfðu hug á að koma mótmælum á framfæri við heimspressuna. MIKILL mannfjöldi var saman kominn til að fylgjast með sýning- aratriðum á flughátíðinni á Reykja- víkurflugvelli síðdegis á laugardag- inn. Flugleiðir, Icelandair, Flugfélag Íslands og fjölmargir aðrir tengdir flugstarfsemi stóðu að hátíðinni, sem var hluti af dag- skrá menningarnætur, til að fagna 30 ára afmæli Flugleiða, 100 ára af- mæli flugs í heiminum og 60 ára af- mæli „þristsins“, DC3-flugvélar- innar sögufrægu. Boðið var upp á margs konar flugsýningaratriði, listflug, kar- amellukast úr flugvél fyrir krakka, aðflug og lendingu Boeing 757 þotu, svifflug o.m.fl. Auk þess var sýning á jörðu niðri á um tuttugu áhugaverðum flugvélum, sumum sögufrægum en öðrum sérstæðum. Þess er nú minnst um allan heim að eitt hundrað ár eru liðin frá því að bræðurnir Wilbur og Orville Wright urðu fyrstir manna til að fljúga vélknúinni flugvél við Kitty Hawk í Norður-Karólínufylki í Bandaríkjunum. Morgunblaðið/Sverrir Reykjarstrókurinn gerði listflugið enn áhrifameira. Fjölmenni á flugsýningu Flugleiðir, Icelandair, Flugfélag Íslands og fjölmargir aðilar tengdir flug- starfsemi halda flughátíð á Reykjavíkurflugvelli til að fagna 30 ára afmæli Flugleiða, 100 ára afmæli flugs í heiminum og 60 ára afmæli „þristsins“, DC3-flugvélarinnar sögufrægu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.