Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 14

Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 14
UMRÆÐAN 14 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R INánari upplýsingar á www.fujifilm.is S k i p h o l t i 3 1 , R e y k j a v í k , s : 5 6 8 0 4 5 0 ı K a u p v a n g s s t r æ t i 1 , A k u r e y r i , s : 4 6 1 2 8 5 0 M y n d s m i ð j a n E g i l s s t ö ð u m ı F r a m k ö l l u n a r þ j ó n u s t a n B o r g a r n e s i ı F i l m v e r k S e l f o s s i Fujifilm stafrænar myndavélar, framúrskarandi myndgæði – frábært verð. MYNDARLEGT TILBOÐ 3.24 milljón virkir dílar. Ljósnæmi ISO 100. 6x aðdráttarlinsa (38-228mm). Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn meiri aðdrátt (342mm). Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði. Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30 sek á hverja mynd. Notar nýju x-D minniskortin. Hægt að taka allt að 300 skot á venjulegar AA Alkaline rafhlöður! Allt sem þarf til að byrja fylgir Verð kr. 59.900,- S304 4 kynslóð af Super CCD HR. 3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að 2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla! Fjöldi myndatökumöguleika; s/h, króm, runur osfrv. Ljósnæmi ISO 200-800. 3x aðdráttarlinsa (38-114mm) auk stafræns aðdráttar. Með F hnapp sem auðveldar allar myndgæða stillingar. Tekur kvikmyndir 320x240 díla, 10 rammar á sek., upp í 120 sek í einu. Hægt að tala inn á myndir. Lithium Ion hleðslurafhlaða og hleðslutæki fylgir. Notar nýju X-D minniskortin. 165 g án rafhlöðu. Verð kr. 49.900,- F410 4 kynslóð af Super CCD HR. 3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að 2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla! Ljósnæmi ISO 100/200/400/800 (800 í 1M). 3x aðdráttarlinsa (38-114mm). Hægt að taka allt að 250 skot á venjulegar AA Alkaline rafhlöður! Tekur allt að 120 sek kvikmynd (án hljóðs). Notar nýju x-D minniskortin. Hægt að fá vöggu. Allt sem þarf til að byrja fylgir. 155 g án rafhlöðu. Verð kr. 39.900,- A310 STÆRSTA RAFTÆKJAVERSLUN LANDSINS! VELDU LÆGSTA VERÐIÐ! VELDU EXPERT! ÉG er sérfræðingur í augna- brúnablýöntum! Ekki af því ég sé snyrtifræðingur eða hafi sérstakan áhuga á svona blý- öntum, heldur af því að ég hef þurft að nota óvenju marga augnabrúnablýanta undanfarin ár. Ég hef verið í krabba- meinsmeðferð og af þeim sökum misst hárið, augabrúnir og augnhár tvisvar sinnum, og þá koma augnabrúnablýantar í góðar þarfir. Það er mikil kúnst að teikna fal- legar augabrúnir og það getur tekið nokkrar mínútur. Nú vill svo til að ég er kona á besta aldri sem hef mikið að gera og þarf oft að rjúka út úr húsi með stuttum fyrirvara. Og stundum lendi ég í því að vera komin á fund niður í bæ – augnabrúnalaus! Það var þess vegna sem hjarta mitt fylltist mikilli gleði og bjartsýni um betri tíma þegar ég sá auglýsingu um „tattóveraðar“ augabrúnir og augnlínur. Þetta sá ég að myndi leysa öll mín vandamál og koma í veg fyrir fleiri vandræðaleg augnablik með eina eða engar augabrúnir víðs- vegar um bæinn. En þegar vingjarn- lega konan á snyrtistofunni sagði mér verðið á þessum aðgerðum runnu á mig tvær grímur. Þær kostuðu meira en venjuleg ferð á snyrtistofu. Þá datt mér snjall- ræði í hug! Tryggingastofnun leggur út fyrir hárkollum handa mér og öðr- um konum sem missa hárið í krabba- meinsmeðferð. Og ekki bara einni heldur tveimur á ári! Sem er auðvit- að frábært fyrir þær konur sem hentar að nota hárkollur. Ég er aftur á móti ekki ein þeirra. En nú hugsaði ég með mér að auðvitað gæti ég beð- ið Tryggingastofnun að leggja út fyr- ir augabrúnum í stað hárkollunnar. Þetta þótti mér þjóðráð og ég var viss um að Tryggingastofnun yrði mér sammála. Ég ræddi þetta við lækninn minn og í mínu nafni skrif- aði hann þeim bréf þar sem farið var fram á að í stað stuðnings til hár- kollukaupa fengi ég styrk til var- anlegrar augnabrúnagerðar. Ég var strax farin að hlakka til að spóka mig um bæinn með „tattóveraðar“ auga- brúnir. Eftir nokkrar vikur var Tryggingastofnun búin að hugsa málið og svarið var NEI! Þetta þótti ekki góð hugmynd. Trygg- ingastofnun var ekki tilbúin að leyfa mér að meta sjálf hvort mig vantaði meira augabrúnir eða hárkollur. Stofnunin vildi sjálf taka þá ákvörð- un fyrir mig að ég fengi mér hárkollu og ekkert annað en hárkollu!! Nú veit ég að reglurnar um greiðslur fyrir hárkollur voru á sín- um tíma settar í góðri trú og á þeim tímum sem hárleysið var konum í krabbameinsmeðferð þungur baggi. En sem betur fer hafa tímarnir breyst og yngri konum gengur æ betur að finna ýmsar skemmtilegar leiðir framhjá hárleysinu. Það er þess vegna sem þessar reglur eru svo rykfallnar að það setur að manni hnerra við að reka sig á þær. Og þetta er reyndar í annað sinn sem ég fæ svona hnerrakast, því önnur reglugerð Tryggingastofnunar mæl- ir svo fyrir að konur sem þurfa að notast við gervibrjóst skuli fá stuðn- ing til kaupa á tveimur sérhönnuðum brjóstahöldum og einu gervibrjósti árlega. Í einfeldni minni reiknaði ég með að í þessu fælist kaup á öllum tegundum brjóstahalda sem konur þurfa að nota, þar með talið sundföt- um. En það reyndist miskilningur hjá mér. Ég get ekki ráðið því sjálf hvort ég nýti þennan árlega stuðning í kaup á gervibrjósti og sérhönn- uðum brjóstahöldum eða sundfötum. Því að sjálfsögðu þurfum við sér- hönnuð sundföt. Það segir sig sjálft og þau eru ekki á útsölu í Hag- kaupum! Þó eru konur sérstaklega hvattar til að stunda sund eftir brjóstamissi. Það eru takmörk fyrir hversu mörgum gervibrjóstum hver kona þarf á að halda og eftir nokk- urra ára meðferð er hætta á að þau fari að hlaðast upp hjá henni, ef hún nýtir sér þennan rétt á hverju ári! Ég treysti mér alveg til að meta það sjálf hvort ég hef meiri þörf fyrir nýj- an brjóstahaldara eða sundbol hverju sinni og ég treysti mér líka til að ákveða sjálf hvort ég vil ganga með hárkollu eða „tattóveraðar“ augabrúnir. Í raun og veru tel ég það mannréttindamál að ég fái sjálf að meta hvers konar stuðning ég hef mesta þörf fyrir á hverjum tíma. Hvort heldur það eru hárkollur, hatt- ar með sólvörn, tattóvering, gervi- brjóst, sundföt eða brjóstahaldarar. Og hvað með þá karlmenn sem missa hárið í krabbameinsmeðferð? Eru þeir líka skikkaðir til hárkollukaupa? Konur (og menn) í krabbameins- meðferð ættu að eiga rétt á því að meta sjálfar hverskonar stuðning þær hafa mesta þörf fyrir á hverjum tíma. Ég hvet þá sem þarna halda um taumana að leiðrétta þessa tíma- skekkju svo einstaklingar í krabba- meinsmeðferð geti ráðið útliti sínu sjálfir. Sköllóttar konur hugsa svo skýrt! Sköllóttar konur hugsa skýrt Eftir Önnu Pálínu Árnadóttur Höfundur er sköllótt söngkona í krabbameinsmeðferð. UMRÆÐUR um fjölda heim- ilislausra í Reykjavík að undanförnu hafa meðal annars leitt til þess að formaður félags- málaráðs og heil- brigðisráðherra hafa ákveðið að skipa starfshóp vegna málsins. Hlutverk hópsins er að kort- leggja fjölda heim- ilislausra og vanda þeirra og að því loknu að koma með tillögur til úr- bóta. Ekki hefur komið fram hverjir munu skipa hópinn eða hvenær hon- um er ætlað að ljúka störfum. Lög um húsnæðismál Í umræðunni hefur hins vegar lít- ið verið fjallað um lagalegt hlutverk Reykjavíkurborgar. Samkvæmt lög- um nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga er markmið hennar m.a. að tryggja fjárhagslegt og fé- lagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar. Í 45. grein laganna segir að sveitar- stjórnir skuli, eftir því sem kostur er, tryggja framboð af leiguhúsnæði handa þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir hús- næði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra fé- lagslegra aðstæðna. Í 46. gr. sömu laga segir að félagsmálanefndir skuli sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru fær- ir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðis- málum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn. Sem dæmi um slíka úrlausn mætti nefna að Félagsþjónustan í Reykjavík hefur nýlega gert samn- ing við Samhjálp um rekstur heim- ilis fyrir heimilislausa Reykvíkinga. Reykjavíkurborg laus við lagaskyldur? Það er með ólíkindum að kastljós- inu skuli ekki hafa verið beint að þessum lagagreinum og að starfs- hópur formanns félagsmálaráðs og heilbrigðisráðherra skuli ekki eiga að taka mið af þeim. Því er ástæða til að spyrja hvort þær hugmyndir séu uppi hjá formanni félagsmálaráðs að Reykjavíkurborg verði leyst undan skyldum samkvæmt þessum laga- greinum. Eða er með starfshópnum verið að beina athygli frá ótvíræðri lagaskyldu Reykjavíkurborgar til að taka skipulega á vanda húsnæðis- lausra? Þýðir skipan starfshópsins að ekki eigi að halda áfram á þeirri braut að eiga samstarf við samtök eins og Samhjálp? Fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins í félagsmálaráði hafa óskað eftir nákvæmum upplýs- ingum um lagalegt hlutverk Reykja- víkurborgar í þessu sambandi. Heimilislausir í Reykjavík Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur Höfundur er fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í félagsmálaráði. ÞÁ ERUM við gömlu, góðu víkingarnir risnir upp á afturfæt- urna, reiðubúnir að sýna um- heiminum hvers við erum megn- ugir. Í algjöru trássi við vilja al- þjóðasamfélagsins ætlum við stoltu sæfarendurnir að hefja hvalveiðar að nýju. Nú getum við meira að segja státað af göfugri hvötum en forfeður okkar sem hjuggu mann og annan. Það er ekkert minna en fróðleiksþorstinn sem knýr okkur áfram og slík er vísindaást okkar orðin á seinni tímum að við hlustum ekki á neitt tilfinn- ingakjaftæði stórborgarbúa sem aldrei hafa migið í saltan sjó. En kannski er ástæða til að staldra við og spyrja hvað það er sem við viljum vita og hverjir æskja þess, áður en aðrar siðmenntaðar þjóð- ir stimpla okkur sem einskæra villimenn. Vísindafúsk Fremst í flokki fróðleiksfúsra fer Hafrannsóknarstofnunin með Gísla Víkingsson sem fánabera. Ætlunin er að rannsaka m.a. magainnihald hrefna til að kom- ast að því hvað þær eru duglegar að éta okkur þurfalinga út á gaddinn. Nú gæti hver sæmilega viti borinn maður ætlað að 38 hrefnur sem veiddar eru hist og her duga engan veginn til að komast að nokkurri haldbærri niðurstöðu um átið. Hvorki að- ferðafræðilega né tölfræðilega. En látum það vera þar sem þeim forvitnu hjá Hafró gengur jú gott eitt til og eru ekki á nokkurn hátt að láta stjórnast af ut- anaðkomandi hagsmuna- samtökum. Segjum sem svo að Gísli gramsi í nokkrum hrefnumögum og komist að því að hlutfall þorsks sé 6%. Eða heil 60%! Hvað ætlum við að gera með þá vitneskju? Miðað við fyrri reynslu og yfirlýsingar æðstu stjórnmálamanna, sjómanna, út- vegsmanna og næstum allra af- komenda hinna hugdjörfu vík- inga, þá verður niðurstaðan aðeins ein. Við verðum að við- halda jafnvæginu í hafinu og vernda nytjastofna okkar svo að hvalirnir éti okkur ekki út á gaddinn. Við verðum að veiða hvalina. Jafnvægisþvaður Hér þykir mér rétt að ítreka við alla líffræðinga landsins sem þagað hafa þunnu hljóði yfir þesssari vitleysu og bæði hjá Hafró en þó ekki síður Háskóla Íslands. Og lesið nú hægt og ró- lega: Það er ekkert jafnvægi í hafinu!! Ég endurtek fyrir þá sem misstu af þessu: Það er ekk- ert jafnvægi í hafinu! Hverjir þeir sem eru haldnir einhverjum órum um að við getum stjórnað slíku ímynduðu jafnvægi vil ég gefa eftirfarandi ráð: Þið getið eins pissað í sjóinn til að bæta „jafnvægið“. Reyndar vil ég ganga lengra og skora á hvaða líffræðing sem er að sanna að það ríki jafnvægi í hafinu. Ég skal éta úreltan tog- ara takist það að mati jafningja hans. Það er kannski tilhlýðilegt að árétta að fyrir nokkuð löngu síðan kom út merkileg bók sem heitir: „Um uppruna tegund- anna“ eftir Charles nokkurn Darwin. Samkvæmt henni þá eiga hundrað þúsundir tegunda í hat- rammri lífsbaráttu í hafinu. Þessi staðreynd virðist hafa farið fram hjá starfsmönnum Hafró. Þeir þykjast geta pakkað ástandinu í hafinu inn í kostulegt „Fimm stofna líkan“ og túlkað að eigin hentisemi. Í líkaninu er ekki einu sinni að finna afkastamestu nytjafiskiætur innan íslensku lög- sögunnar, þ.e. aðra ránfiska. Kaupahéðnar framtíðar Vilji Íslendingar hefja hval- veiðar að nýju er engin ástæða til að bera fyrir sig slíkt þvaður um jafnvægi hafsins. Það þarf ekkert annað en að byrja. Þegar hefur komið fram að til staðar er dug- mikill kaupsýslumaður sem brot- ist hefur úr sárri fátækt af eigin rammleik (þó hann sé reiðubúinn að níða skóinn af öðrum frum- kvöðlum), sem er reiðubúinn að selja hvalkjöt af því að hann veit um kaupendur. Þó að svo vilji til að umrædd dýr séu á alþjóð- legum válistum og enginn vilji kaupa hvalkjöt. Alveg eins og fyrirfinnast menn sem selja mul- in nashyrningahorn gegn góðum hagnaði. Umfram allt góðir Íslendingar! Látum ekki aðra segja okkur fyr- ir verkum. Þeir eru ekki íslensk- ir. Stríðum, vinnum vorri þjóð! Eftir Jóhann S. Bogason Höfundur er heimspekingur og áhugamaður um líffræði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.