Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 15

Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 15
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 15 T r a u s t m e n n t u n í f r a m s æ k n u m s k ó l a Innritun Innritun 18., 19. og 20. ágúst kl. 16–19. Kennsla hefst mánudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá. Verð Hver eining er á 4.000 kr., þó er aldrei greitt fyrir fleiri en 9 einingar. Fastagjald er 4.250 kr. og efnisgjald þar sem við á. Kennsla einstakra áfanga er með fyrirvara um þátttöku. Stundatöflur eru á vefsetri skólans www.ir.is Upplýsingar í síma 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is Grunnnám tréiðna – Húsasmíði / Húsgagnasmíði Allur tréiðnaður. Verk- og fagbóklegar greinar húsgagna, innréttinga og bygginga. Grunnnám rafiðna 1. önn – Rafvirkjun 3.–7. önn / Rafeindavirkjun 3. önn Raflagnir, rafstýringar, sjónvörp, tölvur og hljómtæki. Tölvubraut Helstu áfangar eru: forritun, tölvutækni, vefsmíð, stýringar, gagnasafnsfræði, netkerfi og myndvinnsla. Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Undirbúningur undir nám í grafískri miðlun, vefsmíði, ljósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi. Tækniteiknun 1. önn framhald og sérnám. Fjölbreyttir teikniáfangar, bæði á borði og tölvum (AutoCad). Almennt nám Bókfærsla 102, danska 102/202, enska 102/202/212/303, eðlis- og efnafræði NÁT 123, félagsfræði 102, íslenska 102/112/202/243/303/323, spænska 103, þýska 103, fríhendisteikning 102, grunnteikning 103/203 (106C), vélritun 101, upplýsinga- og tölvunotkun (UTN) 103. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is G Ú S T A -0 8 -2 0 0 3 Meistaraskóli Allar almennar rekstrar- og stjórnunargreinar iðnfyrirtækja. Faggreinar bygginga- greina 3. önn, fataiðna og málara. ATH. Nemendur skulu hafi lokið sveinsprófi í viðkomandi iðngrein og framvísi sveinsbréfi. Listnámsbraut – Almenn hönnun Byrjunaráfangar í kjarna og á kjörsviði almennrar hönnunar auk valáfanga, svo sem Skynjun, túlkun og tjáning; Samtímamenning í sögulegu samhengi; Tækni og verkmenning fram yfir miðja 19. öld; og Form-, efnis, lita- og markaðsfræði. Brautin er öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun. HVALVEIÐAR hafa hlotið mikla athygli almennings síðastliðna áratugi. Mótmæli gegn hvalveiðum Íslendinga hafa verið haldin í Evrópu og í Banda- ríkjunum og fólk hvatt til þess að sniðganga íslenskar sjávarafurðir. Nú stend- ur til að veiða hrefnur í vísindaskyni við strendur Íslands. Þessi ákvörðun hef- ur beint athygli erlendra fjölmiðla að Íslandi og komið af stað neikvæðri umfjöllun sem hefur bein og óbein áhrif á útflutningsgreinar s.s framleiðslufyrirtæki og ferðaþjónustu. Í markaðsfræði er oft talað um að vörumerki hafi ákveðna ímynd og sum vöru- merki seljist betur en önnur eingöngu vegna huglægs mats kaupandans á gæðum vörunnar. Vörumerki ferðaþjónust- unnar hér á landi er nafnið Ísland og allt sem nafninu tengist. Náttúra Íslands er helsta aðdráttarafl ferðamanna samkvæmt margendurteknum skoðanakönnunum Ferðamálaráðs. Það má því segja að ferðamenn leggi huglægt mat á náttúru Ís- lands sem er byggt á ímyndinni sem þeir hafa af landinu áður en þeir taka ákvörðun um að koma hingað. Hvalaskoðunarferðir við strendur Íslands með innlenda og erlenda ferða- menn byggja afkomu sína á huglægum náttúruvæntingum gesta. Fjöldi gesta í hvalaskoðunarferðum hefur aukist úr nánast engu í rúmlega sextíu þúsund á einungis tíu árum. Aukningin skýrist fyrst og fremst af eftirspurn eftir slíkum ferðum sem bjartsýnir ferðaþjónustuaðilar hafa verið duglegir að sinna. Hval- ir finnast við strendur landsins í öllum landshlutum en þekktustu hvalaskoð- unarstaðirnir hér við land eru Skjálfandi, Faxaflói og Breiðafjörður. Ég legg til að stofnað verði friðland hvala sem fyrst á þeim svæðum þar sem skipulegar hvalaskoðunarferðir fara fram. Stofnun friðlands sýndi á óyggj- andi hátt vilja stjórnvalda til þess að vernda hvali um ókomna framtíð, bætti ímynd Íslands erlendis, verndaði hagsmuni ferðaþjónustuaðila og uppfyllti væntingar ferðamanna. Við fyrstu sýn getur virst að stofnun friðlands sé ein- ungis grænþvottur á hvalveiðistefnu stjórnvalda og það að vernda nokkur svæði en leyfa veiðar á öðrum sé tvískinnungsháttur. Fordæmi eru þó fyrir slíku erlendis og hefur gefist vel. Árið 1898 var stofnsett fyrsta verndarsvæði villtra spendýra í Suður-Afríku. Verndarsvæðið var stækkað nokkrum sinnum fram til ársins 1926 þegar Krü- ger-þjóðgarðurinn var formlega stofnaður á sama stað. Í dag er Krüger- þjóðgarðurinn þekktasta griðland villtra spendýra í heimi og er heimsóttur af milljón ferðamönnum árlega. Handan þjóðgarðsgirðingarinnar eru land- areignir í einkaeign þar sem veiðileyfi á sömu dýrategundir eru seld dýrum dómum. Þrátt fyrir að sportveiði spendýra í útrýmingarhættu sé stunduð í Suður-Afríku er sjaldan minnst á hana á neikvæðum nótum. Ástæðan fyrir því að veiði viðgengst án mótmæla á alþjóðavettvangi er sú að Suður-Afríka hefur tryggt verndun spendýra til framtíðar með óyggjandi hætti með stofnunn þjóðgarða og friðlanda. Stofnun friðlands fyrir hvali kæmi Íslandi í fararbrodd þjóða um verndun hvala sem mundi að miklu eða öllu leyti vega upp neikvæða umfjöllun sjálf- bærrar veiði. Friðland hvala Eftir Stefán Helga Valsson Höfundur er leiðsögumaður og ferðamálafræðingur. ÉG HEF velt því fyrir mér fram og til baka og hvergi fundið um- komulausari hóp fólks í aðstæðum sínum en einhleypa meðlagsgreið- endur á atvinnuleysisbótum. Hlut- skipti þessa hóps er með ólíkindum. Börnin eru það dýrmætasta sem við getum eignast í líf- inu. Að vera fær um að hlúa að góðum gildum í hugum þeirra, vera þeim nálægur öllum stundum, rækta þetta fallega, góða, í samskiptunum við þau er meira en mikilvægt. Og hvenær sem tækifæri gæfist, sýnt með áhuga okkar og blíðu að þau séu elskuð og virt í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur, það kunna börnin svo sannarlega að meta. Samskipti foreldra og barna eru ómetanleg verðmæti. En það er ekki hlutskipti okkar allra að fá að hafa börnin eins nærri og við vildum og ástæðurnar fyrir því eru fjöl- margar. Einhleypir sem greiða meðlag á atvinnuleysisbótum eru í miklum vanda því yfirvöld hafa í litlu sýnt þeim skilning. Þau hafa þyngt róður þessa fólks m.a. með niðurfellingu 8. liðs 30. gr. laga nr. 75 1981 sem leyfði frádrátt helmings greiddra meðlaga frá skatti. Fjölskylduþjón- ustan gerir lítinn, ef nokkurn grein- armun á sinni aðstoð til einhleypra barnlausra eða meðlagsskyldra ein- hleypra foreldra. Ástæðan er sú að sögn þessarar velferðarþjónustu að meðlag sé ekki framfærsla barns, meðlagsgreiðandi sé ekki framfær- andi í hennar skilningi. Makalaus speki það! Á sama tíma sjáum við lagasetningar til að vernda og laga umhverfi barnsins, sem missa marks vegna vangetu foreldranna að efna skyldur sínar, því þar er ekki tekist á við sjálfa rót vandans, að barnið á sér bæði föður og móður, verð- skuldar þau bæði, hvort heldur sem þau búa saman eða eru fráskilin. Innheimtustofnun sveitarfélaga hef- ur staðið sig með sóma og reynt að hliðra til á meðan þessar erfiðu stundir ganga yfir. Oftar en ekki eru einhleypir í herbergjum um allan bæ, hafa ekki efni á íbúðum og því ekki í neinni aðstöðu til að bjóða börnunum heim til sín. ASÍ hefur lýst yfir áhyggjum sínum af þessum hópi fólks í tillögum sínum um „Vel- ferð fyrir alla.“ Það hlýtur að vera skelfilegur dómur þegar foreldri, meðlagsgreiðandi, getur ekki vegna ómöguleika í fjármálum sínum sinnt skyldu sinni, boðið barninu til sín eða heimsótt það og gert eftir- minnilegan dag t.d. með bíóferð. Barnið er ekki síður þolandi þessara aðstæðna að þurfa að skilja eitthvað óskiljanlegt í aðstæðum pabba eða mömmu sem komi í veg fyrir nálægð þeirra á milli þessa eða hina helgina. Við megum alveg leiða hugann að því ef svona aðstæður endurtækju sig oft gæti barnið farið að velta fyr- ir sér hvort brestur væri kominn í væntumþykjuna eða aðrar daprar kenndir sótt svo á að það myndi hafa niðurbrotsáhrif á nám þess og/eða sálarlíf. Auðvitað er það rétt sem sagt er að þessar meðlagsgreiðslur eru ekki mikið að taka við, en sú upphæð get- ur verið töluvert að borga og sér- staklega fyrir þá sem atvinnulausir eru. Mig langar til að setja hér upp einfalt dæmi um mann á atvinnu- leysisbótum, fráskilinn, sem er þriggja barna faðir. Þennan föður langar til að gera meira fyrir börnin sín en að vera meðlagsgreiðandi. Hann langar til að vera ábyrgur fað- ir. Kærleikur hans, lífstilgangur og löggjafinn leggja á hann skyldur að axla ábyrgð og sinna sínum þætti uppeldisins. Hámarks atvinnuleys- isbætur í dag eru 77.000 krónur á mánuði. Af þeirri upphæð þarf að borga skatt (skattleysismörk 69.000 kr.) og svo þarf að borga í lífeyris- sjóð og stéttarfélag (samtals 5%) því annars skerðir viðkomandi rétt sinn ef hann yrði aftur atvinnulaus eða þyrfti á lífeyri að halda. Hér erum við komin nærri 69.000, kr. á mánuði sem ráðstöfunartekjur. En faðirinn á þrjú börn og ríkið eykur því við bætur hans um 4% með hverju barni og því þarf hann aðeins að borga 15.000, kr. í meðlag með hverju og einu á mánuði (samtals 45.000, kr.). Hér getum við reiknað út að það séu réttar 20.000 krónur sem pabbanum eru ætlaðar til að lifa af og sinna skyldum sínum gagnvart börnunum. Svo vonlaus er staða þessa manns gagnvart sjálfum sér hvað þá að hann sé fær um að axla ábyrgð gagnvart börnunum sínum að það er hreint með ólíkindum að þetta dæmi skuli vera veruleiki einhvers, hér á meðal, í okkar velferðarsamfélagi. Áþekk dæmi eru líka til hjá öðrum hópum samfélagsins og þarf ekki at- vinnuleysi til. Hér á ég við foreldra langveikra barna, námsfólk með börn og ungar barnafjölskyldur. Eftir er þó að telja upp hinn stóra hóp fólks sem lifir á ystu nöf við hlið fátæktarmarkanna, oftar en ekki á strípuðum launatöxtum. Þessum láglaunatöxtum hafa stjórnarliðar státað af við fjölmiðla að innihéldu mesta kaupmáttarauka O.E.C.D.- ríkja í prósentum talið. En hvað eru 40% af litlu í samanburði við 15% af viðunandi? Það er spurningin! Þetta er aðeins ein blekkingin enn af mörgum sem ætluð er okkur al- menningi þessa lands. Velferð fyrir alla? Eftir Baldvin Nielsen Höfundur er stýrimaður í Reykja- nesbæ og situr í landsráði Frjáls- lynda flokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.