Morgunblaðið - 18.08.2003, Qupperneq 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 19
DANSKIR dagar, bæjarhátíð
Hólmara, voru haldnir í Stykkis-
hólmi í ellefta skipti um helgina.
Hátíðin gekk mjög vel og eru að-
standendur hennar mjög ánægðir
með hvað hún tókst vel í alla staði.
Ekki var veðurspáin uppörvandi
fyrir helgina og á föstudag var
grenjandi rigning. Seinnipartinn
stytti upp og gerði blíðu og á
sunnudag var sól og hiti.
Á föstudagskvöld voru hverfa-
skemmtanir, þar sem hvert hverfi
eða gata skipulagði dagskrá þar
sem íbúarnir mættu og grilluðu
saman. Var mjög góð og almenn
þátttaka. Hverfin lögðu metnað í
skreytingar og voru verðlaun veitt
því hverfi sem stóð sig best. Verð-
laun hlutu íbúar Silfurgötu.
Skemmtidagskráin fór fram á
laugardag og var mikið um að vera
allan daginn og fram á nótt.
Bryggjuball var um kvöldið og
flugeldasýning á miðnætti. Danski
varasendiherrann setti hátíðina og
síðan tók við hvert atriðið á fætur
öðru. Stjörnuleitina, sem var
söngvakeppni unglinga, vann Ásta
Hermannsdóttir, 16 ára stúlka úr
Hólminum. Á sunnudag var dönsk
messa í gömlu kirkjunni þar sem
sr. Guðjón Skarphéðinsson mess-
aði.
Fjöldi gesta heimsótti Stykkis-
hólm um helgina, bæði brottfluttir
Hólmarar og aðrir sem vildu taka
þátt í Dönskum dögum. Meira var
um fjölskyldufólk en oftast áður og
voru tjaldsvæðin fullbókuð af felli-
hýsum og húsbýlum.
Umsjón með hátíðinni höfðu ein-
staklingar í Hólminum sem buðu
sig fram til að annast skipulag og
framkvæmd hátíðarinnar. Þeir
skiluðu góðu starfi, því góður andi
ríkti á Dönskum dögum þetta árið.
Góðir Danskir dagar í
Hólminum um helgina
Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Það voru karlmennirnir sem stóðu sig vel við grillið í Lágholtinu á föstu-
dagskvöld og sýndu hverfisbúum að þeir höfðu áður komið að því.
Lionsmenn halda uppboð á notuðum munum og rennur ágóðinn í líknar-
sjóð klúbbsins. Uppboðshaldari hvatti menn til að vera duglega að bjóða í.
ÁSA Georgsdóttir í Miðhúsum í
Breiðuvík hefur mörgum sagt til
vegar út á einhverja fegurstu fjöru
þessa lands. Fjöru Björns Breiðvík-
ingakappa Ásbrandssonar, frá
Kambi. Þess sem meiri vinur var
húsfreyjunnar að Fróðá en goðans
að Helgafelli, bróður hennar. Sam-
anber frásögn Eyrbyggju.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Fjara
undir jökli
Snæfellsnes
SÍÐASTLIÐINN laugardag var nýr
níu holu golfvöllur opnaður í landi
Hellishóla í Fljótshlíð með teighöggi
Sveinbjörns Jónssonar. Hörður Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri Golf-
sambandsins, var í fyrsta hollinu
sem lék völlinn og lét hann afar vel af
vellinum og allri aðstöðu.
Par vallarins miðað við níu holur
er 36, fimm brautir par fjórir, tvær
par þrír og tvær par fimm. Brautir
frá gulum teigum eru samtals 2.506
metrar og rauðum 2.200 metrar.
Lengsta braut frá gulum teig er 475
m og sú stysta 118 m. Sérstaða þessa
vallar er einkum fólgin í miklum og
mörgum vatnstorfærum sem eru
tjarnir, lækir og sjálf Þverá, enda
ber golfklúbburinn nafn árinnar.
Hönnuður vallarins er Guðlaugur
Georgsson.
Eigendur vallarins eru hinir stór-
huga ferðaþjónustubændur á Hellis-
hólum, hjónin Svanur Lárusson og
Sigurborg Óskarsdóttir. Á Hellishól-
um er nú komin kjöraðstaða fyrir
golfáhugafólk, skemmtilegur völlur,
góður golfskáli með veitingaþjón-
ustu og gistiþjónusta í 19 smáhýsum.
Öflug ferðaþjónusta í Fljótshlíð
Fljótshlíðingar eru vel í stakk
búnir til að taka á móti ferðafólki og
veita því góða og holla afþreyingu.
Auk Hellishóla er ferðaþjónusta í
Fljótshlíð í Smáratúni og á Breiða-
bólstað að ógleymdu Kaffi Lang-
brók. Í Smáratúni eru fjórir stórir
sumarbústaðir, fjögur smáhýsi, tíu
tveggja manna herbergi, veitinga-
salur og hestaleiga. Einnig er hægt
að renna fyrir fisk og skjóta gæs. Á
Breiðabólstað er gistirými í vel bún-
um skála fyrir 20 til 30 manns og eitt
tveggja manna herbergi. Kaffi
Langbrók, sem bæði er kaffi- og vín-
veitingahús, er afar vinsæll áninga-
staður ferða- og heimamanna.
Morgunblaðið/Önundur S. Björnsson
Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri Golfsambandsins (fyrir miðju)
færði Hellishólahjónunum veglegan blómvönd í tilefni opnunarinnar.
Nýr golfvöllur opnaður
á Hellishólum í Fljótshlíð
Fljótshlíð
FYRSTA skóflustungan að nýju
húsi Verkalýðsfélags Borgarness
var tekin í liðinni viku. Húsið á að
rísa við Sæunnargötu 2a á svoköll-
uðu „Sýslumannstúni“ og var það
Sveinn G. Hálfdánarson, formaður
verkalýðsfélagsins, sem fyrstur
lagði til atlögu við grunninn. Sveinn
bauð síðan viðstöddum til kaffisam-
sætis í Félagsbæ þar sem hann sagði
frá tildrögum þessarar húsbygging-
ar.
Frá árinu 1989 hefur verkalýðs-
félagið átt og rekið húseignina Fé-
lagsbæ sem er um 300 fermetrar.
Að sögn Sveins var álit stjórnar
verkalýðsfélagsins að ekki þyrfti 300
fermetra húsnæði til að sinna fé-
lagslegri þörf félagsins. Nærri lætur
að 30 til 40 manna salur fyrir trún-
aðarmannaráðsfundi og námskeið
ásamt skrifstofuaðstöðu útheimti
ekki meira en 130–150 fm húsnæði.
Þegar fyrirspurn kom frá fasteigna-
sala árið 2001 um hvort félagið vildi
selja húsið var ákveðið að selja það ef
viðunandi verð fengist. Í ljós kom að
Borgarnessókn hafði áhuga á Fé-
lagsbæ og staðfesti það með tilboði í
húsið í febrúar sl. Tilboðinu var tekið
og því næsta skref að huga að hent-
ugu húsnæði fyrir verkalýðsfélagið.
Fljótlega var tekin sú ákvörðun að
byggja hús á einni hæð sem væri sér-
sniðið fyrir starfsemi félagsins. Hús-
ið, sem er 156 fm, er hannað og stað-
sett þannig á lóð að auðvelt á að vera
að byggja við það ef þörf krefur síðar
meir. Arkitekt hússins er Magnús H.
Ólafsson og aðalverktaki er Sólfell
ehf. Húsið verður alfarið unnið af
heimamönnum og verður viðskiptum
og verkkaupum beint til fyrirtækja á
félagssvæði verkkaupenda.
Sólfell á að skila húsinu fullbúnu í
síðasta lagi 15. febrúar á næsta ári.
Þangað til mun verkalýðsfélagið
verða í skjóli Borgarnessóknar sem
tekur yfir sali hússins 1. september
og hluta af skrifstofum 1. október nk.
Verkalýðsfélag Borgar-
ness byggir nýtt húsnæði
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Sveinn G. Hálfdánarson tók fyrstu skóflustunguna að nýja húsinu.
Borgarnes
BLESSAÐUR karlinn hann
Þormóður var að farast úr
þunglyndi ekki alls fyrir löngu
vegna eilífrar þokubrælu. Nú
er öldin önnur og allt þung-
lyndi fokið út í veður og vind.
Hann brosir sínu blíðasta og
leikur við hvurn sinn fingur í
22 stiga hita á Eskifirði.Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þokubrælu-
þunglynd-
inu léttir
Eskifjörður