Morgunblaðið - 18.08.2003, Qupperneq 23
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 23
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Afgreiðslustarf
Olympia undirfataverzlun í Kringlunni, óskar
eftir líflegri og reglusamri starfsstúlku til af-
greiðslustarfa, á aldrinum 20-45 ára.
Heilsdagsstarf/framtíðarstarf.
Umsækjendur komi í viðtal á skrifstofu verzlun-
arinnar, Auðbrekku 24, Kópavogi mánudag
og þriðjudag kl.10—14. Umsóknir einnig mót-
teknar á olympia@olympia.is.
Auðbrekku 24, 200 Kópavogur
Sími: 564-5650 olympia@olympia.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Upphaf haustannar
Kennarafundur verður kl. 9.30 þriðjudaginn
19. ágúst.
Eldri nemendur eiga að sækja stundatöflur sín-
ar 20.—21. ágúst kl. 9.00—15.00. Á sama tíma
er hægt að sækja um töflubreytingar.
Nýnemar eiga að sækja stundatöflur sínar
kl. 10.00 miðvikudaginn 20. ágúst og þá munu
eldri nemendur sýna þeim skólann.
Kennsla hefst skv. sérstakri hraðtöflu mánu-
daginn 25. ágúst og að henni lokinni verður
skólinn formlega settur.
Innritun í fjarnám verður 26. ágúst til 1. sept-
ember. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu
skólans, www.fa.is.
Skólameistari.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Gránugötu 4—6,
Siglufirði, mánudaginn 25. ágúst 2003 kl. 13.00:
KP-248
YN-272
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
15. ágúst 2003.
Guðgeir Eyjólfsson.
Íbúð til leigu
Glæsileg nýleg „penthouse“-íbúð í hverfi 112
Reykjavík. Þrjú svefnherbergi, laus fljótlega,
lantímaleiga. Tilboð sendist á netfangið
gudbergsson@un.org með skýrum upplýsing-
um um væntanlegan leigutaka.
TIL LEIGU
Kristján 10. en ekki Kristján 9.
Í grein eftir Pétur Pétursson,
fyrrverandi þul, í Morgunblaðinu í
gær eru meinlegar prentvillur á
tveimur stöðum. Í texta og mynda-
texta er talað um Kristján 9. Dana-
konung, en þar átti að standa Kristj-
án 10. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
ÞRJÁR ungar stúlkur afhentu ný-
lega Neistanum, styrktarfélagi
hjartveikra barna, 18.155 kr. sem
þær söfnuðu með því að halda flóa-
markað.
Stúlkurnar voru yfir sig ánægðar
vegna þeirra viðbragða sem þær
fengu. Fólk var tilbúið að gefa mjög
eigulega hluti á flóamarkaðinn og
stúlkurnar fengu meðal annars gef-
ins slípirokk sem komst í hendur
nýs eiganda. Samtals söfnuðust á
flóamarkaðnum ríflega tólf þúsund
krónur en stúlkurnar bættu við eig-
in framlagi upp á sex þúsund krón-
ur. Þær sögðust hafa valið að safna
fyrir Neistann því ein þeirra þekkir
til hjartveiks barns og „svo eru allir
að safna fyrir Rauða krossinn“, eins
og þær orðuðu það. Sigþór Sam-
úelsson, formaður Neistans, veitti
peningunum viðtöku og gladdist
mjög við þessa óvæntu sendingu
stúlknanna. Peningarnir verða not-
aðir til að styrkja foreldra sem fara
með barn í aðgerð erlendis, en það
er ákaflega kostnaðarsamt og þess-
ir fjármunir munu koma sér vel.
Flóamarkaðurinn fór fram á
Garðatorgi í Garðabæ og vildu
stúlkurnar koma á framfæri þakk-
læti til aðstandenda Garðatorgs.
Sigþór Samúelsson formaður Neistans tók við gjöfinni. Frá vinstri: Una
Árnadóttir, Valdís Guðmundsdóttir, Björk Jónsdóttir og Sigþór. Stelp-
urnar eru ýmist orðnar 11 ára eða alveg að verða.
Söfnuðu til styrktar
hjartveikum börnum VERKTAKAR sýndu tveimur út-
boðum Vegagerðarinnar vegna snjó-
moksturs nokkurn áhuga er tilboð
voru opnuð nýlega. Sex tilboð bárust
í mokstur og hálkuvörn á Holta-
vörðuheiði næstu fimm árin og þrír
vildu moka snjó í Hvalfirði.
Dýjadalur ehf. í Reykjavík bauð
lægst í Holtavörðuheiði, 7,7 milljón-
ir, en áætlun Vegagerðarinnar var
einni milljón ofar. Fimm af sex til-
boðum voru undir áætlun. Hins veg-
ar voru öll tilboð yfir áætlun vegna
Hvalfjarðar en þar átti Hilmar
Ólafsson ehf. í Reykjavík lægsta boð,
1,6 milljónir króna. Áætlunin var
upp á 1,3 milljónir og útboðið mið-
aðist við tímabilið 2003–2008.
Mikill áhugi
á snjómokstri
SAUTJÁN Harley Davidson-
hjólum var ekið um Siglufjarðar-
bæ í heimsókn Harley-klúbbsins
þangað sem nú er orðinn árviss
atburður. Hópurinn kom til Siglu-
fjarðar síðla dags á föstudaginn
og ók hring um bæinn en síðan
var hjólunum stillt upp í vöru-
skemmu við höfnina þar sem
mönnum gafst kostur á að skoða
hjólin þótt ekki hefði verið form-
leg dagskrá, segir Gunnar Júl-
íusson eini siglfirski meðlimurinn
í Harley-klúbbnum.
Harley-klúbburinn skoðaði Síld-
arminjasafnið og borðaði þar síld-
arrétti. Á laugardag var m.a. siglt
í Hvanndali og Héðinsfjörð og
síðan var haldin mikil veisla þar
sem grillaður var heill grís á teini.
„Ég er búinn að vera þrjú ár í
Harley-klúbbnum,“ segir Gunnar.
„Það er alltaf jafngaman að keyra
um á Harley-hjóli, menn fá aldrei
leiða á því. Þetta eru fyrst og síð-
ast ferðahjól en þeim er þó ekki
mjög vel við íslenska malarvegi.“
Fjöldi Har-
ley-hjóla á
Siglufirði
♦ ♦ ♦
FUNDUR flokksráðs Vinstrihreyf-
ingarinnar samþykkti ályktun þar
sem lýst er vanþóknun á framgöngu
þeirra verktakafyrirtækja á vegum
Landsvirkjunar á Kárahnjúkasvæð-
inu sem víkja frá íslenskum lögum,
reglum og samningum í samskiptum
við starfsmenn.
„Ljóst er að erlenda verktakafyr-
irtækið Impregilo gerir tilraun til að
færa ýmislegt sem varðar aðbúnað,
öryggi og vinnuaðstæður og frágang
kjaramála áratugi aftur í tímann mið-
að við það sem Íslendingar eiga að
venjast. Slíkt má ekki líðast og verður
að tryggja rétt verkafólks. Fundurinn
styður heils hugar baráttu verkalýðs-
félaga fyrir úrbótum. Sérstök ástæða
er til að hafa áhyggjur af aðbúnaði og
launakjörum erlendra starfsmanna.“
VG gagnrýnir fram-
göngu verktaka