Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 24
DAGBÓK
24 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Black Prince kemur
og fer í dag.
Goðafoss kemur í dag.
Seven Seas Navigat-
or, Akraberg, Sunna
og Silvia fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur í dag,
Rán fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10. Fé-
lagsvist í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 11
boccia. Handa-
vinnustofan er opin.
Kl. 13.30 félagsvist, kl.
16 myndlist. Pútt-
völlur opinn mánudag
til föstudags kl. 9–
16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl.
9–17 fótsnyrting, kl.
10–11.30 sam-
verustund.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótsnyrting frá kl. 10.
Skrifstofa Félags eldri
borgara í Kópavogi er
opin í dag frá kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótsnyrting og mynd-
list, kl. 10–12 er versl-
unin opin, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 13
frjáls spilamennska
(brids).
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 9–16 er
handavinnustofan op-
in, kl. 9–12 myndlist,
kl. 13–16 körfugerð,
kl. 11–11.30 leikfimi,
kl. 13–16 spilað, kl. 10–
13 er verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16, félagsvist kl. 14,
kl. 9–12 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Biljarðstofan í Hraun-
seli opnuð kl. 9 á
mánudögum og
fimmtudögum,
aðra daga vikunnar kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði í
Glæsibæ. Brids í dag
kl. 13 í Ásgarði í
Glæsibæ. S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Vinnustofur
og spilasalur opinn,
dans.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á
staðnum kl. frá kl. 9–
17.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan
er opin frá kl. 9–17
virka daga, heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
fótsnyrting, kl. 10
bænastund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
13 frjáls spila-
mennska. Fótsnyrting.
Norðurbrún 1. kl. 9–
16 fótsnyrting, kl. 10–
11 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótsnyrting og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Klukkan 9
hárgreiðsla, kl. 9.30
handmennt og morg-
unstund, kl. 10 fót-
snyrting og boccia, kl.
13 frjáls spil.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Aust-
fjörðum: Birgir Hall-
varðsson, Botnahlíð
14, Seyðisfirði, s. 472
-1173; Blómabær, Mið-
vangi, Egilsstöðum, s.
471 -2230 Nesbær ehf.,
Egilsbraut 5, 740 Nes-
kaupstað, s. 477 -1115;
Gréta Friðriksdóttir,
Brekkugötu 13, Reyð-
arfirði, s. 474 -1177;
Aðalheiður Ingimund-
ardóttir, Bleiksárhlíð
57, Eskifirði, s. 476-
1223; María Óskars-
dóttir, Hlíðargötu 26,
Fáskrúðsfirði, s. 475-
1273; Sigríður Magn-
úsdóttir, Heiðmörk 11,
Stöðvarfirði, s. 475-
8854.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld
á skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl. 10–15.
Sími 568-8620. Bréfs.
568-8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftir-
töldum stöðum: Í síma
588-9220 (gíró); Holts-
apóteki; Vesturbæjar-
apóteki; Hafnarfjarð-
arapóteki;
Keflavíkurapóteki; og
hjá Gunnhildi Elías-
dóttur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á
Íslandi eru afgreidd á
skrifstofutíma í síma
552-4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig
panta á vefslóðinni
http://www.parkinson.
is/sam_minningar-
kort.asp.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást
á skrifstofu sam-
takanna á Tryggva-
götu 26 í Reykjavík.
Opið virka daga frá kl.
9–13, s. 562-5605, bréf-
sími 562-5715.
Í dag er mánudagur 18. ágúst,
230. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Og hann sagði við þá:
Hvíldardagurinn varð til manns-
ins vegna og eigi maðurinn vegna
hvíldardagsins.
(Markús 2, 27.)
Kristján Jónsson fjallarum verðhækkun
Orkuveitu Reykjavíkur á
Frelsi.is.
„Í útvarpsviðtali á
Bylgjunni á þriðjudag
sagði Alfreð [Þorsteins-
son] að aukin hlýindi
hefðu orðið til þess að sala
á heitu vatni hefði dregist
verulega saman árið 2002
og sem af er þessu ári. Var
hann þá spurður af frétta-
manni hvort neytendur
mættu búast við því í
framtíðinni að verðskráin
myndi ávallt hækka ef
hlýtt yrði í veðri. Sagði Al-
freð þá eitthvað á þá leið
að ekki væri hægt að full-
yrða neitt um slíkt. Í
Fréttablaðinu sama dag
skýrir Alfreð hækkunina á
svipuðum nótum, en bætir
við þar að hækkunin hafi
verið lögð á að tillögu for-
stjóra fyrirtækisins. For-
stjórinn hefur þó ekki
fengið tækifæri til þess að
svara því í fjölmiðlum, að
mér vitandi, þegar þetta
er skrifað.
Rekstur OR virðist sam-kvæmt þessu lúta lög-
málum veðurfars, líkt og
rekstur sjávarútvegs- og
landbúnaðarfyrirtækja,
svo dæmi sé tekið. Hins
vegar er einkennilegt að
árið 2002, þegar kosið var
til sveitarstjórna, þá minn-
ist ég þess ekki að Alfreð
hafi kveinkað sér undan
óbærilega hlýju veðri þeg-
ar staða OR bar á góma í
fjölmiðlum. Þvert á móti
talaði hann stoltur um
hversu vel rekið fyrir-
tækið væri og staða þess
væri til slíkrar fyrir-
myndar að auðvelt væri að
stunda áhættufjárfest-
ingar í stórum stíl í fyr-
irtækinu Lína.net. Ekki
rámar mig heldur í að Al-
freð hafi minnst á sam-
drátt í sölu á heitu vatni,
þegar OR flutti í sitt glæsi-
lega skrifstofuhúsnæði.
Getur verið að stjórn-arformaður OR ætti
kannski að reyna að axla
örlítið meiri ábyrgð á
þessum erfiðleikum fyr-
irtækisins frekar en að
skýla sé á bak við ytri skil-
yrði? Getur verið að hægt
hefði verið að komast hjá
þessari hækkun með skyn-
samlegri stjórnun á fyr-
irtækinu? Er möguleiki að
ekki hafi verið nauðsyn-
legt að hafa hið nýja hús-
næði fyrirtækisins jafn-
dýrt og raun ber vitni? Er
það jafnframt möguleiki
að öllu því fjármagni sem
ausið hefur verið í Línu-
.net hefði verið betur var-
ið í að mæta þessum sam-
drætti?
Sem betur fer hef égvarið sumrinu heima í
Bolungarvík, en fram-
undan er veturseta í
Reykjavík sökum háskóla-
náms. Ekki er laust við að
um mig fari ískaldur hroll-
ur (þrátt fyrir hin yfir-
þyrmandi hlýindi) er ég
hugsa til þess þegar ný-
hækkaðir reikningar
Orkuveitunnar skila sér
inn um lúguna. Þess vegna
finnst mér eðlilegt að
spyrja áðurnefndra spurn-
inga og vonast ég til þess
að fjölmiðlamenn muni
gera það einnig.“
STAKSTEINAR
Er heitt vatn mun-
aðarvara?
Víkverji skrifar...
FÁTT fer meira í taugarnar á Vík-verja en nánast ókunnugt fólk
sem af einhverjum ástæðum tekur
upp á því að kalla hann elskuna sína
eða vinuna. Stundum vill það nefni-
lega bregða við að einhverjir, gjarn-
an eldri menn, sem hann (eða reynd-
ar hún) á ef til vill fremur takmörkuð
samskipti við enda setningu á að
segja „elskan mín“ eða „vinan“. Pirr-
ar þetta Víkverja óstjórnlega og get-
ur hin besta viðkynning jafnvel
breyst í megnustu andúð í vissum til-
vikum.
x x x
VÍKVERJI gladdist því er hannlas frétt á vef Morgunblaðsins í
vikunni þar sem fram kemur að
starfsmenn borgaryfirvalda í Bristol
á Englandi hafi fengið ströng fyrir-
mæli um að hætta að kalla við-
skiptavini borgarinnar gælunöfnum
á borð við „elskan mín“ og „fjársjóð-
urinn minn“ þar sem slíkt sé ekki
faglegt. Þess í stað mun borgar-
starfsfólki gert að temja sér ávörpin
„herra“ eða „frú“.
Reyndar veit Víkverji vel að þegar
fólk notar orð á borð við „vinan“ eða
„elskan“ er oftar en ekki um hugs-
unarleysi að ræða, viðkomandi mein-
ar oft vel eða vill jafnvel vera vina-
legur. Þá skiptir líka máli í hvernig
tón orðið er sagt. Þrátt fyrir það vildi
Víkverji helst að fólk sleppti þessum
gælunöfnum, þau eru ónauðsynleg
og geta gert sumum gramt í geði.
x x x
VÍKVERJI hefur keypt ófá árs-kortin í líkamsrækt fyrir tugi
þúsunda sem síðan hafa svo verið
nýtt líklega að meðaltali tíu sinnum
yfir árið. Hann ákvað að gera ekki
sömu mistökin þetta haustið heldur
keypti sér stærðarinnar fjallahjól
sem hann hyggst nota sér til hreyf-
ingar og heilsubótar í staðinn. Hann
er á því að í hans tilfelli hafi hjólið
verið betri fjárfesting en líkams-
ræktarkortin nú þegar hann er byrj-
aður að nota gripinn því öfugt við
spriklið í leikfimisalnum er nefnilega
ári skemmtilegt að hjóla.
x x x
VÍKVERJI getur ekki orða bund-ist yfir nýju auglýsingaskilti sem
sett hefur verið upp við Kringluna.
Þar eru „lifandi“ auglýsingar látnar
„rúlla“ allan liðlangan daginn og
finnst Víkverja sem þetta uppátæki
hljóti að trufla einbeitingu öku-
manna sem aka Miklubraut í austur-
átt. Sjálfur hefur Víkverji staðið sig
að því að fylgjast með auglýsing-
unum á skiltinu er hann ekur frá
Miklubrautinni að Morgunblaðshús-
inu.
Skiltið hlýtur því að vera slysa-
gildra og finnst Víkverja með öllu
óskiljanlegt að slíkt fyrirbrigði sé
ekki bannað með lögum. Honum
finnst vont til þess að hugsa að úr
þessu verði líklegast ekkert gert í
málinu fyrr en slys hefur orðið vegna
truflunarinnar sem skiltið veldur.
Morgunblaðið/Ómar
Almenn afstaða
til varnarliðs-
mannsins – og
afbrota hans
ÞAÐ voru í sjálfu sér
mannleg mistök, að færa
varnarliðsmanninn frá
Litla-Hrauni á Keflavík-
ursvæðið. Og það má því
telja víst að varnarliðið
afhendi ekki manninn til
okkar. Þannig standa
málin nú – í sjálfheldu.
Næsta skref er því að
sýna mikla lipurð og
samningavilja frá báðum
aðilum málsins. Sennilega
verðum við Íslendingar að
halda okkur til hlés, að
svo komnu máli, og láta
það gott heita að mað-
urinn verði lögsóttur sam-
kvæmt bandarískum her-
lögum; annað er víst
óviðunandi. Þetta er
hreint ekki eins slæmt og
það virðist vera nú.
Mannsins er gætt af her-
lögreglu hernámsins,
enda þótt hann hafi eitt-
hvert ferðafrelsi eftir
bandarískum lögum. Er
bara ekki hægt að sætta
sig við þessi málalok, þótt
Hæstiréttur hafi staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir manninum?
Þetta gæti annars orðið
ennþá meira vandræða-
mál, þar sem herlög fara
með lögsögu í málinu, á
grundvelli viðbætis við
varnarsamning landanna
tveggja, þar sem ríkissak-
sóknari setti ekki önnur
skilyrði en þau að mað-
urinn færi ekki úr landi,
og yrði látinn mæta fyrir
herrétt þegar á þyrfti að
halda, eins og segir.
Eigum við ekki að sætt-
ast á málið á þessum
grundvelli, og snúa okkur
heldur alfarið að varnar-
viðræðum einungis? Á
þann hátt myndum við
styrkja stöðu okkar, enda
var árás varnarliðsmanns-
ins ekki banvæn, sem bet-
ur fer.
Páll G. Hannesson,
Ægisíðu 86.
Hávaði á
skemmtistöðum
ÉG er sammála þeim sem
skrifaði í Morgunblaðið
síðastliðinn þriðjudag um
óþolandi hávaða í tónlist-
inni á skemmtistöðum.
Það er ekki hægt að tala
við manneskjur sem mað-
ur situr hjá. Þessi hávaði
hlýtur að valda heyrnar-
skaða. Hefur það verið
rannsakað? Það vill eng-
inn hafa svona háværa
tónlist. Fólk verður
þreytt og pirrað.
Skemmtistaðir ættu ekki
að komast upp með að
gera fólk hálfheyrnar-
laust. Heilbrigðisráðu-
neytið ætti að athuga
þetta.
Ein sem vill breyta
og bæta.
Ósmekkleg
auglýsing
ÉG las Fréttablaðið 15.
ágúst. Á blaðsíðu 19 er
auglýsing með mynd. Lít-
ið barn í felubúningi held-
ur á dauðri gæs og er að
auglýsa skotveiðibúð. Mér
finnst þetta ekki eðlilegt
og gefa til kynna að í lagi
sé fyrir börn að klæðast
felubúningum og skjóta
dýr.
100547-2019.
Tapað/fundið
Baldur er blautur
Á SKÁTAMÓTI á Hömr-
um við Akureyri dagana
26. til 29. júlí tapaðist
handklæði með nafni
Baldurs Más ásaumuðu.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
861 3929.
Úlpulaus
unglingur
GRÆN úlpa af unglings-
pilti týndist um verslun-
armannahelgina við Laug-
arvatn. Þeir sem vita hvar
hún er niður komin vin-
samlega hafi samband í
síma 557 3488 eða
898 4572.
Galdragemsi á
Akureyri
MILLI kl. 16 og 17 hinn
10. júlí sl. tapaðist Nokia
3310 GSM-sími á Eyrinni
á Akureyri. Síminn er
með hvíta Harry Potter
kápu og er sárt saknað af
eiganda. Fundarlaun eru í
boði. Skilvís finnandi vin-
samlega hringi í síma
861 3929.
Hálsband með svört-
um steini tapaðist
KONA hringdi og sagðist
hafa týnt hálsbandi. Hún
man síðast eftir því þar
sem hún var stödd við
Dverghamra en þaðan fór
hún til Hellu og uppgötv-
aði síðan í Reykjavík að
menið var horfið. Þetta
var um miðjan júní og er
hálsmenið líkt og lykkja
með svörtum steini að
ummáli á stærð við litla-
putta. Gott væri ef finn-
andi hefði samband í síma
845 1046 eða 566 6935.
Dýrahald
Tumi
fundinn
VELVAKANDI vill
gleðja lesendur með
ánægjulegum fregnum af
páfagauknum Tuma.
Tumi flaug að heiman í
síðustu viku og hafði eig-
andinn samband við Vel-
vakanda til að lýsa eftir
fuglinum. Símtalinu var
ekki fyrr lokið en dýra-
vinur hafði samband og
hafði þá einmitt fundið
fuglinn. Dvelur Tumi nú í
góðu yfirlæti heima hjá
sér, eflaust feginn að hafa
fundið eigendur sína aft-
ur. Velvakandi er sem
kunnugt er mikill dýra-
vinur og þykir honum
vinna n sérlega gefandi
og skemmtileg þegar
svona einstaklega vel
tekst til.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 viðbragðsfljótur, 8 í ætt
við, 9 sálir, 10 greinir, 11
skyldmennið, 13 líffærið,
15 foraðs, 18 annmarki,
21 ástfólginn, 22 dóni, 23
bárur, 24 ánamaðkur.
LÓÐRÉTT
2 þvinga, 3 bækurnar, 4
púkann, 5 sárs, 6 kven-
fugl, 7 andvari, 12 myrk-
ur,
14 fiskur, 15 harmur, 16
gamli, 17 húð, 18 mjó, 19
bleyðu, 20 sjá eftir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 kvars, 4 fúlum, 7 ávalt, 8 loppu, 9 tól, 11 skap,
13 snös, 14 útlit, 15 spöl,
17 ófær, 20 aða, 22 rollu, 23 fífan, 24 kætin, 25 seiga.
Lóðrétt: 1 kláfs, 2 apana, 3 sótt, 4 full, 5 læpan, 6 maurs,
10 óglöð, 12 púl, 13 stó,
15 skræk, 16 örlát, 18 fífli, 19 renna, 20 auðn, 21 afls.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16