Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 31

Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 31
VEÐUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 31                                                     ! "#$ %  #" & #'  ! "# $ ) ) ) %&  ( ( $ "#   ( (  $ %&    ( $ %#'())! %*+' ,-!! % !-( .(/* !(&         "## $  ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) )     *+" " ##  " ,,-#"  !" #'" ."   #/   . 0 (& 0##,,-#"  !" #')  -#"!"   ( !  )0122*,#       ! #$%      !&  # '   #(   ! #  )  )  %  *+    ($+,-!3*4 12"",,-#" + !& #'( 56 -&( 56 -&( 56 -&( -70"#8*0 9:(/#8*0 0(-7 !!#& 0"(34"# #/;#7-/ <((0 <#!!#!!(#= >%!+? 9--/ @! #()$#//#+  03-  03-  3-  3-  "##" /' 3-  4!3 3-  03-  03-  03-  :00+%$( A-!/0 (3 #!:B :/,:/ #*! $!-,#$ #/0 A#$3: 9-*/ */ #8- 5   5  # 3-  3-  3-  3-  3-  3-  3-  03-   # 3-  03-  ;### #!#$#! 9#C-:/# ;#:C# %$ -/-7"# D//)- ;:/-# A##E <-B 6+C#: #/,: 5 5 03-  03-  3-  3-   #  # 03-  03-  3-  3-  3.  3-  ;&80(,#(* "$ 2") 3- 3!"33/  .!"' (* 5"( $$(,#(6!   #)  33#"    #'# )# ##    "( 3/  #!  #5!"  # #')# 4 !" $   #(*  ") -  # #'( !   >&"(,#(  #5 %!" "##" 3/  .  #'( * "( ,,- ). ) ,/ )  ,,- "#$ "%$ "&$ "'$ "($ "%$ "#$ "%$ ")$ "&$ "&$ "&$ ÚTVARP/SJÓNVARP LAW & Order-þættirnir hafa gengið við miklar vinsældir í röskan áratug og hafa nú sprottið tveir nýir angar úr þáttunum, Law & Order: Special Victims Unit þar sem fylgst er með rannsóknar- mönnum á kynferðisbrota- deild og nú síðast Law & Ord- er: Criminal Intent. Sá síðastnefndi er á dag- skrá í kvöld og er þar sagt frá glæparannsóknum eins og í hinum þáttunum, nema hvað það er gefin aðeins gleggri innsýn í hugarheim og sjón- arhorn krimmanna. Það eru Vincent D’Onofrio og Kathryn Erbe sem fara með aðalhlutverkin en Vinc- ent er líklega hvað best kunn- ur fyrir hlutverk sitt í stór- virki Stanleys Kubricks, Full Metal Jacket, þar sem hann lék sturlaðan liðjálfa. Ekki er laust við að hann sýni svip- aða takta í Law & Order, en þar túlk- ar hann harðan nagla sem oft á tíðum jaðrar við að vera nokkuð ruglaður. Kathryn leikur að sama skapi hið yf- irvegaða og jarðbundna mótvægi í rannsóknar-tvíeykinu, ekki ósvipað sambandi þeirra Dönu Scully og Fox Mulders í Ráðgátunum (X-files) á ár- um áður, sællar minningar. Annars hafa þættirnir á sér þetta dæmigerða Law & Order-yfirbragð og verða aðdáendur þáttanna ekki sviknir. Því verður þó ekki neitað að persóna Kathryn Erbe fellur allverulega í skuggann af persónu Vinc- ents D’Onofrios sem virðist vera alfróður um allt milli himins og jarðar og lætur ekki framhjá sér fara minnstu misfellur á vett- vangi glæpsins, svo segja má að hann sé í aðalhlut- verki á meðan hún slæðist með. Hvort sagan af þeim fé- lögunum er fjarstæðukennd eða raunsæ frásögn af lífi rannsóknarlögreglumanna má deila um, en velta má vöngum yfir því hversu vel gengi að sækja fyrir dóm- stólum sum þau mál sem þeim tekst að leysa, oftar en ekki með töluvert óhefð- bundnum aðferðum. En þegar upp er staðið er hér á ferð hin ágætasta skemmtun sem veitir sjónvarpsáhorfendum ágætis svigrúm til að setja sig í fótspor lög- reglumannanna og reyna að leysa ráðgátuna á undan þeim. … ráðagóðum rannsóknarlöggum Kathryn Erbe Vincent D’ Onofrio Law & Order: Criminal Intent er á dagskrá Skjáseins í kvöld kl. 22.00 og endursýndur á þriðju- dag kl. 23.40 og föstudagskvöld kl. 00.30. EKKI missa af… SÍGILT viðfangsefni í gaman- myndum er samband fólks við tengdaforeldra sína. Af einhverjum völdum virðist enginn endir á því að kynda undir þeirri hugmynd að samband tengdaforeldris og tengdabarns þurfi að vera brösugt og vandræðalegt, ef ekki hatrammt og beiskt. Hvað veldur þessari áráttu kvik- myndaframleiðenda að geta seint sýnt hlýleg og ástúðleg samskipti við tengdaforeldra er erfitt að segja, en kvikmyndin Heima hjá tengdó (Meet the Parents) er ein- mitt ein þeirra grínmynda sem ger- ir út á þetta sérstaka samband. Í aðalhlutverki er geiflugrín- arinn Ben Stiller sem leikur hálf- gert roðhænsn sem hyggst biðja unnustu sína að giftast sér. Er þá kynntur til sögunnar faðir hennar, leikinn af sjálfum Róbert DeNiro, sem er gamall rannsóknarlög- reglujaxl og ofverndandi faðir í meira lagi. Upphefst mikið grín, gaman og glens þegar tengdasonurinn tilvon- andi reynir að ganga í augun á tengdaföður sínum og allt fer vita- skuld á versta veg. Sérlega erfiður tengdapabbi Presslink Ben Stiller og Teri Polo í hlut- verkum sínum. Heima hjá tengdó (Meet the Par- ents) er á dagskrá Bíórásarinnar í dag kl. 14. SJÓNVARPIÐ sýnir í kvöld þáttinn Með vængi í farteskinu eftir Einar Rafnsson. Í þættinum er fylgst með þeim Arngrími Jóhannssyni og Einari Páli Einarssyni og hvernig þeir gera upp gamla Piper Cub-flugvél og smíða nýja tveggja sæta Pitch Special. Síð- an er þeim félögum fylgt eftir þar sem þeir fara með vélar sínar á mót flug- áhugamanna í bænum Oshkosh við Mich- igan-vatn í Bandaríkjun- um en þar fer árlega fram stærsta mót heimasmíðaðra flugvéla í heim- inum og fögnuðu samtökin 50 ára af- mæli sínu að þessu sinni. Bæði gefur þar að líta verksmiðjuframleiddar vélar og vélar sem hafa verið gerðar upp en aðaláherslan er á heimasmíð- aðar vélar, einkaflug og sportflug. „Þær voru notaðar sem eftirlitsvél- ar og póstvélar innan bandaríska hersins,“ segir Einar Páll um Piper Cub-vélina sem hann gerði upp. Vélin hans er nærri 50 ára gömul en hann keypti hana skemmda eftir flugóhapp og gerði upp. „Ég var að dytta að henni í 5 til 6 ár. Það fór allur frítími og sumarfrí í þetta.“ Vélina varð að taka í sundur og fljúga með hana til Oshkosh enda með mjög stutt flug- þol og hæg- fleyg: „Hún hefur ekki nema um 2,5 tíma flugþol og nær ekki nema um 85 mílna hraða svo hún væri ansi lengi á leiðinni og kæmist varla yfir til Grænlands.“ Fylgst er með smíði vélanna tveggja, og fyrsta reynsluflugi þeirra og leiðangrinum á flughátíðina. „Arn- grímur er mikill áhugamaður og á eins manns Pitch Special. Svo tók hann vél sem byrjað hafði verið á upp í skuld og við kláruðum að smíða það tryllitæki saman.“ Íslensk mynd um tvo flugáhugamenn sem gera upp og smíða flugvélar Með vængi í farteskinu er á dag- skrá Ríkissjónvarpsins í kvöld kl. 20.00. Flugvél verður til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.