Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 32

Morgunblaðið - 18.08.2003, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. LÍTIÐ sem ekkert hefur sést af lundapysju í Vest- mannaeyjabæ það sem af er sumri. Þetta er óvenju- legt því venjulega byrja pysjur að fljúga að ljósum bæjarins fyrstu vikuna í ágúst. Óskar J. Sigurðsson í Vest- mannaeyjum segir að mikið hafi verið um pysjudauða í sumar og að þroski þeirra sé skammt á veg kominn miðað við árstíma. Þó sé ekki um eins- dæmi að ræða því áður hafi komið ár þegar svipað ástand hefur verið á stofninum. Allmargir ferðamenn leggja á hverju ári leið sína til Eyja í ágúst til að taka þátt í að bjarga pysjum sem villast inn í bæ. Enn sem komið er hafa ferða- menn fundið fáar pysjur til að bjarga. Framan af sumri veiddist lítið af lunda en glaðnað hefur yfir veiðinni á síðustu vikum. Þetta er einnig óvenjulegt því oftast er lítið um veiði eftir versl- unarmannahelgi. Reyndir veiðimenn telja að hlýr sjór og hár loftþrýstingur kunni að valda því að æt- isleit lundans sé erfiðari en áður; sérstaklega sé lítið um það æti sem yngstu pysjurnar nærast á. Svo virðist sem lundinn þurfi að ferðast lengra en venja er til og sést hefur til hans í stórum breiðum að sækja sér æti allt að hundrað sjómílur frá Vest- mannaeyjum. Pysjan sein af stað í Vestmanneyjum SIGURÐUR Orri Þórhannesson vann til fyrstu verðlauna á kvikmyndahátíðinni Nordic Youth Film Festival í Tromsö fyrir stuttmynd sína „Le Mime“ en greint var frá úrslitunum í gærkvöldi. Sigurður vann í elsta aldursflokknum, 20–25 ára, og sagði í umsögn dómnefndar að Sigurður hefði unnið með vel útfærða sögu sem sýndi aðalpersónu hennar á sérstakan og tjáningarþrunginn hátt. Sigurður sagðist vera hæstánægður með verð- launin enda hefðu margar góðar myndir verið á hátíðinni. „Ég sendi myndina inn í forval og hún var valin en það bárust um fjörutíu myndir frá öll- um Norðurlöndunum. Myndin fjallar um lát- bragðsleikara sem býr einn í stóru húsi og verður fyrir miklum hrekkjum. Þetta er þrívíddar- teiknimynd, sex mínútna löng, sem ég gerði árið 2001 en þetta var fyrsta myndin sem ég gerði. Ég lagði mikla vinnu í hana og það tók átta eða níu mánuði að gera hana meðfram annarri vinnu. Það kom mér skemmtilega á óvart að vinna og mér finnst það mikill heiður,“ segir Sigurður Orri. Íslensk teiknimynd vinnur til verðlauna ÞAÐ var mikið sjónarspil þegar flugeldum var skotið á loft í Reykjavík á menningarnótt. Talið er að nærri 100 þúsund manns hafi verið í miðbæ Reykjavíkur og notið menningar og annars þess sem gestum var boðið upp á. Það er mat lög- reglu að hátíðin hafi farið vel fram. Morgunblaðið/Ómar Ljósadýrð á menningarnótt  Menningarnótt/26 MIKIL eftirspurn er eftir starfs- fólki á Austurlandi og Norður- landi og voru 354 laus störf um síðustu mánaðamót í þessum landsfjórðungum, en til saman- burðar má nefna að 90 laus störf voru á höfuðborgarsvæðinu. At- vinnuleysi á Austurlandi hefur minnkað mikið á síðustu mánuð- um. Samkvæmt tölum Vinnu- málastofnunar var atvinnuleysi í landsfjórðungnum í lok júlí 1,3% en var 3,9% í febrúar sl. Atvinnu- leysi meðal karla á Austurlandi er aðeins 0,7%. Atvinnuástandið á lands- byggðinni er mun betra en á höf- uðborgarsvæðinu og Suðurnesj- um þar sem atvinnuleysi er 3,5–3,7%. Í öðrum landshlutum er atvinnuleysið 1–2%. Af 4.669 sem voru atvinnulausir í júlí- mánuði voru 3.875 búsettir á höf- uðborgarsvæðinu og Suðurnesj- um. 794 voru atvinnulausir í öðrum landshlutum. Það sem af er ágústmánuði hefur atvinnu- lausum á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum fjölgað. Þar eru núna 4.050 manns atvinnulausir. Atvinnuleysi á landinu öllu var að meðaltali um 3% af áætluðum mannafla. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysið 2,3%. Atvinnu- leysi meðal kvenna er nokkru meira en meðal karla. Í lok júlí voru 604 laus störf skráð hjá Vinnumálastofnun. Þetta er talsvert meira en í sama mánuði í fyrra, en þá voru 282 laus störf á skrá. Tiltölulega fá laus störf eru í þeim landshlut- um þar sem atvinnuleysi er mest, eða 90 á höfuðborgarsvæð- inu og 14 á Suðurnesjum. 153 laus störf eru hins vegar á Norðurlandi vestra, 101 á Austurlandi og 100 á Norðurlandi eystra. Færri leyfi til útlendinga Verulega hefur dregið úr útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga. Á fyrstu sjö mánuðum ársins var gef- ið út 1.781 leyfi, en 2.084 leyfi voru gefin út á sama tímabili í fyrra. Allt árið 2001 voru gefin út 4.505 atvinnuleyfi. Mest er um fram- lengingu á tímabundnum atvinnu- leyfum, en ný leyfi það sem af er árinu eru 200. Mikil eftirspurn eftir vinnuafli á landsbyggðinni Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæð- inu var 3,7% í júlí og fer vaxandi ÍTALSKA verktakafyrirtækið Impregilo hefur afhent Lands- virkjun nýja og tímasetta aðgerða- áætlun um uppbyggingu vinnu- búða á framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar. Samkvæmt henni verða komin svefnrými fyrir um 800 manns við virkjunina í lok september, að því er fram kemur á vef Kárahnjúkavirkjunar. Um 650 starfsmenn eru nú á virkjunar- svæðinu, þar af um 580 sem vinna hjá Impregilo. Gert er ráð fyrir að alls 140 svefnrými bætist við í síðustu viku ágústmánaðar í búðum við aðgöng 2 og við Kárahnjúka. Í september á svo að fjölga enn svefnskálum, aðallega við Kárahnjúka. Impreg- ilo stefnir að því að í vinnubúð- unum búi allir starfsmenn í eins manns herbergjum, en eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu hafa fjölmargar kvartanir borist yfir aðbúnaði starfsmanna Im- pregilo. Um helmingur 650 starfsmanna er íslenskur Á vef Kárahnjúkavirkjunar seg- ir að vinna við að setja upp búðir starfsmanna sé nokkuð á eftir upprunalegum áætlunum þar sem það hafi dregist að fá afhenta skál- ana hjá framleiðendum og seljend- um erlendis. Á verkfundi fyrir helgi fullvissuðu stjórnendur hjá Impregilo fulltrúa Landsvirkjunar um að málið yrði tekið föstum tök- um og reynt að hraða því að setja upp vinnubúðirnar. Af þeim um 650 starfsmönnum sem eru á Kárahnjúkasvæðinu er u.þ.b. helmingurinn íslenskur en aðrir af ýmsu þjóðerni. Þá vinna íslensk fyrirtæki við jarðganga- gerð, vegagerð, lagningu raf- strengja og ljósleiðara. Reiknað er með að starfsfólki fjölgi enn frekar á næstunni og verði í vetur a.m.k. 700 manns, að vinnu við stöðv- arhús Kárahnjúkavirkjunar með- talinni. Ný áætlun um upp- byggingu vinnubúða við Kárahnjúkavirkjun Svefnrými fyrir 800 manns í búðum Impregilo ♦ ♦ ♦ ÍSLENSKA unglingalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, varð í gær Evrópumeistari þegar liðið lagði Þjóðverja 27:23 í úrslitaleik í Slóvakíu. Á laugardaginn voru Sví- ar lagðir með einu marki eftir framlengingu í æsispennandi leik. Ásgeir Örn Hallgrímsson úr Haukum varð markahæsti leikmaður keppn- innar, skoraði 55 mörk í sjö leikjum og var valinn besta örvhenta skyttan. Arnór Atlason úr KA var valinn besta rétthenta skyttan og var í úrvals- liðinu með Ásgeiri. Ljósmynd/Viktor Zamborský Ragnar Hjaltested fer hér inn úr hægra horninu á móti þýska markverðinum. Unglingarnir urðu Evrópumeistarar  Maður vinnur ekki silfur/B16 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.