Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 5
Ísland
Ferð til San Francisco
Á komandi hausti býður Úrval-
Útsýn í samvinnu við VISA Ísland
ferð til San Francisco. Flogið verð-
ur í beinu flugi með breiðþotu flug-
félagsins Atlanta og er brottför
frá Íslandi hinn 11. nóvember. Um
er að ræða vikuferð með heim-
komu hinn 18. nóvember. Í boði
verða skoðunarferðir þar sem
tækifæri gefst til að skoða mark-
verða staði eins og t.d. Alcatraz-
eyjuna og fangelsið fræga.
Þá verður í boði dagsferð í vín-
ræktarhérað í Californiu í Napa
Valley og farið á slóðir Clints
Eastwoods til Carmel.
Möguleiki er að slá tvær flugur í
einu höggi, þ.e. að vera í 4 nætur í
San Francisco og halda síðan með
flugi í neonljósadýrðina í Las Ve-
gas og dvelja þar í 2 nætur.
Dvalið er á hótelum í miðborginni,
á það bæði við um San Francisco
og Las Vegas.
Íslenskir fararstjórar verða ferða-
löngum til halds og traustst í ferð-
inni.
Ferðin kostar frá 99.970 krónum á
mann í tvíbýli í 6 nætur á hótel
Renaissance Parc 55. Einnig er
hægt að kaupa flugsæti á 79.900
krónur – með sköttum.
Ferðir til Dublin
Dekur í Dublin er heitið á ferðum
sem ÍT-ferðir bjóða upp á í haust.
Um er að ræða helgarferðir og 9
daga ferðir til Írlands í september.
Flogið er í beinu leiguflugi með Ís-
landsflugi.
Farið verður til Dublin dagana
5.–7. september, 12.–14. sept-
ember, 19.–21. september og níu
daga ferðirnar eru dagana 5.–14.
og 12.–21. september.
Úrval-Útsýn
Sími 5854000
veffang: www.uu.is
ÍT-ferðir
Sími: 588 9900
Fax: 588 9901
tölvupóstfang:
itferdir@itferdir.is
Veffang: www.itferdir.is
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975 á viku.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Afgrgjöld á
flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar, 6-7
manna, minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Heimasíðan www.fylkir.is
með fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Dancenter, Lalandia,
Novasol/Dansommer.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
ferðaskrifstofan
sími 456 3745.
Netfang fylkirag@fylkir.is
Heimasíða www.fylkir.is
m
TÍMARITUMMAT&VÍN27062003
Næsta tölublað af tímaritinu m,
sem fjallar um mat og vín, fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 13. september nk.
Stærð tímaritsins er 25x36.
Pantanafrestur auglýsinga er til
þriðjudagsins 9. september kl. 16.
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1111
eða á augl@mbl.is
Auglýsendur!
13 9 Í A IT UM A Í
Ef skreppa á til Hornafjarðar
er viðburðadagatal á slóð-
inni www.hornafjordur.is
BERLÍN er víst eina evrópska borg-
in sem getur státað af fleiri söfnum
en rigningardögum, eða 170 talsins.
Það er því um að gera að sameina
þetta tvennt og hlaupa inn á næsta
safn ef veðrið bregst manni í Berl-
ínarferðinni. Og úr mörgu er að velja.
Súkkulaðisafnið og Erótíska safnið
lokka til sín fjölda manns, á meðan
aðrir kjósa Berlínska portrett-
galleríið sem býr yfir merkustu mál-
verkunum sem bæði austrið og vestr-
ið áttu áður, og er sett í klassa með
Prado í Madrid og
Louvre í París. Berlín-
arbúar ætla þó að bæta
um betur og árið 2010
verður opnuð þar
Safnaeyjan, stærsta
safn í heimi í fimm
glæsibyggingum. Gyð-
ingasafnið hefur þegar
verið opnað og er bygg-
ingin sjálf stórkostleg,
hönnuð af Daniel Lib-
eskind (sem mun hanna
nýbyggingar þar
World Trade Center
stóð í New York). En
með arkitektúrnum
leitast hann við að
skapa tilfinninguna
sem gyðingar þurftu að búa við í of-
sóknunum. Þykir heimsókn í safnið
mögnuð upplifun.
Rödd Göbbels
En hvernig væri að fræðast um
sögu Berlínar sjálfrar? Á verslunar-
götunni Kurfürstendamm stendur
safnið Story of Berlin. Ferð í gegnum
það er líkt við ferð í gegnum tímann
allt frá því að borgin var stofnuð 1237
og til dagsins í dag. Sérstök ljósa-
hönnun, myndbandasýningar, gagn-
virkir tölvuskjáir, skyggnimyndir og
sögulegar hljóðupptökur gera safn-
agestum kleift að upplifa stórmerki-
lega sögu borgarinnar með því að
heyra, sjá, þefa og finna!
Það er t.d. ekki úr vegi að hlusta á
fagra rödd Göbbels, en á tímum nas-
ista var hann sérlegur yfirmaður
Berlínar, því Hitler þoldi víst ekki
borgina þar sem var svo erfitt að taka
hana yfir. Berlínarbúar höfðu öldum
saman vanist að saman byggi fjöldi
þjóðarbrota og þótti minna til áróð-
urs karls koma en öðrum Þjóðverj-
um.
Sprengjuhljóð og sírenur
Kalda stríðið er ekki síst áhuga-
verði hluti safnsins, þar sem tvær
stofur, önnur úr austurhluta borgar-
innar og hin úr vesturhlutanum sýna
muninn á lífsgæðunum sem íbúarnir
bjuggu við.
Ferðinni má síðan ljúka með ferð í
neðanjarðarbyrgi, þar sem maður
fær kalda stríðið beint í æð. Byrgið
var byggt árið 1974 ef stríð skylli á og
er enn reiðubúið að taka við 3.592
manns í 14 daga ef til hamfara kem-
ur. En eftir það verður bæði loft og
fæði uppurið. Í Berlín eru um 25 slík
byrgi sem alls taka 30 þúsund manns.
Það er ekki laust við að kalt vatn
renni manni á milli skinns og hörunds
þegar sírenur fara af stað, sprengju-
hljóðin kveða við þar sem maður í
rökkrinu og þungu loftinu tyllir sér á
þrönga og óþægilega koju. Eftir
þessa upplifun er maður feginn að
komast aftur undir bert loftið – og þá
má alveg rigna!
Tímaferðalag
Í Berlín eru flest söfn í Evrópu
Í neðanjarðarbyrginu setur að manni hroll. Einstakur arkitektúr gyðingasafnsins.
Morgunblaðið/Hildur Lofts
Stofa í austri eða vestri?
Það var stuð í Berlín fyrir stríð!
Story of Berlin
Kurfürstendamm 207-208
Opið: kl. 10-20
Vefslóð:
www.story-of-berlin.de
Stiftung Jüdisches Museum
Berlin
Lindenstr. 9-14
Opið: kl. 10-20
Vefslóð: www.jmberlin.de
hilo@mbl.is
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali