Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 B 7
ferðalög
Söguríkt umhverfi - magnað nágrenni - perlur í náttúru Íslands
- Fjölbreytt afþreying
- fjölbreytt þjónusta
- í fallegum bæ!
Velkomin í Stykkishólm!
Frakkland
18.938kr.*
7 dagar miðað við flokk B
Innifalið ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattur.
Baltimore
20.779kr.*
7 dagar miðað við flokk A
Innifalið ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattur.
Þýskaland
22.116kr.*
7 dagar miðað við flokk B
Innifalið ótakmarkaður akstur,
áfylling af bensíni, kaskó, ábyrgðar-
trygging, einn auka bílstjóri,
skattur og flugvallargjald.
Ætlarðu til Mombasa,
út á Dalvík, til New Orleans
eða upp á Brávallagötu?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
21
66
1
07
/2
00
3
Sími: . . . . . . . . . . . . . . . . 5050 600
Fax: . . . . . . . . . . . . . . . . 5050 650
Netfang: hertz@hertz.is
*Ekkert bókunargjald.
Á
HVOLSVELLIer gömul falleg
kirkja í útjaðri bæjarins. Rétt
þar við er sumarhúsabyggðin
Ásgarður. Á sínum tíma byrj-
aði Erlendur Magnússon hagleiks-
smiður með ferðaþjónustu í Ásgarði
og eignin ber þess merki, handbragð
hans sést þar víða. Í garðinum er lítið
listhús sem hann smíðaði á sínum
tíma og grindverkin við húsin eru
handskorin svo dæmi séu tekin. Gróð-
urinn er fjarska fallegur, há og mynd-
arleg tré og úti eru tvennar stórar
svalir þar sem hægt er að sitja á fal-
legum dögum og borða úti.
Það þarf ekki ríkt ímyndunarafl til
að sjá fyrir sér möguleikana sem
þarna eru fyrir athafnafólk.
ÍÁsgarði er hægt að taka á móti 45
manns í gistingu. Á hinn bóg-
inn leggja örugglega
margir leið sína þang-
að bara til að borða
því eigandinn er
matreiðslumeistari
og leggur mikla
áherslu á að bjóða
metnaðarfullan mat-
seðil.
„Ég hef undanfarin
ár verið yfirmat-
reiðslumeistari á Hót-
el Rangá og fann þennan stað hér á
Hvolsvelli fyrir tilviljun og það verður
gaman að fá að reka sinn eigin stað,“
segir Anton.
Hann var líka á sínum tíma mat-
reiðslumeistari á Hilton- og Sheraton-
hótelum í Bandaríkjum og hefur einnig
starfað víðar um heim. Eldamennskan
ber þess merki, hann hefur tileinkað
sér eitthvað frá hverjum stað eins og
hann orðar það. Anton er núna að
setja saman matseðil vetrarins fyrir
Ásgarð og þar kennir ýmissa grasa.
Sérstök vetrartilboð á mat og gistingu
„Mig langar núna í haust til að bjóða
gestum mínum að njóta fegurðarinnar
hér á Hvolsvelli með okkur en á sama
tíma að vera í ró og næði og borða góð-
an mat. Það eru líka góðar veiðiár hér í
nágrenninu, frábærar reiðleiðir og fínn
golfvöllur svo það er margt við að vera.
Ámeðan ég er að kynna staðinn fyrir
fólki ætla ég að bjóða hagstæða pakka
fyrir þá sem vilja koma og heimsækja
okkur. Í haust verðum við með þrírétt-
aðan kvöldverð, gistingu og morg-
unverð fyrir 4.900 krónur á mann-
inn.“
Strax í nóvember ætlar Anton að
setja upp jólahlaðborð sem verða svip-
uð og hann var með á Hótel Rangá og
þá bæði fyrir hópa og einstaklinga.
„Við verðum þá með sérstaka að-
ventupakka þar sem við bjóðum fólki
að koma og borða á jólahlaðborðinu hjá
okkur, gista svo og fá morgunverð áður
en haldið er heim að nýju Aðventu-
pakkarnir munu kosta 5.900 krónur.“
Sveitabar á dagskrá
Anton og Katrín Stef-
ánsdóttir, eiginkona
hans, hafa verið að
dytta að smáhýsunum
frá því þau keyptu stað-
inn í sumar og þau segj-
ast ekki ætla að ana að
neinu, þetta komi allt
smám saman.
„Við eigum okkar
drauma um að gera staðinn allan upp
en til að byrja með málum við allt og
dyttum að. Næsta verkefni er að koma
upp ekta sveitabar í litlu húsi sem er
hér á lóðinni og er tilvalið fyrir slíka
starfsemi. Hann á að vera hannaður
eins og fangelsi, allur grófur og með
rimlum fyrir gluggum,“ segir Anton.
Tjaldsvæði er á eigninni og með tíð
og tíma er meiningin að dytta að því
líka.
En hversvegna er yfirmatreiðslu-
meistari frá Hilton og Sheraton sestur
að á Hvolsvelli?
„Þetta var í raun eitthvað sem okk-
ur hafði lengi langað til að gera, að eiga
íbúð í bænum en líka athvarf á þessum
slóðum. Okkur líður svo vel hérna, kon-
an er á kafi í hestamennsku og auðvit-
að er það spennandi að takast á við
þetta verkefni,“ segir hann.
„Á Hilton og Sheraton má ekkert út
af bera og ég var vakandi og sofandi í
starfinu allan sólarhringinn. Maður
getur bara í vissan tíma staðið undir
slíku álagi. Svo er bara gott að búa á
Hvolsvelli.“
Nýir eigendur að sumarhúsabyggðinni Ásgarði
Hilton-hótelið eða Hvolsvöllur
Morgunblaðið/GRG
Alls geta 45 manns gist í Ásgarði og
þá bæði í smáhýsum og á gistihúsi.
Piparsteikin hreinlega bráðn-
aði í munni og kjúklinga-
uppskriftina kríaði Guðbjörg
R. Guðmundsdóttir út úr
kokkinum þegar hún kvaddi.
Hún komst að því að hann
hafði áður verið yfirmat-
reiðslumeistari á Sheraton-
og Hilton-hótelum.
Í garðinum í Ásgarði er fallegt listhús
þar sem hægt er að sitja í góðu veðri.
Eigendur Ásgarðs, Anton Viggósson
og Katrín Stefánsdóttir.
Laxinn grefur Anton sjálfur.
Sumarhúsabyggðin Ásgarður
Hvolsvelli
Sími: 4875750
Tölvupóstfang:
asgard@mmedia.is
Vefsíðan er væntanleg:
www.asgardur.com
gudbjorg@mbl.is
alltaf á föstudögum