Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 14
Meindýraeyðir, geturðu eytt fyrir mig
geitungabúi?
Alveg sjálfsagt, komdu bara með það.
Á Íslandi er hesturinn
stundum kallaður þarfasti
þjónninn af því að áður en
bíllinn og vélknúnar vinnu-
vélar komu til sögunnar var
hann bæði ómissandi í
ferðalögum og við alls kon-
ar vinnu.
Það eru næstum sex
þúsund ár síðan menn
fóru að temja hesta og
nota þá til flutninga og
ferðalaga. Víða í
heiminum eru
hestar ennþá not-
aðir til að
draga vagna
og bera þungar
byrðar auk
þess sem þeir eru notaðir
bæði í hernaði og íþróttum.
Eins og þið vitið eru hest-
ar bæði sterkir og fljótir í
förum en vissuð þið að
þeir eru líka taldir í hópi
greindustu dýra?
Þarfasti þjónninn
Andrea Thoroddsen er níu
ára. Hún var á reiðnámskeiði í
fyrrasumar en segir að þetta
sé fyrsta reiðnámskeiðið sem
hún fari á nú í sumar.
Hvernig gengur?
Það gengur bara vel. Það er
alltaf mjög gaman en samt
skemmtilegast þegar við förum
í reiðtúra.
Alexander Þorgilsson er átta
ára, að verða níu. Hann er á
sínu fyrsta reiðnámskeiði og
segir að það gangi bara vel þótt
hann hafi ekkert verið nálægt
hestum áður
Hvað heitir hesturinn?
Í dag er ég á hesti sem heitir
Stóri-Skjóttur en í gær var ég á
hesti sem heitir Fjöður.
Hvað er skemmtilegast?
Að vera á hestbaki og láta hestinn labba.
Ellý Tómasdóttir er fjórtán ára og vinnur í reið-
skóla. Ellý segir starfið felast í því að hjálpa börn-
unum og kenna þeim að umgangast hesta. Hún fer
líka stundum í reiðtúra með þeim sem eru lengra
komnir en vinnur ekki við að fóðra eða hirða hest-
ana þar sem það er að mestu gert með vélum.
Hvað hefurðu unnið lengi í reiðskólanum?
Frá því sumarið eftir sjötta bekk. Á sumrin vinn
ég í reiðskólanum alla virka daga en á veturna
hjálpa ég stundum til á reiðnámskeiðum eftir skóla.
Er þetta skemmtilegt starf?
Já, það er mjög skemmtilegt og gott að fá að
vera úti í vinnunni.
Gott að vera úti
Fjör á reiðnámskeiði
Eitthvað er hann Skjóni nú ógreinilegur og litlaus á þessari
mynd. Kannski getið þið hresst hann við með því að teikna eftir
númerunum og lita hann síðan í fallegum litum.
Teiknið og litið listavel
Það eru tveir til fjórir hlutir eins á þessari mynd. Það er samt bara einn hlutur
sem er á þremur stöðum á myndinni. Getið þið fundið hann?
Ta
ln
aþ
ra
ut
Hér er hugmynd að
leik sem þið getið farið
í á tjaldstæðinu eða
bara hvar sem er því
það eina sem þið þurf-
ið eru tvö plastglös og
lítil plastkúla.
Festið glösin saman
með límbandi þannig
að botnarnir snúi sam-
an og notið þau síðan til að kasta kúlunni upp í loft.
Reynið síðan að grípa kúluna með glösunum. Til þess að gera
leikinn erfiðari getið þið reynt að snúa glösunum við á meðan kúl-
an er í loftinu.
Kúlukast Sjáið
blómin
vaxa
1. Setjið mold í glært glas
eða gegnsæja krukku.
2. Gróðursetjið fræ í
jaðrinum á moldinni þann-
ig að þau sjáist í gegnum
ílátið. Vökvið.
3. Límið blað utan um
ílátið og látið það standa
fyrstu vikuna til að verja
fræin fyrir ljósinu.
4. Fjarlægið pappírinn
eftir fyrstu vikuna og
fylgist með rótunum vaxa
ofan í moldinni á sama
tíma og þið fylgist með
plöntunni vaxa upp úr
henni.
Í sumar hafa alls konar
skemmtileg námskeið verið í
boði fyrir krakka og því hefur
örugglega verið erfitt fyrir
suma að velja á milli þeirra.
Flestir krakkar vita þó senni-
lega svona nokkurn veginn hvað
vekur áhuga þeirra og því hafa
vonandi flestir getað valið nám-
skeið við sitt hæfi.
Það hafa greinilega margir
krakkar áhuga á hestamennsku
því það hefur verið mjög mikil
aðsókn á reiðnámskeið í sumar.
Í reiðskólanum Faxabóli í
Víðidal eru haldin reiðnámskeið
fyrir sex til þrettán ára krakka.
Á sumrin eru þau hálfan daginn
og standa í tíu daga í einu en á
veturna er hægt að velja um að
vera tvisvar í viku í sex vikur
eða einu sinni í viku í tólf vikur.
Námskeiðunum er ekki skipt
niður í byrjenda- eða framhalds-
námskeið heldur er hverjum
hóp skipt niður eftir því hvað
krakkarnir eru vanir hestum.
Mikilvægt að öllum líði vel
Hóparnir eru síðan settir í
verkefni eftir því hvað hentar
hverjum og einum þannig að all-
ir fái kennslu við sitt hæfi.
Þóra Þrastardóttir, ein af eig-
endum reiðskólans, segir að það
fari eftir veðri og vindum hvort
krakkarnir séu úti eða inni á
námskeiðunum. Úti fari þau
mikið í jafnvægis- og stjórnun-
aræfingar sem þjálfi þau í að
sitja örugg á baki og stjórna
hestinum en inni læri þau ým-
islegt um hestana. „Við förum
yfir það hvernig hesturinn upp-
lifir umhverfi sitt og krakkana
og hvernig við þurfum að haga
okkur til að honum líði sem best
með okkur,“ segir hún. „Það er
mikilvægt að læra að umgangast
hestinn þannig að honum líði
vel. Það skiptir nefnilega ekki
bara máli að krökkunum líði vel
í návist hestsins heldur líka að
hestunum líði vel í návist
þeirra.“
Læra að bjarga sér sjálf
Til að krökkunum líði vel eru
þau látin byrja á því að fara á
hestbak á lítilli girðingu sem
heitir gerði. Gerðið er síðan
smástækkað eftir því sem
krakkarnir ná meiri tökum á
hestinum og þegar þau eru eru
orðin örugg inni í stærsta gerð-
inu fá þau að fara út úr því.
Krakkar læra líka að með-
höndla reiðtygi og að leggja þau
á hestana þannig að þau verði
sjálfstæð í því sem þau eru að
gera og þurfi ekki alltaf að vera
að biðja um hjálp.
En hvað þarf maður að gera
til að vera góður hestamaður?
Þóra segir að maður þurfi
fyrst og fremst að hafa áhuga á
hestunum og góða einbeitingu.
„Krakkar eru yfirleitt mjög
fljótir að ná góðu jafnvægi á
hestbaki,“ segir hún. „Svo segj-
um við alltaf við þau að þau
verði að tala við hestinn í gegn-
um taumana. Ef þau tala ekki
skýrt þá þýðir ekkert að ergja
sig yfir því að hann skilji þau
ekki heldur verða þau bara að
æfa sig meira þannig að þau
geti sent honum skýrari skila-
boð.“
Þóra segir að margir krakkar
hafi áhuga á að halda áfram í
hestamennsku eftir að hafa
komið á reiðnámskeið en að það
sé meirháttar fyrirtæki fyrir
krakka að vera í hestamennsku
upp á eigin spýtur þar sem það
sé bæði mikil vinna og mjög
dýrt. Hún ráðleggi því krökkum
að fara frekar á fleiri námskeið
þar sem það kosti minna að fara
á námskeið allan veturinn og á
eitt til tvö námskeið yfir sum-
arið en að leigja hesthús fyrir
hest.
Hestunum þarf að líða vel
Morgunblaðið/Jim Smart