Morgunblaðið - 19.09.2003, Síða 12
12 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|9|2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kl. 14.00
Spilastuð á Sólheimum í
Grímsnesi en Íslands-
meistaramótið í Svarta
Pétri fer fram í fimm-
tánda sinn á kaffihús-
inu Grænu könnunni.
Stjórnandi mótsins er engin
önnur en Edda Björgvinsdóttir
leikkona.
Kúluskítur verður í hávegum hafður við Mývatn
um helgina, en í kvöld hefst fyrsta kúluskítshá-
tíðin hér á landi.
Kúluskítur er hringlaga þörungur og finnast
heil samfélög þeirra eingöngu í tveimur vötnum
í heiminum, Mývatni og Akanvatni á eynni Hok-
kaido í Japan. Haldið hefur verið upp á kúlu-
skítinn í Japan síðan 1950 og verður kúlu-
skítshátíðin við Mývatn að japanskri fyrirmynd,
en fléttað inn í hana íslenskri menningarhefð.
Kúluskítshöfðingi verður valinn í fyrsta skipti
og honum afhentur nýveiddur kúluskítur úr Mý-
vatni til varðveislu yfir helgina. „Þetta er mjög
ábyrgðarmikið hlutverk. Eins og nafnið kúlu-
skítshöfðingi gefur til kynna,“ segir dr. Árni Ein-
arsson, forstöðumaður Náttúrurannsókna-
stöðvarinnar við Mývatn, sem gegnir
embættinu fyrstur manna hér á landi.
Ert þú ekki manna fróðastur hér á landi um
kúluskít?
„Ég hef sérhæft mig svolítið í honum. Jú,
það má segja það.“
Hvað er svona heillandi við kúluskítinn?
„Hann hefur einhvern karakter sem vekur
áhuga. Það er svo einkennilegt, en þetta er
eina plantan sem ég hef upplifað að hafi per-
sónuleika. Það er þetta kúluform, þessi flos-
kennda áferð og græni liturinn, sem skapar
persónuleikann. Japanar hafa líka upplifað
þetta og persónugert kúluskítinn í alls konar
teiknimyndum. Við höfum einnig gert þetta,
notað kúluskítinn sem persónugerving fyrir líf-
ríki Mývatns í fræðslustofu sem Náttúruvernd
ríkisins rak við Mývatn. Þar var kúluskíturinn
gerður að teiknimyndafígúru, leiðarhnoða í
þeirri sýningu.“
Hvers konar fyrirbæri er kúluskítur?
„Þetta er grænþörungur sem vex í fersku
vatni. Eitt af vaxtarformum hans eru þéttvaxnar
og svampkenndar kúlur sem vaxa upp í tólf
sentímetra þvermál í Mývatni, liggja lausar of-
an á vatnsbotninum og hreyfast með straum-
um.“
Hvert verður efni fyrsta ávarps kúluskítshöfð-
ingjans?
„Þetta er fyrst og fremst örstuttur fræðslufyr-
irlestur með myndum af þessu kúluskíts-
samfélagi sem er í Mývatni.“
Friðrik Steingrímsson hefur tekið að sér að
semja Kúluskítsbrag sem frumfluttur verður á
morgun. Þegar hann var spurður út í braginn
sagði hann:
Mývatnssveit ég mesta lít
mörg þar gefast færi,
kynna vil þér kúluskít
kúnstugt fyrirbæri.
Hjálmar Freysteinsson, læknir á Akureyri,
frétti af kúluskítshátíðinni. Hann segist uppal-
inn við kúluskít og að hann hafi eflaust haft
mótandi áhrif á sig, þó enginn vissi í þá tíð að
hann væri svona merkilegur:
Þótt enginn sjái það á mér
þræti ég ekki fyrir hitt,
að ég er kúluskítskarakter
og kúluskítlegt er eðli mitt.
|pebl@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
K
Ú
L
U
S
K
Í
T
S
H
Á
T
Í
Ð
KÚLUSKÍTUR HEFUR PERSÓNULEIKA
Dagskrá Föstudagur 20.00. Kyndilganga frá bílastæðinu við Höfða niður að Mývatni og komið með kúluskít að landi. Kúlu-
skítshöfðingja afhentur kúluskíturinn til varðveislu. Þá hefst flugeldasýning. Kúluskítnum ekið með viðhöfn að Skjólbrekku
og kúluskítsmjöður kynntur á barkvöldi á Sel-hóteli Mývatn. Laugardagur 14.00. Bænastund í Skjólbrekku. Kúluskítshöfð-
inginn flytur ávarp. Sýning á klæðaburði í gegnum tíðina. Þjóðdansar og nýtt kúluskítslag kynnt. Kórsöngur. Kúluskíts-
verðlaunin afhent. Kaffihlaðborð sett upp að mývetnskum hætti. Laugardagur kl. 19.00. Slegið upp grillveislu og bjórhátíð.
Sunnudagur kl. 13.00. Gengið með kúluskítinn í hásæti frá Skjólbrekku að Stakhólstjörn. Glímusýning. Kúluskítshöfðing-
inn afhendir unga veiðimanninum kúluskítinn. Siglt út Stakhólstjörnina og út á Mývatn og kúluskítnum skilað.
ÆTLI
EKKI
Andrúmsloftið
8.15 á laugard
ina. Klukkan 8
skráin í dag. Þ
fækkað úr 89
Hvað heitirðu?
„Ásthildur B
P-e-d-e-r-s-e-n
„Jú, en eigin
Ertu stressuð
„Nei, ekkert
Hvernig datt þ
lengi?
„Ég hef átt þ
einhvern vegin
af þessari kep
skemmta mér
draumurinn.“
Hvað ertu göm
„Ég er tvítug
Hvar býrðu?
„Ég er úr Re
ár í Portúgal og
um.“
Hvenær var fy
„Fyrir tveimu
Hvernig gekk
„Bara mjög
herbergið. Þá
Heldurðu að þ
„Við verðum
Heldurðu að þ
in út?
„Nei nei. Sm
Þú ert semsag
„Já, ætli ma
maður áfram.
Þá segi ég ba
„Já, þakka þ
Diddú
Diddú flytur tónlist Leon-
ards Bernsteins og Arons
Coplands kl. 19.30 í Há-
skólabíói við undirleik
Sinfóníuhljómsveit-
arinnar. Hún flytur m.a.
tvær aríur úr einu óp-
erunni sem Copland
samdi, „This Tender
Land“, „alveg gullfallega
tónlist“ og syngur úr
söngleikjum Bernsteins.
Arki-
tektúr
Í tilefni afmælissýn-
ingar byggingarlistar-
deildar flytur hinn víð-
kunni arkitekt, Carlos
Zapata, fyrirlestur um
eigin verk í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu.
20.00
Pabbastrákur
Nýtt íslenskt leikrit, Pabbastrákur,
verður frumsýnt á Litla sviði Þjóðleik-
hússins. Vandséð hvor er meiri
pabbastrákur, pabbinn eða strák-
urinn. Höfundur er Hávar Sig-
urjónsson, leikstjóri Hilmar Jónsson
og leikarar Edda Heiðrún Backman,
Valdimar Örn Flygenring, Ívar Örn
Sverrisson og Atli Rafn
Sigurðarson.
Kl. 20.00
R o t t u g e n g i ð
Geir Ólafsson (Frank Sinatra),
Harold Burr (Sammy Davis yngri)
og Páll Rósinkranz (Dean Martin)
troða upp á Broadway sem ís-
lenska rottugengið (Rat Pack). Í
hlutverki glæsilegu, glaðlyndu og
hæfileikaríku söngkonunnar verð-
ur Bryndís Ásmundsdóttir. Stór-
sveit tuttugu hljóðfæraleikara
spilar undir í útsetningum Ólafs
Gauks og Þóris Baldurssonar.
22.00
00.30 Klúbbakvöldið Panik haldið að franskri fyrirmynd á nýja skemmtistaðnumKapital í tengslum við tónleika Bang Gang fyrr um kvöldið. Þar munu koma
fram Vitalic, Terranova, Nicolette, Tommy Hools og Margeir & Blake.
Bang Gang með
tónleika í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu í tilefni útgáfu plöt-
unnar „Something
Wrong“. Þar mæta auk
Bang Gang og strengja-
sveitar þau Phoebe Tolm-
er, Esther Talia Casey,
Daníel Ágúst Haraldsson
og fleiri gestasöngvarar.
21.00
KVENNAFJÖLTEFLI
Stefnt á að setja Evrópumet í Ráðhúsi
Reykjavíkur með því að halda fjölmenn-
asta kvennafjöltefli í sögu álfunnar.
Hundrað konum frá öllum sviðum þjóð-
lífsins er stefnt á staðinn. Kl.14.00
V
I
K
A
N
1
9
-
2
5
/
7
Fleiri en mynd-
listarnemar opna sýningu í
dag. Í Listasafni Reykjavík-
ur í Hafnarhúsinu verða
opnaðar þrjár áhugaverðar
en ólíkar sýningar. Eru það
sýningarnar Úr bygging-
arlistarsafni, Yfir bjart-
sýnisbrúna – samsýning
alþýðulistar og samtíma-
listar og Vöggu-
vísur.
kl. 16.00
Þeir sem eru í formi
eða vilja koma sér í form
geta hlaupið einn hring (5,2 km)
eða tvo (10,4 km) í Botnsvatnshlaupinu.
Keppt er í karla- og kvennaflokkum og
þremur aldursflokkum. Skráning er á staðn-
um og eru verðlaun veitt fyrir þrjú efstu
sætin í hverjum flokki. kl. 12.00
LaugardagurFöstudagur
Málverkasýning
Sara Elísa Þórðardóttir mynd-
listarnemi opnar málverkasýn-
inguna Afl og Orku í Galleríi
Tukt í Hinu húsinu við Pósthús-
stræti 3. Sara sýnir m.a. mál-
verk tengd vélum og orku.
16.00
23.00
Dansað á Electric Mass-
ive frameftir nóttu á
Grandrokki með Ruxpin,
Frank Murder, Chico
Rockstar, Thor 54, DJ
Grétari, Exos, DJ Gunna
Ewok og DJ Kalla.
Kvennakórinn
Vox Feminae er með tón-
leika í Ingjaldshólskirkju
17.00 en þetta er hluti
af 100 ára afmælishátíð
kirkjunnar. Það ætti að
gleðja gesti að tónleik-
arnir eru í boði sókn-
arinnar.
15.30
Fáðu þér
epli síð-
degis. Það
er hollt.