Morgunblaðið - 19.09.2003, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19|9|2003 | FÓLKÐ | 19
Tveimur vikum áður en World Trade Center féll flutti ég til
New York til að fara í nám. Ég fékk smábakþanka þegar ég
horfði á turnana hrynja með berum augum og hugsaði hvert
ég væri eiginlega komin meðan stríðsástand ríkti á göt-
unum. Tveimur árum seinna og mastersgráðu ríkari er ég hér
enn.
Ég hafði leitað að íbúð um alla borgina en um leið og ég
tók L-lestina yfir í Williamsburg-hverfið í Brooklyn vissi ég að
þar yrði ég að búa. Litlar götur, kaffihús, veitingastaðir, barir,
gallerí og litlar skemmtilegar verslanir. Andrúmsloftið er ann-
að en á Manhattan og miklu afslappaðra, fólk „tjillar“ úti á
götu og spjallar við nágranna sína. Hér hefur myndast sam-
félag ungs fólks, sérstaklega lista- og tónlistarmanna sem
fluttu til Brooklyn á tíunda áratugnum í leit að ódýrari leigu
og notfærðu sér iðnaðarhúsnæðið sem stóð víða autt.
Í Brooklyn hafa innflytjendur myndað samfélög sem minna
á upprunann. Ég bý í suðurhluta Williamsburg, sem er lat-
neska hverfið. Húseigandinn, Marcelina, er eldri kona frá Pu-
erto Rico og talar bara spænsku. Fjórar kynslóðir fjölskyldu
hennar búa í húsinu, Marcelina sjálf,
mamma hennar og sonur með tvíbura-
dætur sínar. Í kjallaranum er svo Rott-
weiler-varðhundurinn sem gólar í tíma
og ótíma.
Á öðru hverju horni eru litlar fjöl-
skyldureknar matvörubúðir og allir tala
spænsku. Litlu búðirnar virka líka eins og félagsmiðstöðvar
fyrir hverfið því þar hittist fólk eftir vinnu, slúðrar, drekkur
bjór, reykir yfir banönum og hlustar á salsa-tónlist. Á gang-
stéttunum spila gamlir karlar dóminó og konurnar sitja á úti-
tröppunum og spjalla meðan krakkarnir leika sér í götunni. Á
kvöldin safnast unglingarnir saman á götuhornunum og
strákarnir rappa fyrir mig þegar ég labba framhjá meðan hipp
hopp-tónlistin hljómar úr bílunum.
Ef ég labba nokkrar blokkir í suður er ég komin í gyðinga-
hverfið sem er eins og annar heimur, öll skilti eru á hebr-
esku og fólk talar málið sín á milli. Þar búa strangtrúaðir
hasída-gyðingar. Karlmenn eru í svörtum fötum, með mikið
skegg og sinn slöngulokkinn til
hvorrar hliðar. Konur ganga í kjólum
frá stríðsárunum og eru allar með
eins hárgreiðslu eða hárkollu. Börn-
in eru eins og fullorðna fólkið og
leika sér í jakkafötum og kjólum. Ef
ég labba í norður lendi ég í pólska
hverfinu þar sem allir tala pólsku, og hægt er að kaupa
pólsk dagblöð og pólskar vörur eins og Prins Póló.
Innan um þessi samfélög hefur unga „trendí“ fólkið hreiðr-
að um sig og setur svip sinn á Williamsburg í dag. Það
skemmtilega við að búa hér er að á hverjum degi upplifir
maður eitthvað nýtt. Tónlistarmenn troða upp á neðanjarð-
arlestarstöðinni fyrir klink og aðrir fara með fötin sín eða
skartgripi út á götu og selja. Hér hef ég kynnst fólki frá öllum
heimshornum og menningin er fjölbreytt eftir því. L-lestin er
aðeins fimm mínútur yfir á Manhattan þar sem draumar mín-
ir um glæstan frama bíða þess að rætast en svo lengi sem
ég bý í New York verður Brooklyn heimili mitt.
LÍFIÐ Í BROOKLYN
HANNA BJÖRK VALSDÓTTIR
„Við borðum mikilvægustu
máltíð dagsins oft á dag“
„Ég borða mikilvægustu máltíð
dagsins strax eftir útsendingu“
Mikilvægasta máltíð dagsins
BILLA
BONG
ELEMENT
VE
TUR
ELEMENT
BILLABONG
NIKITA,
NIKITA,
BILLABONG
OG ELEMENT VETUR
LAUGAVEGI 44
KRINGLUNNI
www. b r im . i s
NIKITA
BILLABONG
VE U
R
NIKITA,
OG ELEMENT
element