Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 22
22 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|9|2003 MORGUNBLAÐIÐ Leikstjórinn Rob Reiner á rætur í gríni, bæði líffræðilega og sem listamaður. Það fyrrnefnda: Hann er sonur eins frægasta grínista, leikara og leikstjóra gamanmynda og gamanþátta, Carls Reiner. Það síðarnefnda: Hann byrjaði leikferil sinn sem einn af stofnendum grínflokks í Los Angeles, samdi grín- skissur fyrir sjónvarpsþætti, m.a. þátt Smothersbræðra, lék fyrsta kvikmynda- hlutverk sitt í mynd föður síns, Enter Laughing (1967) og sló fyrst í gegn sem einn af fastaleikurum gamanþáttanna All In the Family (1971–1978), sem eru meðal þeirra vinsælustu og áhrifamestu í sögu bandarísks sjónvarps. Og þegar hann gerðist leikstjóri árið 1984 var frumraunin auðvitað gamanmynd, This Is Spinal Tap, sem skapaði nýja tegund kvikmynda, platheimildarmynd- ina. Síðan hefur hann leikstýrt verkum af ólíku tagi, m.a. æskusögunni ljúfu Stand By Me, spennumyndinni Misery og pólitíska dramanu Ghosts of Miss- issippi. En gamanið og rómantíkin hafa engu að síður verið hans ær og kýr. Um rómantískar gamanmyndir sínar segir Rob Reiner: „Í þeim er karlmaðurinn æv- inlega dálítið hrjúfur og úti um allt, en konan með betri tök á lífi sínu. Sögurnar lýsa því hvernig þau hafa áhrif hvort á annað.“ ÁST Í ÖÐRU VELDI Luke Wilson leikur tvöfalt hlutverk rithöfundar í kreppu í rómantísku gam- anmyndinni Alex and Emma eftir Rob Reiner, sem frum- sýnd er hérlendis um helgina: Hann leikur bæði ritstíflaðan rithöfund sem skuldar bók og peninga og sögupersónuna í bókinni, sem einnig er ritstíflaður rit- höfundur, sem skuldar bók og peninga. Kate Hudson leikur konurnar sem eiga að bjarga báðum. HINAR  The Sure Thing (1985) var önnur bíó- mynd Robs Reiner, rómantískt gaman, eins konar endurgerð It Happened One Night eftir Frank Capra (1934). John Cusack og Daphne Zuniga leika menntaskólanema sem sitja uppi hvort með annað á ferðalagi, hann áleiðis til að fá’ða, hún til fundar við leiðinlegan kærasta. Og auðvitað ná þau saman að lokum eftir skrykkjótta byrjun. Skemmti- leg en tíðindalítil.  The Princess Bride (1987), ein vinsæl- asta mynd Reiners, ekki beint róm- antísk gamanmynd heldur rómantísk fantasía með ljúfsárum húmor í bland við ævintýrið af prinsessunni, skrímsl- unum og skylmingunum.  When Harry Met Sally (1989), lang- besta mynd Reiners, sannkallaður klassíker meðal rómantískra gam- anmynda, prýdd bráðfyndnu og næm- legu handriti Nora Ephron, óaðfinn- anlegum leik Billys Crystal og Meg Ryan í hlutverkum vina sem verða elskendur án þess að vilja það og Reiner heldur ut- anum skemmtunina af stöku öryggi.  The American President (1995). Mein- laus og því broddlaus rómantísk gam- anmynd um forseta Bandaríkjanna (Michael Douglas), sem misst hefur konu sína en verður ástfanginn af kven- kyns lobbýista (Annette Bening) á miðju kosningaári. Martin Sheen leikur hér starfsmannastjóra forsetans en var síð- ar hækkaður í tign í sjónvarpsþáttum sama handritshöfundar, Aarons Sorkin, The West Wing.  The Story Of Us (1999) er líklega slak- asta afurð Robs Reiner í rómantíska gamangeiranum. Bruce Willis og Mic- helle Pfeiffer leika hjón sem eru búin á því en tregðast við að skilja vegna barnanna. Það er misskilningur, vegna þess að ella hefði þessi mynd ekki verið gerð sem hefði verið farsælla fyrir alla aðila. ÞESSI  Alex and Emma er tilraun Robs Reiner til að gera „öðruvísi“ rómantíska gamanmynd og hann segist hafa séð strax möguleika á því þegar hann las handrit Jeremys Leven. Það bygg- ist lauslega á aðdraganda þess að rússneska stórskáldið Fjodor Dostojevskí skrifaði skáld- sögu sína Fjárhættuspilarinn. Dostojevskí var sjálfur forfallinn fjárhættuspilari og þegar hann skuldaði útgefanda sínum nýja bók með aðeins einn mánuð til að skrifa hana en missa höf- undarrétt yfir öllum verkum sínum ella réði hann í örvæntingu hraðritara til að hjálpa sér við verkið – og varð ástfanginn af henni. En bókin kom út og heitir Fjárhættuspilarinn. Alex and Emma segir svipaða, tvöfalda sögu. „Það sem er skemmtilegt við þetta,“ segir Rob Reiner, „er að persónurnar í bókinni fara að segja frá því sem er að koma fyrir raunverulegu persónurnar. Og það sem kemur fyrir þær í raunveruleikanum fer að hafa áhrif á það sem kemur fyrir persónurnar í bókinni. Þannig vinnur skapandi fólk; lífið líkir eftir skáldskapnum sem líkir eftir lífinu.“ Sem oftar fer Rob Reiner sjálfur með lítið hlutverk í Alex and Emma, mis- kunnarlausan útgefanda rithöfundarins. Hann segir auðvelt að leikstýra sjálfum sér. „Ég ríf ekki mikið kjaft við sjálfan mig.“ FR UM SÝ N T Staðreyndin er sumsé sú að bestu verk Bresku bíódaganna birtu ekki beinlínis upplífgandi eða uppörvandi mynd af lífi breskrar alþýðu, hvort sem þar var um sam- antekin ráð eða tilviljun að ræða. Eða svo lítur það að minnsta kosti út við fyrstu sýn. Á yf- irborði þessara mynda einkennist breskt hvers- dagslíf af sem næst óbærilegum leiðindum, gráma, misrétti, fátækt, mannfyrirlitningu, jafn- vel mannhatri, ástleysi og vonleysi. Sögufólkið virðist rótfast í sínum hrjóstruga stéttarjarðvegi og flóttaleiðirnar eru einna helst dópið, brenni- vínið og bjórkollan, sem gera því miður illt verra, hlekkja þau enn frekar við armæðuna. Og þegar sögupersónurnar í einhverri þessara mynda stinga uppá því að nú væri gott að fá sér „a nice cup of tea“ er það hámark ömurleikans, eins og í tepottinn er búið. Þótt svona sé útlitið við fyrstu sýn er ekki allt sem sýnist. Skoðum dæmi. Í All or Nothing fjallar fremsti kortleggjari breskrar hvers- dagseymdar, Mike Leigh, um hóp fólks sem býr í fjölbýlishúsi með sameiginlegum húsagarði. Þetta ágæta fólk er eins og fangar með bæj- arleyfi þegar það heldur til láglaunastarfa sinna og svo heim í klefann þar sem það jagast og nuddar hvað í öðru; öskur og svívirðingar ganga á milli hjóna og para, foreldra og barna, en verst er þó þögnin, æpandi samskiptaleysið. Þau rífa hvert annað niður eins og umhverfið rífur hvert og eitt þeirra niður. En höfundurinn, Mike Leigh, finnur ekki aðeins fyrir þau húmorinn í þessu lífi, heldur einnig vonina. Hún felst ekki í fé- lagslegum úrræðum stjórnvalda heldur í ástinni eða kannski frekar væntumþykjunni. Eins og ein aðalpersónan, hinn lánlausi og mæddi leigubíl- stjóri sem Timothy Spall túlkar af snilld, segir undir lokin: Ef við eigum ekki hvert annað eigum við ekki neitt. Við höfum ekki allt, en heldur ekki ekkert, er merkingin í titli myndarinnar. „Það tók mig tuttugu ára þjálfun í sjálfsaga, að við- bættri eðlilegri andlegri hrörnun minni, að verða nógu leiðinlegur til að breskur almenningur tæki mig alvar- lega,“ sagði George Bernard Shaw og er of seint að óska honum til hamingju með árangurinn. Hins vegar er ekki of seint að óska forsvarsmönnum Breskra bíó- daga í Háskólabíói, og reyndar okkur sjálfum sem áhuga höfum á bíómyndum, til hamingju með árangur þeirrar framkvæmdar. Þar náðu bresk hversdagsleið- indi þvílíkum hæðum að ógerlegt var ekki aðeins að taka þau alvarlega, heldur að skemmta sér betur en oftast í íslenskum bíóum seinustu misserin. SJÓNARHORN Árni Þórarinsson Bretar finna til tevatnsins HINAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.