Morgunblaðið - 22.09.2003, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2003 C 3Fasteignir
Elías Haraldsson
Sölustjóri
Farsími: 898-2007
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Farsími: 895-8321
Margrét Jónsdóttir
Skjalafrágangur
510-3800
Skólavörðustíg 13
101 Reykjavík
Sími: 510-3800
Fax: 510-3801
husavik@husavik.net
www.husavik.net
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
hdl.
Sérbýli
Ásgarður. Mjög gott 129,6 fm
miðjuraðhús á þremur hæðum í góðu steinhúsi. Neðri
hæð: Forstofa, hol, eldhús og stofa. Efri hæð: Þrjú
svefnherbergi og baðherbergi. Kjallari: Herbergi,
baðherbergi (vatnsgufa), geymsla og þvottahús.
Eignin er töluvert mikið endurnýjuð m.a. allar steyptar
lagnir undir plötu og niðurföll, allar stofnlagnir þ.e.
hita og vatnsveitu, allt gler, þakjárn og pappa o.fl.
Áhv. 7,5 millj. húsb. og lífsj. Verð 14,9 millj.
Vogar/sund. Gullfallegt ca 167 fm
parhús á tveimur hæðum í góðu steinhúsi. Þrjú
svefnherbergi (voru fjögur), góðar stofur með
útgangi út á stóra verönd, fallegur garður. Gott ca
15 fm herb. í kjallara með sérinngangi (einnig
inngengt frá íbúð). Eignin var mikið endurnýjuð fyrir
nokkrum árum síðan m.a. eldhús, bað og gólfefni.
Áhv. 11 millj. hagstæð langtímalán. Verð 20,5 millj.
(70)
Klapparberg. Vel skipulagt 177 fm
einbýlishús á tveimur hæðum, auk 30 fm
frístandandi bílskúrs, samtals 208 fm. Húsið er
staðsett innst í botnlanga. Fjögur stór
svefnherbergi, stofa og borðstofa með útgangi út á
hellulagða verönd með heitum potti og skjólveggjum.
Baðherbergi með sauna, baðkari og sturtuklefa.
Verð 21,9 millj. (175)
Grensásvegur - Laus. Mjög fal-
leg 3ja herb. íbúð á 2. hæð (efstu) í láreistu fjölbýli.
Eignin skiptist í: Forstofu, hol, 2 svefnherb., eldhús,
baðherb. og stofu. Mjög björt og vel skipulögð íbúð
með frábæru útsýni. Allt gler endurnýjað nema í
stofu. Góðar suðursvalir. Nýlegt parket og flísar á
gólfum. Áhv 5,0 millj. húsbréf. Verð 11,3 millj.
(165)
Írabakki - Aukaherb. Falleg 3ja
herbergja 78,6 fm íbúð á 1. hæð í góðu
fjölbýlishúsi. Tvennar stórar svalir í vestur og
austur, parket og dúkur á gólfum, fallegur
verðlaunagarður. Eigninni fylgir aukaherbergi í
sameign með aðgengi að salerni, mikil lofthæð.
Áhv. 4,7 millj. Verð 10,7 millj. (198)
Engihjalli. Góð 3ja herbergja 84 fm íbúð
á 1. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin snýr í suður og austur
með tveimur góðum svefnherbergjum með dúki, hol
og stofa með parketi. Útgangur úr stofu út á stórar
20 fm suðaustursvalir. Flísalagt baðherbergi. Verð
11,3 millj.
2ja herb.
Laufásvegur. Góð 54 fm íbúð á
jarðhæð með sérinngangi í eldra steinhúsi, byggt
1924. Parket á gólfum, Innangengt úr íbúð í
þvottahús sem er í sameign. Tvær geymslur fylgja.
Áhv. 3,3 millj. Verð 8,5 millj.
Álftamýri - Laus. Falleg 63,4 fm,
2ja herbergja björt íbúð á 4. hæð (efstu) sem
skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi og
svefnherbergi. Í kjallara fylgir sérgeymsla svo og
sameiginlegt þvottahús með fjórum íbúðum. Nýlegt
parket á gólfum. Frábært útsýni frá stórum
gluggum. Laus strax, lyklar á skrifstofu. Verð 9,5
millj.
Vesturvör - Laus. Um er að ræða
42 fm, ósamþ. íbúð á 3. hæð. Eignin skiptist í
forstofu, stofu, svefnherbergi og eldhús. Verð 4,4
millj. (116)
Leirubakki - Aukaherb. Um er
að ræða 4ra-5 herb., 105 fm endaíbúð á 2. hæð m.
aukaherb. í sameign m. aðgengi að salerni. Stór og
björt stofa til suðurs m. útg. út á suðursvalir. Þrjú
svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar m. glugga.
Aukaherbergi gefur ca 20 þús. í leigutekjur. Áhv. 8,2
millj. Verð 12,2 millj. (334)
3ja herb.
Hrefnugata - Bílskúr. Mjög
glæsileg 3ja herbergja, 86 fm íbúð á 1. hæð auk ca
24 fm bílskúrs í fallegu steinhúsi. Íbúðin er mikið
endurnýjuð. Í eldhúsi er falleg kirsuberjainnrétting,
gashellur og stálháfur. Fallegur nátturusteinn á holi,
eldhúsi og á hluta hjónaherbergis. Tvær bjartar og
rúmgóðar stofur, stórt hjónaherbergi. Baðherbergi
með glugga og baðkari. Suðvestursvalir. Sjá myndir
á www.husavik.net. Áhv. 8,1 millj. Verð 14,9 millj.
(333)
Álftamýri - Útsýni. Góð og mikið
endurnýjuð 68 fm, 3ja herb. íbúð á 4. hæð í
fjölbýlishúsi. Nýlegar flísar á eldhúsi, eikarparket á
holi, stofu og öðru herbergi. Baðherbergi með
baðkari og innréttingu. Stofa með útgang út á
suðursvalir. Verið er að ljúka við viðgerð á göflum
hússins. Áhv. 6,3 millj. Verð 11,3 millj.
Skeiðarvogur - Sérinng. Mikið
endurnýjuð 2ja-3ja herbergja ca 67 fm kjallaraíbúð í
raðhúsi. Flísar á gólfum með hita, björt stofa, tvö
svefnherbergi, útgangur úr íbúð í sameiginlegan
suðurgarð. Nýlega búið að gera við húsið að utan.
Ekkert áhv. Verð 8,7 millj. (324)
Nýbygging
Grafarholt - Nýtt. Vorum að fá
gullfalleg 192 fm raðhús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Húsin verð klætt að hluta með áli
og verður skilað fullbúnum að utan og fokheldum að
innan. Möguleiki að fá þau lengra komin. Teikningar á
skrifstofu. Verð frá 16 millj. (313)
Ólafsgeisli. Nú fer hver að vera síðastur,
aðeins fáar eignir eftir. Um er að ræða stórglæsi-
legar efri og neðri hæðir auk bílskúrs á þessum
frábæra útsýnisstað. Stærðir hæðanna, frá ca 167 -
324 fm, ýmist á einni eða tveimur hæðum. Verð frá
15,8 millj. fokhelt. Það er möguleiki að fá lengra
komið (45)
Klukkuberg - Hafnarfirði.
Stórglæsilegt tveggja íbúða hús á útsýnisstað. Um
er að ræða ca 240 fm efri hæð og bílskúr, verð
16,6 millj. fokhelt og 80 fm neðri hæð, verð 9,9
millj. fokhelt. (83)
Gvendargeisli. Mjög fallegt og vel
staðsett 176 fm einbýlishús á einni hæð með inn-
byggðum 30 fm bílskúr. Eignin er til afhendingar í
júlí/ágúst og skilast fullbúin að utan og fokheld að
innan. Eignin er mjög vel skipulögð með fjórum
svefnherbergjum. Verð 18,2 millj. (301)
4ra til 5 herb.
Keilugrandi - Útsýni. Mjög falleg
114 fm, 4ra herbergja íbúð m. stæði í bílskýli á
frábærum útsýnisstað. Tvær stofur, sjónvarpshol og
tvö svefnherbergi. Físar og parket á gólfum,
suðursvalir með glæsilegu útsýni. Þá er einnig
glæsilegt útsýni yfir Faxaflóa, Esjuna og Akrafjall.
Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Verð 17,9 millj. (325)
Suðurvangur - Laus. Mjög
rúmgóð og björt 113 fm, 4ra herbergja íbúð á 3.
hæð, efstu, í góðu fjölbýli. Eignin skiptist í: Anddyri,
hol, þrjú svefnherbergi ásamt baðherbergi í sér
álmu. Rúmgott eldhús með borðkrók, þvottahús og
geymsla inn af eldhúsi. Rúmgóð stofa og
sjónvarpshol með frábæru útsýni, suðursvalir. Áhv.
6,5 millj. húsb. og lífsj. Verð 12,8 millj.
www.husavik.net
Hlíðarhjalli - Kópavogur
Glæsilegt 287,7 fm einbýli á tveimur hæðum með
innbyggðum 32 fm bílskúr. Húsið er ekki
fullfrágengið.
Búið er að innrétta neðri hæð með 5
svefnherbergjum, baðherbergi og rúmgott
þvottahús (það er möguleiki að gera séríbúð,
lagnir eru til staðar). Efri hæð er ekki fullbúin en
vel íbúðarhæf. Húsið er frábærlega vel staðsett neðan við götu með frábæru útsýni, innarlega í
botnlanga. Óbyggt svæði fyrir sunnan og vestan húsið (göngustígur og lækur). Áhv. 15.0 millj. hagstæð
Hæðargarður - Sérinng.
Góð 2ja herbergja 62,4 fm íbúð á 1. hæð í
fjórbýlishúsi. Eldhús með nýlegri
eldhúsinnréttingu. Stór sérgarður sem snýr í
suður. Nýlegir gluggar og gler í stofu og
herbergi, þá hefur skolp einnig verið endurnýjað.
Fyrirhugaðar framkvæmdir sem greiddar verða
Sveit í borg - Kópavogur.
Frábærlega staðsett 122 fm, 4ra herbergja íbúð
á jarðhæð með sérinngangi í Fossvoginum.
Rúmgott og fallegt eldhús. Stofa, borðstofa og
sjónvarpsstofa með furuparketi á gólfum. Þrjú
svefnherbergi og baðherbergi með baðkari og
glugga. Fallegt útsýni yfir Fossvoginn, Perluna og
fleira. Verð 15,5 milllj. (335)
Laufás - Garðabær.
Sérstaklega fallegt lítið einbýlishús á einni hæð.
Húsið skiptist þannig: Tvær stofur, tvö herbergi,
eldhús, baðherbergi, þvottahús og útigeymsla.
Stór gróin afgirt lóð í kringum húsið með
yfirbyggðu útigrilli. Ný glæsileg suðurverönd með
heitum potti. Áhv. 5,6 millj. húsbréf. Verð 13,5
millj.
KINDUR hafa alltaf vitað að ull er
hlý og einangrandi. Það vissu forfeð-
ur okkar líka og þess vegna notuðu
þeir ullina í fatnað, voðir og jafnvel
til einangrunar í hýbýli sín.
Íslenska ullin er með eindæmum
góð til einangrunar, en þrátt fyrir
það er stærstum hluta hennar hent
eins og hverju öðru rusli.
Aðalástæða fyrir þessum um-
hverfissóðaskap er sú staðreynd að
það eina sem mönnum hefur dottið í
hug að nýta hana í, lopapeysur og
tískufatnað, er ekki lengur í tísku og
flísefnið hefur tekið sæti hennar í
fataiðnaði.
Bresk ull betur nýtt
Ull af bresku sauðfé er betur nýtt í
fataframleiðslu en íslensk ull og nú
hefur bæst við ný afurð, húsaein-
angrun úr sauðfjárull.
Það tók Christine Armstrong í
Cumbria tvö ár að hanna Thermof-
leece-plöturnar sem komu á mark-
aðinn í apríl 2001. Þær hafa selst eins
og heitar lummur og fá feikilega
góða dóma. Plöturnar eru gerðar úr
grófu ullinni af Swalesdale og Her-
dwick fé, en það er sá hluti ullarinnar
sem ekki er notaður til fatafram-
leiðslu þar um slóðir.
Plöturnar eru mjög umhverfis-
vænar og hafa m.a. verið notaðar til
einangrunar í skólahúsnæði og ann-
ars staðar þar sem mikið er lagt upp
úr að engin eiturefni séu til staðar.
Ullin er eldtefjandi, hún brennur í
raun ekki, heldur bráðnar og leiðir
því ekki eld. Einangrunarplöturnar
eru einnig afar rakadrægar, þær
geta dregið í sig allt að 40% raka og
mynda við það hita sem nemur 960
kílójoule á hvert kíló ullar. Þetta
veldur meðal annars því að þær eru
afar orkusparandi og gefa frábæra
einangrun.
Orkan sem fer í að framleiða þess-
ar einangrunarplötur er að sögn
framleiðenda aðeins brot af því sem
þarf til að framleiða trefjaglers- eða
steinullareinangrun og auk þess hef-
ur hún ekki ertandi áhrif á augu, húð
og öndunarfæri eins og önnur ein-
angrun.
Væri ekki athugandi að nýta það
sem nýtanlegt er af sauðkindinni
umhverfinu til hagsbóta og styrkja
um leið stoðir sauðfjárbænda? Eftir
hverju erum við að bíða? Þeir sem
hafa áhuga á að kynna sér þessa nýj-
ung geta kíkt á vefsíðu Armstrong:
www.secondnatureuk.com
Vistvæn
húsaeinangrun
Ljósmynd/Jóhanna Harðardóttir
Íslenska ullin er með eindæmum góð til einangrunar, en samt er stærstum hluta hennar hent eins og hverju öðru rusli.
Jóhanna Harðardóttir/bestla@sim-
net.is