Morgunblaðið - 30.10.2003, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR
!" #
$
!
"
Handbókin vinsæla frá ISO í íslenskri þýðingu
ISO 9001 FYRIR LÍTIL FYRIRTÆKI - LEIÐSÖGN
Pantaðu á www.stadlar.is
BÆJARLIND Vandað nýlegt hús í traustri
útleigu, ca 2000 fm. Verð 194 m.
SKEIFAN 716 fm, traustur 8 ára samningur,
tekjur 8,3 á ári, nýklætt og endurnýjað hús.
SELJABRAUT Herbergjaútleiga, 6 herbergi í
fullri útleigu, árstekjur 2,3 m. Verð 15,3 m.
SELJABRAUT 17 herb. gistih/herb-útl., laust,
mögul. á 6 í viðbót á sama stað. Verð 25 m.
VÖLUTEIGUR Leigt til stofnunar, 576 fm. Verð
30 m. Gott lagerhúsnæði.
KRÓKHÁLS 10 ÁRA SAMNINGUR
Leigutekjur á ári 4,8 m. Verð 37 m.
KRÓKHÁLS 508+120 fm loft, skrifstofa.
SKEMMUVEGUR 150+90 fm innkeyrslubil.
TIL SÖLU
TÆKIFÆRI FJÁRFESTAR
EIGNIR MEÐ LEIGUSAMNINGUM
SÍÐUMÚLA 15 • SÍMI 588 5160
ATVINNUHÚSNÆÐI – SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Sölustjóri Daníel - 868 6072
Skoðaðu alla söluskrána á heimasíðunni
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS Gunnar Jón Yngvason,löggiltur fasteignasali
FRAKKASTÍGUR 370 fm innréttað veitingahús.
SKÚTUVOGUR 540 fm verslun eða lager, 6 m
lofth., allt á jarðh., góð aðkoma.
HLÍÐASMÁRI 150 fm verslunarhúsnæði.
SKÚTUVOGUR 140 fm flott skrifstofa á 2.
hæð, lagnastokkar, góður staður.
TUNGUHÁLS 90 fm flott skrifstofuhúsnæði.
VANTAR f. verslun svæði 108 ca 150-200 fm.
VANTAR húsnæði fyrir kaffihús í miðbæ.
VANTAR eign sem má breyta í íbúðir.
VANTAR f. verslun svæði 101 ca 150-250 fm.
VANTAR f. fiskvinnslu ca 150-300 staðsetn. ?
VANTAR EIGNIR TIL AÐ SELJA EÐA LEIGJA
VANTAR STRAX
TIL LEIGU
ÁGÚST Einarsson, prófessor við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands, ritar grein í nýjasta tölublað
Vísbendingar undir fyrirsögninni
Álitaefni á íslenska hlutabréfamark-
aðnum. Meðal þess sem þar er fjallað
um er staða stjórnarmanna í Kaup-
höll Íslands og eignarhaldið á Verð-
bréfaskráningu Íslands og Kauphöll
Íslands, en þessi tvö félög eru að fullu
í eigu Eignarhaldsfélagsins Verð-
bréfaþings. Í grein Ágústs kemur
fram að eigendur Eignarhaldsfélags-
ins séu félög í eigu skráðra fyrir-
tækja, 29%, félög með aðild að Kaup-
höllinni, 29%, Seðlabanki Íslands,
16%, Samtök fjárfesta, 13%, og lífeyr-
issjóðir, 13%. Stjórn Kauphallarinnar
skipi níu einstaklingar og aðrir níu til
vara.
Ágúst segir mjög marga aðal-
stjórnarmenn tengjast mjög viðskipt-
um í Kauphöllinni. „Formaður stjórn-
ar er Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, og í stjórn eru m.a.
Ingólfur Helgason, einn af fram-
kvæmdastjórum Kaupþings Búnað-
arbanka, Yngvi Örn Kristinsson, einn
af framkvæmdastjórum Landsbank-
ans, Þorgeir Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs VR,
stærsta almenna lífeyrissjóðs lands-
ins, og Þorkell Sigurlaugsson, einn af
framkvæmdastjórum Eimskips.
Það orkar mjög tvímælis að þessir
menn sitji í stjórn vegna þeirra starfa
sem þeir gegna. Þeir eru þar með yf-
irmenn Þórðar Friðjónssonar, for-
stjóra Kauphallarinnar, og annarra
starfsmanna Kauphallarinnar. Eink-
um er staða Bjarna Ármannssonar,
yfirmanns eins stærsta banka lands-
ins, gagnrýnisverð í þessu sambandi.
Kauphöllin fer með ákveðið eftirlit á
markaðinum, skv. lögum, og það hef-
ur oft komið fyrir í stjórn Kauphall-
arinnar að stjórnarmenn hafi verið
vanhæfir og varamenn þurft að taka
sæti á fundum en ýmsir af varamönn-
unum eru einnig nátengdir venju-
bundnum viðskiptum Kauphallarinn-
ar. Kauphöllin hefur einnig heimild til
að leggja á sektir þannig að óhlut-
drægni verður að vera hafin yfir allan
vafa,“ segir Ágúst.
Sömu stjórnarmenn hjá
báðum félögunum
Hann segir einnig orka mjög tvímælis
að Verðbréfaskráning Íslands sé rek-
in af sömu aðilum og Kauphöllin, en
sömu stjórnarmenn séu í báðum fé-
lögunum. Eðlilegt væri að eigendur
Kauphallarinnar, sem séu ekki að
reka hana í ábataskyni þótt hluta-
félagaformið sé notað, huguðu að því
að skapa ekki tortryggni vegna
stjórnarmanna. Ágúst segist ekki
vera með þessu að halda því fram að
núverandi stjórnarmenn hafi misnot-
að aðstöðu sína en engin ástæða sé til
að skapa óróleika um stjórnarmenn.
„Danska kauphöllin er einnig
hlutafélag en þar virðast stjórnar-
menn vera fjarlægir daglegum við-
skiptum. Í norsku kauphöllinni er
stjórnin m.a. skipuð fyrrum fram-
kvæmdastjórum stórfyrirtækja og
fólki úr norska Seðlabankanum og há-
skólanum. Mikilvægt er að allt verði
gert til að fullkomið traust ríki í
skipulögðum hlutabréfaviðskiptum,
sérstaklega við núverandi aðstæður
þar sem miklar hræringar hafa orðið
síðustu misseri í viðskiptalífinu, m.a.
fyrir forgöngu og með virkri þátttöku
margra þeirra sem eiga sæti í stjórn
Kauphallarinnar,“ segir Ágúst Ein-
arsson.
Viðurlög ekki á borði stjórnar
Morgunblaðið bar skrif Ágústs undir
Bjarna Ármannsson, forstjóra Ís-
landsbanka og stjórnarformann
Kauphallarinnar. Bjarni segir að
Kauphöll Íslands sé fyrst og fremst
þjónustustofnun sem hafi það hlut-
verk að greiða fyrir viðskiptum með
verðbréf. Það geri hún með því að
skapa skipulegan verðbréfamarkað
þar sem opinber skráning verðbréfa
og viðskipti með þau fara fram. Starf-
semi Kauphallar Íslands og kauphall-
araðila lúti eftirliti Fjármálaeftirlits-
ins en Kauphöllin hafi einungis
úrskurðarvald í þeim reglum sem hún
hafi sjálf sett.
„Stjórn Kauphallarinnar starfar
eftir starfsreglum sem eiga að koma í
veg fyrir að upp komi hagsmuna-
árekstrar. Auk þess tók stjórn Kaup-
hallarinnar ákvörðun um það í júní í
fyrra að fela forstjóra að taka ákvarð-
anir í eftirlitsmálum. Forstjóri, ásamt
starfsmönnum, tekur því ákvarðanir
um beitingu viðurlaga vegna brota á
reglum Kauphallarinnar, þar með tal-
ið ákvarðanir um févíti og áminning-
ar. Þessi mál eru því ekki á borðum
stjórnar.
Stærri eftirlitsmál falla hins vegar
beint undir Fjármálaeftirlitið, þar
með talið þau sem tengjast meintum
innherjabrotum. Slíkum málum vísar
Kauphöllin til Fjármálaeftirlitsins
með þeim gögnum sem krefjast nán-
ari skoðunar að mati Kauphallarinn-
ar. Stjórn Kauphallarinnar hefur hins
vegar ekkert um það að segja hvaða
málum Kauphöllin vísar til Fjármála-
eftirlitsins og hefur engar upplýsing-
ar um þau umfram aðra á markaðn-
um,“ segir Bjarni Ármannsson.
Staða stjórnarmanna í
Kauphöllinni gagnrýnd
Formaður stjórnar Kauphallar Íslands, Bjarni Ármannsson, segir starfs-
reglur eiga að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra
Ágúst
Einarsson
Bjarni
Ármannsson
KAUPHÖLL Íslands vill fá lög-
um breytt svo hægt sé að fram-
fylgja samstarfssamningi milli
Kauphallarinnar og Verð-
bréfaskráningar Íslands. Fjármála-
eftirlitið hefur lýst efasemdum um
samstarfssamninginn, sem gerður
var síðasta haust, og felur í sér
samþættingu rekstrar, auk sam-
þættingar á sviði upplýsingatækni
og lögfræði hjá þessum fyr-
irtækjum. Efasemdir Fjármálaeft-
irlitsins lúta að því að samning-
urinn kunni að brjóta í bága við
lög um starfsemi þessara fyr-
irtækja. Kauphöllin hefur sent er-
indi til viðskiptaráðuneytisins
vegna þessa og óskað eftir að það
fari yfir málið með tilliti til þess
hvort til greina komi að ráðuneytið
hlutist til um að lögum verði
breytt svo að samstarfssamning-
urinn haldi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá viðskiptaráðuneytinu er
málið í skoðun en niðurstaða liggur
ekki fyrir.
Upplýsingaleynd tryggð
Kauphöll Íslands er skipulegur
verðbréfamarkaður þar sem op-
inber skráning verðbréfa fer fram,
svo og viðskipti með þau. Hjá
Verðbréfaskráningu Íslands eru
geymdar upplýsingar um hverjir
eru eigendur skráðra verðbréfa.
Fyrirtækið er uppgjörshús og
vörsluhús allra rafrænt skráðra
verðbréfa, en verðmæti þeirra er
yfir eitt þúsund milljarðar króna.
Um þessa starfsemi gilda sérstök
lög, sem hafa meðal annars þann
tilgang að tryggja að trúnaður ríki
um upplýsingarnar.
Kauphöll Íslands og Verð-
bréfaskráning Íslands eru í eigu
sama félags, Eignarhaldsfélagsins
Verðbréfaþings. Sömu menn sitja í
stjórnum allra þessara félaga og er
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, stjórnarformaður
þeirra. Bjarni segir að ástæða þess
að áhugi sé á því að breyta lögum
sé sú að talið sé að með því megi
ná fram auknu rekstrarhagræði.
Spurður að því hvort ekki sé hætta
á að viðkvæmar trúnaðarupplýs-
ingar leki milli fyrirtækjanna seg-
ist hann ekki telja að svo sé. Hægt
sé að tryggja upplýsingaleynd með
verklagsreglum og aðskilnaði milli
starfssviða, auk þess sem allir
starfsmenn séu bundnir trúnaði.
Hagkvæmni mikilvæg
Þórður Friðjónsson er forstjóri
Eignarhaldsfélags Verðbréfaþings
og Kauphallar Íslands. Hann segir
að samþætting rekstrarins, sem
kveðið var á um í samstarfssamn-
ingnum milli Verðbréfaskráningar
og Kauphallarinnar, sé að fullu
komin til framkvæmdar. Áformin
um samþættingu á upplýsinga-
tæknisviði og lögfræðisviði hafi
hins vegar strandað á athugasemd-
um Fjármálaeftirlitsins sem efist
um að sú samþætting sé í sam-
ræmi við lög.
Þórður segir að lög um þetta at-
riði séu í ákveðnum atriðum ólík
milli landa og íslensk lög séu
strangari en hjá sumum öðrum
ríkjum. Sem dæmi sé svipað eign-
arhald í Finnlandi og hér á landi,
en í Danmörku sé aðskilnaður í
eignarhaldi.
Markmiðið með samþættingunni
segir hann vera að ná fram sem
mestri hagkvæmni, en mikilvægt
sé að hagkvæmni verðbréfa-
viðskipta sé sem mest.
Þórður segir að í ljósi niðurstöðu
Fjármálaeftirlitsins komi tvær
leiðir til greina, annars vegar að
lögum verði breytt svo samstarfs-
samningurinn haldi, en hins vegar
að laga samninginn að túlkun
Fjármálaeftirlitsins á núgildandi
lögum.
Kauphöllin vill
lagabreytingu
Samstarfssamningur milli Kauphallarinnar og
Verðbréfaskráningar strandaði á efasemdum
Fjármálaeftirlitsins um lögmæti hans
Morgunblaðið/Sverrir
ÍSLANDSBANKI hefur aukið
við hlut sinn í Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og á nú 21,5% hluta-
fjár eða rúmlega 322 milljónir hluta,
samkvæmt tilkynningu til Kauphall-
ar. Fyrir átti bankinn 17,2% og
nemur aukningin því 4,3%.
Burðarás, dótturfélag Eimskipa-
félagsins, er sem fyrr stærstur hlut-
hafa í SH með 27,1% hlutafjár og
Landsbanki Íslands er annar
stærstur með 26% hlutafjár en Ís-
landsbanki er þriðji stærsti hluthaf-
inn. Þá á Fjárfestingarfélagið
Straumur 10,3% í félaginu, Sjóvá-
Almennar tryggingar eiga 5% og
Framtak fjárfestingarbanki 2,3%.
Aðrir hluthafar eiga minna.
Samanlögð eign Íslandsbanka og
Sjóvár-Almennra trygginga, sem
bankinn á yfir 90% hlutafjár í, nem-
ur því 26,5% af hlutfé SH sem gerir
félögin sameiginlega að öðrum
stærsta hluthafanum. Þá nemur
sameiginlegur hlutur Straums og
Framtaks, sem Straumur hefur tek-
ið yfir, 12,5% en Íslandsbanki á um
þriðjung hlutafjár í Straumi. Bank-
inn hefur því yfir 39% hlutafjár í
SH að ráða. Er þar samtals um að
ræða rúmar 585 milljónir að nafn-
verði.
Íslandsbanki með yfirráð
yfir 39% hlutafjár í SH
Hlutur bankans sjálfs og Sjóvár-Almennra nú 26,5% auk
þess sem hlutur Straums og Framtaks er 12,5%