Morgunblaðið - 30.10.2003, Page 9

Morgunblaðið - 30.10.2003, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2003 B 9 NVIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF  ingum. Gerð er ítarleg krafa um að sérgreina þá í skýr- ingum og brjóta mun betur upp en tíðkast hér. Séu fastafjármunir keyptir á kaupleigu þarf að segja frá því og tilgreina kaupleigusamninga meðal langtímaskulda. Einnig þarf að skýra ítarlega frá því hvernig greiðslum af þeim samningum á að vera háttað á næstu árum. Þetta er atriði sem þarf að leggja talsvert í að halda ut- an um.“ Samanburðarhæfni og gagnsæi Aðalbreytingin og það sem mestu máli skiptir að mati Ólafs er að samanburðarhæfni á milli fyrirtækja á milli landa eykst til muna, sem og gegnsæið. „Það hefur í raun verið óþolandi fyrir alla, hvort sem eru hluthafar, greiningardeildir eða aðrir, að notaðar séu svo mismun- andi aðferðir við gerð ársreikninga. Þeir sem gera upp samkvæmt þessum stöðlum verða að gera það í einu og öllu. Ekki dugir að sleppa einum staðlinum. Endurskoð- endur verða að vera meðvitaðir um það og skrifa ekki upp á annað.“ Að auki nefnir Ólafur til kosta mjög ítarlegar skýr- ingar í reikningunum þar sem hlutirnir eru raktir af ná- kvæmni enda sé markmiðið að gera reikningana auð- skiljanlega fyrir leikmenn jafnt sem fagmenn. Viðkvæmar upplýsingar til keppinautanna Það sem hins vegar gæti vaxið mönnum hvað mest í augum er starfsþáttagreining sem koma þarf fram í skýringum ársreikningsins. Ólafur segir að sérgreina þurfi afkomu hvers starfsþáttar samstæðu ef tekjur af honum nema yfir 10% af heildartekjum samstæðunnar. Og sérgreindir starfsþættir verða samtals að ná yfir 75% af heildarveltunni. „Þetta eru oft viðkvæmar sam- keppnisupplýsingar. Menn þurfa þarna að tilgreina í hvaða greinum eða á hvaða landsvæðum styrkleikar þeirra liggja. Þar með veit keppinauturinn hvar viðkom- andi er sterkur eða veikur fyrir. En einnig má nefna ít- arlegar upplýsingar um viðskipti við tengda aðila.“ Fornleifarannsóknir um áramót Um áramótin þurfa þær fyrirtækjasamstæður sem staðlarnir ná yfir að byrja að vinna samkvæmt þeim. Ólafur telur að ákveðinn höfuðverkur geti fylgt því að koma efnahagsreikningnum í ársbyrjun 2004 saman við alþjóðlegu reglurnar. Uppfæra þurfi eignir og skuldir og leiðrétta í gegnum eigið fé líkt og stöðlunum hafi verið beitt síðastliðin ár. „Þá þarf í mörgum tilvikum að vinda ofan af málum og finna út hvort allt hafi staðist alþjóðlegu reglurnar þó svo að það hafi staðist þær ís- lensku. Þetta kallar á ákveðna tegund af fornleifarann- sóknum.“ Fleiri fylgja í kjölfarið Einungis þær samstæður sem eru með hlutabréf sín skráð hjá Kauphöll Íslands þurfa samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins að birta reikninga sína samkvæmt stöðlunum sem hér um ræðir. Ólafur telur hins vegar að þessar aðferðir sem skal beita verði til að bæta reikn- ingsskil fyrirtækja svo mikið að önnur stærri fyrirtæki muni fylgja í kjölfarið og nýta sér staðlana. „Auk þess sem lánastofnanir og fleiri aðilar gætu farið að gera rík- ari kröfur á fyrirtæki, þegar þeir verða orðnir góðu vanir að fá allar þessar upplýsingar.“ Lög hafa ekki verið sett hérlendis um staðlana og gildissvið þeirra en stefnt er að því að leggja frumvarp þessa efnis fyrir Alþingi í síðasta lagi næsta haust. Því er enn óljóst hvort staðlarnir muni gilda um fleiri fyr- irtæki en þau sem eru sérstaklega nefnd í stöðlunum, þ.e. samstæður sem skráðar eru á markaði. Fjárhagsleg áhættustjórnun Yfirlit um fjárhagslega áhættustjórnun sem á sér stað í samstæðunni er annað nýtt lykilyfirlit. Ólafur segir því ætlað að fjalla um hvaða áhættuþætti fyrirtækið býr við, ef til vill á alþjóðamarkaði, með tilliti til gengis, vaxta og svo framvegis. Þarna þurfi að koma fram hvernig samstæðan er að bregðast við áhættunni og hvernig samningar þess, sem gerðir eru til að verjast þessari áhættu, eru færðir í reikningsskilin. Handbært fé án vaxta og skatta Helsta breytingin á sjóðstreymisyfirlitinu er sam- þjöppun á efsta hlutanum, handbæru fé frá rekstri. „Sá hluti skiptir kannski hvað mestu máli en þar kemur fram hversu miklu reksturinn skilaði í peningum. Ein- ungis er gert ráð fyrir að sýnt verði handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta og greiddir vextir og skatt- ar. Ég lít svo á að með þessu sé verið að auka sam- anburðarhæfni á milli skuldsettra fyrirtækja annars vegar og fyrirtækja með sterka eiginfjárstöðu hins vegar.“ Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar segir Ólafur settar fram með svipuðu móti og áður en vekur þó athygli á tveimur liðum í fjármögnunarhreyfingum sem heita greiddur arður til meirihluta og greiddur arður til minnihluta. „Það er gert ráð fyrir að þetta sé brotið upp í tvennt.“ Viðskiptavild verðmetin árlega Tína má til ýmsa þætti sem taka breytingum með inn- leiðingu alþjóðlegu reikningsskilastaðlanna en aðeins verður stiklað á nokkrum athyglisverðum breytingum hér. Ein þeirra er meðferð viðskiptavildar en aðferðir íslenskra fyrirtækja við mat á viðskiptavild hafa verið mjög mismunandi. „Staðlarnir gera ekki ráð fyrir að viðskiptavild sem myndast við kaup eða yfirtöku á dótturfélögum sé af- skrifuð nema þá að hún hafi farið í gegnum nokkurs konar virðisrýrnunarpróf. Viðskiptavildin er þá verð- metin á hverju ári og í kjölfarið metið hvort þarf að af- skrifa hana, hluta hennar eða ekkert. Það er hins vegar tiltölulega flókið mál að meta þetta,“ segir Ólafur. Kaupleigusamningar sérgreindir „Það sem vakti sérstaka athygli mína í þessum reikn- ingum var meðferð á fjármögnunar-/kaupleigusamn- varðandi framsetningu reikningsins. „Eignakaflinn Fastafjármunir sem gjarnan hefur verið skipt í und- irkaflana óáþreifanlegar eignir, varanlega rekstrarfjár- muni, áhættufjármuni og langtímakröfur, verður mjög einfaldaður. Það sem áður var sundurliðað í undirköfl- unum færist í skýringar með liðunum,“ segir hann. „Varanlegir rekstrarfjármunir koma t.d. bara fram í einni línu en síðan er vísað í skýringar þar sem liðurinn er sundurliðaður og grein gerð fyrir breytingum á árinu.“ Veltufjármunakaflann segir Ólafur hins vegar verða með svipuðu sniði og hefur verið. Á skuldahliðinni hverfur skuldbindingakaflinn út og skuldunum verður einungis skipt í langtíma- og skamm- tímaskuldir. „Skuldbindingakaflinn sem við þekkjum úr íslenskum ársreikningum þar sem kemur fram lífeyris-, tekjuskatts- og ábyrgðarskuldbinding og hugsanlega fleiri skuldbindingar með óvissan gjalddaga verða nú meðhöndlaðar sem langtímaskuldbindingar, sem þær í raun eru.“ Skammtímaskuldbindingar eru hins vegar með svipuðu móti og áður. Þá verður eiginfjárkaflinn með svipuðu sniði, að sögn Ólafs, nema hvað eiginfjárreikningum fjölgar. Áhersla á eiginfjárhreyfingar „Ein af stóru breytingunum á ársreikningnum með til- komu staðlanna er yfirlit yfir hreyfingar á eigin fé, sem sérgreint er frá öðrum yfirlitum. Mun meiri áhersla verður lögð á eiginfjárhreyfingar og það sett meðal lyk- iltöluyfirlita. Þar á að gera nákvæma grein fyrir öllum breytingum á eigin fénu síðastliðin tvö ár.“ Ólafur segir stærstu breytinguna vera þá að meðal eiginfjárreikninga verði liður sem kallast sérstakt end- urmat og fleira. „Honum er ætlað að taka á móti liðum eins og sérstöku endurmati af fasteignum, áhrifum af framvirkum samningum, þýðingarmun sem á sér stað við umreikning erlendra dótturfélaga í íslenska mynt og fleira. Þetta eru liðir sem hafa ekki áhrif á afkomu árs- ins samkvæmt rekstrarreikningi.“ Sértækt endurmat segir Ólafur ekki vera eins og það endurmat sem tengist verðbólguleiðréttingum. „Ef í ljós kemur að fasteign er mun meira virði en bókfært kaupverð og þú vilt sýna raunvirðið í reikningunum þá fer endurmatið í gegnum eiginfjárreikninginn en er ekki tekjufært í rekstrar- reikning. Sama með verðbréfin, t.d. endurmat hluta- bréfa sem á eftir að selja er fært í gegnum eigið fé þangað til bréfin eru seld en þá eru þau innleyst í gegn- um rekstrarreikning.“ kstrarreikningi sam- kostnaðarverð seldra Ólafur segir nokkur da sé fyrir því laga- erslunarfyrirtæki að vörusölunni sýnd og ðir rekstrarins sem afskriftir verða ekki ingi heldur eru þær trinum. „Reksturinn Það er búið að deila r Ólafur. Þetta skref verkum að fórna þarf rir afskriftir og fjár- m og er það stærsta g að EBITDA-hagn- ur kemur hann fram arreikningi hagnaður st víða erlendis. ngi samstæðu er, að mþjöppun yfirlitsins. r á einni blaðsíðu í a það til mikilla bóta uppgjörsaðferðir áðum fyrirtækjum uphöll Íslands þurfa um áramótin að vera í stakk búnar til að laga sig að nýjum reikningsskilareglum. Markmiðið er að sam- m auðveldara að lesa ársreikninga fyrirtækja. Morgunblaðið/Kristinn                                           ! " #   $  !" $     %        &                                    '        )  # &  )!  *  #+  ,-.' /0( )     )%      )%   !     1%   23   4             $   , 50  6 5      73   8 5    73     9 !       '    #  ! &    ) soffia@mbl.is an fjárfestingarkosti almennt. Ég tel því að þetta verðskuldi mikla yfirlegu og vinnu.“ Aðlögun reikninganna er þó, að sögn Hjörleifs, aðeins einn liður af 15–20 sem samstæðan hefur unnið markvisst að sl. tvö ár og miðast að því að Össur, sem fjár- festingarkostur, sé gjaldgengur hjá hvaða fjárfestum sem er, hvar sem er. „Það er metnaðarmál okkar að vera í fararbroddi. Íslenskt fyrirtæki sem ætlar að fá athygli annars staðar þolir enga sérvisku. Það er nógu mikil áskorun í því að selja fyrirtækið sem slíkt þó að ekki þurfi að setja menn fyrst inn í alls kyns stað- bundna þætti.“ Hjörleifur segir mjög gott að vinna eftir stöðlunum og þeir séu til mikilla bóta. „Þetta eykur agann í að vera með góðar skýringar en það er ekki stærsta málið heldur það að samræma aðferðir við uppgjör fyrirtækja.“ Þolir enga sérvisku Um helstu kosti og ókosti alþjóðlegu staðlanna segist Hjörleifur telja að stærsta kostinn sé að finna í betri skýringum með reikningunum. Hann sér hins vegar enga ókosti við þá og neitar því að þeir flæki málin. „Þetta er mikilvægt grundvallargagn fyrir þá sem hagsmuni hafa af því að eiga viðskipti með bréfin, lána eða bera sam- tun. Auk þess er alltaf munur á árshlutareikningi og árs- nda er enn meira af skýringum og mun meira af efni.“ nið hafa tekið samstæðuna meira en ár en áhersla hafi a mjög vandlega og ekki af neinni hendingu“. Hann segir hafi gefist gott tækifæri til þess að samræma aðferðir allan heim. „Liður í þessu verkefni var t.d. að útbúa sér- öllum uppgjörshandbók þar sem farið er í gegnum helstu mstæðan á að nota. Þetta var því nokkurs konar samræm- gjörið samkvæmt stöðlum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.