Morgunblaðið - 10.11.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.11.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2003 C 45 Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is - fax 562 4249 FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Miðtún - Sérhæð Til sölu við Miðtún, góð íbúð með sérinngangi, hæð og ris, sam- tals 123 fm. Stór stofa, hjónaherb. og eldhús á hæðinni og 3 herb. í risi. Íbúðin nýmáluð, nýlegt gólfefni, snyrtilegar innréttingar. Út- gangur úr stofu út á sólpall og garð. Góð eign í rólegu hverfi. Verð 17,9 millj. 4ra-6 herbergja íbúðir Kristnibraut - Lyftuhús Ný 4ra herb. íbúð, ca 120 fm, ásamt tilheyrandi sameign. Vandaðar innréttingar og góður frágangur, til afhendingar í lok október 2003. Verð 15,8 milljl. Engjasel - 4ra herb. Góð 4ra herb. íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bíla- geymslu. Barnvænt hverfi, fallegt útsýni, góðar innréttingar, flísalagt baðherbergi, sólríkar svalir. Laus fljótlega. Kristnibraut - 4ra herbergja Vönduð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu í litlu fjöl- býlishúsi. Vandaðar innréttingar, mjög mikið og fallegt útsýni. Verð 17,8 millj. 2ja-3ja herbergja Barðastaðir - 3ja herb. Mjög vönduð 3ja herb. íbúð á fyrstu hæð í lyftu- húsi. Stæði í bílageymslu. Þessi íbúð er öll hin vandaðasta. Laus eftir samkomulagi. Verð 15,4 millj. Fensalir - 2ja herb. Mjög stór og góð 100 fm 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Beykiparket á allri íbúðinni og vandaðar mahóní-innréttingar. Baðherbergi með sturtu og baðkeri. Stór timburverönd með skjólveggjum og miklu útsýni. Verð 14,5 millj. Ljósalind - 2ja herb. Góð 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Parket og flísar á gólfum, góðar innréttingar. Stór sólverönd með skjólveggjum. Verð 11,7 millj. Grenimelur - 2ja herb. Góð og mikið endurnýjuð 71 fm, 2ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Fallegar inn- réttingar, gólfefni, flísar og parket. Gengt úr stofu út á góða suðurverönd. Skemmti- leg íbúð á þessum rólega og góða stað í Vesturbænum. Verð 12,9 millj. Sérhæðir Naustabryggja - „Penthouse“ Til sölu á þessum spennandi stað í Bryggjuhverf- inu í Reykjavík. Íbúðirnar eru í Naustabryggju 20-22 og er um að ræða glæsilegar „pent- house“-íbúðir á tveimur hæðum, samtals um 220 fm, ásamt 2 stæðum í lokaðri bílageymslu. Íbúðirnar verða afhentar rúmlega tilbúnar til innréttinga. Tvennar flísalagðar svalir, einar á hvorri hæð. Miklir möguleikar, íbúðirnar eru til- búnar nú þegar til afhendingar. Naustabryggja 12-18-20-22 - NÝTT Nýjar og glæsilegar 3ja til 6 herbergja íbúðir, frá 95 fm upp í 218 fm „penthouse“- íbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á bað- herbergi og í þvottahúsi verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum. „Penthouse“-íbúðir verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Bílageymslur fylgja öllum íbúðunum. Að utan verða húsin álklædd. Byggingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari uppl. hjá sölumönnum Fjárfestingar. Póstnr. 110. Nýjar og vandaðar 2ja til 6 herbergja íbúðir. Íbúðirnar verða frá 81 fm upp í 147 fm með rúmgóðum suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum inn- réttingum með möguleika á stæði í bílageymslu. Öllum íbúðum fylgir sérþvottahús. Að utan verður húsið álklætt. Afhending í maí 2004. Byggingaraðili er Byggingafé- lag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfest- ingar. Póstnr. 113. Kirkjustétt 15-21 - Grafarholti - NÝTT NÝTT Höfum hafið sölu á vönduðum og rúmgóðum 3ja og 4ra herb. íbúðum í 15 hæða álklæddu fjölbýlishúsi. Í húsinu verða 2 lyftur, sjónvarpsdyrasími, vand- aðar innréttingar og möguleiki á stæði í bílageymslu. Mjög fallegt útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla verslun og þjónustu. Byggingaraðili er Bygginga- félag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönn- um Fjárfestingar. Póstnr. 201. Rjúpnasalir 14 - Glæsilegt álklætt lyftuhús Vantar eignir fyrir kaupendur – Mikil sala Seljendur hafi samband við sölumenn okkar Atvinnuhúsnæði - til leigu Hlíðasmári 11 Nýtt og fallegt hús- næði. Hentar vel fyrir skrifstofur, verslun eða þjónustu. Stærðir frá 150-350 fm. Síðumúli 24-36 Nýtt skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Stærðir frá 150- 300 fm með stórum gluggum, innréttað að óskum leigutaka. Mörkin 4 Mjög glæsilegt og fullinn- réttað ca 340 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, sem hægt er að skipta niður í tvær einingar. Vegmúli 2 Fallegt og gott atvinnu- húsnæði á góðum stað. Stærðir frá 50- 300 fm. Askalind 2 Mjög glæsilegt 215 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði með innkeyrsluhurð. Fullbúið með tölvulögn- um og lýsingu. Stutt frá Smáralindinni. Borgartún 31 Nýtt skrifstofuhús- næði, samtals 700 fm, skiptanlegt í minni einingar. Innréttað eftir þörfum leigutaka. Frábær staðsetning. Einbýlis-, par- og raðhús Vesturholt - Hf. Fallegt og einstakt 213,8 fm einbýlishús á 3 hæðum á frá- bærum stað. Fallegt útsýni, glæsilegar innréttingar, falleg gólfefni, stór innbyggð- ur bílskúr og góðar geymslur. Prestbakki - Raðhús Gott palla- byggt raðhús með innbyggðum bílskúr. Mjög vel skipulagt hús, möguleiki á að hafa litla aukaíbúð með sérinngangi. Verð 21 millj. Dalatangi - Einbýli Mjög stórt, 414 fm vandað tvílyft einbýlishús með tvö- földum bílskúr. Húsið skiptist í stórar stof- ur, svefnherb., eldhús, bað o.fl. á efri hæð, en í kjallara er stúdíóíbúð eða 5 stór svefnherb. Einnig er vinnuaðstaða undir bílskúr. Gróinn garður með stórri verönd ásamt heitum potti. Verð 33,5 millj. Langamýri - Einbýli Mjög gott 210 fm einbýlishús á einni hæð með inn- byggðum bílskúr. Fallegar innréttingar, flísar og parket á gólfum. Húsið mjög vel umgengið og í góðri umhirðu. Stór sólpall- ur og heitur pottur. Verð 28,9 millj. Starengi - Raðhús Til sölu gott raðhús á einni hæð með innbyggðum bíl- skúr. Allar innréttingar eru í stíl, mahóní og sprautulakkað. Gólfefni er gegnheilt jat- oba og flísar. Frágenginn garður með timburveröndum fyrir framan og aftan húsið. Hitalögn er í bílaplani og göngustíg að húsi. Verð 22,4 millj. Brúnastaðir - Einbýli Til sölu mjög gott og vandað 191 fm nýtt og mjög fallegt einbýlishús á einni hæð ásamt stór- um flísalögðum bílskúr. Parket og flísar á allri íbúðinni, fallegar innréttingar. Starengi - Raðhús Mjög fallegt hús á einni hæð ásamt innbyggðum bíl- skúr, 4 svefnherbergi, mjög vandaður frá- genginn suðurgarður með stórri verönd. Húsið er fallegt utan sem innan. Laugarnesvegur - 3ja herb. Mjög góð ca 80 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi á þessum góða stað. Nýleg falleg eldhúsinnrétting, góð gólfefni. Hús í mjög góðu viðhaldi. Verð 11,5 millj. Vesturberg - 3ja herb. Vel skipu- lögð 3ja herb. íbúð á jarðhæð með suður- verönd. Góð nýleg innrétting er í eldhúsi, flísar og parket á gólfum. Eldri borgarar Vesturgata - Einstaklings- íbúð Um er að ræða góða einstaklings- íbúð á þessum vinsæla stað fyrir eldri borgara. Mikil þjónusta er í húsinu. Atvinnuhúsnæði - Til sölu Vagnhöfði Vorum að fá til sölu 172 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð með inn- keyrsluhurð. Allt í góðu ástandi, til afhend- ingar fljótlega. Verð 13,5 millj. Garðabær - Garðatorg fasteignasala er með í sölu núna einbýlishúsið Haukanes 16, þetta er steinhús, byggt árið 1980 og er það 401 fer- metri, þar af er bílskúr 56,4 fermetrar. „Hér er verið að selja glæsilegt einbýli við sjóinn á Arnarnesi, frábært útsýni er til norð- urs,“ sagði Þórhallur Guðjónsson hjá Garða- torgi. „Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum skápum. Þaðan er gengt inn í flísalagt alrými, opið er þaðan inn í stórar flísalagðar stofur með mjög fallegum arni í spænskum stíl. Frábært útsýni er úr stofu. Þá er rúmgott eldhús með gegnheilli, dökkbæs- aðri eikarinnréttingu. Á efri hæð eru þrjú góð svefnherbergi og fallegt baðherbegi. Útgengt er á nýgerða stóra og glæsilega timburverönd (sunnan og vestan megin), á verönd er fallegt yfirbyggt skýli. Allar innréttingar og hurðir eru úr dökk- bæsaðri eik. Á efri hæð er að auki 56 fermetra bílskúr og rúmgott þvottahús. Inngangur er á efri hæð götumegin og er þar aðalhæð húss- ins. Á neðri hæð er séríbúð með sér inngangi, góð flísalögð stofa, þrjú svefnherbergi, þvotta- hús og rúmgott eldhús. Á neðri hæð er að auki sauna, þvottahús, bátaskýli og stórt herbergi sem nú er innréttað sem tómstundaherbergi. Stór og mikil lóð er allt í kringum húsið og miklir möguleikar eru þar til útivistar af hvers konar tagi. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að eignast fallegt hús á einum besta og eft- irsóttasta stað höfuðborgarsvæðisins. Ásett verð er 47,5 millj. kr.“ Einkar fagurt sjávarútsýni er frá gluggum Haukaness 16.Haukanes 16 er til sölu hjá Garðatorgi, þetta er 401 fermetra eign á sjávarlóð, ásett verð er 47,5 millj. kr. Haukanes 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.