Vísir - 05.12.1980, Side 2
2
Föstudagur 5. desember 1980
Hvernig list þér á mynt-
breytinguna sem tekur
gildi um áramótin?
Björn Magnússon, skrifstofu-
inaöur:
„Mér list bara vel á hana, ég
held ekki að það verði neinir erf-
iðleikar með hana”.
Asta ólafsdóttir, skrifstofu-
stúlka:
,,Mér list bara ágætlega á hana,
ef fólk kynnir sér vel fyrirfram
hvað um er að vera”.
Jósef Hólmjárn, rannsóknar-
maður:
„Ætli það veiti nokkuð ai' þvi að
þessir aurar verði einhvers viröi,
en það verður að fylgja þessum
aðgerðum eftir með öðrum”.
Agnar ólafsson, fasteignasali:
„Þetta leggst engan veginn i
mig, mér finnst sem sumir haldi
aö þaö eigi aö lækka alla hluti,
þaö veröur erfitt að framfylgja
þessu”.
Jón Einarsson, verslunarmaður:
„Bara vel, þá verður maður að
nota sellurnar”.
VtSIR
JER ALLTAF SVO-
LfTID KVlÐIN"
Segir Kristín
Arngríms-
dóttir
leikkona
,,Mér var ekki sérlega minnisstætt, þegar ég lék á
sviði i fyrsta sinn. Hins vegar leið mér afskaplega
vel, þegar ég lék i fyrsta sjónvarpsleikritinu minu
sem var „Romm handa Rósalind”. Þar vann ég
með reyndu og góðu fólki, og það er ljúf og góð til-
finning tengd þvi hlutverki”.
Þetta er Anna Kristin Arn-
grimsdóttir leikkona sem þetta
mælir, en hún er áhugafólki um
leiklist, kunn fyrir leik «inn á fjöl-
um Þjóðleikhússins, Iðnó, svo og i
útvarpi og sjónvarpi. Þeir eru
vafalaust margir, sem muna eftir
henni i Iönó i hlutverki Óskar i
„Leynimel 13”, Astu i
„Skugga-Sveini” og Láru i
„Kertalogi” og Kathyar i „Hita-
bylgju”. 1 Þjóðleikhúsinu hefur
hún m.a. leikið Lóu i „Silfurtungl-
inu”, Jessicu i „Kaupmanninum i
Feneyjum”, konu i „Kirsublóm-
um á Norðurfjalli” og Júliu i
„Sumargestum”.
Anna Krsitin hóf leiklistarnám
hjá Leiklistarskóla Reykjavikur
1965, og útskrifaðist þaðan 1968.
Skömmu áður en hún lauk námi
lék hún i sinu fyrsta sjónvarps-
leikriti, sem einnig var hið fyrsta
sem skrifað er beinlinis fyrir is-
lenska sjónvarpið. Þar fór hún
með hlutverk Rósalindar i
„Romm handa Rósalind”.
Sama ár og hún útskrifaðist,
hóf hún starf hjá Leikfélagi
Reykjavikur, og var þar til 1972.
Haustið 1973 fór hún yfir til Þjóð-
leikhússins og hefur verið þar sið-
an, nú siðast i hlutverki Rutar i
„Nótt og degi”.
„Það má segja, aö ég sé i báð-
um þessum hópum sem þú nefn-
ir”, svaraði Anna Kristin spurn-
ingu blaðamanns um hvort hún
væri ein þeirra sem alltaf kviðu
leiksýningum, eða i hópi hinna,
sem fyndu ekki fyrir neinu sh~ku.
„Þetta fer nokkuð eftir þvi hversu
vandasöm hlutverkin eru. En
maður er ef til vill alltaf svolitið
kviðinn, bara misjafnlega mik-
ið”.
„Hvað með óskahlutverk?”
„Ég á ekkert óskahlutverk.
Hins vegar óska ég þess æving-
lega, aö ég geti skilað þvi hlut-
verki sem ég er að fást við hverju
sinni, þannig að fólk njóti þess að
horfa á það”.
„Hvernig fer þetta starf saman
við daglegt amstur ef svo mætti
segja?”
..Þetta er ekki ósvipað vakta-
vinnutima, eins og hann gerist i
þjóðfélaginu. Æfingatimabilið er
frá kl.10-4. Yfirleitt er þó æft
kl.10-2, vegna sýninga á kvöldin.
Það er svo mismunandi hjá
hverjum hversu mikið
hann hefur að gera á hverjum
tima.
Ef maður er með erfið hlut-
verk, þá krefjast þau meiri tima
og einbeitni, en ella. En þetta
starf kemur ekki niður á heimili,
sé það fyrir hendi, ef fólk er sam-
hent”.
Anna Kristin er gift Gisla M.
Garðarsyni og eiga þau tvö börn:
Garðar Svavar og Brynju Valdisi.
— JSS
sandkorn
Sæmundur Guðvinsson
blaðamaður skrifar
Ragnar getur ekki misst
tekjurnar
Bðnkunum
ekkl lokað
Það eru aldeilis óþarfa
dhyggjur sem menn hafa
út af fyrirhuguðu banka-
verkfalli þvf það verður
ekkert verkfall. Astæðan
er kannski ekki sist sú, að
Rfkið hefur ekki efni á að
bönkum verði lokað.
i útsölum Rfkisins er
ekki tekið við ávfsunum
en vart við þvf aðbúast að
almenningur liggi með
miklar fúlgur heima við á
þessum glæpatfmum.
Verði bankaverkfall
munu þvf viðskipti við
áfengisútsölurnar leggj-
ast niður og rikiö veröa af
stórum tekjum.
Brennivlnstekjurnar
skipta brðið svo miklu
máli fyrir rfkiskassann
aö þeir Ragnar Arnalds
og Tómas Arnason munu
sjá til þess að samningar
takist I bankadeilunni.
valdbeitlng
niðurstaðan?
Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalags-
ins segir í viötali við 1
Moggann I gær að hann
bfði endanlegrar niður-
stöðu I Gervasoni-málinu.
Nú hélt maður aö Frið-
jón dómsmálaráðherra
væri búinn að gefa sitt
lokasvar f þvf máli. En ef
litiö er í leiðara Þjóðvilj-
ans slðan I fyrradag má
sjá að þar skrifar Kjartan
Ólafsson um málið og
segir meðal annars:
„Ilarðræöi kallar á harð-
ræði, valdbeiting á vald-
beitingu”.
Kannski að endanleg
niðurstaða fáist ekki f
málinu fyrr en ljóst er
hver hefur bctur ef til
valdbeitingar þarf að
koma: setuliðiö burtflúna
eða löggæslan f landinu?
Bföur Svavar eftir slags-
málum?
Albert neitaði að taka viö
skjölunum
Ekkert
leynimakk
í borgarráði var á dög-
unum lagt fram bréf for-
stjóra Innkaupastofnunar
varðandi samninga við
skipafélögin um flutninga
fyrir Reykjavikurborg.
Stjórn Innkaupastofnun-
ar óskaði eftir að farið
verði með málið sem
trúnaðarmál.
Þessi ósk var borin
undir atkvæði borgar-
ráðsmanna og samþykkt
með þremur atkvæðum
gegn einu. Sá sem var á
móti er Albert Guö-
mundsson og óskaði hann
bókað, að hann tæki ekki
við umræddum máls-
skjölum þar sem þau
væru trúnaðarmál.
•
Viija víst
kaupa aiit
Halldór Sigurðsson hjá
Arnarflugi hafði sam-
band við Sandkorn út af
korni þess efnis að starfs-
fólk Arnarflugs vildi aö-
eins kaupa 10% af hluta-
fjáreign Flugleiða I fyrir-
tækinu. Halldór neitaði
þvf aö þetta væri rétt.
Hins vegar væri greini-
legt að Flugleiðir vildu
ekki selja hlut sinn f Arn-
arflugi. Starfsfólk þess
vildi kaupa allan hlut
Flugleiða en ef það feng-
ist ekki þá alla vega eitt-
hvað af honum.
Ennfremur sagði Hall-
dór Sigurðsson að það
væri skynsamlegt fyrir
tvö flugfélög af þessari
stærð að eiga samstarf,
til dæmis hvað varðar af-
greiðslu og viðhald, þó
ágreiningur væri um
markaðsöflun.
Athugasemd Halldórs
er hér með komið á fram-
færi en hún gefur Sand-
korni ekki tilefni til að
draga þá frétt til baka að
Arnarflugsfólk vilji
kaupa 10% af eignarhlut
Flugleiða. Halldór segir
hins vegar að vilji sé fyrir
hendi að kaupa allan hlut-
inn, en hann sé greinilega
ekki falur.
Aleinn á dekkl
Skipstjórinn var mikill
dugnaðarforkur en nokk-
uð fljótfær. Þeir voru að
enda við að draga netin
og skipstjórinn fór siðan
niður og fylgdi öll skips-
höfnin honum undir þilj-
ur.
Varð þá skipstjóranum
að orði:
— Hvað er að sjá þetta
strákar. Þið fariö allir
niður og skiljið bátinn eft-
ir aleinan upp á dekki.
Pústurrör
á Dlnoi
Þingmaður einn frá
Tromsö var þekktur I
Stórþinginu fyrir hvað
hann var frumlegur I orö-
um. i ræðu á þinginu
komst hann eitt sinn svo
að orði:
— Hér stend ég eins og
útblástursrör fyrir það
sem er að brjótast um í
kjósendum minum: sjó-
mönnunum þarna norður
frá. A
Björgvin er meðal þeirra
sem koma fram
Jðiakonsert
á sunnudag
Jólakonsertinn verður
haldinn f Háskólabló á
sunnudagskvöldið og þar
skemmta margir þjóð-
kunnir listamenn að
venju. í þetta skipti renn-
ur ágóðinn til styrktar
starfsemi fangahjálpar-
innar, Verndar.
Friðjón Þóröarson
dómsmálaráðherra vakti
athygli á þvf I sjónvarps-
viðtali á dögunuin að fáir
skipta sér af málefnum
innlendra fanga eða réttu
þeim hjálparhönd. Þetta
er rétt hjá ráðherranum
og fyllsta ástæða til að
hvetja fólk til að sækja
jólakonsertinn og styðja
gott málefni um leið og
hlýtt erá listafólkið sem
þar kemur fram, en það
gefur alla vinnu sfna á
j konsertinum.