Vísir - 05.12.1980, Síða 9
Föstudagur 5. desember 1980 vísir 0
foókmenntir -
ÆVI ATVINNUKNATTSPYRNUMANNSINS
Sigmundur ó. Steinarsson:
Ásgeir Sigurvinsson. Knatt-
spyrnuævintýri Evjapeyjans.
Ljósmyndir: Guöjón Róbert
Ágústsson.
Reykjavik, örn og örlygur,
1980.
Knattspyrna er mjög erfið
iþrótt og aðeins brot af öllum
þeimfjölda sem íþróttina stund-
ar um allan heim nær að komast
i fremstu röð á alþjóðavett-
vangi. En til að ná þangað þurfa
menn að leggja á sig langar og
strangar æfingar þannig að
flestu fólki þætti nóg um. A ts-
landi takmarkast möguleikar
knattspyrnumanna mjög af
þeirri staðreynd að ekki er hægt
að stunda iþróttina með góðu
móti nema fjóra mánuði á ári.
En þrátt fyrir kulda, myrkur og
erfiða velli æfa flestir íslenskir
knattspyrnumenn sem hug hafa
á að komast i fremstu röð
a.m.k. niu mánuði ársins utan-
húss. Með slíkum æfingum hafa
nokkrir tslendingar komist í hóp
þeirra bestu og hafa lifsviður-
væri af knattspyrnuiðkunum,
einkum þó mi á allra síðustu ár-
um.
Enginn held ég samt að efist
um sannleiksgildi þeirrar full-
yrðingar minnar að sá hæfi-
leikarikasti i þeim hópi sé sá, er
bókin um ævintýri Eyjapeyjans,
Ásgeirs Sigurvinssonar, fjallar
um. Það er ekki algengt að
menn hafi séð ástæðu til aö
skrifa heilar bækur um afrek
einstakra islenskra iþrótta-
manna. Þó eru þeir án efa
margir sem verðskulda með
ágætum afrekum sinum að
nafni þeirra sé haldið á lofti um
aldurogævi. Ég minnist einnar
bókar sem fjallar um einn is-
lenskan iþróttamann, en þar á
ég við bók Jónasar Jónssonar
frá Hriflu um Albert Guð-
mundsson, sem gerði garðinn
frægan sem knattspyrnumað-
ur m.a. i Frakklandi og á Italiu
á árunum kringum 1950.
Sa sem bók sú er hér er til um-
ræðu fjallar um, Ásgeir Sigur-
vinsson» fæddist i' Vestmanna-
eyjum árið 1955. Snemma kom i
ljós mikill áhugi hans á iþrótt-
um og hann var fremstur meðal
jafnaldra sinna i Eyjum á sviði
iþrótta. Hann var aðeins 16 ára
gamalhþegar hann lék i fyrsta
sinn i meistaraflokki IBV og
vakti hann þá strax mikla at-
hygli fyrir mikla hæfni. En það
voru fleiri en islenskir knatt-
spyrnuáhugamenn sem komust
á snoðir um hæfileika hans og
ekki leið á löngu áður en erlend
félög tókuaðgera tilraunir til að
fá hann til starfa á sinum veg-
um. Árið 1973 lék Asgeir með
unglingalandsliði Islands i úr-
slitakeppni Evrópumeistara-
móts unglinga i knattspyrnu,
sem fram fór á Italiu. Þar komu
útsendarar frá belgiska félag-
inu Standard Liege auga á hæfi-
leika hans og i júli það ár undir-
ritaði hann atvinnusamning við
það félag.
Bókin lýsir ferli Ásgeirs og er
húnaðallega byggð upp á blaða-
fregnum og einnig á viðtölum
sem hann átti við höfund á
heimili Asgeirs i Belgiu. Heimi
atvinnumennskunnar er lýst i
bókinni, bæði ljósu hliðunum og
þeim dökku. Það er min skoðun
að atvinnuknattspyrnumenn
séu „nútima þrælar” en þeir
fara hins vegar út i þrældóminn
með fúsum og frjálsum vilja.
Vinnan er erfið, henni fylgja
löng og ströng ferðalög og auk
þess andlegt álag, sem er
kannski erfiðasta raunin. En
ánægjustundirnar eru einnig
margar.einkum ef vel gengur og
menn losna við meiðsli, sem
gert hafa mörgum atvinnu-
knattspymumönnum lifið leitt.
Það er skemmtilegt að fá lýs-
ingu á li'fi þessa ágæta knatt-
spyrnumanns. Þrátt fyrir ungan
aldur er hann i hópi bestu knatt-
spyrnumanna Evrópu. Hæfi-
leikar hans eru ekki eingöngu
fólgnir i likamlegri hæfni, held-
ur ekki siður i skarpri dóm-
greind sem nýtur sin i hita leiks-
ins. Ogekki nýturhún sin si'ður i
viðhorfum hans til starfsins oe
tilverunnar almennt. Það gleo-
ur áreiðanlega alla Islendinga
aðsjá að hann erog veröur fyrst
og fremst Islendingur og er
Sigurður
Helgason
skrifar
giæsúegurfulltrúi sinnar þjóðar
meðal bestu knattspyrnumanna
iEvrópu. Skemmtilegt er einnig
að sjá hver viðhorf hans eru
gagnvart þvi að leika fyrir hönd
þjóðar sinnar i landsleikjum.
Það væri betur ef allir sem til
greina koma i landslið i ýmsum
greinum i'þrótta hefðu sömu við-
horf og væru jafn lausir við
hroka og Asgeir.
Að minu mati eru nokkrir
gallar á þessari bök. Þó em þeir
ekki stórir. Fyrst vil ég nefna,
að mér finnst hún vera alltof
sundurlaus og mér finnst vanta
samband á milli hinna ýmsu
kafla. Þá vil ég og nefna, að ég
hefði álitið það auka á gildi
Asgeir Sigurvinsson atvinnuknattspyrnumaður.
bókarinnar ef nánar hefði verið
lýst hinu daglega lífi atvinnu-
knattspyrnumannsins og þá þvi
hvernig æfingum er háttað hjá
slikum félögum. Reyndar er að-
eins minnst á það, en þvi eru
ekki gerð nógu góð skil að minu
mati.
Ég hef séð margar erlendar
iþróttabækur sem byggðar eru
uppá svipaðan iiátt og þessi bók
Sigmundar. Viðleitni hans er
mjog lofsverð og árangur
hvorki betri né verri en'búast
mátti við. Ahugi á iþróttum er
mikill á Islandi og vist er að
áhugamenn um iþróttir fagna
þessari bók.
Myndirnar i bókinni eru eins
og verða vill með iþróttamynd-
ir, fullar af lifi og fjöri og setja
skemmtilegan svip á bókina.
Að lokum vil ég segja þetta.
Margirungir piltará tslandi ala
með sér þann draum að feta i
fótspor Asgeirs Sigurvinssonar.
En til þess þurfa þeir að leggja
mikið á sig og vinna vel með
réttu hugarfari. Og hvort þeim
tekst að ná markinu eða ekki —
þá hafa þeir ekki nema gott af
öllu saman.
FRÁ YSTU
SAGA OG
Gils Guðinundsson:
FRA YSTU NESJUM — fyrsta
bindi
önnur útgáfa aukin.
Skuggsjá 198«.
A árunum 1942-53 komu út i
litlum heftum, einum sex að
tölu, sagnaþættir ættaðir af
Vestfjörðum. Þessir þættir
vöktu á sinum tima nokkra at-
hygli sakir málsþokka og lið-
legrar frásagnar. Þeir nefndust
Frá ystu nesjum og báru nafn
með rentu, þvi að þeir sögðu frá
mannlifi i djúpum dölum og á
fjallaskögum norðan frá ísa-
fjarðardjúpi suður að Arnar-
firði (eða segja ísfirðingar vest-
Japanskur Kambibis. Ein af teikningum Cecile Newbold Curtis I ”£jörö?J^_JJöfundur^
bókinni.
Dyrin í Eínskisúal
Dalur dýranna
Útgefandi Iðunn, 1980
llöfundar: Cécile Curtis, Imme
Ilros, Harry Geelen, Michael
Jupp.
Þýðendur: Þrándur Thorodd-
sen, Örnólfur Thorlacius.
I bókinni um „Dal dýranna”
eru kynntar ýmsar dýrategund-
ir, sem eiga á hættu að verða út-
rýmt, og fáeinar, sem þegar
hefur verið útrúmt, t.d. Dúdú-
fuglinn. Hann var stór ófleygur
fugl, sem lifði á eyjunni Mári-
tius i Indlandshafi. Tilgangur
með bókinni er sagður vera
verndun fágætra dýra jarðar og
mun hluti af ágóða, er inn kem-
ur fyrir bókina i hinum ýmsu
löndum, renna til Alþjóða-nátt-
úruverndarstofnunarinnar.
1 byrjun bókarinnar eru allar
sögupersónur kynntar, en þær
eru 20 að tölu. Sá, sem fer með
aðalhlutverk i sögunni, er eld-
fiðrildið mikla, Villi Vængstyrk-
ur. Hann er minnstur af dýrun-
um, en þó sá klókasti. Einlægur
vinur Villa er Hvitingur nas-
hyrningur, sem er stór og
klunnalegur.
Bókin „Dalur dýranna” er
eiginlega tvöföld bók, ef svo má
segja, 1 henni er ævintýri um
dýrin og einnig, nær þvi á hverri
opnu, fræðileg frásögn um þau
dýr, sem kynnt eru i sögunni.
Efnisþráður ævintýrisins i
bókinni olli mér nokkrum von-
brigðum. Hann er rýr, miðað við
það tækifæri, sem höfundum
hefur þarna boðizt. Mér finnst
aðalgalli sögunnar sá, að þáttur
flestra dýranna er of lítill, við
kynnumst ekki þessum sögu-
persónum nógu vel. Hin klók-
indalega barátta Villa Væng-
styrks við að plata hin dýrin og
ná undir sig eignum þeirra við
Einskisvatn er heldur leiðinleg-
ur efnisþráður.
1 hinni fræðilegu frásögn bók-
arinnar er aðalgildi hennar.
Með hverri frásögn eru lika
undur fallega teiknaðar myndir
af hverri dýrategund, enda seg-
ir á kápusiðu, að Cécile New-
bold Curtis, listamaðurinn, sem
þær myndir gerði, sé meðal
fremstu dýramyndateiknara i
veröldinni nú.
Blaðsíðurnar, sem þessi
fræðHega frásögn um dýrin er á,
eru grænar að lit. A þann hátt
veldur skiptingin á opnunum
siður ruglingi hjá börnum, þeg-
ar þau lesa bókina. Á grænu
blaðsiðunum er mikill fróðleik-
ur um þau dýr, sem koma fram i
bókinni, og við lesturinn koma i
hugann ýmsar spurningar, t.d.
hver verða örlög islenzku arn-
anna? Fara þeir sömu leið og
geirfuglarnir?
Mér finnst ævintýrið um dýrin
ekki skilja mikið eftir i minum
huga, en fræðslan um dýrin vek-
ur sannarlega til umhugsunar,
og þvi á bókin verulegt erindi til
barna
Anna Brynjúlfsdóttir
NESJUM - SÓLBAKKA-
HOLTSP RESTABALKUR
Andrés
Kristjánsson
skrifar um
bækur.
þessara þátta — eða safnandi og
klæðskeri — var ungur maður,
Gils Guðmundsson, kennari,
ættaður Ur önundarfirði, nú
kunnur rithöfundur og alþingis-
maður.
Þessi vestfirsku sagnakver
eru nú löngu upp urin, og þvi er
viðhæfi að hafin er endurútgafa
þeirra i samfelldari efnisröðun
og betri pappirsbúningi. Nú er
ráðgert að safn þetta komi út i
þremur bindum, eitthvað aukn-
um að efni, viðbötum, sem frá-
liðinn timi hefur skolað á fjöru,
og ritgerð Ólafs Þ. Kristjáns-
sonar skólastjóra um 'bændur i
önundarfirði árið 1801, sem
klippt var sundur i miðju, þegar
útgáfa heftanna varð bráðkvödd
á sinum tima, mun nú birtast öll
i þriðja bindi, að þvi er segir i
formála.
Þetta fyrsta bindi hefst á all-
löngum þætti um hvalveiðistöð-
in á Sólbakka i önundarfirði og
Ellefsen hinn norska. Er þar
brugðið upp mörgum minnileg-
um og lýsandi myndum af þess-
um tilþrifamikla athafnamanni
og atvinnurekstri hans, sem
breytti lygnum fjarðarbotni i
sjóðandi hver. Þegar á eftir
fylgir frásögn, er nefnist
Óspektasumarið 1897, og segir
þar frá hörðum bardögum á Sól-
bakka, enda voru þar þá 40
sænskir hvalskurðarmenn, og
skyldi engan undra, þótt til tið-
inda drægi. Siðan koma ýmsir
þættir af gerðarmönnum og
sviptingasömum viðburðum,
skipum og skaðaveðrum. I þess-
um bálki er drjúgur og for-
vitnilegur þáttur, sem kallast A
sprökuveiðum og er sóttur i
endurminningar Þorvalds Þor-
valdssonar.
Siðari hluti bindisins fer að
mestu undir frásagnir af prests-
setrinu Holti i' önundarfirði og
Holtsprestum. Er þar getið
fullra tuttugu vigðra þjóna allt
frá Steinþóri Steinþórssyni, er
sat þar á Sturlungaöld, til Lár-
usar Guðmundssonar, sem þar
þjónar nú á Verðbólguöld. Þetta
er greinargóð samantekt, lifguð
með lýsisögnum af mörgu tagi.
Þá er stutt frásögn af mann-
skaðanum mikla i önundarfirði
1812. Siðast i' bindinu eru nokkr-
ir stuttir þættir undir höfundar-
nafni annarra. Ólafur Þ. Krist-
jánsson á þar þátt um niðja Jóns
Indiafara, og séra Eirik Vigfús-
son á Stað i Súgandafirði og ætt
hans. Guðjón Jónsson leggur til
frásögn af Jóni Halldórssyni
bónda á Laugabóli og Ólafi
hreppstjóra Eggertssyni. Siðast
er ofurlitill samti'ningur smá-
muna, sem Gils hefur heyjað
sér hér og hvar, þar á meðal
broslegar glettusögur.
Andrés Kristjánsson.
Gils Guömundsson