Vísir - 29.12.1980, Síða 3
Mánudagur 29. desember 1980
VtSÍR
Fjórða hvert sýni
drykkjarhæft!
Könnun á gerlamengun neyslu-
og baðvatns á ferðamannastöð-
um, aðallega i óbyggðum lands-
ins, fór fram i sumar á vegum
Heilbriðiseftirlits rikisins sem og
tvö undanfarin sumur. Rann-
sóknin staðfesti svo ekki verður
um villst að töluverð gerlameng-
un er i neyslu- og baðvatni þó i
óbyggð sé.
40 sýni af neysluvatni voru
rannsökuð i sumar. Sjö sýni
reyndust nothæf, þrenn sýni voru
gölluð, en þrjátiu sýni voru ónot-
hæf, eða um 75%! Sambærilegar
tölur miðað við rannsóknina i
Kvenréttindafélag íslands:
Mótmælir fækkun
kvenna í miðstjórn ASÍ
Kvenréttindafélag Islands hefur
sent Alþýðusambandi íslands
yfirlýsingu þar sem lýst er van-
þóknun á þvi að á siðasta ASl
þingi fækkaöi kvenmönnum i
miðstjóm sambandsins um þriöj-
ung á sama tima og kvennaára-
tugur sameinuðu þjóðanna er
hálfnaður.
I lok yfirlýsingarinnar segir:
„Það er yfirlýst markmið
stjórnvalda á Islandi að vinna aö
jafnrétti kynjanna i reynd. Al-
þýðusambandi Islands, sem
stærstu launþegahreyfingu i
landinu, ber skylda til aö virða
þessi markmið og framfýlgja
þeim i' hvívetna”. — AS
Islenskup æðardúnn
á 400 nús. kílólð
Heimsmarkaðsverð á is-
lenskum æðardún, hefur nú tvö-
faldast á þessu ári og mun hvert
kiló vera selt á 1300—1400 vestur-
þýsk mörk ^ ;um 400 þúsund is-
lenskar krónur.
Upplýsingar þessar komu fram
á aðalfundi Æðarræktarfélags
Islands sem haldinn var 15.
nóvember siöast liðinn.
tslenskur æðardúnn mun hafa
algjöra sérstöðu umfram annan
dún, hvað verð og gæði varöar á
heimsmarkaöi, og er hann þar
þekktur sem einstök gæðavara.
—AS
fyrra eru 62% nothæf, 20% gölluð
og 18% ónothæf.
Af baðvatni voru rannsökuð 17
sýni úr náttúrulegum laugum og
var baðvatnið alls staðar metið
ónothæft eins og i fyrri rannsókn-
um. Vatnið er metiö sem sund-
laugarvatn, þar sem ekki er til
staðall um náttúruböð.
Þess ber að geta að af neyslu-
vatnssýnunum voru langflest tek-
in i Jökulsárgljúfri, eða 27 af 40.
Af þessum 27 sýnum reyndust öll
ónothæf nema eitt, en það var
tekið úr eldhúskrana landvarðar.
Neysluvatnssýnin voru tekin á
eftirtöldum stöðum. i Jökulsár-
gljúfri reyndust 26 sýni ónothæf
en eitt sýni var nothæft. A Hvera-
völlum voru tvenn sýni nothæf,
tvenn voru gölluð og tvenn ónot-
hæf. I Landmannalaugum voru
tekin tvenn sýni og reyndust þau
bæði nothæf. 1 Þórisdal voru tekin
fjögur sýni, tvenn voru ónothæf,
eitt gallað og eitt nothæft. Á tjald-
svæðinu við Mývatn var svo tekið
eitt sýni og reyndist það nothæft.
Þá voru tekin 17 baðvatnssýni,
sem öll reyndust ónothæf. Þau
voru tekin á Hveravöllum, Land-
mannalaugum og úr Stórgjá við
Mývatn.
I þessari könnun Heilbrigðis-
eftirlitsins, sem Kolbrún
Haraldsdóttir hafði yfirumsjón
með, kom einnig fram, að i engu
sýnanna fundust salmonellasýkl-
ar.
I lok skýrslu, sem gerð var um
könnunina, segir að lokum:
„Koma má i veg fyrir mengun
neysluvatns með viðeigandi hæf-
um umbúnaði vatnsbólanna og
verndun vatnstekjusvæðanna.
Slikt kostar að sjálfsögöu fé og
fyrirhöfn, sem ekki verður hjá
komist.” —ATA
Vatnið f Landmannalaugum stenst ekki kröfur Heilbrigðiseftirlitsins
um baðvatn frekar en önnur náttúruböð landsins.
Seitlarnarnesbær:
AHERSLA a félags-
LEGAR BYGGINGAR
A NÆSTA ARI
Fjárhagsáætlun Seltjarnames
bæjar mun að öllum likindum
hækka um 53% milli áranna 1980
og 81, en fyrri umræða um
áætlunina fór fram 17. desember
siðast liöinn. Hljóöar hún upp á
tæpan 1,7 milljarða.
Sömu álagningarreglur gilda
og siðasta ár 10% útsvar miðað
við viömiðunartölur þjóöhags-
stofnunar um teknaviömiðun 20%
afslátturá Ibúöarhúsnæöi 0,4% en
1% á annað húsnæði.
Vegna niöurfellingar eöa lækk-
unar fasteignagjalda hækka við-
miöunartekjur elli- og örorku-
þega.
Langstærstu útgjaldaliöir
næsta árs eru fræöslumál al-
mannatryggingar og félagshjálp
og gatna og holræsagerö.
Nú verður varið hærra hlutfalli
af rekstri til svonefndra eigna-
breytinga, eða 26% og er þar meö
dregið úr þjónustuframkvæmd-
um, en áhersla kemur á innrétt-
ingu Heilsugæslustöövar sund-
laugabyggingu, dagheimili og
ibúðir fyrir aldraða.
— AS
Sértilhort /
á kjúklingum ^
til áramóta.aðeins
kr. 3.200.- - pr. kg.
ímiðað við 5 stk.
^ í poka)
/a a a a. a a v
__ rj yiJDgjjj j
. _____ IMýr
matvörumarkaður
Leggjum áherslu á: Mikið vöruúrvai — Lágt vöruverð
Kiöt - F,skur
^jóikurvörur
Ný\enduvor
A"ar
°g
hreinlaetis
vörur
alltaf á
-^Qátterverði
At/ar vorur á
Eigum ennþá
úrvals hangikjöt
á gam/a verðinu
Heimsendingarþjónusta
á miðvikudögum
MATVÖRUMARKAÐUR
Hringbraut 121, S. 10600/28602
J||
Jón Loftsson hf.