Vísir - 29.12.1980, Síða 8
vtsnt
Mánudagur 29. desember 1980
utgefandi: Reykjaprent h.f.
Framkvcmdastióri: Davlft Goómunduon.
Ritstiórar:
ólafur Ragnarsson og Eltert B. Schram.
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Ellas Snaeland Jónsson. Fróttast|óri er-
lendra frótta: Guðmundur G. Pétursson. Blaóamenn: Axel Ammendrup. Aml Sig-
fússon. Frlða Astvaldsdðttlr. Gylfl Kristjónsson. lílugi Jökulsson. Kristln Þor
steinsdóttir. Páll Magnússon. Svelnn Guðjónsson. Sárr.undur Guðvlnsson, Þórunn
Gestsdóttlr. Blaóamaóur á Akureyri: Glsll Slgurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L.
Pálsson, Sigmundúr O. Steinarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Elln Ell-
.ertsdóttir, Gunnar V. Andréssoru Kristján Arl Einarsson. OtlHsteiknun: Gurmar
Trausti Guöbjörnsson. Magnús Olafssan.
Auglýsingastióri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstióri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjóra: Slðumúll 14. slmióMII 7 llnur. Augiýsingarog skrifstofur: Slðumúla 8.
slmar 86611 og Ó2áO. Afgreiósla: Stakkholtl í—4. slmi 86411.
Askriftargjald kr. 7.000 á mánuói innanlandsog verði lausasölu 350 krónur eintak-.
ift. Visir er prentaður i Blaðaprenti hf .,Siðumúla 14.
Gunnar Thoroddsen
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra er sjötugur í dag. Á
slíkum tímamótum er það gam-
all siður að fara fögrum orðum
um af mælisbarnið og bera á það
mærðarfullt lof. Ekki hafa þó
forystumenn Sjálfstæðisf lokks-
ins haft geð í sér til að upphef ja
slíkan lofsöng á þessum tíma-
mótum í lífi varaformanns
flokksins eins og sjá má af
afmælisgreinum Morgunblaðs-
ins. Þeim er vorkunn eins og allt
er í pottinn búið.
Auðvitað er það hræsni og
Gunnari lítill greiði gerður, ef
menn tala sér þvert um hug. En
það er vissulega merkisatburður,
þegar forsætisráðherra verður
sjötugur í embætti, ekki síst eftir
langan og litríkan feril í íslensku
þjóðlífi. Þau tímamót verða ekki
afgreidd með þögninni.
Stundum er sagt að stjórn-
málamaður þurfi að eiga sér
mörg líf. Það á vel við um
Gunnar Thoroddsen. Hvað eftir
annað hafa menn spáð því, að
hann ætti ekki afturkvæmt.
Þegar hann reis upp gegn
flokknum í forsetakosningunum
1952, var talið að hann hefði
brennt allar brýr að baki sér. Það
sama var sagt, þegar hann
kvaddi ráðherradóm og varafor-
mennsku 1965. Ósigurinn í for-
setakosningum 1968 átti að verða
hans banabiti. Misheppnuð
tilraun Gunnars Thoroddsen til
að ná kosningu sem varafor-
Gunnar Thoroddsen á sjötugsafmæli í dag. Ferill hans er langur og litrikur, þótt ekki sé
hann öllum að skapi. Forsætisráöherra situr ekki á friðarstóli, en Vlsir flytur honum og
fjölskyldu hans bestu afmæliskveöju á þessum merku timamótum.
maður Sjálfstæðisflokksins 1971
var talin örlagarík og nú á allra
síðustu tímum var varafor-
mennska og þingmennska
Gunnars meir í ætt við tiliitssemi
við gamlan samherja, heldur en
umboð til forystu.
En alltaf hefur Gunnar risið
upp frá pólitískum dauðadómum
og nú síðast með svo eftirminni-
legum og afdrifarikum hætti, að
hann trónar nú f æðsta stjórn-
málaembætti þjóðarinnar.
Líf hans hafa reynst fleiri en
kattarins.
St jórnmálasaga Gunnars
Thoroddsen er samtvinnuð
íslenskri stjórnmálasögu í hálfa
öld.
Stjórnmálaafskipti hans hófust
um það leyti sem útvarp kom til
sögunnar. Hann reið hestum til
sinna fyrstu framboðsfunda.
Gunnar var orðinn áhrifamiki11
stjórnmálamaður löngu fyrir
lýðveldisstofnun. Enginn maður
annar hefur verið bæði yngsti og
elsti þingmaður þjóðarinnar.
Enginn maður annar hefur lifað
það að vera trúnaðarvinur Jóns
Þorlákssonar og samstarfs-
maður Svavars Gestssonar.
Gunnar Thoroddsen hefur frá
fyrstu tíð verið í hópi forystu-
manna Sjálfstæðisf lokksins.
Flokkurinn og fylgismenn hans
hafa lyft honum til æðstu met-
orða. Lítill vafi er á því, að ef
Gunnar hefði ekki sjálfur kosið
að draga sig í hlé árið 1965 og
gerast sendiherra í Kaupmanna-
höfn, hefði hann orðið sjálf-
skipaður til formennsku í Sjálf-
stæðisflokknum eftir fráfall
Bjarna Benediktssonar. Þau átök
og sviptingar sem staðið hafa um
Gunnar eftir endurkomu hans í
flokkinn 1970 eru að miklu leyti
sjálfs hans sök.
Aðrir menn og honum yngri
höfðu valist í tómarúmið sem
hann skildi eftir. Metnaður
Gunnars hefur gert honum
erfitt að skilja þá staðreynd,
hvað þá að sætta sig við hana.
Ekki síst af þeim sökum gat hann
réttlætt það fyrir sjálf um sér að
mynda ríkisstjórn í blóra við
sjónarmið flokksbræðra sinna.
Fyrir vikið situr Gunnar Thor-
oddsen ekki á friðarstóli á sjö-
tugsafmæli sínu. Það er sorgleg
staðreynd. Gáfur hans, þekking,
reynsla og glæsileg framkoma
eru óvéf eng janlegar stað-
reyndir. Við hlið sér hefur
Gunnar notið elskulegrar og
glæsilegrar eiginkonu. Ferill
Gunnars og framlag hans til
sjálf stæðisstef nunnar hefði
sannarlega átt skilið önnur örlög
á þessum tímamótum en kalda
vist í náðarfaðmi þeirra, sem
hann hef ur barist gegn allan sinn
stjórnmálaferil
Vísir flytur Gunnari Thor-
oddsen þá afmæliskveðju að
honum megi auðnast að taka
höndum saman við sína fyrri
samher ja áður en langt um liður.
iðnaðarmenn gera tillögur um opinber Innkaup:
„Viljum benda á pjöð-
hagslega hagkvæmnl”
Landssamband iönaöar-
manna hefur lagt til aö mótuö
veröi islensk innkaupastefna
opinberra aöila, sem hafi þann
tilgang aö beina innkaupum
opinberra aöila markvisst aö
innlendri framleiöslu og þjón-
ustu, þó innan ramma raunhæfs
samanburöará verðiog gæðum.
1 tillögunum kemur meöal
annars fram að niöurstööur og
tillögur rikisskipaörar nefndar,
sem skiiaöi af sér 1979, veröi
nýttar sem grundvöllur aö
stefnumótun í rikiskaupum. 1
þvi sambandi er lögö áhersla á
aö árlega verði birtur listi yfir
verkefni og framkvæmdir á
vegum rikisins, sem eru á
ákvörðunar/ og/eöa hönnunar-
stigi. — Sérstakur fulltrúi vinni
aö gagnkvæmu upplýsinga-
streymi milli opinberra aðila og
innlendra framleiöslu- og
þjónustufyrirtækja. Þá er bent á
aö gefinn veröi út upplýsinga-
bæklingur um islensk iönfyrir-
tæki, verkgetu, vöruval o.fl.
önnur tillaga sambandsins
kveöur á um þaö, aö taka inn-
lendu tilboöi frekar en erlendu,
þá veröi sá kostnaður greiddur-
af Byggöasjóði, þar sem þjóð-
hagslega hljóti að vera hag-
kvæmt aö innlenda tilboöinu sé
tekiö, ef um litinn verömun til-
boöa er að ræöa.
Þá er ein hugmyndin aö
skipuö veröi nefnd til þess aö
segir Sigmar Armannsson
gera tillögur um val tilboða til
viðkomandi ráðuneyta eöa
sveitarfélaga. Þar er hug-
myndin aö innlendir framleiö-
endur geti visaö deilumálum, er
ku.nna aö risa vegna töku er-
lendra tilboða, til umsagnar
nefndarinnar.
„Síður en svo
haftastefna"
Aö lokum er i tillögu Sam-
Sigmar Ármannsson
bandsins aö samdir veröi sér-
stakir vöru- og þjónustukaupa-
staölar fyrir opinbera aðila hér-
lendis, meðal annars með það
að markmiði að beina opin-
berum innkaupum i rikari mæli
til innlendra fyrirtækja, og
sporna þannig gegn óeðlilegum
samkeppnisáhrifum erlendra
fyrirtækja.
óneitanlega hljómar ýmislegt
i tillögum þessum sem ákveöin
haftastefna, og leitaöi Visir þvi
til Sigmars Armannssonar hjá
Landssambandi iönaðarmanna
og innti hann nánar eftir um-
ræddum tillögum.
„Meö þessu erum viö ekki að
boöa neina haftastefnu, siöur en
svo. En við viljum benda á hina
þjóöhagslegu hagkvæmni sem
felst i þvl aö skipta við innlenda
aöila. Auk þess viljum viö nefna
aö I sambandi viö ýmsar verk-
legar framkvæmdir sem ráðist
hefur verið i á undanförnum
árum, þá hafa jafnvel erlendir
aöilar, notið ýmissa forréttinda
umfram islensku aöiiana t.d. I
sambandi við ýmiskonar aö-
flutningsgjöld og annarra þátta.
Þetta er þvi fyrst og fremst leiö-
rétting á aöstöðumálum frekar
en ósk um forréttindi” sagöi
Sigmar Armannsson.
—AS
Opinberir aðiiar beini innkaupum sinum markvisst aö innlendri
framleiöslu og þjónustu.