Vísir - 07.02.1981, Qupperneq 14

Vísir - 07.02.1981, Qupperneq 14
Laugardagur 7. febrúar 1981 14 VlSIR verði það jafnframt i stjórnaraðstöðu”, segir Davfð Oddsson. (Mynd: E.Þ.S.) Davíð Oddsson leiðtogi Sjálfstæðis- flokksins i borgarstjórn: „Þarf að hrista fÆÍJ&'SIfá nýja menn” Davið Oddsson, leiðtogi Sjálf- stæðisflokksins i borgarstjórn, hefur verið nokkuö i fjölmiðlum að undanförnu, ekki sist vegna þeirra hverfa- og vinnustaða- funda að undanförnu þar sem hann hefur verið i aðalhlut- verki, — sumir segja i borgar- stjóraleik. Davið er i fréttaljós- inu i dag og svarar spurningum um borgarmálin, Sjálfstæðis- flokkinn og sjálfan sig. — Nú ertu oddviti Sjaifstæðis- flokksins i borgarstjórn, — ertu ekki þar með borgarstjóraefni flokksins? ,,Ég er leiðtogi flokksins i minnihluta i borgarstjórninni, en það hefur út af fyrir sig ekki verið tekin afstaða til þess hver væri borgarstjóraefni, það hef- ur komið sjálfkrafa.” — Sjálfkrafa á þann hátt að teiðtoginn hcfur orðið borgar- stjóri? ,,Það hefur farið saman að borgarstjórinn og formaður borgarstjórnarflokksins hefur verið sami maðurinn. Hins veg- ar höfum viö aldrei lent i þeirri stöðu sem við erum i núna, að ganga til kosninga án þess að hafa-borgarstjórann i okkar röð- um. út af fyrir sig er ekki óeðli- legt að menn ætli aö sá sem er kjörinn til þess að vera leiðtogi flokksins i stjórnarandstööu veröi jafnframt leiðtogi hans i stjórnaraöstöðu. Formleg ákvörðun um þetta er hins veg- ar i höndum þess borgarstjórn- arflokks Sjálfstæðisflokksins sem kjörinn verður”. — Ef til þess kæmi að þú yrðir fyrir valinu, telurðu þig þá hæf- an til þess að gegna embætti borgarstjóra? Ég á ekki aö dæma um það. Minir félagar hafa talið mig hæfan til þess að vera i forystu fyrir stjórnarandstöðunni og ég býst við þvi aö þeir hafi metið það þannig, að það starf væri ekki siður erfitt heldur en hitt, og ég er mjög ánægður með það traust sem mér hefur verið sýnt með þeim hætti”. — Hvaða eiginleika þarf borgarstjóri að hafa til að bera, og þá jafnframt þú ef svo ber undir? ,,Ég vil ekki endilega lýsa minum eiginleikum en ég tel i fyrsta lagi, að sá sem gegnir embætti borgarstjóra, þurfi auðvitað að vera ákaflega vel að sér varðandi öll borgarmálefni, og hafa fylgst með þeim lengi áður en hann kemur til starfa. Þannig hefur það alla tið verið hjá okkur sjálfstæðismönnum. Birgir tsleifur hafði verið tiu ár i borgarstjón áður en hann varð borgarstjóri og sjálfur hef ég verið sjö ár i borgarstjórn. Borgarstjórar þurfa að hafa vissa festu til að bera, en jafn- framt lipurð. Hann þarf að hafa góða yfirsýn yfir hina ýmsu málaflokka, — vera tilbúinn til þess að taka ákvarðanir og standa við þær. Þetta eru helstu eiginleikarnir sem mér koma i huga svona i fljótu bragði”. — En ertu ekki alltof ungur til þess að takast þetta á hendur — ertu nógu sjóaöur til þess aö taka yfir yfirstjórn borgarinn- ar? „Við sjálfstæðismenn höfum jafnan haft þaö þannig að menn taka ungir við forystuhlutverki i borgarstjórninni. Ég verð 34 ára gamall þegar kosið verður, ég hygg að Birgir tsleifur hafi ver- ið á sama aldri þegar hann varð borgarstjóri, sömuleiðis Geir Hallgrimsson og Gunnar Thoroddsen var 36 ára. Loks má nefna að Bjarni Benediktsson var 32 ára”. — Nú voru nokkrir menn fyrir ofan þig i prófkjöri fyrir siöustu borgarstjórnarkosningar. Heföi ekki verið eölilegra aö einhver þeirra Itefði verið geröur að oddvita flokksins? ,,Ég held aö Birgir tsleifur hafi verið i fjóröa sæti i próf- kjöri i þeim kosningum sem voru áður en hann varö borgar- stjóri. Ég varð i fjórða sæti i sið- asta prófkjöri og haföi þá hækk- að úr tiunda sæti, sem var mesta breytingin i prófkjörinu, — aðrir héldu svipuöum sætum. Ég býst við að menn hafi tekið mið af þessu þegar ég var val- inn sem leiðtogi, og jafnframt þvi, að það þarf unga menn til að vera i forystu á þessu sviði. Þetta er mjörg annasamt og menn þurfa að vera friskir og ferskir”. — Ilelduröu áfram að vera lciötogi flokksins i borgarstjórn ef cinhver eða einhverjir verða fyrir ol'an þig í pófkjöri fyrir næstu kosningar? ,,Ég skal ekkert segja um það hver viðbrögð manna verða við þvi ef ég fer ekki vel út úr næsta prófkjöri. Ég geri ráð fyrir þvi, að ef ég færi mjög illa út úr próf- kjörinu, þá myndu menn ekki telja mjög gæfulegt að hafa slik- an mann i forystu”. — Þér finnst þá ekki liggja hlutarins eðli að sá sem verður efstur i prófkjöri verði leiötogi borgarstjórnarflokksins? „Reglunar eru ekki þær, held- ur þannig að listinn ákveður þann mann. En auðvitað hefur þaö áhrif ef einhvern verður langefstur i prófkjöri. Út af fyr- ir sig má segja, að ef ég verð neðarlega i prófkjöri þá bendir það til þess að ég hafi ekki stað- ■ ið mig sem skyldi i stórnarand- stöðunni og þá myndi ég og min- ir félagar auðvitað hugleiða okkar gang”. — Nú hafa sumir haft það á orði, aö Albert Guömundssyni hafi þótt framhjá sér gengið þegar þú varst gerður að odd- vita flokksins, enda var hann fyrir ofan þig i prófkjörinu. Má ekki búast við þvi að hann hjóði fram sérstaklega, eins og ýjað hefur verið að, ef þú vcrður borgarstjóraefni flokksins? „Ég tel engar likur á þvi. Al- bert var einn af þeim sem stóð að þvi aö ég var kjörinn leiðtogi borgarstjórnarflokksins og við höfum átt gott samstarf i borgarstjórninni. Ég tel engar likur á þvi að hann færi aö kljúfa flokkinn með þvi að vera með sérstakt framboð”. — Albert er sagður hafa verið tregur til þess að inæta á borgarmálafundi fiokksins, þar sem lionum þætti sér misboðið að leika eitthvert aukahlutverk á meöan þú ert i borgarstjóra- leik. Hvað segirðu um þetta? „Ég hef ekki heyrt þetta. Reyndar mæta borgarfulltrúar misvel á þessa fundi, en hins vegar hefur Albert mætt vel, og betur en margir aðrir borgar- fulltrúar flokksins”. — Það er seni sé engin tog- streita ykkar á milli? „Nei, — ekki sem ég hef orðið var við”. — Til hvers eru þessir fundir haldnir? Eru það ekki fyrst og fremst dyggir flokksmenn sem sækja þessa fundi og þeir hafa því takmarkaö upplýsingagiidi fyrir hinn almenna borgara? „Fundirnir eru fyrst og fremst haldnir til þess að kynna fólki borgarmálin og gefa mönnum tækifæri til þess að spyrja okkur út úr um þau. Á meðan borgarstjórinn var úr okkar röðum hélt hann tvo fundi á hverju kjörtimabili og gaf borgarbúum kost á að koma á slika fundi og kynnast borgar- málefnum. Núverandi meiri- hluti, sem lofaði að bæta sam- skiptin við borgarbúa, hefur ekkert slikt frumkvæði haft. Þess vegna hefur komiö upp sú sérstaka staða, að minnihlutinn hefur þurft að skýra frá gangi borgarmálefna, og jafnvel tekið á sig skammir fyrir eitt og ann- að sem ekki hefur verið gert á kjörtimabilinu. Það eru ekki bara sjálfstæðis- menn sem koma á þessa fundi, og til dæmis kom varaborgar- fulltrúi Framsóknarflokksins á fund hjá okkur i fyrrakvöld, og það er ekkert einsdæmi að fólk úr öðrum flokkum komi til okk- ar og spyrji um hlutina. Hins vegar mæta okkar stuönings- menn miklu betur en aðrir, enda ekki nema eðlilegt”. — Nú viröist sem svo að ineirihlutasamstarfiö i borgar- stjórn hafi gengið snurðulitið fyrir sig. Er ekki búið að af- sanna glundroðakenningu ykk- ar sjálfstæðismanna? „Það er mikil fjarstæða. Glundroðakenningin fólst i tvennu, — annarsvegar að fjár- málin færu úr böndum ef þessir þrir flokkar kæmust að, og hins- vegar þvi að framkvæmda- þróttur og ákvarðanataka myndi veröa fyrir bi vegna glundroðans. Glundroðinn felst ekki i þvi aö Sigurjón sé i blöð- um að kalla Björgvin bjána og Björgvin sé að segja að Kristján sé kjáni og Kristján segi að Sigurjón sé óþolandi. Glundroð- inn felst i þvi að menn ná ekki saman og við sjáum það i fjölda mála, sem hafa stórkostlega skaðað borgina, að þessir flokk- ar ná ekki saman”. — Hvaða mál eru það? „Gleggsta dæmið eru skipu- lagsmálin. Þar hefur ekkert gerst i þrjú ár vegna þess að flokkarnir ná ekki saman — tala ekki sama mál. Þeir hins vegar reyna að forðast að þessar deil- ur komi upp á yfirborðið og það verður til að málin dragast enn lengur til stórkostlegs skaða fyrir borgina”. — Hvað nákvæmlega heföi verið öðruvisi i stjórn borgar- innar á þessu kjörtimabili ef Sjálfstæðisflokkurinn heföi haldið völdum? „Við hefðum I fyrsta lagi ekki aukið skattheimtuna eins og nú- verandi meirihluti hefur gert. A hverjtj einasta ári frá þvi að þessi meirihluti tók við hafa verið lagðir á nýir skattar, en næstu tvö kjörtimabil þar á undan höfðu engir tekjustofnar verið hækkaðir. Fyrsta árið voru fasteigna- og aðstöðugjöld hækkuð og maður hélt að þeir myndu láta þar viö sitja, en árið eftir voru svo útsvörin hækkuð. Nú á þriðja árinu eru svo gatna- gerðagjöldin hækkuö um allt að 50% á verulegum fjölda eigna. Ef þessir menn hefðu átt sð stjórna með þeim fjármunum sem fyrrverandi meirihluti hafði til ráðstöfúnar væri hér allt komið, rúst. Um leið og við komumst tól valda á nýjan leik munum við lækka þessi gjöld. Ef við hefðum verið hér við völd, þá hefði meðalfjölskyldan átt 500 þúsund krónum meira i vasanum á hverju ári, sem ekki hefðu farið I opinber gjöld. Þetta þýðir að meðalfjölskyldan hefði eftir kjörtimabilið haft tveimur milljónum króna meira til ráðstöfunar ef við hefðum verið við völd. Ég býst við að hún hefði getað notað þessa aura”. — Er viðbúið að borgarstjórn- arflokkur Sjálfstæðisflokksins kiofni á sama hátt og gerst hef- ur i iandsmálunum? „Það eru engar likur til þess og örlar ekkert á sliku”. — Nú féllst þú fyrir Gunnari Thoroddsen i siðasta varafor- mannskjöri i Sjálfstæðisfiokkn- um. Ætlarðu að rcyna aftur i vor? „Ég vil nú ekki orða það þannig að ég hafi fallið fyrir Gunnari Thoroddsen. Það voru þrir menn i framboði Matthias Bjarnason, Gunnar og ég, og ég fékk nú fleiri atkvæði en ég átti von á i keppni við svo ágæta og sterka menn. Hins vegar mun ég ekki fara i varaformanns- framboð i bráö, — ég hef nú öðru verkefni að sinna og mun láta mér það nægja”. — Þú ert þá ekkert á ieiöinni út i landsmálapólitikina? — Nú er næsta öruggt að Geir Hallgrimsson býður sig aftur fram til formanns flokksins, — fær hann þitt atkvæði á lands- fundi? „Já”. — Ef svo færi að kosið yrði á milli Gunnars og Geirs, — hvernig helduröu að það kjör færi? „Ég á ekki von á þvi að Gunn- ar Thoroddsen bjóði sig fram gegn formanninum, og það er ekkert útséð um það hverjir verða i framboði”. — En ef það yrðu þessir tveir? „Ég vil ekkert tjá mig um slikt, það er ekki i minum verkahring”. — Myndi Sjálfstæðisflokkur- inn klofna endaniega ef til slikt uppgjörs kæmi? „Ég tel engar likur á þvi að Sjálfstæðisflokkurinn klofni endanlega — hvaða staða sem upp kann að koma”. — Ef þú réðir feröinni. hvaða leið yrði þá valin út úr þeim vandræðum sem nú herja á Sjálfstæðisflokkinn? „Ég taldi á landsfundinum 1979 að það væri timabært fyrir flokkinn að endurnýja sig og skipta um forystu, og hafði ég þá ekki sist miö af þvi að aðrir flokkar voru að gera þaö. Ég held að það væri kostur fyrir flokkinn ef hann myndi endur- nýja sig i efstu sætum á öllum framboðslistum um land allt. Ég held að slik uppstokkun hefði meiri þýðingu en þótt skipt yrði um menn i hinni bláfremstu forystu”. — Sem sé að losa sig viö þá menn sem hingað til hafa ráðið ferðinni i flokknum? „Já — ég tel að það þurfi að hrista upp i þingflokknum og fá þar nýja menn”. — Að lokum Daviö, vinnurðu fyrir kaupinu þinu sem forstjóri Sjúkrasamlags Reykjavikur þegar þú ert alltaf að vasast i pólitik? „Ég tel mig skila þeirri vinnu sem mér ber að skila en hins vegar viðurkenni ég það, að það verða oft árekstrar milli starfs- ins og stjórnmálanna. Eins og menn vita þá er seta i sveitar- stjórnum þegnskylduvinna samkvæmt lögum, og hana er ekki hægt að vinna nema menn geti jafnframt séð sér fyrir lifi- brauði”. —P.M.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.