Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 18

Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 18
18 vtsm Laugar'dagur 7. febrúar 1981 ’ „Þaö er „Kristnihaldinu” og svo hef ég íika leikið hundleiðinleg hlut- verk”. — Hvers vegna er LA alltaf á hausnum? „Er ekki öll menningarstarf- semi á hausnum? Ég veit ekki um neitt leikhús, hvergi i heim- inum, sem ber sig. Það er kannski til. Leikfélagi Akureyrar var eitt sinn boðið á leiklistarhátið i Svi- þjöð, sem atvinnuleikhús utan höfuðborga á Norðurlöndum héldu. Þegar við lýstum okkar starfsskilyrðum, þá áttu kolleg- ar okkar ekki orð yfir hvernig búið væri að leikhúsum á Is- landi. Þeir trúðu þvi ekki, að hægt væri að reka leikhús við slik skilyrði. Leikhús i Sviþjóð fá I styrk 95% af rekstrarfé, en hér vantar mikið á til að ná þvi marki. Peningaleysid hefur komid viö móralinn Akureyrarbær má eiga það, að hann hefur staðið vel við bak- ið á okkur, en ég skil ekki tregðu rikisvaldsins. Eru ráðamenn þar á bæ ef til vill hræddir um að önnur leikfélög utan Reykjavik- ur komi á eftir, ef við fáum myndarlegan styrk? Ekki þætti mér það ósennilegt. öfundin er slæmur óvinur, einum má ekki ganga vel, þá þarf einhver ann- ar að rifa það niður”. Eru allir svona vondir við ykkur, er ekkert að hjá félaginu sjálfu? „Það má eflaust finna ýmis- legt að hjá okkur, sem betur mætti fara, mikil ósköp, það er enginn óskeikull. Hins vegar má rekja það til þeirra erfiðleika sem við höfum glimt við. Þeir nst” Þannig kemur Natan Ketils- son fyrir sjónir Gests E. Jónas- sonar, leikara hjá Leikfélagi Akureyrar, en Gestur fer með hlutverk Natans i uppfærslu LA á Skáld-Rósu, sem frum- sýnd veröur á fimmtudags- kvöldið. Leikstjóri er Jill Brooke Arnason. Skáld-Rósa eða Vatnsenda-Rósa var hún nefnd, en réttu nafni hét hún Rósa Guðmundsdóttir. En hvernig er að feta i hennar spor? Hrókur alls fagnaöar „Hún hefur verið mikill kven- skörungur, hörkukvenmaður, og það er gaman að glima við þetta hlutverk, það gefur mikla möguleika, þvi lifið fór ómjúk- um höndum um Rósu”, sagði Sunna Borg, sem fer með hlut- verk Rósu. „Ég hef lesið mér mikið til um lif Rósu og öllum bókum ber Vatnsenda-Rósa og Natan Ketilsson eru fyrir löngu orðnar þjóðsagnapersónur. Sigurður A Magnússon kemst vel að orði um þau og Pál sýslumann, þeg- ar hann skrifar i leikskrá, þegar verkið var frumflutt hjá Leikfé- lagi Reykjavikur 1977: „Rósa verbur imynd hins heilsteypta og sterka einstakl- ings, sem er trúr eðli sinu og til- finningum, varðveitir „sak- leysi” sitt og mannlegt siðgæði, hvað sem á bjátar og hvernig sem lifið og mennirnir leika hana. Natan verður hins vegar leiksoppur umhverfisins og gengur á mála hjá þvi, þrátt fyrir ótviræðar gáfur og gjörvi- leik. Hún kemur heilli og sterk- ari úr átökum við umhverfið, en hann lætur undan siga og af- skræmist. Svipaða sögu er að segja um Pál sýslumann: Hann afneitar tilfinningum sinum i þvi skyni að komast til metorða i samfélaginu og verður brjóst- umkennanlegur skuggi af sjálf- um sér.” „Ég kann i rauninni Vidalin. Hann var bara ágætlega við Natan. venjulegur almúga- Hann er passlega gróf- maður, sem ekki átti ur, það er ég stundum Upp á pallborðið hjá lika. Hann á það einnig yfirstéttinni i byr jun til að vera ögn and- i8. aldar. Það dugði styggilegur, og það get honum ekki einu sinni ég lika verið. Að mörgu að taka sér nafnið leyti hefur Natan verið Lyngdal. „Skál fyrir merkilegur maður. fátæklingi sem vill Hann þráði að mennt- Verða eitthvað en verð- ast og komast til met- ur ekki neitt”, segir orða, en hann var ekki Natan i leikritinu”. Blöndal, Espolin eða — Spjaííad vid Gest £. Jónasson og Sunnu Borg, sem fara med híutverk Skáld-Rósu ög Natans Ketilssonar i uppfærsíu Leikfélags Akureyrar á ,,Skáld-Rósu”, sem frumsýnd verdur á fimmtudaginn _ saman um að hún hafi verið sér- | stök manneskja”, sagði Sunna. „Það er talaö um að hún hafi ■ verið geðgóð og alltaf virðist hún hafa verið tilbúin að hjálpa ■ öðrum, hvernig sem á stóð i Isálarlifi hennar sjálfrar, en hún flikaði ekki sinum vandamálum við aðra. Hún var hrókur alls I fagnaðar og ekki varð hún siður vinsæl af ljósmóðurstörfum sin- ■ um. Ófáum börnunum hjálpaði Rósa i heiminn, og væri það | stúlka, þá var hún nær undan- tekningalaust látin heita i | höfuðið á Rósu. Hún virðist lika hafa verið vel | gefin, skáldmælt og viðlesin. Þrátt fyrir það fer hún heldur I illa út úr lifinu. Hún verður ást- ■ fangin af Páli Melstað 15 ára ■ gömul. En hún var ekki af nógu góðum ættum fyrir hann, og ■ Páll kaus heldur amtsmanns- dótturina, þegar hún bauðst. ® Hann hefur liklega séð fram á Igott embætti með þvi að tengj- ast amtsmannsfjölskyldunni. ' Góöur smiöur en litil sál L Þetta var fyrsta sorgin. Svo giftist hún ölafi, sem hún var aldrei neitt hrifin af. Hann var góður smiður, en litil sál, sem sést best á þvi að hann lét óátal- ið ástarsamband Rósu við Nat- an. Jafnvel er sagt að Natan hafi haldið ólafi góöum með peningagjöfum. Það varð mikið ástarævintýri, en Natan fór illa með hana, eins og allar aðrar konur sem hann kom nálægt. Ég hef haft virkilega gaman af að glima við Rósu. Margt I henni finnur maður i sjálfum sér og geðbrigðin eru mikil i lifi hennar þau ár sem leikritið spannar yfir. Hvernig mér tekst svo að koma henni til skila verða leikhúsgestir að dæma um”, sagði Sunna. Andskotinn, þar fórstu illa með mig Ekki meira um þau skötuhjú að sinni, en Gestur er ekki slqipinn. Hvernig vinnur hann persónur eins og Natan? „Andskotinn, þar fórstu illa með mig, hvernig i fjandanum á ég nú að svara þessu. Nú, ég reyni að gera mér i hugarlund hvernig maður þetta hafi verið, hvernig hann hafi hugsað, en siðan skapast persónan á æfing- um með aðstoð leikstjóra og meðleikara”, svaraði Gestur. — Skáld-Rósa er fyrsta verk- efni L A á þessu leikári, en félag- ið hefur átt i fjárhagserfiöleik- um. Fjöldi fastráðinna starfs- manna er nú i lágmarki, en stefnt er að þvi að stokka upp spilin næsta haust. Þó Gestur sé „Þú skálar við Natan fyrir Nat- ani og Rósu”. ekki nema 30 ára, þá er hann búinn að starfa lengst með LA af þeim sem þar eru fastráðnir nú. Ætli hann hafi alltaf ætlað sér að verða leikari? „Nei, nei, siður en svo, þetta var alger tilviljun og ekkert annað”, svaraði Gestur. „A skólaárunum var ég ekkert fyr- ir að troða upp, strækaði alger- lega á slikt. Og þó, það plataði mig einhver á leiklistarnám- skeið þegar ég var nýfermdur, en það dugði ekki til að kveikja i mér. Svo plötuðu Haraldur Sigurðsson og Þórhalla Þor- steinsdóttir mig til að leika i „Draumi á Jónsmessu nótt”. Það var statistahlutverk, en ég var ekki fenginn til þess vegna meðfæddra leikhæfileika, held- ur vegna þess að það vantaði stóran — já og að sjálfsögöu myndarlegan mann!! Eftir það lék ég lögregluþjón i reviunni „Rjúkandi ráö” á móti Kjartani „Þú ert dlukkulegur Natan”. vini minum ölafssyni. Nú, þar meb var búið að festa bakteri- una i mér. Siðan hefur verið hægt að nota mig á einn eða annan hátt við um 60 uppfærslur hjá félaginu. Fyrst i áhuga- mennsku, en siðan var ég i hópi þeirra leikara, sem voru fast- ráðnir þegar leikhúsið var gert að atvinnuleikhúsi”. Hef líka leikiö hundleiöinleg hlutverk — Eftirminnilegt hlutverk? „Ha-ha, sá var góður, hummm, þetta er fjári erfið spurning. Það hlutverk sem ég er að gli'rna við hverju sinni, það er efst i huga mér, það stendur mér næst. Hins vegar get ég ekki neitað þvi, að mér þótti vænt um Mikka ref i „Dýrin i Hálsaskógi”, eins Umba i hafa sett á okkur pressu, það er ekki greitt út, engir peningar til. Þetta hefur óneitanlega komið við móralinn hjá okkur.” — En verkefnaval, af hverju ekki að sýna eitt verkefni á hverju leikári, sem gefur pen- inga i kassann? „Ha, ha, djöfull væri það nú gaman, en hvaða verkefni gefa peninga i kassann? Eitthvað gamalt, islenskt og gott, segir einhver. Við tökum eitt slikt verk, en það kolfellur. Af hverju höfðuð þið ekki sömu leiktjöld og 1936? spurði fólkið þegar við sýndum Skugga-Svein. Já, fjar- lægðin gerir fjöllin blá. Það hefur alltaf verið min skoðun, að það eigi að setja upp einn „farsa” á ári. Það er engin skömm að leika i sliku, það er djöfuls kúnst”, sagði Gestur. Einn farsi á ári — En er einhver grundvöllur fyrir atvinnuleikhús? „Já, já, það er hægt að reka atvinnuleikhús, en það er lág- markið að fastráðnir starfs- menn séu 12, annars stendur það ekki undir nafni”. — Þýðir það ekki að allir leikararnir leika i öllum upp- færslum og skapar leiða hjá sér sjálfum og áhorfendum? „Jú, það er alveg rétt, en til að koma i veg fyrir þetta, þarf að koma á einhverskonar leik- araskiptum á milli atvinnuleik- húsanna. Þetta hefur lengi stað- ið tU, en ekki nema einu sinni orðið að veruleika. Ég státa mig ekki af þvi, að eiga hér lengstan starfsaldur. Ég hefði viljað breyta til fyrir lifandi löngu. Það er nauðsyn- legt að skipta um umhverfi, kynnast nýju fólki og aðstæðum, en það er hægara sagt en gert”, sagði Gestur i lok samtalsins. G.S./Akureyri

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.