Vísir - 12.03.1981, Page 3
'AV.V.VA^V/.^V^W.V.VAV.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.'
' Fimmtudagur 12. mars 1981
„Þetta var bara
gabb” sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugleiða eftir að
Fokker flugvél Flug-
leiða hafði nauðlent á
Reykjavikurflugvelli i
gær.
Vélin var i áætlunarflugi til
Hafnar í Hornafirði, og hafði flog-
ið i 20 minútur frá Reykjavik er
ljós i mælaborði gaf til kynna að
eldur væri laus i öðrum hreyfli
vélarinnar. Samstundis var tek-
Nauðlendlng á Reykjavíkurflugvelli:
Fokkerinn
lenti aftur í
erfiöleikum!
- Sama vélin og lenti í óhappinu yfir Húsavík
á dögunum í vandræðum á leið til Hafnar á
Hornafirði í gær
Fokkerinn kemur inn til lendingar á öðrum hreyflinum.
VisimyndirGVA
inn straumur af hreyflinum, og
vélinni snúið við til Reykjavikur.
Þar voru menn i viðbragðs-
stöðu þegar vélin kom inn til lend-
ingará öðrum hreyfli, en lending-
in gekk mjög vel og ekkert
vandamál kom upp. Flugstjóri
var Ámundi Ólafsson, en farþeg-
ar voru 41 talsins.
Þetta var sama flugvél og lenti
i óhappinu yfir Húsavikurflug-
velliá dögunum, en þá bilaöi ann-
ar hreyfillinn rétt eftir flugtak og
skipta varð um hann og fá nýjan.
Það var svo út frá þeim nýja
hreyfli sem aðvörunarljósið
kviknaði i gær, en flugvirkjar
voru ekki lengi að finna út að
ekkert var að hreyflinum, heldur
var einungis um bilum i að-
vörunarljósakerfi að ræða.
gk-.
FLU
Amundi Ólafsson flugstjóri ræöir viö siökkviliösmenn eftir velheppn-
aöa lendingu.
;,,.%\w.w.v.v.v.v.váá,.,.,,v.v,v.,.,.v.%w.w.v/.v
Viltu flytja út á land?
Meleyri h.f.
Hvammstanga, sem er vaxandi fyrirtæki i
rækju- og fiskvinnslu i ört vaxandi bæ,
leitar eftir:
Skipstjóra, sem jafnframt er um-
ráðamaður yfir 100 tonna bát eða
stærri,
sem vill setjast hér að.
Sameign okkar gæti vel komið til
greina, ef áhugi er fyrir hendi, eða
samstarf i einhverri annarri mynd.
Við munum eftir bestu getu veita
okkar aðstoö til þess að viðkomandi
geti komið sér vel fyrir hér á staðn-
um.
Við höfum ástæðu til að ætla, að við
getum útvegað öðrum fjölskyldu-
meðlimum atvinnu, ef áhugi er á þvi.
Þeir, sem kynnu að hafa áhuga, hafi
samband við framkvæmdastjóra i
vinnusima 95-1390 eða heimasíma
95-1402.
MELEYRI HF.
Hvammstanga
>WVV^WVWVW.W%VWftWWV,AWAVWVVW
NTJUNG!
snyrti- og
hreinlætisvörur
not
perfumed
not
coloured
just kind
Mildar og hreinar vörur án allra óþarfra
rL aukaefna. framleiddar úr hreinustu fáanlegum
efnumáeinseinfaldanháttog mögulegt er til þess að
\V^^^komast hjá notkun f lókinna efnasambanda og sneiða hjá hættu
á ertingu. Sérstaklega hannaðar fyrir viðkvæmustu húð. einnig þá
er hættir við ofnæmi.
ÁN ILMEFNA - ÁN LITAREFNA - AFAR MILDAR
AFBRAGÐSGÓÐAR VÖRUR OG ÓDÝRAR
Við bjóðum nú:
SIMPLE SOAP sem er
hrein, ómenguð sápa, sem er svo mild, að hún hæf ir einnig viðkvæmri
húðsmábarnsins. Læknarog húðsérf ræðingar í Bretlandi mæla þvi með
henni fyrir þá, sem ekki þola venjulega hand- og báðsápu
SIMPLE HAND CAfíE sem er
hreinn og ómengaður handáburður sem verndar og nærir húðina og
heldur henni mjúkri allan daginn og notist sérstaklega eftir allan þvott,
en er einnig mjög góður á allan likamann. Ekki f itandi.
SIMPLE CLEANSING LOT/ONsem er
hreinog ómenguð hreinsimjólk, sem djúphreinsar jafnvel viðkværnustu
húð mjög vel án allrar ertingar og hæfir öllum húðgerðum og er ekki fit-
andi.
S/MPLE MOISTUR/S/NG LOT/ON sem er
hreinog ómenguð rakamjólk, þ.e. olíurikur, vatnsblandaður, þunnfljót-
andi áburður, sem viðheldur rakajafnvægi húðarinnar og heldur henni
mjúkri og sléttri. Hæf ir öllum húðgerðum og er ekki f itandi.
S/MPLE SK/N TON/C sem er
hreint og ómengað andlitsvatn fyrir allar húðgerðir.
S/MPLE GENTLE SHAMPOO sem er
hreinn, ómengaður og mjög mildur hárþvottalögur fyrir allar hárgerðir.
SIMPLE N/GHT CREAM sem er
hreintog ómengað næturkrem, þ.e. feitt næringarkrem fyrir þurra húð.
S/MPLE TALC sem er
hreintogómengaðtalkumpúðurtilnotaárakaogfitugjarnahúð. -
LÍTIÐ INN OG LÍTIÐ Á
LAUGAVEGS APOTEK
SNYRTIVÖRUDEILD
,Þið eigið alltaf leið um Laugaveginn'