Vísir - 12.03.1981, Qupperneq 11
Fimmtudagur 12. iriars 1981
vtsm
Framkvæmdanefndin og húsin í Hamrahergi:
Húsin ekki dyggö
eftir teikningum?
„Það hefur ósköp litið gerst i
okkar málum siðan við fórum á
fund með Framkvæmdanefndinni
23. febrúar” sagði Ágúst ísfjörð,
formaður Húseigendafélags ibúa
i Hamrabergi 3-21 i Breiðholti, er
Visir ræddi viðhann í gær, en eins
og Visir skýrði frá á sinum tima
telja ibúar þar að óverandi sé i
húsum þeim sem Framkvæmda-
nefnd Byggingaáætlunar seldi
þeim s.l. sumar. Upp hafa komið
gallar á húsunum, sérstaklega
hvað varðar frágang á þökum og
hefur ringt og snjóað þar inn.
„Þetta er ekki eina atriðið sem
við erum óánægðir með” sagði
Agúst. ,,A fundinum þann 23.
febrúar lagði ég fram fyrir hönd
húseigendanna athugasemdir i
fimm liðum um atriði sem við
viljum að verði lagfærð, og eru
það þessi:
1. Leki á þökum.
2. Skemmdir v/þakleka svo sem
leki í lofti og hugsanlegur raki
sem fer niður með einangrun i
veggjum i gólf og undir parket.
3. Ctidyrahurðir óþéttar og leka
miklu vatni i forstofu.
4. Gler i gluggum óþétt, laust og
blæs inn með þvi.
5. Parket byrjað að ganga til svo
innanstokksmunir vagga.
„Þetta voru þau atriði sem ég
lagði fram á fundinum, og þeir
Gisli Halldórsson arkitekt og Rik-
harður Steinbergsson lofuðu þvi
að maður eða menn yrðu sendir á
staðinn til að kynna sér þessi
atriði. Þetta var 23. febrúar, en
þessir menn hafa ekki sést hér
ennþá. Svona er öll framkoma
gagnvart okkur.”
,,Ekki fullnægjandi”
„Að okkar mati er langt frá þvi
að það sé viðunandi lausn að setja
plast neðan á þökin og áipappir
þarundir. Égreikna ekki með þvi
að nokkur af ibúðareigendunum
samþykki slikt. Það er okkar
Ágúst tsfjörð.
(Vísismyndir Gunnar.)
frumkrafa varðandi þökin að þau
standist veður, og haldi vatni og
vindum. Ástandið er þannig i dag
að s.l. sunnudag er sólin fór að
skina eftir að 7 stiga frost hafði
verið um morguninn var eins og i
steypibaði upp á loftunum”.
„ónýtt rými”
„Gisli Halldórsson sagði á
þessum fundi okkar með Fram-
kvæmdanefndinni að loftin á hús-
unum hefðu verið hugsuð sem
ónýtt rúmi, með öðrum orðum að
þau hefði ekki átt að nýta sem
geymslur eða neitt annað. Það
skýtur skökku við að heyra þetta
þvi til hvers eru þá lúgurnar i
loftunum og stigar upp á loftinV
Menn nota auðvitað loftin sem
geymslur, þeir sem eru svo
heppnir að geta það, en ég til
dæmis hef ekki komist upp á loft i
langan tima þvi loftlúgan hefur
bólgnað svo i falsinu og stiginn
tútnað þannig út af rakanum að
ég næ honum ekki niður”.
,,Of mörg börn”!
„Ein kona sem kvartaði undan
leka af loftinu fékk þau svör að
ástæðan væri sú að það væru of
mörg börn i ibúðinni. Furðulegt
svar þvi skilyrði fyrir þvi að fá
ibúð var að hjón væru með 4 börn.
Svona eru öll svör sem fengist
hafa”.
„Stimplaðar teikning-
ar”
„Eitt furðulegasta málið er þó
sennilega það að ég fékk að sjá,
stimplaðar teikningar af húsun-'
um hjá byggingafulltrúa, og á
þeim teikningum er reiknað meö
að þökin séu klædd með 16 mm
rakavarðri spónarplötu oggefur
þá auga leið að einangra hefði átt
á milli. Viðerum nú að láta kanna
það hvers vegna ekki var byggt
samkvæmt þessum stimpluðu
teikningum”.
„Klórað yfir skitinn”
„Eyjólfur K. Sigurjónsson, for-
maður Framkvæmdanefndar
sagði i viðtali við Visi að það
mætti koma fram að hér væri um
mjög ódýr hús að ræða, þau hefðu
ekki kostað nema um 30 milljónir
gkr. Það rétta er hinsvegar að
þessi hús koma sennilega til með
að kosta 300-400 milljónir ef mað-
ur lifir það að greiða þau upp. Oll
lán eru visitölutryggð og húsin
eru ekki ódýr, þau fengust ein-
ungis með mjög góðum kjörum”.
,,En það sem Framkvæmda-
nefndin ætti að sjá sóma sinn i að
gera nú, er að flytja ibúa þessara
húsa i raðhúsin sem nú er verið að
byggja á vegum nefndarinnar og
fara siðan i það að endurbyggja
húsin við Hamraberg. Þau svör
sem fólkið hefur fengið og fram-
koma þeirra manna sem hafa
verið i forsvari fyrir Fram-
kvæmdanefndina sýna einungis
vanmáttugar tilraunir til þess að
reyna að klóra yfir skitinn”. gfc..
1 I
.' í> **?/*•> <'» +
/** f
■■■■ *?rm
t&' *+/’ <£* Í4 *
?. srr *■**
S<***Us**7 ;
í 1 1 p •, É í i 1 I J ■ i
' ■■ »*m. '*■**-* y/'/ ***'•*■*m
*. ne -fxtt'
> 4
Teikning af þaki Hamrabergs 11. Eins og glöggt sést á myndinni stendur að þökin skuli klædd meb 16
mm rakavarinni spónarplötu. Teikningin er stimpluð af Byggingafulltrúa Reykjavikurborgar.
m
Oll
hreinlætistæki í
baðherbergið
Greiðsluski/málar
£
arma
Byggingavörur hf.
He/lisgötu 16 Hafnarfiröi. simi 53140
Lattu ekki blekkjast
á malbikinu
Hugsaðu til
þjóðveganna
Wartburg er eins
og byggður fyrir
íslenska
vegakerfið
Námskeiðí modelsmíði
hefst þann 16. mars j)
fyrir 14 ára og eldri
FLUGMODELFELAGIÐ ÞYTUR
TÓm$TUnDfiHÚSIÐ HF
Laugouegi ISVneMbiouil: s=21901
> ................
ALLT
TIL MÓDELSMÍÐA
Flugmódel i miklu urvali,
svifflugur og
mótorvélar
fyrir fjarstýringar
linustýringar eða
fritt fljúgandi.
Fjarstýrðir bilar,
margar gerðir
(ná allt að 50 km, hraða.)
Fjarstýringar: 2ja-3ja-4ra Mikiö úrval af glóöarhaus og
og 6 rása. rafmótorum.
Balsavidur í flökum • Balsaviður í listum
Furulistar • Brennidrýlar
Flugvélakrossviður »ÁI og koparröri stálvir
Smáhlutar (fittings) til módelsmíðá
Verkfæri til módelsmíða og utskurðar o.fI. o.fl.
Höfum einnig flugmódel i sérstökum pakkningum
fyrir skóla á mjög hagstæðu verði.
Póstsendum
Fjarstýrð bátamódel
i miklu úrvali.