Vísir - 21.03.1981, Síða 5

Vísir - 21.03.1981, Síða 5
5 (eyns/a sem þu geturbyggt Lauiíardacur 21. mars 1981. VlSIR ofnæmisprófuðu frönsku snyrtivörurnar X- ^ eru lyktarlausar, (Það eru oft ilmefnin, sem valda ofnæmi. Ilmurinn er einnig oft notaður til að hylja lykt af illa hreinsuðum olíum).» Roc notar aðeins bestu fáan- legu hráefni. *Roc notar aðeins örugg litarefni. •Roc snyrtivörurnar eru innsiglaðar og fram- leiddar undir ströngu lyfjafræðilegu eftirliti i sótthreinsuðu umhverfi. •Roc snyrtivörurnar eru ekki aðeins fyrir þærf sem þegar hafa fengið ofnæmi eða eru með viðkvæma húð, heldur einnig fyrir þær, sem vi/ja forðast að fá ofnæmi. t 'A pakkningum Roc er gefið upp nákvæmt innihald vörunnar. Roc snyrtivörurnar eru dagstimplaðar. Það tryggir þér nýja og ferska vöru. KpC Aðeins í apótekum IBÚÐARHÚS DAGHEIMILI SUMARHÚS Verksmiötuframleidd hus ur timbn 'STOKKAHOSf klappar2s““ 101 REVKJAVlK Hádulegar hrakfarir kommúnista Pólitikin var óvægnari á þess- um árum en nú er: kommunist- ar og ihald (jafnvel fasistar óöu uppi og' Visir til að mynda var sannfærður um að kommúnistar á tslandi stefndu að byltingu og kannski heimsyfirráðum. Þaí er þvi kviðatónn sem eftirfar- andi fyrirsögn er birt: „Kommúnistar gera atlögu at Frama — Reyna að ná völdum i félagi atvinnubilstjóra.” Fyrst félag atvinnubilstjóra, siðan... hvað? Það er allshugar feginn Visir sem daginn eftir getur skýrt frá úrslitum mála: „Kommúnistar fá skell. — Stórkostlegar ófarir i Frama, 4félagi atvinnubilstjóra.” Og svo segir i fréttinni: „Kosningu stjórnar i Frama lauk i gær og fór svo að kommúnistar fóru hinar háðu- legustu hrakfarir... Lýðræðis- sinnar fengu 266 atkvæði en kommúnistar hins vegar aðeins 158.” Það fer ekki milli mála að þarna hefur mikilvægur sigur unnist á alheimskommúnism- anum og Visir vandar um við hina sigruðu: „Er þetta enn ein sönnun þess að gegndarlaus undirgefni og þjónkun fram- sóknarforingjanna við kommúnista vekur ógeð og and- styggð þeirra óbreyttu fram- sóknarmanna sem vilja ekki láta skipa sér eins og skynlaus- um skepnum. — Ættu bæði kommúnistar og framsóknar- menn að læra af þessu, en þó mun örvænt um það.” Æseiseijá. Við skulum ljúka þessu með þvi aö birta i heild skemmtilega frétt sem birtist i Visi fimmtu- daginn 9. mars fyrir tuttugu ár- um. Bæði er hún merkileg i sjálfu sér og lýsir um leið frjáls- legum stil sem við lýði var i blaðamennskunni þessa daga. Fyrirsögnin er: „Brúðkaups- nóttieinveru. —Frank Franken fékk stundarleyfi úr gæsluvarð- haldi I gær, til að kvongast Isl stúlku.” Það er forsaga þessa máls að umræddur Frank Franken hafði dvalistá Islandi i ein þrjú ár við ágætan orðstir þegar það komst upp að hann átti að baki fjöl- skrúðugan atbrotaferil i heima- landi sinu, V-Þýskalandi. Vest- ur-þýska stjórnin heimtaði hann framseldan og þegar hann gifti sig var allt á huldu um endalok málsins. En hér kemur fréttin: sé enga sckt hjá þessum manni... „...Þá spyr ég þig brúðgumi, Gunter Hermann Frank Frank- en: Er þaö einlægur ásetningur þinn.aðganga að eiga konuna.., sem hjá þér stendur? - Já. — Vilt þú meö guðs hjálp lifa saraan við hana I meðlæti og mótlæti og hverjum þeim kjör- um, sem algóður guð lætur ykk- ur að höndum bera, eins og kristnum eiginmanni ber að lifa saman við eiginkonu sina? — Já. — Gefið þá hvort öðru hönd ykkar þessu til staðfestu... Ég sat inni i stofu hjá sira Sigurjóni Þ. Arnasyni i gærdag og hlýddi á þessi orð, sem bár- ust að eyrum mlnum i gegnum hurðina úr næstu stofu. Við sátum þarna þrir saman, tveir fulltrúar sakadómaraem- bættisins i Reykjavik, og ég. Þetta virtist vera skrifstofa prestsins, klædd þægilegum, „gamaldags” húsgögnum. Á skrifborðinu var opin Biblia og önnur guðsoröabók sem ég Snemma árs 1961 vakti Baltasar fyrst á sér athygli á tslandi. Þessi mynd birtist af honum I Visi með myndatextanum: „Myndræn mynd af mynd og myndarlegum myndiistarmanni”. kannaðist ekki við. Bækurnar voru báðar þvældar og auð- sjáanlega mikið notaðar. Orð og setningar voru undirstikuð með blýanti: Eg sé enga sekt hjá þessum manni... ég þvæ hendur minar... Presturinn hafði sýnilega ver- ið að semja ræðu um pislarsög- una, þegar hann var beðinn að gefa saman unga islenska stúlku og framandi mann. Hurðin fram i ganginn var op- in til hálfs svo að fulltrúarnir gætu fylgst með mannaferðum þar. Enginn hefði getað komist út, án þess að þeir vissu hver það væri. ,,diter rot” átti Andrésblaðiö en ekki Karl sonur hans. Það var þeirra skylda og þess vegna voru þeir þarna. Heldur engin hætta á að neinn færi aö hlaupast á brott á þess- ari stundu. Þarna voru allir staddir af fúsum og frjálsum vilja, nema kannske lögreglu- mennirnir tveir. Það var sýni- legt, að eitthvað heföi átt betur við þá, en sitja þarna aðgeröar- lausir og hlusta á sálmasöng i næsta herbergi. „Þegar ég kvæntist,” sagði annar þeirra upp úr eins manns hljóði,” þá var svo mikil lykt af prestinum aö það lá við að ég rokfyndi á mér.” „Já. Hann hefur tekið þetta nærri sér, konunnar vegna,” sagði hinn. ... þá lýsi ég yfir þvi — heyrð- ist i gegnum hurðina — að þið eruð rétt hjón, bæði fyrir guði og mönnum... þaö sem guð hefur tengt saman, má eigi maðurinn sundur skilja. Við þögðum allir frammi og hver hugsaöi sitt. Ég stalst til að lita framan i verði laganna. Þeir voru skyndilega orönir al- varlegir á svip. Kannske þeir hafi verið að hugsa um þaö, sem var að ger- ast i stofunni við hliðina á okk- ur. Kannske minnst sinnar eigin hjónavigslu... eða kannske munað skyndilega eftir þvi, aö þeir áttu vixil á siöasta degi i bankanum. Aleifin á brúd« kaupsnóttinni En Frank á lika sinn vixil óborgaöan og það er eiðasti dag- urinn I dag. Hann hefur staðiö I þvi nótt og dag I nokkrar vikur að fá framlengingu á honum en svar var ekki komið i gær, og likur fyrir,þvi að vixillinn falli á hann i dag og verði afsagður. Það er i dag, sem úr þvi verður skoriö hvort hann verður fram- seldur til heimalands sins, Vest- ur-Þýskalands, visað úr landi eða hvort hann fær landvistar- leyfi hér áfram. Réttvisin þar hefur óskað þess við islensk stjórnvöld að hann yrði. þeim framseldur vegna óafplánaðrar refsingar. Vera má að hjá þvi verði ekki komist — og kannske ekki réttlátt — að hann taki út þá refsingu sem hann á yfir höföi sér. Það kemur sá dagur að hann verður aftur frjáls maður og endurheimtir sinn rétt til að lifa eðlilegu lifi, endurheimta konuna sem hann gekk að eiga i gær og barnið sem i vændum er. islensk réttvisi á ekkert sök- ótt við Frank Franken. Hann hefur verið hér á landi i tæp 3 ár og þeir, sem hafa kynnst honum á þessum tima, bera honum vel söguna. Hann hafði mikinn áhuga fyrir þvi að stofna hér fyrirtæki til að verja Islenskar stofnanir gegn innbrotum. Hver getur sagt að það hafi ekki verið gert af einlægum, góöum vilja? Kannske hann hafi ætlað að bæta fyrir villu sins vegar á þann hátt, sem hann best kunni... Batnandi manni er best aö lifa, og margir eru þeir afbrota- mennirnir sem gerst hafa nýtir þjóðfélagsþegnar eftir langan afbrotaferil. En réttlætið verður að hafa sinn gang. Sálmasöngurinn var hljóðn- aður og athöfninni lokið. Fólkið bjóst til brottferðar, hver til sins heima. Hér var ekkert um veisluhöld eða annan gleðskap, þaö verður að biða betri tima. Jafnvel brúðkaupsnóttin... Hjónin kvöddust i ganginum hjá prestinum og hann gekk út úr húsinu giftur — en konulaus. Til fylgdar hafði hann tvo þjóna réttvisinnar og angurværan blaðamann. Brúðkaupsnóttinni eyðir hann i einveru á köldu fleti á Skóla- vörðustig 9. Aleinn.” . Nokkrum dögum siðar er' þessi fyrir sögn á forsiðu Visis: „Franken framseldur.” Hvar hann er nú vitum við ekki. En það væri gaman að vita.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.