Vísir - 21.03.1981, Blaðsíða 13

Vísir - 21.03.1981, Blaðsíða 13
Laugardagur 21. mars 1981. 13 VÍSLR Daisley bassaleikari og David Stone hljómborðsleikari. Þeir hefja upptökur að kappi og seinni hluta árs 1978 senda þeir á markað inn plötuna Long Live Rock’n’Roll. Hún sýnir glögg- lega að þessi nýja útgáfa á hljómsveitinni er sist verrien sú á undan og varð sist langlifari. Mannaskipti Ennþá er það egóið i Black- more sem setur allt á annan endann. Þeir sem nú fá pokann sinn eru ekki eingöngu Bob Daisley og David Stone heldur einnig söngvarinn Ronnie James Dio. Þetta kom mörg- um aðdáendum hljómsveitar- innar mjög á óvart. Dio var sem betur fer ekki horfinn af sjónar- sviðinu þvi' hann tók við stöðu söngvarans Ozzy Osbourne i Black Sabbath. Stutt hár Ýmsir urðu heldur ekki á- nægðir með sögnvarann Grahm Bonnet sem tók við af Dio ekki vegna þess aðhannværislæmur söngvari heldur vegna þess að hann var með stutt hár og það þótti þungarokksaðdáendunum minna of mikið á pönkið. Black- more gerði ftrekaðar tilraunir til þess að fá hann til að safna hári en án árangurs. Ahangend- ur hljómsveitarinnar voru hins vegar mjög ánægðir með þann sem tók við bassanum. Þar var kominn góðvinur Blackmores úr Deep Purple Roger Glover. Hann hafði frá þvi hann yfirgaf Purple 1973 lagt stund á upp- tökustjórn aðallega fyrir hljóm- sveitina Nasareth en einnig gef- ið út tvær sólóplötur. Sá sem tók við hljómborðsleiknum var enn einn óþekktur tónlistarmaður Don Airey að nafni. Þessi útgáfa gaf út plötuna Down to Earth um mitt ár 1979 og skelltu sér siðan i hljómleikaferð um Bandarikin um haustið. Cozy Powell hættir A þessu hljómleikaferðalagi sagði Cozy Powell upp með árs fyrirvara en rifrildi hans og Blackmores höfðu oft á tiðum nær þvi endað með handalög- málum. Powell hafði um nokk- urt skeið unnið sjálfstætt utan Rainbow gert sólóplötu og farið i hljómleikaferðir. Uppsögn Powells varð ekki til að bæta á- standið i hljómsveitinni og gekk á ýmsu allt árið 1980. Frægastir erusennilega tónleikar þeirra i Wembley hljómleikahöllinni siðasta sumar en þá neitaði Blackmore að flytja aukalag þrátt fyrir óskir áhorfenda og hinna meðlima hljómsveitar- innar það varð til þess að áhorf- endur gegnu berserksgagn og brutualltog brömluðu. Þann 16. ágúst á siðasta ári voru haldnir útitónleikar i Donington Park i nágrenni Ðerby þar sem komu fram auk Rainbow fjölmargar breskar þungarokkhljómsveit- ir. Þetta voru siðustu tónleikar Cozy Powells með Rainbow. 1 stað hans kom i hlómsveitina trommuleikarinn Bobby Rondi- nelli. Þannig starfaði hljóm- sveitin til ársloka en þá hætti söngvarinn Grahm Bonnet og i hans stað var fenginn banda- riskur söngvari Joe Lynn Turn- er að nafni. Iðnaðarrokk Þeir hófu upptökur á nýrri plötu sem leit dagsins ljós i byrjun febrúar siðastliðins og ber nafnið Difficult to Cure. Lagið „1 Surrender” sem samið er af þungarokksgitarleikaran- um Russ Ballard i 4. sæti i enska vinsældalistans. Plata þessi er að nokkru leyti ólik fyrri plötum Rainbow. Breska þungarokkið hefur hörfað litil- lega og við hefur tekið banda- riskt iðnaðarrokk a la Styx og Kansas. Hvað framtiðin ber i skauti sér fyrir Rainbow er ekki gott að segja en þar sem þunga- rokksölduna hefur ekki lægt enn ætti framtfð þeirra að vera björt svo framarlega að Blackmore reki ekki alla meðlimina og standi einn eftir og enginn vilji spila með honum. Með fyrirvara, Viðar Karlsson. ^- Laugardaginn 21. mars ki. 16:00 Danska skáldið Uf fe Harder les úr Ijóðum sín- um og fjallar um skáldskap sinn og nútíma Ijóðlist í Danmörku. Sunnudaginn 22. mars kl. 17:30. Dagskrátil heiðurs Snorra Hjartarsyni á veg- um Máls og menningar og Norræna hússins: Sverrir Hólmarsson og Hjörtur Pálsson f jalla um Ijóðin. Upplestur: Óskar Halldórsson Ragnheiður Árnadóttir Silja Aðalsteinsdóttir Þorleifur Hauksson Guðrún Tómasdóttir syngur við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar lög eftir Atla Heimi Sveinsson og Hallgrím Helgason við Ijóð eftir Snorra Hjartarson. Mánudagur 23. mars kl. 20:30. Anders Kvam frá Noregi heldur fyrirlestur: \ ,,Vegetasjon í byer og tettsteder". Verið velkomin NORRÆNA HÚSIO Bifreiöaeigendur ath.! HEMLAVÖRUR i eftirtaidar bifreiðar: Amerískar fólks- jeppa- og sendibifreióar Volvo — Saab Benz Opel. STILLING HF. Skeifan 11, símar 31340 — 82740 ; Góð hugmynd getur fært þér miklð fé, gangi þér vel í samkeppni Útvegsbankans um að nýrri sjónvarpsai sparibauka bankans. öllum er heimil þátttaka. Fyrstu verðiaun eru kr. 2.000.- Onnur verðlaun eru kr. 1.000.- Þrlðju verðlaun eru kr. 500.- Nánari upplýsingar í bæklingi sem liggur frammi í öllum afgreiðslum bankans. « \ þessan satokepPni' æsezrmr-**’ *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.