Vísir - 21.03.1981, Blaðsíða 17

Vísir - 21.03.1981, Blaðsíða 17
16 Laugardagur 21. mars 1981. Laugardagur 21. mars 1981. 17 VÍSIR vísm farinn a6 leggja drög aö bókinni sem ég skrifaði seinna og kallaöi „Griska reisudaga”. I oröi kveönu átti ég aö vera aö stúdera guöfræöi en var þá alveg búinn að snúa við blaðinu varöandi trúna og þetta var mestanpart ýmiss konar sjálfsnám. Meö þvi aö inn- rita mig i skóla tókst mér aö fá námsstyrk fyrir næsta ár og hann dugöi mér til aö feröast um sum- arið eftir og safna meira efni i bókina mina. Svo fór ég aö huga aö heimferö. Ég átti bara ekki grænan eyri og var satt aö segja i stökustu vandræðum. Þá vildi þaö mér til happs aö ég kynntist ungum og hressum Svia sem var sonur næstæðsta manns stærsta skipa- félags Sviþjóöar. Hann hét Christian von Sydow, þessi maöur — var frændi leikarans Max von Sydows — og ég var leiösögumað- ur hans um Aþenu og nálægar byggðir. Þegar ég trúöi honum fyrir vandamáli minu sagöi hann mér aö hafa engar áhyggjur, en skrifa sér þegar hann kæmi aftur noröur og hann skyldi leysa mál- iö. Endirinn varö sá aö ég fékk pláss á skipi félagsins sem fór frá Grikklandi til Noröurlanda — var i svokallaðri stúdentakáetu og gekk i störf háseta gegn fæöi. Svo þegar ég var kominn til Skandi- naviu byrjaöi ég á þvi aö fara á Ólympiuleikana i Helsinki, ég var þá mikill iþróttaáhugamaöur og langaöi meöal annars aö sjá skólabræöur mina, Clausenbræö- ur, keppa , en þeir fóru vist enga frægöarför i þaö skiptið... t Finn- landi lenti ég i forholli meö ann- arri finnskri stúlku: þaö var ekki siður tragiskt en hiö fyrra en ég náði á endanum til Stokkhólms. Þar fékk ég vinnu sem nætur- vöröur, var dubbaður upp i lög- reglubúning, fékk kylfu og svo- leiðis drasl, labbaöi svo um og sneri lykli i klukkum til aö sanna aö ég væri ekki aö svikjast um. Hálfan tima af hverjum heilum var ég i þessu stússi: afganginn notaöi ég til aö skrifa bókina mina um Grikkland.” \ Röð af einkennilegum til- viliunum En einhvern tima fórstu til Ameriku? ,,Já. Ég kom heim um áramót- in ’52-’53 og fór fyrst á Völlinn — þaö var ekkert annaö aö hafa,” segir hann og brosir örlitiö afsak- andi. ,,A Vellinum var ég i fimm mánuöi en bauöst þá aö fara i þrjá mánuöi til New York á veg- um Sameinuöu þjóðanna, þær höföu fyrir venju að bjóða náms- mönnum til bæöi kynningar og starfa. Mér likaöi vel i New York og þegar ég átti aö fara heim dauölangaöi mig aö vera áfram. Mér fannst lika augljóst aö þaö væri miklu skemmtilegra aö halda áfram námi i Amriku en Evrópu, en til þess aö geta breytt vegabréfsárituninni varö ég aö hafa hvorttveggja: skólavist og atvinnu. Nú kemur röö af ein- kennilegum tilviljunum! Sko, Guömundur Steinsson haföi íátiö mig fá eina adressu i New York, þaö var málari af itölskum ættum sem hann kann- aðist viö, og þegar ég var aö reyna aö átta mig ákvaö ég aö fara til hans. Heimilisfangið var niöri Greenwich Village en hann reyndist vera löngu fluttur og enginn vissi hvert. Sem ég stend á tröppunum og er að tala viö hús- ráöanda — þessu trúir enginn! — gengur þá ekki framhjá gömul, fargömul kona, og sýnilega itölsk. Hún nemur staðar þegar hún heyrir nafn málarans og vikur sér svo aö okkur og segist vita hvar hann býr. Siðan kemur þaö uppúr dúrnum aö hann er kvæntur syst- ur manns sem er giftur íslenskri konu! Þetta Voru þau Leland Bell og Lovisa Matthiasdóttir sem ég þekkti þá hvorki haus né sporö á. Bell vann náttúrlega i háskólan- um sem ég haföi hug á, aö visu sem dyravöröur, en hann þekkti konu sem gat útvegað mér fria skólavist, hún var rektor skólans. Þá gat ég látið breyta visuminu en vantaöi ennþá vinnu. Þaö kom sér vel aö skólinn var aöallega á kvöldin, eftir klukkan sex, svo ég reyndi i byrjun aö vinna fullan vinnudag: i kosmetikssjoppu á 5. Avenue. Eftir mánuö var ég aö gefast upp, þetta var alltof mikiö álag, en það var engin leiö aö fá hálfdagsstarf. Einhver Fossinn var kominn til New York og ég ætlaði meö en ákvaö aö gera sið- ustu tilraunina til aö fá vinnu viö hæfi. Og þá kom eitt kraftaverkið enn!” Sigurður hristir höfuðið. Dæmalaus þessi kraftaverk. „í stórri, margra hæöa, skrif- stofubyggingu á Manhattan voru eiginlega ekkert nema atvinnu- miðlanir og þangaö fór ég. Sæmi- lega bjartsýnn byrjaði ég á efstu hæðinni en þegar ég var kominn niður á neöstu hæö var ég orðinn algerlega vónlaus. Þóttist vita aö þetta þýddi ekki neitt. Ég opna samt dyrnar á, held ég, siöustu skrifstofunni og þá sé ég aö maðurinn sem situr þarinni er aö leggja niður simtóliö. Þegar ég ber upp erindið,, þá segir hann: Þetta er furöu- legt, ég var einmitt að tala við mann sem vantar starfsmann i svona vinnu. Ég varö þjónn, aö- stoöarþjónn, á finum hádegis- veröarklúbb fyrir bissnessmenn, vann frá 11 til 3 og fékk 25 dollara i kaup. Þaö nægöi mér alveg i bili og ég var i f jögur ár i New York — lauk B.A.-prófi i bókmenntum og var farinn aö kenna dálitiö siö- asta áriö. Þá var ég lika farinn aö búa meö indverskri stelpu i stórri þriggja herbergja ibúö og haföi þaö gott, hún kokkaði og svo framvegis...” Hann brosir. Hvað tók svo viö? „Ég kom heim 1956, byrjaöi á þvi aö sækja um vinnu á Visi og Timanum og Morgunblaöinu en fékk ekki. Valtýr gamli vildi aö visu endilega ráöa mig á Mogg- ann en hann var orðinn lasinn og réö litlu. Svo mun þaö hafa verið Bjarni Ben sem tók af skariö og réö mig, þaö var stuttu áöur en hann byrjaði sem aöalritstjóri.” úlfúö og árekstrar í Morg- unblaðinu Kominn á Moggann. Varstu þá þegar oröinn vinstrisinnaöri en almennt gerist um Morgunblaðs- menn? „Ja, ég var alltaf heldur vinstrisinnaöur. Móöir min var til dæmis róttæk og hún haföi áhrif á mig. En um leið var ég mjög and- vigur kommúnisma og er þaö reyndar enn: ég hef alltaf litið á mig sem vinstrikrata, eitthvaö I likingu viö Palme og sænsku sós- ialistana — það eru menn aö minu skapi! Nú, en pólitik skipti mig á- kaflega litlu máli, fyrstu árin á Morgunblaöinu, upphaflega var ég I fréttum en fór fljótlega aö skrifa meira um bókmenntir og listir, kritík og þess háttar. Þegar ég byrjaði meö Lesbókina 1962 fór hins vegar að vandast máliö. Ég byrjáöi þá aö skrifa svokallaö Rabb um allskonar mál og þá fór aö þyngjast brúnin á Morgun- blaðsmönnum. 1 fyrstu var reynt aö leysa þetta meö þvi aö fá menn uppað hliöinni á mér til aö skrifa Rabb, svo fleiri og fleiri og á end: anum var ég beðinn um aö fara í fri. Ég leit á það sem mjög vin- samlega uppsögn og tel aö þaö hafi veriö min mesta gæfa.” Nú? „Jú sjáöu til, ég var oröinn ó- skaplega þrúgaöur þarna á Mogganum. Ég haföi veriö einn af stofnendum Samtaka um vest- ræna samvinnu og var mjög akt- ifur i þeim félagsskap til aö byrja með en þegar átökin hófust um amríska sjónvarpiö þá snerist ég alveg i þessu NATO-máli og hef siöan veriö, ja herstöövarand- stæöingur. Þetta var ’64. Þaö versta var aö viö Matthias vorum ákaflega góðir vinir og mér þótti mjög leitt aö þessi úlfúö rikti, þaö voru eilifir árekstrar undir lokin. Sko, meöan Sjálfstæöisflokkurinn var i stjórnarandstööu mátti ég eiginlega fara minu fram, skrifa hvað sem var, en undireins og hann var kominn I stjórn var farið aö sussa á mig: nú yröi ég aö vera ábyrgur og ég var sífellt minntur á aö Morgunblaöið heföi komið undir mig fótunum — ég ætti ekki aö launa þaö meö þvi aö vera aö hnýta i samherjana. Svo var þaö fyrir kosningarnar ’67 aö Matthi- as kom til min — fyrir bænarstaö Bjarna Ben — og baö mig aö fara i fri fram yfir kosningar. Rök- semdirnar voru þær aö þeim væri svo yfirmáta vel viö mig aö þeir vildu ekki aö mér yröi kennt um ef Sjálfstæðisflokkurinn tapaði kosningunum! Ég fór i fri og kom ekki aftur.” Nei. Þú fórst á Samvinnuna. „Já. Þegar þaö fréttist aö ég væri aö hætta á Mogganum komu til min menn frá Samvinnunni og báöu mig aö taka viö blaðinu — þaö mun hafa veriö Ólafur Ragn- ar sem réö þvi en hann var þá ennþá Framsóknarmaður. Sam- vinnan var á þeim árum hreint kaupfélagsblaö — einsog hún er orðin aftur núna — og bar sig mjög illa, var nánast i andarslitr- unum. Mér var sagt aö ég mætti gera viö blaðið hvað sem mér þóknaöist og ég ákvaö aö gera hana aö opnu og breiðu kúltúr- blaði, vettvangi fyrir allar skoöan- ir og þaö held ég aö mér hafi tek- ist. Þaö var kvartað yfir henni á hverjum einasta aðalfundi Sam- bandsins — hún væri svo vinstri- sinnuð, en ég gat þá sýnt, hreint og beint tölfræöilega, aö mér heföi tekist aö halda þokkalegum ballans milli vinstri og hægri. Vissulega var vinstrisvipur á henni en ég hef ekki aöra skýr- ingu á þvi en aö vinstrimenn hafi haft meira til málanna aö leggja, skrif þeirra hafi veriö eftirtektar- veröari.” Hvaö varstu lengi meö Sam- vinnuna? „I sjö ár, frá ’67 til ’74. Þá var ég beöinn aö hætta en þaö var gert ákaflega kurteislega og miklu snyrtilegar en á Moggan- um. Þeir sögöu mér bara aö þaö væri tap á henni, aö þeir heföu ekki efni á aö gefa út svona fint og dýrt blaö og vildu nú fara aftur _i kaupfélagsútgáfuna. Vissulegá voru vonbrigði aö hætta meö blað sem ég haföi sjálfur skapaö en sjö ár eru langur timi og ég var orö- inn mjög þreyttur, haföi oröið aö vinna nálega alltsjálfur og var aö veröa búinn. Nú, en SlS-forkólf- arnir buöu mér aö taka I staöinn viö Bréfaskólanum, og þar var ég i tvö ár. Þrjú stór-partí í einni viku Snúum okkur aö öðru. Nú hefur þú verið mikiö i Grikklandi. Hvers vegna? „Já, ég var þar i eitt ár, 1960, og þá kom meöal annars út ljóöabók eftir mig á grisku. Hún hét „Dauöi Baldurs og önnur ljóö” og fékk mjög góöar viötökur, t.d. fékk ég ákaflega vinsamlegt bréf frá skáldinu sem siöar fékk Nóbelsverölaunin — Odysseas Elytis. Enda var þýöingin frábær. Svo var ég i Grikklandi aftur i tvö ár, ’78 til ’80. Hvers vegna Grikk- land höföar til min? Ja, ég hreifst strax af landinu, I skóla gleypti ég i mig fornaldarsöguna, og þaö er svo skrýtiö aö þegar ég kom fyrst til Grikklands fannst mér ég sjá veröldina einhvern veginn I nýju ljósi. Þú athugar aö þá haföi ég i mörg ár setiö fastur i trúar- spekúlasjónum, var allan timann aö búa mig undir annað lif, undir himnariki. 1 Grikklandi sá ég aö þetta lif hérna er miklu skemmti- legra! Fólkið var yfirgengilega hlýtt og mér féll loftslagiö mjög vel auk þess sem landslaginu svipar mjög til Islands, finnst mér. Annaö mál er þaö aö ótrú- lega margir sem koma til Grikk- lands finnst þeir veröa fyrir ein- hvers konar upplifun, jafnvel lifa bernsku sina uppá nýtt eöa þá þeim finnst þeir hafa veriö þarna Siguröur A. Magnússon — snaggaralegur, blátf áfram — spyr: //Viltu inniskó?" Því ekki það? Svo við tiplum, báðir á inniskóm/ uppá loftið í húsinu hans Sigurðar i Mosfells- sveit. //Þetta ereini fátækrakofinn sem Jón Haraldsson hefur teiknað: eins og þú veist teiknar hann bara hallir. Hann gerði það af einskærri greiðasami við mig og jú — þetta er gott hús. Það hefur til að mynda ekki þurft að þrifa hér að ráði í þau níu ár sem við höfum búið i húsinu." Húsiðer klætt viði innan og það eru alls konar smáhlutir til skrauts uppum veggi og hillur. Bækur og málverk. Jafnvel Ijósmyndir. Það þýðir ekkert að láta Sigurð segja frá bernsku sinni — hann er búinn að því í eitt skipti fyrir öll. „Já, ég er búinn aö þvi,” segir hann annars hugar og brosir. „En veistu, fólk sem les þessa bók mina — „Kalstjörnuna” — þvi finnst ég hafa átt ömurlega bernsku. Þaö finnst mér ekki, i mínum huga er hún björt. Viö bjuggum utan viö bæinn lengst af, þar var mikiö athafnarými til leikja og þaö sem mest var um vert: pabbi átti alltaf hesta, sama hvernig á stóö aö ööru leyti. Hest- arnir geröu mér lifiö skemmti- legt, þó ekki væri annaö. En auö- vitað var þetta erfiöur timi, bernskan var ekki eintóm sæla. Altso: ég fann þaö náttúrlega, þegar ég fór i skóla, aö ég var ekki aksepteraöur, að ég var verr klæddur en hin börnin og svo framvegis. Þetta pfndi mig og þaö er ekki nema eðlilegt. En ég mætti lika skilningi og hlýju:, einn kennarinn sýndi mér til dæmis mikla vinsemd.” Var það eölilegur hlutur aö þú færir í framhaldsskóla? „Ja, pabbi var þvi alltaf mjög andvigur, fannst ég ekkert hafa með það aö gera, en þá haföi ég fengiö þessa bakteriu, aö vilja læra, og það varö ekki viö hana ráöiö. Ég fór þvi I menntaskóla. Þá var reyndar ekkert pláss fyrir mig heima svo pabbi haföi skipti á mér og hesti Þórhalls Arnason- ar. Pabbi gaf hestinum aö éta og Þórhallur mér! Svo fór ég fljót- lega aö vinna fyrir mér...” Varstu góöur námsmaöur? „Nei, framan af var ég þaö ekki,” hlær Siguröur: „ég var tossi, hreinn og klár fæöingartossi og gat akkúrat ekki neitt! Svo opnaðist eitthvaö fyrir mér, sein- ustu árin i barnaskóla var ég orö- inn þokkalegur og á fullnaöar- prófi 14 ára varö ég efstur yfir Laugarnesskólann. Siöar, þegar ég var kominn á kaf i K.F.U.M., hafði ég litinn tima fyrir skóla- bækurnar og var svona i meðal- lagi.” Já, þú varst mikiö I K.F.U.M.? „Mjög mikiö.” Hvers vegna? Var það af trú á Guö eöa máski félagsþörf? „Sjáöu til. Auövitað spilaöi trú- arþörf þarna inni en þaö sem mestu máli skipti fyrir mig — aö minnsta kosti i upphafi — var aö ungur maöur sem stofnaöi K.F.U.M. — deild i Laugarnesinu — hún var i litlu húsi, dúkkuhúsi — hann geröi sér mjög dælt viö mig einhverra hluta vegna og var góöur viö mig. 1 byrjun tengdi ég þvi K.F.U.M. og allt þaö einungis viö hann, ég leit á hann sem — já, heilagan mann, og hann náöi djúpum tökum á mér. Hann dó tveimur árum seinna en altso: þaö segja mér leikbræöur minir frá þessum árum aö ég hafi veriö rakiö efni i Litla-Hraunsbófa og þaö er rétt, ég var þaö. Hann kippti mér útaf þeirri braut, sýndi mér bllðu og skilning og geröi mig aö foringja yfir ungmennadeild. Hann skildi þaö sem félagar min- ir hafa lika oft minnst á: aö ég hafi haft mikla þörf fyrir aö vera fremstur, vera leiötogi. Ég fékk allskonar ábyrgöarstööur, bar út Ljósberann og þess háttar og sneri baki viö afbrotaferlinum.” Fallegar konur voru mér eilíf truflun... Var trúin sjálf minna atriði? „Þaö er erfitt fyrir mig aö segja um baö.” segir Siguröur og hnyklar brýnnar. „Sko, ég trúöi þvi til dæmis alltaf aö móöir min vekti yfir mér og gætti min, og ég reyndi af öllum kröftum, sannar* lega af öllum kröftum, aö upplifa þá frelsun, endurfæöingu, sem ég vissi aö fólkiö i kringum mig upp- liföi. Þaö var meira af vilja en mætti — I mörg ár þóttist ég vera frelsaöur, ég prédikaði jafnvel, i kirkjum og hjá Hjálpræöishern- um — en ég fann aldrei i sjálfum mér þessa gerbreytingu sem þurfti til. Stundum var þetta ógurlegt sálarstriö af þvi mér fannst ég vera svo syndugur og vondur, maöur mátti náttúrlega ekki lita á kvenmann, hvaö þá meira. En ég var allt gelgjuskeiö- ið hjá K.F.U.M. og út allan menntaskólann og ég get vel sagt aö ég verð eiliflega þakklátur þessum samtökum fyrir það sem þau geröu fyrir mig, fyrir aöhald- iö sem þau veittu mér. Ég er handviss um aö ég hefði aldrei haft karakter, hvaö þá úthald, i langt skólanám nema af þvi K.F.U.M. hjálpaði mér.” Hvernig unglingur varstu á þessum árum? „Ég held ég hafi verið mjög brenglaöur, tilfinningalega brenglaður,” segir Siguröur undireins. Svo hikar hann. „Altso: ég var á kafi i trúmálun- um þangað til ég var rúmlega tvitugur en i raun og veru vantaöi mig sannfæringuna allan timann. Ég starfaði hjá K. F.U.M. af firnamiklum krafti, stofnaöi meöal annars fyrstu Kristilegu skólasamtökin og Kristilegt skólabiaö, var aöalsprautan i unglingastarfinu og primus mót- or yfirleitt. Nú, ég var mjög áhugasamur um guöfræöi, var farinn aö fylgjast vandlega meö þvi sem var aö gerast uppi Háskóla meöan ég var ennþá I menntó og hlakkaöi mikið tii aö geta byrjaö i guöfræöinni sjálfur. Ég geröi þaö reyndar, entist i tvö ár. Ég get nefnt þér — sem dæmi um hvað ég tók þetta allt saman hátiölega — aö þegar ég var i MR fór ég aö lemja sjálfan mig frammúr á morgnanna, klukku- tima fyrr en ég þurfti og er ég þó mjög morgunsvæfur að eðlisfari — til að stúdera Bibliuna og lesa bænir áður en ég fór I skólann. Yfirleitt lifði ég þvi lifi sem ég vissi aö var ætlast til af mér. Eftir á held ég, og veit, að þessi starfs- gleði og trúrækni var uppbót fyrir skortinn á sannfæringunni. En þaö var margt sem togaði: ég fékk til dæmis kvikmyndadellu og var mjög veikur fyrir bió sem var ekki nema miðlungi vel séð, fall- egar konur voru mér eilif truflun og bókmenntirnar ekki slður. Frá þvi ég var barn haföi ég dáö Laxness og varö hálfgert aö fara I felur meö þaö, hann var enginn uppáhaldshöfundur hjá K.F.U.M. Af öllu þessu leiddi aö ég var si- fellt meö vangaveltur um trúna, leiö kvalir vegna syndanna og iðraðist af öllum mætti. Það dugöi ekki til. Svo varö þaö mér til gæfu, eöa ógæfu. — aö á móti kristilegra stúdentafélaga sem var haldið i Danmörku féll ég kylliflatur fyrir finnskri stúlku sem var meö mér á mótinu. Ég var rúmlega tvitug- ur og tók ástina mjög hátiðlega, bauö stúlkunni hingað heim og hvaðeina. Upp frá þvi fór að fækka með mér og K.F.U.M. þvi að sjálfsögðu var þetta ólukkuleg ást og eftir á fannst mér allt einskis nýtt, ekkert að gera hér heima og ég yrði að komast burt. Ég hafði keypt mér föt, finustu spariföt, áður en finnska stúlkan kom til að geta verið — ja al- mennilegur, og þaö stóöst á end- um aö meö þvi aö selja þessi föt aftur átti ég fyrir fari til Kaup- mannahafnar meö Gullfossi. Þar ætlaði ég á sjóinn — auðvitað haföi ég aldrei migið i saltan sjó en fannst það hlyti að vera hægt. Svo kom I ljós aö mig vantaöi alla pappira, ég fékk hvergi pláss og var orðinn alveg desperat þegar ég fékk inni i einu herbergi hjá K.F.U.M. viö aö hafa eftirlit meö iþróttavelli samtakanna. Ég lenti i minu fyrsta stóra ástarævintýri — ástin á finnsku stúlkunni var, þú skilur, mjög heilög, — og var um þaö bil aö slita mig frá K.F.U.M. Þá hef ég orðið grennstur á ævihni Nema hvaö: eftir fyrsta vet- urinn i Danmörku Nema hvað: eftir fyrsta vet- urinn I Danmörku gripur mig alveg óstjórnleg löngun til að komast suöur yfir Alpa. Ég sá auglýsingu I blaöi þar sem sagt var frá pilagrimsför sem allar heimsins kirkjudeildir ætluöu aö fara, I slóð Páls postula i Grikk- landi. Þetta var I júni ’51 og ég skrifaöi Sigurbirni Einarssyni, sem þá var dósent og minn aðal- vinur i K.F.U.M., og spurði hvort nokkur færi frá Islandi i þessa ferö. Hann sagði nei og þá spurði ég aftur hvort ég mætti fara sem fulltrúi Islands. Sigurbjörn talaði þá viö Sigurgeir biskup og hann tók þvi vel, svo ég fór. Skömmu áöur hafði ég fengiö námsstyrk og hann nægði mér svo aö segja ná- kvæmlega fyrir ferðinni frá Kaupmannahöfn til Aþenu en svo fékk ég þriggja vikna uppihald I Grikklandi fritt. A skipinu sem flutti pilagrimana kemur siöan til min griskur æskulýösfulltrúi og ber þaö á mig aö ég sé skotinn i einni grisku stelpunni sem var með okkur. Þaö er reyndar ekki rétt —þaö var hlýtt á milli okkar en ekkert meira, en þaö veröur úr að hann spyr hvort ég vilji vera um veturinn i Grikklandi, búa i klaustri. Hann segist skulu tala við erkibiskupinn og koma þessu I gegn ef ég geti séö mér farboröa um sumariö. Auðvitað fellst ég á þetta. t pilagrimsferöinni hitti ég Svia og tvo Amerikana sem eru á veg- um Alkirkjuráösins viö landbún- aðarrannsóknir I Noröur-Grikk- landi. Ég spuröi hvort þeir vildu taka mig, ég skyldi vinna kaup- laust um sumariö ef ég fengi fæöi og húsaskjól og bilferö til Aþenu um haustiö. Þeir voru dauðfegnir aö fá þarna ókeypis starfsmann og þarna var ég til 1. október og þaö var hreint út sagt, dásamleg- ur timi. Ég blandaöi geöi viö bændafólkiö, byrjaöi aö stúdera máliö og reyndi aö upplifa landið og söguna. Um haustið, þegar ég kom aftur tii Aþenu, þá vildi svo til að kosningar stóðu fyrir dyrum og þessi kunningi minn, sem haföi heitiö mér klaustursvistinni, var á kafi i kosningabaráttu fyrir einn ráðherrann og haföi alveg gleymt aö tala viö erkibiskupinn. 1 tvær vikur ráfaði ég um Aþenu einsog aumingi, fékk inni hjá ferðafélög- um minum frá þvi um vorið nokkra daga i senn, eða þar til vinurinn mátti loks vera að þvi að tala viö kallinn. Hann sagöi jájá, ekkert sjálfsagðara og i klaustr- inu þreyði ég næsta vetur. Þetta var venjulegt orþódoxaklaustur en jafnframt hostel fyrir guð- fræöistúdenta utan af landi: þennan vetur hef ég oröið grann- astur á ævinni. Ég á mynd af mér frá þessum tima og þaö má telja greinilega i mér rifbeinin, félagar minir voru aftur á móti allir ak- feitir en ekki veit ég hvernig þeir fóru aö þvi! Þaö sem bjargaöi mér frá hungurdauöa var aö ég kynntist þarna sænskum manni sem réö mig til aö kenna dóttur sinni ensku þrjá daga I viku milli ellefu og tólf. Þessa þrjá daga fékk ég finan middag! Auk þess komst ég i te og kökur i nálægum fornleifaskóla en ansi var þetta furöuleg tilvera...” Hann brosir aö endurminningunni. Hvað varstu aö gera? „Aðallega hékk ég á bókasafni fornleifaskólans og kynnti mér sögu Grikklands, ég var þá þegar Ljósmyndun: Emil P. Sigurðsson Tcxti: Illugi Jökulsson áöur. Ég hef fariö um allar triss- ur og þaö er helst I Armeniu, i Kákasusfjöllum, aö maöur finnur eitthvaö álika tilfinningu. Nei, ég veit ekki hvort ég trúi á endur- holdgun, ég er skeptlker og vil hvorki segja af né á.” Þú hefur talað töluvert um skrýtnar tilviljanir sem allar komu þérvel. Ertu máski forlaga- trúar? Sigurður hlær: „Ja, þaö er nú þaö! Þaö er svo merkilegt aö all- ar götur siöan móöir min dó hefur mér fundist ég vera undir ein- hvers konar handleiöslu eöa vernd hennar. Kannski eru þetta ekkert nema tilviljanir. Ég get ekki skýrt þetta.” Þú ert nú aö skrifa framhald „Kalstjörnunnar”? „Já.” Hvernig gengur? „Þaö gengur eiginiega hálfilla. Ég hugga mig viö þaö aö þaö tók mig mörg ár aö finna rétta tóninn fyrir „Kalstjörnuna”. Ég haföi skrifaö upphafskaflana mörgum sinnum, prófaö þriöju persónu og jafnvel aöra persónu en dæmiö gekk ekki upp. Svo þegar mér bauðst aö vera i Berlin veturinn ’78 til ’79 var einsog allar flóögátt- ir opnuöust: ég byrjaöi aö skrifa i janúar og var búinn eftir fimm mánuöi. Lokaöi mig þó ekkert af!” Bjóstu viö aö hún fengi svo góö- ar viötökur sem varö? „Neineinei, ertu frá þér? Ég haföi gert samning viö forlagiö um 1,2 milljónir en svo komst frændi minn Njöröur i máliö og skipaöi mér að heimta prósentur. Ég geröi það meö hálfum huga og fékk 10 milljónir i staðinn fyrir ' rúma eina. Svo þú sérð að ég bjóst alls ekki við þessu. Og konan min, Svanhildur, hún var helst á þvi að ég ætti barasta að henda þessu i ruslið!” Hefurðu skýringu á viötökun- um? „Ja, mér hefur dottiö i hug aö sú staöreynd aö enginn hafi skrif- aö um akkúrat þetta timabil áöur, og sérstaklega ekki um Pólana, hafi haft sitt aö segja. Svo hef ég grun um,” segir hann og glottir, „aö ættfræöiáhugi Islendinga spili þarna inni. Ég breytti öllum nöfnum og það mætti segja mér aö menn hafi haft gaman af að velta fyrir sér hver væri hver. Hins vegar segja mér sumir, aö- allega yngra fólk, aö ég hafi þarna hitt á einhvern réttan tón eða blæ og þaö þykir mér vænt um aö heyra.” Svo slær hann frá sér. „Annars geri ég mér engar grillur. Ég veit vel aö fyrsta bókin I svona serium er alltaf sú besta, svo fer aö halla undan. En jújú, ég held áfram.” Hefuröu hugmynd um hvað þú takir þér svo fyrir hendur næst? „Ja, hmmm, ég hef nú hug- mynd um þaö en þaö er llklega bestaö segja sem minnst um þaö. Hins vegar hef ég hug á aö þýöa og þá sérstaklega þrjá höfunda sem ekki hafa verið þýddir áöur aö ráöi en mér finnst eiga erindi á islensku. Þaö er I fyrsta lagi Walt Whitman,, I ööru Joyce — hjálpi mér! ekki stórverkin, heldur „Dubliners” og kannski „Port- rait” — og I þriöja lagi Edith Söd- ergran. Þaö er synd hvaö þýöing- ar eru i litlum metum hér á Is- landi vanmetnar og vanborgaöar. Þannig hafa islenskar bókmennt- ir oröiö af mörgu snilldarverk- inu.” Hvernig vinnur þú þinar bæk- ur? „Hvernig? Ég skrifa á nótt- unni. Það er minn timi. ólafur Hansson sagöi mér einhvern tima aö hann gæti séö þaö af blæ bókar, hvort hún væri skrifuð aö nóttu eöa degi. Hann þóttist til aö mynda sjá þaö af bókum Balzacs aö þær heföi hann skrifað um næt- ur. Hann sagöi mér aldrei hvern- ig hann sæi þetta: mig grunar að hann hafi vitaö fyrir hverjir höf- undar skrifa á nóttunni og siðan fundiö merki þess... Hitt er annað mál aö þaö er stundum litið næöi til aö skrifa. Nú á einni viku er ég búinn aö fara i þrjú stórparti. Þaö getur veriö erfitt.” Hann strýkur yfir höfuöiö á sér. Svo fer ég úr inniskónum. — IJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.