Vísir - 21.03.1981, Blaðsíða 14

Vísir - 21.03.1981, Blaðsíða 14
14 VÍSIR Laugardagur 21. mars 1981. Rætt vid JóhannSigurdsson9forstjóra Flugleidaskrifstofunnar i London: Bretar hafa nú mikinn áhuga á íslandsferöum Bretar hafa löngum lagt mikla rækt viö ferðalög og útþráin viröist þeim i blóö borin, eins og fleiri þjóöum er eylönd byggja. Blöð og tfmarit i Bretlandi eru uppfull af auglýs- ingum um lengri og skemmri ferðir innanlands sem utan, allt til fjarlægustu heimshorna. Ótal feröaskrifstofur og flugfélög eyöa gifurlegum fjármunum i auglýsingar og kynningarstarf- semi. Hvernig gengur aö vekja athygli á tslandi i þessari skefjalausu samkeppni sem þarna er háö? Jóhann Sigurösson forstjóri Flugleiöaskrifstofunnar i London brosti i kampinn þegar ég bar þessa spurningu upp. „Auövitað er samkeppnin alveg óskapleg. Mörg lönd eru að byggja upp ferðaþjónustu á sama tima og peningaekla hrjáir hinn vestræna heim og flugfélögin eru mjög þurfandi fyrir farþega. En okkur hefur gengið mjög vel. Ég get nefnt sem dæmi, að frá 22. desember fram til 11. febrúar höfðum við móttekið um 10 þúsund Urklipp- ur úr auglýsingum okkar með Texti: Sæm- undur Guö- vinsson, blaöamaöur beiðni um bæklinga auk þess um þrjú þúsund bréf og simhring- ingar. Ég er því bjartsýnn á að margir hyggi á tslandsferö i ár. ” Vilja tilbreytni Jóhann Sigurðsson ætti að vita hvað hann syngur, búinn að starfa áratugum saman i London fyrir Flugfélag Islands og síðan Flugleiðir. Hann er siöur en svo farinn að þreytast á starfinu, þvi hann tekst beinlinis á loft af áhuga, týnir fram blöð og bæklinga og greinir frá þvi hvernig litið og fjárvana félag sem Flugleiðir fer að vekja athygli á íslandi. En veitfólk að hverju það gengur þegar það pantar tslandsferö og eftir hverju er það að sækjast? „Þetta fólk er ekki að leita að sól og sandi þegar það fer til Islands. Hér er um að ræða fólk sem hefur áhuga á einhverju nýju sem er öðruvisi, fyrir utan þá sem hafa sérstakan áhuga á fuglallfi eða önnur séráhuga- mál. Sumir hafa komið til hinna Norðurlandanna og vilja ekki sleppa íslandi úr, ef Island kemst i fréttirnar vekur það áhuga á landinu og það má bæta við ótal ástæðum fyrir þvi aö Bretar fara til íslands. Vikingasýningin i fyrra var geysivinsæl og við fylgdum eftir Jóhann Sigurösson á skrifstofu sinni I London. (Visism. SG). þeirri athygli sem hún vakti hér.” En erum við samkeppnisfærir með verölag? „Ég held að Islandsferð þurfi ekki að vera dýrari en Italiu- ferð. Ferð til Islands getur til dæmis haft f jallaferð innifalda i verði, með mat og gistingu, og farþeginn þarf sáralitlu að eyða umfram það sem hann greiðir við brottför héðan. Sömu sögu er að segja ef farþegar velja hringferð um landið. Við skulum gæta þess, að þegar ferð til ítaliu er keypt, eða Spánar, Pastoria i London: Gott hótel á oódu veröi Þaö er dýrt að gista hótelin i London, enda er gistiverð þar með þvi hæsta sem þekkist á vesturlöndum. Ekki er óalgengt aö heyra islendinga tala um aö þeir borgi 50-60 pund fyrir tveggja manna herbergi. Það má hins vegar finna til- tölulega ódýr hótel i góðum gæðaflokki i London ef vel er að gáð. Eitt af þeim er Pastoria Hotel, á kyrrlátu horni fast við Leicester Square. Þar hefur verið hægt að fá einsmannsher- bergi með baði á 16-18 pund i vetur og er morgunmatur inni- falinn. Hótelstjóri á Pastoria er ung- ur maður að nafni Stephen Catley. Hann sagði i spjalli við Ferðasiðuna að hótelið hefði lengi verið i eigu Pastoriufjöl- skyldunnar frá Italiu. Það var þá rekiðsem dýrt hótel og mikið sótt af kvikmyndastjðrnum og öðru frægu fólki. Grand Metropolitan, sem er stór hótel- hringur og á um 20 hótel, keypti siöan Pastoria Hotel og rak það þar til á siðasta ári að einkaaðil- ar festu kaup á þvi. „Hér er meðal gesta, fólk, sem heíur árum saman skipt við Pastoria þegar það er á ferð i London, bæði Bretar og útlend- ingar. Auk þessara fastagesta eru hér auðvitað ferðamenn úr ýmsum heimshornum og þá ekki sist frá Bandarikjunum og Kanada,” sagði Catley. Hann sagði ennfremur að lögð væri áhersla á að veita góða þjónustu á lágu verði. Herberg- in eru 54 talsins og flest með baði. Sjónvarp, simi og útvarp er i öllum herbergjum. Veit- ingasalur er i hótelinu, bar og setustofa. Stephen Catley sagði að sum- arverð tæki gildi 1. april. Frá þeim tima kostar einsmanns herbergi með baði 26 pund og tveggjamanna herbergi með baði 34 pund. Inr.ifalið i verði eru skattar, þjónustugjöld og morgunmatur. Pastoria Hotel er mjög vel staðsett, tveggja minútna gang- ur að næstu neðanjarðariest, þar sem m.a. er hægt að taka lestina á flugvöllinn, og örstutt er i öll helstu leik- og kvik- myndahús. Auk þess er National Gallery i næsta húsi og þannig mætti lengi telja. Fyrirþá sem vildu reyna gist- ingu á þessu hljóðláta hóteli fylgir heimilisfangið hér með: Stephen Catley á hlaöi Pastoria (Visism. SG). Pastoria Hotel St. Martin’s Street, Leicester Square, WC2H 7HL Simi 01 930 8641. London þá kostar hún eitthvað ákveðið verð, en ferðamaðurinn eyðir meira á þessum stöðum, svo sem i Vin og skemmtanir. Þegar allt er tekið saman er Islandsferð þvi ekki dýrari. Við vorum að tala um sam- keppnina áðan og auðvitað er alltaf eitthvað um ódýrar ferðir sem auglýstar eru i hreinni ör- væntingu. Nú er til dæmis Tjær- eborg að auglýsa 15 daga ferð til Benidorm á 189 pund með öllu fyrir „last minute” farþega. Þeir eru að reyna að fá eitthvað upp i kostnaðinn, en hvað skyldu þá hinir farþegarnir segja, sem pöntuöu ferðina fyrir löngu og greiddu fullt verð þá? Varla verða þeir ánægðir.” Samstarf ■ Noröurlandanna Ekki þarf lengi að skoða i glugga ferðaskrifstofa i London, svo ekki sé minnst á söluskrif- stofur SAS, til að sjá litfagrar auglýsingar um ferðir til hinna Norðurlandanna, en Island er sjaldan áberandi i þessum aug- lýsingum. Er tsland haft útundan þegar SAS-löndin sam- einast um að auglýsa Norður- lönd? „Nei, alls ekki”, sagði Jóhann Sigurðsson. „Þvert á móti er mikil samvinna hvað þetta varöar. Við ferðumst saman um Bretland, sýnum myndir og efnum til kynningarfunda þrisvar til fjórum sinnum á ári og þetta samstarf hefur varaö i ein 15 ár. Þarna erum viö að kynna norðrið og leggjum áherslu á, að það er hægt að verja sumarfriinu víðar en i suðrinu. Reynslan hefur lika sýnt, að þeir sem byrja á að fara norður halda þvi gjarnan áfram.” Þú sagðir áöan aö margir hefðu spurt um tslandsferöir og óskaö eftir bæklingum. En hafa margir ákveðiö ferö og pantaö far á komandi sumri? „Já, mun fleiri en á sama tima i fyrra. Ferðaskrifstofa Richard var komin með um eitt þúsund farþega i byrjun fe- brúar, eða um helmingi fleiri en I fyrra pg aukningin hjá Holi- days er 14%. Aðrar ferðaskrif- stofur hafa svipaða sögu að segja, miklu fleiri fyrirspurnir en á siöasta ári. Ekki má gleyma nýja bæklingnum sem kom út fyrr i vetur og hefur vakið gifurlega athygli.” Við spjöllum áfram um íslandsferðir Breta i fortið og nútið og samskipti þjóðanna. Jóhann er margfróður og þeir eru ófáir Islendingarnir sem hafa leitað til hans er vanda hef- ur borið á að höndum i Bretlandsferð. Man ég eftir, að einn maður sagöi við mig fyrir örfáum árum,'að við hefðum ekkert að gera með annan sendiherra i London meðan við heföum Jóhann. En hvernig er að vera Islendingur i Bretlandi? Hlaðvarpi Islendinga „Það er gott að vera íslend- ingur i Bretlandi”, svarar Jó- hann. „Ef þú átt eitthvað sam- eiginlegt með fólki sem þú hittir hér þá er Bretinn opinn fyrir sanngjarni sambúð. Auk þess erum við 50% Keltar og það er eitthvað i fari Breta sem kemst undir skinnið hjá fólki. Það má ekki gleyma þvi að London er hliðið til suður og miö-Evrópu. Hún er hlaðvarpi íslendinga i Evrópu og hér kann landinn vel við sig. Hér eru bestu leikhús i heiminum, söfn- in, tónleikahaldið, golf og aðrar iþróttir, allt þetta og ótal margt fleira hefur borgin og landið uppá að bjóða. Það getur engum leiðst i London”, segir Jóhann Sigufðsson. — SG. Gestahús Dixons i Maidenhead: ÞAR FÆST HERBERGI FYRIR 8 PUND Um 40 km frá London, i bæn- um Maidenhead reka hjón aö nafni Dixon gestahús. Bærinn er i fögru umhverfi Thamesdals og tekur hálfa klukkustund að fara þessa leið i lest. Dixonhjónin hafa rekið gesta- húsið i þrjú ár og bjóða tslend- inga sérstaklega velkomna. Þau hafa haft talsverð kynni af Islandi og Islendingum og tala hrafl i islensku. Hjá þeim er gistiverð átta pund á sólar- hringinn fyrir manninn og hálft verð fyrir börn að 12 ára aldri. Enskur morgunverður er inni- falinn i verði. Hvert herbergi er með litasjónvarpi og vaski en ekki er sérbað með herbergj- unum. Þau hjón bjóða akstur til og frá flugvelli fyrir hálft verð, miðað við leigubila svo og aksturi'verslanir iMaidenhead, en þar eru flestar sömu stór- verslanir og i Oxfordstreet. Lestarferð til London, fram og til baka, kostar 2,60 pund. Hægt er að panta gistingu gegnum ferðaskrifstofu og Flugleiðir og eru gestir sóttir á flugvöllinn sé þess óskað.-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.