Vísir - 21.03.1981, Qupperneq 32

Vísir - 21.03.1981, Qupperneq 32
síminner 86611 LOki segir i blaöinu i gærmorgun var auglýsing frá norskum aöil- um. Svo var aö sjá sem þar væri auglýst eftir lagskonum fyrir laxveiöimenn! Veðurspá helgarinnar Gert er ráö fyrir áframhald- andi noröaustanátt um allt land um helgina og frost- hörku. A sunnanveröu landinu veröur bjartviöri og fallegt veöur, en éljagangur fyrir noröan frá Vestfjöröum til Austfjaröa. Ekki sjást nein merki um aö hlýni i veöri á allra næstu dögum. veðríð hér og par Veöriö klukkan 18 i gær: Akureyri skýjaö 4- 8, Bergen létt skýjað 4-2, Helsinki korn- snjór -r 3, Kaupmannahöfn rigning 6, Osló alskýjað -e- 1, Reykjavik léttskýjaö 4-7, Stokkhólmur hálfskýjaö 4-2, Þórshöfn alskýjað 4-2. Beríinléttskýjaö 10, Feneyj- ar þokumóöa 9, Frankfurt hálfskýjaö 12, Nuuk snjókoma -f2, London skýjað 11, Luxemborg léttskýjað 11, Las Palmas alskýjað 20, Mallorka alskýjað 14, París léttskýjaö 14, Róm skýjaö 12, Malaga hálfskýjaö 18, Vin léttskýjaö 10. Er kvölda tók tindust á leiö I heimahöfn. leitarbátarnir inn i sinar heimahafnir, hver af öörum. Þrir bátar frá Stokkseyri tóku þátt i leitinni og eru hér (Visismyndir G.V.A.) Tveggja saknað af Þernu AR 22 sem sðkk út af Stokkseyrí: „Eg sa bátinn fara a hliUna * - sagði einn sjðnarvotta i viðlali við Vísi ,,Ég var aö henda netum af bilnum niðri á bryggju þegar mér var litiö út á haf og sá þá bátinn i þann veginn sem hann var að ieggjast á hliöiua”, sagði Hinrik Ólafsson vörubilstjóri á Stokks- eyri i samtali viö Visi en Hinrik var sjónarvottur að því er Þerna AR 22 frá Eyrarbakka sökk út af Stokkseyri i gær. „Þetta hefur liklega verið um klukkan 16.30. Stuttu eftir þetta sá ég að möstrin höfðu alveg lagst niður. Ég stökk til skipverjanna á Hólmsteini sem var nýkominn að landi og var byrjaður að landa og sagði þeim frá atburðinum. Þeir leystu strax landfestar og héldu út. En þegar þeir komu að bátn- um hafði Hafsæll frá Þorlákshöfn bjargað einum mannanna. í nokkurn tima á eftir þetta sá maður stefnið uppúr, en siðan hvarf það i hafið”, sagði Hinrik. Strax og ljóst varð um atburð- inn fóru nærliggjandi skip af stað til leitar. Er Visir var á Stokks- eyri um klukkan 18 i gær voru 18 bátar i leitinni, auk varðskips og tveggja flugvéla er sveimuðu yf- ir. Þá fóru 5 björgunarsveitar- menn frá Stokkseyri á tveimur gúmmibátum og leituðu innan skerja. Leit bar ekki árangur og þegar tók að dimma tindust bát- arnir inn hver af öðrum, ýmist til Stokkseyrar, Eyrarbakka eða Þorlákshafnar. Hafsæll, báturinn sem bjargaði Gunnsteini Sigurðarsyni, kom til Þorláks- hafnar um klukkan 21.30 i gær- kvöldi. Bátarnir voru i klaka- böndum og gáfu til kynna hugsan- lega orsök sjóslyssins, isinguna, sem gjörbreytt getur flothæfni skipanna. Sá sem bjargað varð i gær heit- ir Gunnsteinn Sigurðarson, en hann var nýbyrjaður á Þernu AR 22. Samkvæmt upplýsingum sjónarvotta sökk báturinn á um Hinrik óiafsson vörubfistjóri á Stokkseyri var sjónarvottur aö siysinu. 40minútum,en nistingskuldi var á þessum slóðum er slysið átti sér stað. Ekki er talið að sjógangur hafi verið aðalorsök slyssins, þar sem sjór var ekki ýkja úfinn er at- burðurinn átti sér stað. —AS. „Sart að horfa a - sagöi Gunnsteinn Siguröarson. 17 ára Reykvikingur. sem eítir lélögunum komst lífs af ur sjóslysinu við stokkseyri „Viö ætluðum aðfara að leggja, þegar báturinn tók skyndilega að halla á hliðina. Ég hljóp til og fór aö huga að björgunarbátnum, þegar báturinn lagðist alveg. Ég haföi gert félögum minum við- vart og þegar bátnum hvolfdi vorum við allir komnir uppá dekk, og lentum þvi i sjónum. Ég náði að komast á kjöl, en íélögum minum tveimur tókst það ekki. Það var sárt að þurfa að horfa á eftir þeim reka frá bátnum án þess að geta nokkuð aö gert”. Þetta voru orð Gunnsteins Sigurðarsonar 17 ára Reykvik- ings sem heimtur var úr helju er 9 tonna bát Þernu ÁR 22 hvolfdi rétt utan við Stokkseyri um klukkan 16 i gær. Þrir menn voru á bátnum en i gærkvöldi höfðu félagar Gunnsteins ekki fundist, þrátt fyrir itrekaða leit. Það sem varð Gunnsteini til bjargarvar að Hafsæll, 30 tonnna bátur frá Þorlákshöfn, var ekki viðsfjarri er slysið átti sér stað og kom þegar á slysstað. „Þegar Hafsæll kom að var ég á kili bátsins. Þeir köstuðu til min bjarghring og ég stökk i sjóinn og náöi til hans. Siðan var ég tekinn um borð i bátinn”, sagði Gunn- steinn er Visir átti stutt spjall við hann i Þorlákshöfn, en þá hugðist Gunnsteinn halda heim til for- eldrasinna.Tæpum 6 timum eftir að slysið hafði átt sér stað höföu foreldrar Gunnsteins ekki hug- mynd um að sonur þeirra hefði verið ihættu. Þau höfðu ekki haft nokkrar spurnir af atburðinum fyrr en nokkrum minútum áður en Gunnsteinn kom heim i gær- kvöldi. —AS Gunnsteinn Siguröarson, tii vinstri, kveöur Iffgjafa sinn Hólmar Gunnarsson, skipstjóra á Hafsæli, en hann bjargaöi Gunnsteini af kili Þernu AR 22, sem hvolfdi útaf Stokkseyri um klukkan 16.301 gær.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.