Vísir - 25.03.1981, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 25. mars 1981
vísm
5
Veröur Bíggs fram-
seidur breskum
yfirvöldum?
Lögreglan á Barbados hefur nú
til yfirheyrslu tvo forstjóra
bresks öryggisfyrirtækis vegna
ránsins á Ronald Biggs, breska
lestarræningjanum.
Einn af fimmmenningunum,
sem handteknir voru um borð i
snekkjunni, þar sem Biggs
fannst, sagði einu dagblaða Bar-
bados, að mannránið hefði verið
„auglýsingabrella til þess að
vekja athygli á öryggisfyrirtæki
okkar”.
Lögreglumenn segja, að mann-
ræningjarnir sýnist hinir hröðug-
ustu yfir þvi, hversu fljött og
greiðlega rániðsjálft hafðigengið
og nákvæmlega samkvæmt
áætlun.
Biggs i höndum brasilískra lög-
reglumanna árið 1974, þegar
hann siapp naumiega við að
verða framseldur Bretum,
vegna þess að hann hafði eign-
ast barn með brasiliskri stúlku.
Biggs, sem sömuleiðis hefur
verið kyrrsettur i Barbados,
meðan lögreglan gengur úr
skugga um, hvort fingraför hans
koma heim og saman við fingra-
för lestarræning jans fræga
(sendu þau til Bretlands), hefur
farið fram á að verða sendur
aftur heim til Brasiliu, þar sem
hann hefur dvalið siðan 1970.
Hann komst naumlega hjá þvi að
verða framseldur breskum yfir-
völdum.
Utanrikisráöuneytið i Brasiliu
sagöi I gær, að ekki væru i ráöi
neinar diplómataaðgerðir til þess
að Biggs yrði sendur aftur til
BrasiKa nyggsi
ekki leggja á slg
lll að lá lestarræn-
ingjann aftur
Brasiliu. Sögðu menn, að þetta
væri mál fyrir lögregluna.
Um leið og sannað hefur verið
með fingrafaraprófun, að Biggs
er lestarræninginn, sem slapp úr
fangelsi i Bretlandi — og það er
ekki dregið i efa af neinum — er
búist viö þvi, að Bretar leggi fram
i Barbados kröfur um að fá hann
framseldan. Milli Bretlands og
Barbados, sem áður var nýlenda
Breta, eru i gildi samningar um
gagnkvæmt framsal á þeim, sem
réttvisin seilist eftir.
Flett ofan af gömlum
njösnalmeykslismálum
„Daíly Mail” birtír úrdrætti iir væntanlegrí bók
um svikara i njósnakerfi Breta
að hafa hag af
Waiesa haföi
sitt fram
- eftir að hann hótaði að segja af sér,
ef rokið yrði í verkfall fyrirvaralaust
Breska blaðið „Daily Mail”
heldur þvi fram i morgun, að
fyrrum þingmaður og formaður
Verkamannaflokksins, Tom Dri-
berg, hafi verið njósnari tvöfald-
ur i roðinu, og njósnað bæði fýrir
bresku leyniþjónustuna og þá
sovésku.
Blaðamaðurinn, Chapman
Pincher, tilgreinir Driberg, sem
lést 1976, i nýjasta útdrættinum,
sem blaðið birtir úr væntanlegri
bók hans, „Svik eru þeirra iðn-
grein”, en i henni fjallar hann um
leyndarmál bresku leyniþjónust-
unnar.
Pincher heldur þvi fram, að i 30
ár hafiDriberg gefið bæði bresku
njósnastofnuninni MI5 og KGB
upplýsingar um einkalif og
stjórnmálaathafnir ýmissa vina
sinna og félaga Ur þinginu. —
„Bæði MI5 og KGB gengu þess
ekki dulin, að hann starfaði fyrir
báða aðiía,” skrifar Pincher.
„Báðir reyndu
honum.”
Heldur Pincher þvi fram, að
Driberg hafi veriðkynvillingur og
oft staðinn að þvi opinberlega, en
forðað frá hneyksli vegna sam-
banda þeirra, sem hann hafði við
MI5.
Það var einmitt i þessum
bókarútdráttum Pinchers, sem
fyrst kom fram, að sir Roger
Hollis, fyrrum yfirmaður MI5,
hafi verið njósnari á snærum
Rússa.
Pincher segir, að Driberg hafi
verið ráðinn til bresku gagn-
njósnastofnunarinnar fyrir siðari
heimstyrjöldina og laumaö inn i
kommúnistaflokkinn, en þaðan
var hann siðar rekinn. —■ Um
nokkurra ára bil afhentihann MI5
mörg þúsund sterlingspund, sem
KGB greiddi honum fyrir skýrsl-
ur hans.
Driberg komst á þing 1942, og
var aðlaður, þegar hann hætti
1974. Frá 1949 til 1974 átti hann
sæti i framkvæmdaráði breska
Verkamannaflokksins og var
flokksformaður 1958.
Pincher hefur flett ofan af
fjölda hneykslismála á sviði
varnarmála og leyniþjónustu.
Bók hans á að koma út siðar i
jiessari viku.
Fyrir dyrum standa i dag við-
ræður milli kommúnistastjórnar
Póllands og forvi'gismanna „Ein-
ingar’\ en mjög veltur á niður-
stöðu þeirra, hvort til allsherj-
arverkfalls kemur eða ekki.
Boðaö hefur verið fjögurra
stunda verkfall á föstudaginn og
siðan allsherjarverkfall næsta
þriðjudag, en meira þykir i húfi
en það eitt að afstýra þvi.
Hin óháðu verkalýðssamtök,
„Eining”, telja tilveru sinni ógn-
að með ofsóknum á hendur ein-
stökum félögum úr samtökunum
og jafhvellögregluofbeldi, eins og
á dögunum i' Bydgoszcz. Pólsk
stjómvöld vara við þvi, að verka-
lýðsbaráttan geti leitt til eyði-
leggingar efnahagslifs landsins
og kallað yfir Pólland „mikla
hættu”. Með hinu siðara gæti ver-
ið átt við hugsanlega innrás Var-
sjárbandalagsrikja.
Agreiningur kom upp innan
landsstjórnar Einingar, þegar
hinir herskáustu vildu ólmir
hefna lögregluaðgerðanna i
Bydogszcz með verkföllum, en
Walesa vildi reyna samningavið-
ræður. Sæst var f gær á tillögur
hans, en þó ekki fyrr en Walesa
hafði hótað að segja af sér.
Walesa heldur i dag frá
Bodgoszcz til Varsjár til viðræðna
við ráðamenn.
Lak noger Hollis leynflarmalum Kanaflamanna?
aði við dulmálsdeild leyniþjón-
ustu Rauða hersins i Moskvu.
1 fyrirspurn i Ottawa-þinginu i
gær bar Trudeau forsætisráð-
herra á móti þvi, að hann tæki
þátt i þvi að hylma yfir Hollis-
málinu, sem veldurþessa dagana
miklu fjaðrafoki i Bretlandi.
Bresk blöðhalda þvifram, að fyr-
ir löngu hafi komist upp um sir
Roger, en það þaggað niður.
Sir Roger Hollis, fyrrum yfir-
maður MI-5, gagnnjósnastofnun-
ar Breta — sem bresk blöð telja,
að hafi verið á snærum Rússa —
kann að hafa lekið upplýsingum,
sem spilltu öryggi Kanada, eftir
þvi sem sagt er i Ottawa.
Robert Kaplan, rikissaksókn-
ari, sagði blaðamönnum, að sir
Roger (sem lést 1973) hafi i
tveimur heimsóknum sínum til
Kanada verið trúað fyrir mikil-
vægum leyndarmálum. Heim-
sóknir þessar voru á fimmta ára-
tugnum.
1 annarrí þessari ferð yfir-
heyrði sir Roger sovéskan flótta-
mann, Igor Gouzenko, sem var
skrifstofumaður i sendiráði
Sovétrikjanna í Ottawa og starf-
Hýjar bjdrgunartiiraunir vlð bor-
pailinn Klelland
Qin- og klaufaveiki
Gin- og klaufaveiki hefur komið
upp á eyjunni Wight við suður-
strönd Englands, og hefur verið
slátrað 240kúm ogsvinum til þess
að hindra útbreiðslu veikinnar.
Bannað er að flytja lifandi
skepnur frá eyjunni vegna smit-
hættunnar. Ferðafólk, sem til
eyjunnar kemur, verður að ganga
í gegnum sótthreinsandi efni, til
þess að varna þvi, að skófatnaður
þess beri með sér smit.
Norðmenn bjðða
Iðtluðum skólavist
Norskir lýðháskólar bjóða ó-
keypis skólavist öllum fötluðum á
næsta ári. frá hvaða landi, sem
þeir koma. Til að mismuna ekki
þeim, sem efnaðri eru,
bjóða þeir að greiða ferðakostn-
aðinn og 5000 norskar krónur I
vasapeninga. Tilefni þessa er al-
þjóðaár fatlaðra.
Gera skal nýja tilraun til þess
aö rétta borpallinn, Alexander L.
Kielland, við, en það er nú ár liðiö
frá slysinu I Norðursjó.
Norska stjórnin hefur boðist til
þess að greiða 80% kostnaðarins
viðað koma borpallinum á réttan
kjöl aftur. Það er að segja, þegar
frá er reiknuð sú upphæö, sem
unnt verður að selja borpallinn
fyrir.
Fyrri tilraun til þess að koma
borpallinum á réttan kjöl var
stöðvuð af yfirvöldum i nóvem-
berlok vegna hættunnar, sem
samfara var þvi, aö loft lak úr
einum belgnum, sem hélt pallin-
um á floti.
Ef allt fer að áætlun, á aö hefj-
ast handa viö nýjar björgunaraö-
gerðir eftir tvo mánuöi, og helst
Ijúka þeim i sumar.
Nýjar efnahags-
aðgerðir á ftalíu
ttalska stjórnin hefur fellt
gengi lirunnar um 6% og boðaö
takmarkanir á útlánum i viðleitni
til þess aö hemja verðbólguna og
draga úr skuldasöfnun við útlönd.
Gert er ráð fyrir, að ýmsar
sparnaðarráöstafanir muni á eft-
ir fylgja.
lítlendlngum
fjðigar I Noregi
Viö árslok 1980 voru 82 þúsund
útlendingar á skrá i Noregi, eða
tveim þúsund fleiri en áriö áður.
43 þúsund voru karlar, 39 þúsund
konur.
Nær 64% voru rikisborgarar I
öðrum Evrópulöndum, og þar af
27 þúsund frá Norðurlöndunum.
3% komu frá Afriku, 15% frá Asiu
og 16% frá N- og S-Ameriku. —
Fjölmcnnastir voru Danir.
FlÓðí
Júgósiaviu
Tólf fórust og 35 slösuðust i
Júgóslaviu, þegar skriða hreif
incösér tvo járnbrautarvagna og
bar þá alla leið ofan I Morava-ána
sunnan við höfuðborgina Belgrad.
Miklar rigningar hafa veriö i
Júgóslaviu að undanförnu og hafa
orsakað skriðuföll. Vfirborö I ám
og vötnum hefur vaxið mjög og
sumar ár flætt yfir bakka sina. 5
manns hafa drukknaö í þeim flóð-
um. Um 100.000 hektarar lands
eru undir flóðavatni og hefur flætt
inn i meira en 1000 hús.