Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið hús: laugardag 3/1 kl. 10 - 16sunnudag 4/1 kl. 11 - 16 Hér erum viðbrautatasgata
gu
r
Ba
ró
ns
stí
gu
r
álsgataugata Skarphéð.gKarlagVífilsg
MánagSkeggj
Sn
or
ra
br
au
t
Ra
uð
ar
ár
st
íg
ur
Þv
er
ho
lt
Ei
nh
oltMeða
Stórholt
Stangarho
Skipholt
Brautarholt
Nó
at
ún
Laugavegur
Hátún
Miðtú
Samtú
Borg
H
öf
ða
tú
n
Sæt
únSkúlatún
Skúlagata
Steintún
HLEMMUR
M
jö
ln
is
h.
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
eldaskalinn@simnet.is
www.invita.com
Möguleiki á allt að 30 ára veðláni frá SPRON.
Lánið getur náð yfir fullfrágengið eldhús með
tækjum, flísum, gólfefnum, málningu og
uppsetningu.
Ýmsar nýjungar
Ýmsir fylgihlutir frítt um helgina.
Skipuleggjum, teiknum, heimsækjum, mælum.
Komdu og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Nýárstilboð
núna um helgina
INVITA
Innréttingar
á allt að
30 ára láni
Gleðileg
t
nýtt ár
Val um 160 mismunandi hurðagerðir
FRÖNSK stjórnvöld aflýstu sex
áætlunarferðum Air France milli
Parísar og Los Angeles í síðasta
mánuði vegna mistaka bandarískra
leyniþjónustumanna. Bentu þeir
ranglega á sex farþega sem hugs-
anlega hryðjuverkamenn að sögn
talsmanns franska innanríkisráðu-
neytisins.
Talsmaðurinn sagði í gær, að
FBI, bandaríska alríkislögreglan,
hefði byggt upplýsingar sínar á far-
þegalistum en þar hefði hún fundið
nöfn, sem svipaði til nafna félaga í
al-Qaeda, hryðjuverkasamtökum
Osama bin Ladens. Sagði talsmað-
urinn, að viðkomandi fólk hefði ver-
ið athugað en ekkert fundist at-
hugavert við það. „FBI styðst við
lista með fjölskyldunöfnum, sem
geta stundum verið mjög lík hvert
öðru þótt ekki séu þau alveg eins.
Ruglingurinn verður svo enn meiri
þegar ekkert kemur fram á listan-
um um skírnarnafn eða fæðingar-
ár,“ sagði talsmaðurinn.
FBI segist hafa fengið upplýs-
ingar um, að al-Qaeda hyggist ræna
Air France-þotu og fljúga henni á
einhver mannvirki í Bandaríkjunum
en fram kom í Wall Street Journal í
gær, að einn farþeganna hjá Air
France, sem FBI benti á sem hugs-
anlegan hryðjuverkamann, hefði
verið barn með líkt nafn og eft-
irlýstur hryðjuverkamaður frá Tún-
is. Annar var öldruð, kínversk kona,
sá þriðji tryggingasölumaður í Wal-
es og síðan þrír franskir borgarar.
Talsmaður FBI staðfesti í gær,
að nafnaruglingur hefðu verið
ástæðan fyrir því, að sex áætlunar-
ferðum Air France hefði verið frest-
að.
British Airways aflýsti í fyrradag
áætlunarferð frá London til Wash-
ington og aftur í gær af „öryggis-
ástæðum“. Síðustu tvo daga hafa
einnig ferðir Aeromexico milli
Mexíkóborgar og Los Angeles legið
niðri vegna áhyggna af öryggismál-
um.
Paul Beaver, sérfræðingur í varn-
ar- og öryggismálum og fyrrverandi
ritstjóri Janés Defence Weekly,
sagði í gær, að bandarískar leyni-
þjónustustofnanir hefðu upplýsing-
ar um „raunverulega og ákveðna
hættu“ á að hryðjuverkamenn
reyndu að ræna farþegaþotu og
fljúga henni á mannvirki í Wash-
ington.
Áætlunarflugi til Bandaríkjanna ítrekað frestað af öryggisástæðum
Frönsk stjórnvöld kenna
um mistökum hjá FBI
Upplýsingar fyrirliggjandi um hættu
á hryðjuverkaárás á Washington
París. AFP.
ÍSLENSK stúlka, Saga Ásgeirs-
dóttir, meiddist á nýársdag er hún
var að mótmæla nýreistum múr Ísr-
aela við smábæinn Budrus á Vest-
urbakkanum, sem aðskilur Palest-
ínumenn frá
Ísrael.
Saga fékk
gúmmíkúlu í ann-
an fótinn og sagð-
ist hafa verið
mjög hrædd. „Ég
fékk skot í mig af
um 15 metra færi
og það var mjög
sárt. Ég var auð-
vitað mjög
hrædd, en sem betur fer var þetta
ekki eins slæmt og það leit út fyrir í
fyrstu. Ég fór ekki á sjúkrahús, en
fóturinn er mjög bólginn,“ sagði
Saga í samtali við Fréttavef Morg-
unblaðsins í gær.
Saga sagði að gúmmíkúlurnar,
sem Ísraelar skjóta, væru í raun
stálkúlur húðaðar með plasti og
gætu verið mjög hættulegar ef skot-
ið er af stuttu færi. „Við vorum hér
nokkrir friðarsinnar að mótmæla
friðsamlega byggingu múrs sem
verið er að byggja. Þá var skotið á
okkur og ég varð fyrir einu skotinu.
Sænskur strákur, sem hefur verið
með okkur hér, varð einnig fyrir
skoti,“ sagði Saga.
Þrír ungir Íslendingar hafa dvalið
á hernumdu svæðunum við sjálf-
boðastörf frá því fyrir jól. Þetta eru
Finnbogi Vikar Guðmundsson (25
ára), æskulýðsfulltrúi og sjómaður,
og Steinunn Gunnlaugsdóttir (20
ára) og Saga Ásgeirsdóttir (20 ára),
nemar. Steinunn og Saga voru við
mótmæli í Budrus í fyrradag, en
Finnbogi var í Nablus.
Íslensk
stúlka varð
fyrir
gúmmíkúlu
Reuters
PALESTÍNUMAÐUR ríður asna sínum meðfram umdeildum vegg sem Ísraelar hafa byggt í útjaðri Jerúsalem-
borgar. Ísraelar segja vegginn reistan til að tryggja öryggi borgara vegna hryðjuverka palestínskra öfgamanna en
Palestínumenn segja hins vegar um „aðskilnaðarvegg“ að ræða.
Saga Ásgeirsdóttir
Á asna við umdeildan aðskilnaðarvegg
ÞING Pakistans samþykkti á
fimmtudag stuðningsyfirlýs-
ingu við Pervez Musharraf, for-
seta landsins. Hún gerir forset-
anum kleift að stjórna Pakistan
til ársins 2007 án þess að til
kosninga
komi.
„Þetta er
merkur dag-
ur í sögu lýð-
ræðisins í
Pakistan,“
sagði Sheikh
Rashid, upp-
lýsingaráð-
herra Pak-
istans en
fulltrúi stjórnarandstöðunnar
var ekki sama sinnis. „Fyrsti
dagur nýja ársins hefur reynst
sá dapurlegasti í sögu pakist-
anskra stjórnmála,“ sagði
Farhatullah Babar, þingmaður
Þjóðarflokksins.
HABL á ferð
í Kína?
RANNSÓKNIR sýna að 32 ára
maður í Kína „kunni hugsan-
lega“ að vera smitaður af
HABL-veirunni, samkvæmt yf-
irlýsingu frá Alþjóðaheilbrigð-
isstofnuninni, WHO. Stofnunin
segir að ekki verði hægt að stað-
festa endanlega hvort um
HABL-veiru er að ræða fyrr en
eftir helgi en rannsóknir á gena-
mengi hennar benda til þess að
svo sé. Áður hafði fulltrúi heil-
brigðisyfirvalda í Guandong-
héraði lýst því yfir að um
HABL-tilfelli væri að ræða en
heilbrigðisráðuneytið vildi
framkvæma frekari prófanir áð-
ur en endanleg niðurstaða yrði
tilkynnt. Sjúklingurinn, sem er
sjónvarpsmaður, er á batavegi.
Hyskni í Kína
EMBÆTTISMENN í Kína
segja að hyskni starfsmanna
hafi valdið gassprengingu í suð-
vesturhluta landsins á Þorláks-
messu sem kostaði 233 lífið. Sun
Huashan, fulltrúi yfirvalda, seg-
ir að gasholustarfsmenn, sem
báru ábyrgð á slysinu, fái til-
hlýðilega refsingu.
Skotar vilja
banna
reykingar
LAGT hefur verið til að banna
reykingar á opinberum stöðum í
Skotlandi. Verður tillaga um
það tekin til almennrar umræðu
á vori komanda. Í Bretlandi eru
reykingar einna mestar í Skot-
landi og þar eru 13.000 dauðsföll
rakin beint til þeirra á ári
hverju. „Við viljum búa í heil-
brigðu og reyklausu samfélagi,“
sagði Tom McCabe, aðstoðar-
heilbrigðisráðherra Skotlands,
en talsmaður stjórnvalda lagði
áherslu á, að til að gera þann
draum að veruleika, yrði hann
að njóta stuðnings almennings.
Kom þetta fram á vefsíðu BBC,
breska ríkisútvarpsins.
Nú á nýju ári gengur í gildi
bann við reykingum á opinber-
um stöðum, svo sem veitinga-
stöðum, á Írlandi og slíkt bann
er einnig á döfinni í nokkrum
öðrum Evrópulöndum. Í
Bandaríkjunum er það sums
staðar komið til framkvæmda,
til dæmis í New York.
STUTT
Musharr-
af ríkir til
2007
Pervez
Musharraf