Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. G eorgía fær jóla- og nýársgjöfina seint að þessu sinni en hún er þess virði að beðið sé eftir henni. Því að með forsetakosn- ingunum á morgun, sunnudag, þegar eftirmaður Edúards Shevardnadze verður kjörinn, öðlast Georgía fyrstu raun- verulegu vonina frá því að landið fékk sjálf- stæði 1991. Friðsamleg „rósabylting“ kom þessu til leiðar en það eru efnahagsmálin, ekki pólitíska baráttan, sem ráða úrslitum um hvort Georgíu vegnar vel eða þarf að sætta sig við enn einn glataðan áratuginn. Brotthvarf Edúards Shevardnadze var löngu tímabært. Hann batt enda á borg- arastyrjöld í Georgíu í byrjun síðasta ára- tugar en hélt síðan landinu saman með því etja saman öflugum ættflokkum sjálfum sér til framdráttar. Á tíu ára valdatíma hans staðnaði efnahagurinn og hundruð þúsunda dugmestu landsmanna hans fluttu úr landi. Á fyrsta kjörtímabili Shevardnadze voru sett frjálslynd lög um erlendar fjárfest- ingar og grunnur var lagður að réttarríki. Fjárfestingar, einkum í orkugeiranum, stórjukust og vestræn fyrirtæki vonuðu að hægt yrði að finna þar olíu- og gaslindir eins og í grannríkinu Aserbaídsjan. Shevardnadze hlúði einnig að draumi Georgíu um að verða brú til Vesturlanda í orku- og flutningamálum. Hópur al- þjóðlegra olíufyrirtækja lagði olíuleiðsluna milli Baku og Supsa til að flytja aserska ol- íu til Vesturlanda um Svartahaf. Annar fyr- irtækjahópur hófst handa við að leggja olíu- og gasleiðslur frá Aserbaídsjan í gegnum Georgíu til Tyrklands og Vesturlanda. Þessar fjárfestingar bættu þó ekki hag almennings. Georgíumenn lifa á sem svarar nokkrum hundruðum króna á dag. Olíu- og gasleiðslurnar veita ekki mikla atvinnu. Auk þess var Georgíu ekki umbunað með dollurum fyrir að leggja til mikilvæga út- flutningsleið fyrir aserska olíu til Vest- urlanda, heldur fólst umbunin í diplómat- ískri öryggistryggingu – þ.e. Vesturlönd, einkum Bandaríkin, höfðu hagsmuni af því að tryggja öryggi leiðslnanna. Aðrir erlendir fjárfestar héldu að sér höndum vegna þess að Shevardnadze lét sem hann sæi ekki spillinguna. Transp- arency International, samtök sem berjast gegn spillingu og mútuþægni í heiminum, telur reyndar að Georgía sé eitt af tíu spillt- ustu löndum heims. Réttarríkið sem Shev- ardnadze lofaði var aðeins á pappírnum. Baráttan gegn spillingunni er mjög brýnt verkefni fyrir umbótasinnuðu leið- togana Mikhail Saakashvili, lögfræðing sem nam við Columbia-háskóla, Nino Burj- anadze, þjóðhöfðingja landsins til bráða- birgða og forseta þingsins, og Zurab Zhvania, fyrrverandi þingforseta. Öll eru þau ung, mjög kraftmikil og laus við sov- éska ósiði. Það er jafnvel enn mikilvægara að þetta fólk stendu valdaklíkur ar á unga f landi á þrít tryggði lan inu. Forgang ur að uppræ ars verður ingum og g að fela pen Þá sem s senda skýr runnið upp semi einok ekki aðeins Ekki er s úr skriffinn dæmi Sing Georgíu bja © Project Syndicate. Eftir Jenik Radon og David Onoprishvili Mikhail Saakashvili skreytir jólatré í miðborg Tbilisi á gam ’ Georgía getur orðið lýð-ræðislegt leiðarljós í Kák- asuslöndunum, en aðeins með öflugum alþjóðlegum stuðningi. ‘ Þ að eru spennandi tímar. Sjálfsagt væri hægt að hefja áramótagrein á frumlegri nótum eða með efnisríkari fyr- irsögn, en staðreyndin er sú að það eru spennandi tímar á Íslandi. Að baki er viðburðaríkt ár með alþing- iskosningum og heilmiklu umróti í viðskiptalífinu, minnisstæðir við- burðir hafa orðið á alþjóðvettvangi og sífellt fleiri Íslendingar geta sér gott orð á erlendri grundu. Það er auðvitað sérstakt fagnaðarefni, enda höfum við Íslendingar lengi lagt grunninn að slíkri útrás og margt bendir til þess að markvisst uppbyggingarstarf stjórnvalda og einkaaðila sé nú að skila sér. Í öllum aðalatriðum er gleðilegt að í kjölfar þessarar útrásar skuli nú verða til öflugri og stærri einka- fyrirtæki en við höfum áður séð hér á landi. Það er gleðilegt að Íslend- ingar skuli njóta velgengni í útlönd- um, það er gleðilegt að ágóði ís- lenskra aðila af verkefnum erlendis skuli rata inn í íslenskt hagkerfi. Það er fagnaðarefni að erlendir fjár- festar skuli líta í æ ríkari mæli hing- að til lands og kemur auðvitað fyrst og fremst til af því að íslensk stjórn- völd hafa með markvissum hætti beitt sér fyrir hagstæðum rekstr- arskilyrðum fyrir atvinnulífið, t.d. með skattalækkunum. Áralöng við- leitni til þess að laða að erlenda stóriðju hefur borið árangur á Aust- urlandi, sömuleiðis á Grundartanga. Horfur eru bjartar í efnahags- málum, hagvöxtur verður mikill og stöðugur á næstu árum og atvinnu- tækifærum fjölgar. Það eru spennandi tímar og við uppskerum nú eins og til hefur verið sáð. Þessi velgengni okkar Íslendinga má þó ekki verða til þess að blinda okkur sýn. Við erum enn á agn- arlitlum markaði og enn að læra á hverfulleik verðbréfanna og kaup- hallarviðskipta. Við erum þannig að ganga í gegnum ferli sem aðrar þjóðir gengu í gegnum fyrir árum eða áratugum síðan og við því að bú- ast að upp geti komið álitaefni af og til. Slíkt er ekki nema eðlilegt og í fullu samræmi við þróun mála á al- þjóðavettvangi. Það breytir þó ekki því, að þeir sem njóta velgengni í viðskiptalífinu og hafa stóreflst að burðum á íslenskan mælikvarða, hljóta og verða að taka mið af því umhverfi sem þeir búa við hér á landi. Við verðum að gera þær kröf- ur að stórfyrirtæki lúti þeim leik- reglum sem önnur fyrirtæki búa við. Og séu þær leikreglur ekki í takti við þróun á fjármálam og eignarhald fyrirtækja sí færast á færri hendur, er e sjálfsagt að numið sé staðar þessar leikreglur endursko Það verður að sjálfsögðu að með almennum hætti, enda við bundin af þeim lögum o sem gilda á innri markaði E sambandsins í gegnum EE Við höfum yfir að ráða öf eftirlitsstofnunum sem ber þannig að þær geti betur si verki sínu. Samkeppnisstof fjármálaeftirlitið og fleiri a bera hér mikla ábyrgð og e Ríkislögreglustjóra, Ríkiss stjóra og Skattrannsóknars hafa einnig veigamiklu hlut gegna. Hér verður þó meða Það eru spennand Eftir Björn Inga Hrafnsson ’ … það getur verið ákjósanleg staða að sami að seilist til svo víð tækra áhrifa á fj miðlamarkaði. E hvaða rök hafa m fyrir því að slíkt æskileg þróun? RÁÐHERRASKIPTI Í MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI Nýr menntamálaráðherra,Þorgerður Katrín Gunn-arsdóttir, tók við embætti á gamlársdag. Tómas Ingi Olrich, sem verið hefur menntamálaráð- herra frá því vorið 2002, lét þá af embætti, en hann verður sendi- herra í París síðar á árinu. Eitt athyglisverðasta framtak Tómasar Inga í ráðherraembætti er viðleitni hans til að efla menning- artengsl við Dani og hugmyndir hans um stofnun íslenzk-danskrar menningarstofnunar sem hefði að- setur á Íslandi. Tómas Ingi hefur sett fram þá tillögu að þar yrðu varðveittir íslenzkir forngripir sem nú eru í dönskum söfnum. Full ástæða er til að halda þessu máli vakandi. Þá hefur í ráðherratíð Tómasar Inga verið efnt til umræðna um styttingu náms til stúdentsprófs og m.a. farin sú nýstárlega leið að kalla eftir sem flestum sjónarmiðum um málið á svokallaðri menntagátt ráðuneytisins á Netinu. Þorgerður Katrín sagði í Morgunblaðinu í gær að hún stefndi áfram að því að stytta námstímann en jafnframt að gagnrýni hefði komið fram á þær tillögur, sem er að finna í skýrslu nefndar, sem átti að vera grundvöll- ur umræðnanna. Eins og Morgun- blaðið hefur bent á er markmiðið um styttingu æskilegt en vafamál að sú leið, sem nefndin leggur til, sé sú bezta út frá gæðum og innihaldi námsins. Það er því sjálfsagt að fara rækilega yfir málið og hrapa ekki að ákvörðun. Þorgerður Katrín hefur sýnt að hún er kraftmikill stjórnmálamaður og mun eflaust taka til hendi í þeim málaflokki sem henni er nú trúað fyrir. Í samtali við Morgunblaðið í gær nefnir hún nokkur verkefni, auk styttingar náms til stúdents- prófs, þar á meðal málefni háskóla- stigsins og fjármögnun háskóla- náms. Það er rétt hjá ráðherranum að útiloka ekki í því efni að tekin verði upp skólagjöld við Háskóla Ís- lands. Slíkt getur verið ein af for- sendum þess að skólinn standi sig í sívaxandi samkeppni, bæði innan- lands og -utan. Málefni grunnskólans verðskulda ekki síður athygli ráðherrans, sem hefur raunar sýnt þeim sérstakan áhuga og fært rök fyrir því að nauð- synlegt sé að gera breytingar til að auka valfrelsi foreldra um skóla, um leið og haldið sé fast við það grund- vallaratriði að grunnskólamenntun sé fjármögnuð af almannafé. Taka má undir orð ráðherrans sem hún setti fram í grein hér í blaðinu fyrir rétt tæpu ári: „Hér á Íslandi virðist oft og tíðum sem umræða um að skoða nýjar leiðir á fyrstu skóla- stigunum rati beint ofan í gamal- kunnar skotgrafir. Því miður hendir það suma stjórnmálamenn og fleiri aðila í okkar ágæta samfélagi að grípa til ómerkilegs hræðsluáróð- urs í stað þess að sýna einlægan vilja til að kanna leiðir sem líklega geta leitt til öflugra menntakerfis.“ Vonandi tekst nýjum ráðherra að ná umræðum um málefni grunn- skólans – og raunar fleiri mála- flokka – upp úr skotgröfunum. Þor- gerður Katrín hefur t.d. sem fyrrverandi stjórnandi hjá Ríkisút- varpinu mikla þekkingu á starfsemi þess og ætti að vera vel í stakk búin til að hafa forystu um að gera breyt- ingar á starfsemi stofnunarinnar, sem gera hana betur í stakk búna að þjóna menningar- og upplýsinga- hlutverki sínu en nú er og jafna enn- fremur þann mun sem er á sam- keppnisstöðu ljósvakamiðla. MIKILVÆGI ÍSLENSKUNÁMS FYRIR INNFLYTJENDUR Alþjóðahúsið afhenti í fyrstaskipti verðlaun sín fyrir lofs- verða frammistöðu í málefnum inn- flytjenda fyrr í vikunni. Verðlaunin hlutu að þessu sinni fyrirtækið Grandi, sem hefur boðið starfsfólki sínu af erlendum uppruna upp á ís- lenskunám því að kostnaðarlausu í vinnutímanum, og Guðrún Hall- dórsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, sem hefur sinnt kennslu innflytjenda í nærri ald- arfjórðung. Mikilvægi þess að fólk sem kýs að setjast að á Íslandi eigi kost á íslenskunámi verður ekki ofmetið. Það er nauðsynlegt fyrir nýbúa að kunna skil á tungumálinu til að geta tekið fullan þátt í íslensku samfélagi, notið þjónustu og gætt réttar síns. Skortur á tungumála- kunnáttu getur leitt af sér einangr- un íbúa af erlendum uppruna, sem er vitaskuld mjög bagaleg fyrir þá sjálfa en jafnframt óheppileg fyrir þjóðfélagið í heild. Og á vinnustöð- um eins og Granda, þar sem fólk frá sautján þjóðlöndum er við störf, hlýtur það að vera afar mik- ilvægt að allir geti haft samskipti á sama tungumáli. Það að innflytjendur nái grund- vallarfærni í tungumálinu sem tal- að er í nýju heimalandi er í stuttu máli lykillinn að aðlögun þeirra að samfélaginu. Gott aðgengi að tungumálakennslu fyrir nýbúa bætir í senn lífskjör þeirra og kemur þjóðfélaginu öllu til góða. Hindranalaus tjáskipti auka skiln- ing og draga úr fordómum. Vonandi munu verðlaun Alþjóða- húss fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda framvegis verða öðrum hvatning til góðra verka á þessu sviði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.