Morgunblaðið - 03.01.2004, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 03.01.2004, Qupperneq 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2004 27 KRINGLAN - SMÁRALIND VETRARDAGAR dagana 3. janúar til 15. janúar 30% AFSLÁTTUR af öllum kuldaskóm, leðurstígvélum og ökklaskóm Hverfisgötu 105 Reykjavík • sími 551 6688 www.storarstelpur.is STÓRAR STELPUR Tískuvöruverslun Ú TS A LA Ú TS A LAHUGLEIÐIR heitir bókin. Vanter að ráða hvort líta beri á orðiðsem kvenkyns nafnorð í fleirtölu eða karlkyns nafnorð í eintölu. Hvort heldur er mun það teljast til nýyrða. Alltént mun það sprottið af orðasambandinu: að leiða hugann að einhverju. Orðið er að því leytinu vel til fundið að skáldskapurinn leiðir hugann, vísar veg til áður óþekktra heima, beinir hugsuninni þangað sem hún hefði ekki ratað ella. Framar öðru kann þetta að eiga við kveðskap Jóns Þ. Björns- sonar. Frjór hugur býr að baki ljóð- um hans. Jón – en hann mun vera maður á efra aldri – yrkir að jöfnu rímað og órímað. Óhætt er að full- yrða að honum takist betur upp í rímuðu kvæðunum. Rím getur að vísu sveigt yrkjandann undir ok sitt, haft áhrif á orðaval hans; þegar verst gegnir tekið af honum ráðin. Að hinu leytinu getur það svo kallað á hugmyndir og – þegar best lætur – leitt skáldið til nýs skilnings á því sem hann taldi sig áður vita en sér nú í nýju ljósi. Sú þykir mér einmitt vera raunin í bestu kvæðum Jóns. Rímið í kvæðum hans er víðast hvar til áhersluauka, til að skerpa útlín- ur, dýpka myndina. Tilvalið dæmi þess er örstutt erindi sem nefnist Heiðin: Arnarvatnsheiðin full af frelsi og kvaki. Hestur, hálfur peli, og hamingjan sjálf á baki. Skessuhorn heitir annað stutt er- indi, órímað. Það tel ég vera síðra. Af því dreg ég þá ályktun að Jón hafi aldrei meðtekið modernismann af þeim eldmóði og innlifun sem til þarf ef skáld ætlar að taka þess konar gagngerðum trúskiptum sem þvílík umbreyting getur heitið. Hvor stefnan fyrir sig fylgir sínum lögmálum sem heimta allt eða ekk- ert. Að þessum útúrdúr kláruðum er óhætt að fullyrða að kvæði Jón séu með því betra sem út er að koma þessi árin frá þeim sem yrkja sér til hugarhægðar en teljast ekki bein- línis vera atvinnumenn í greininni. Náttúrulýsingar hans eru margar klárar, sumar með ágætum. Hvað þær varðar tekst honum mörgum betur að feta í spor annarra en vera samt hann sjálfur. Mat hans á lífs- hlaupinu er í senn stílfært og trú- verðugt. Minnisstæðust má örugg- lega telja kvæði sem hann yrkir um samferðamenn á lífsleiðinni. Hún- bogi Hafliðason heitir eitt þeirra, langt kvæði þar sem jafnframt er horft af háum sjónarhóli út yfir lífið og tilveruna. Hjöri heitir annað styttra, gagnorð mannlýsing og ævisaga í hnotskurn, órímað að sönnu en með ljóðstöfum og reglu- bundinni hrynjandi: Lágvaxinn maður en þéttur varst þú og víða um sveitir tókstu til hendi, sinntir um sauðfé og hesta, samdir þeim kjarngóðar stökur, þótti best kaffi ef bætt var brennivínstári svo flóði á undirskál út. Öll eru handtök þín horfin, þögnuð röddin þín ráma og mynd þín að mást – þá verður minningu þína að finna í fáeinum stökum sem aldrei þú settir á blað en lýstu sem leiftur upp myrka leitarnótt á fjalli. Þarna gefur raunsæja innsýn í gamla tímann í sveitinni, jafnframt því að minnt er á þann örlagadóm að allt hlýtur stríð okkar og streð að týnast og gleymast, hversu sem okkur þykir það merkilegt meðan varir. Nokkrar ljóðaþýðingar eru í bók- inni. En að þýða ljóð, sem sumir kalla að enduryrkja, lítur margur á sem meirapróf í skáldskapnum. Ju- an Ramón Jiménez er meðal þeirra framandi skálda sem Jón hefur glímt við en skrifar hann óvart Juan Ramon Jimenes. Slæm villa því Spánverjar bera s og z fram með ólíkum hætti. Að sleppa kommu yfir sérhljóða er ekki heldur alsaklaus yfirsjón því slík komma gildir sama sem áherslumerki í spænskunni. Rainer Maria Rilke hét og annað þeirra skálda sem Jón þýðir en skrifar aðeins Rilke. Ef til vill má reikna til smámunasemi að bent skuli á þetta hér. En hvað finnst okkur Íslendingum ef við rekumst á nöfn okkar afbökuð eða stytt í er- lendum ritum? Ennfremur verður og að telja til annmarka að efnisskrá er þarna enga að finna. Það er einkum baga- legt ef unnið er með kvæðin eins og undirritaður hefur leitast við að gera í línum þessum. Sömuleiðis vantar bókarnúmer. Bók þessi gat orðið mun betri ef Jón hefði notið góðrar aðstoðar við frágang hennar og útgáfu. BÆKUR Kvæði eftir Jón Þ. Björnsson. 80 bls. Útg. höf- undur. Prentun: Gutenberg. 2003. HUGLEIÐIR Menntin slyng Erlendur Jónsson ÞETTA listaverk getur að líta á Nútímalistasafninu í Sydney í Ástr- alíu en þar stendur þessa dagana yfir sýning á verkum eftir Leigh Bowery sem kallaður hefur verið „næturklúbbalistamaðurinn“. Ástæðan er sú að hönnun Bowe- rys var upphaflega aðeins sýnd á uppákomum í næturklúbbum í Lundúnum á níunda áratug síðustu aldar. Þess má geta að Bowery er einn- ig þungamiðjan í nýjum söngleik á Broadway, þar sem Boy nokkur George fer með hlutverk hans. Reuters Höfuðprýði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.