Morgunblaðið - 01.03.2004, Qupperneq 32
32 C MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
G
öturnar Dugguvogur,
Skútuvogur og Kænu-
vogur hafa verið skil-
greindar sem iðnaðar-
hverfi. Nú eru uppi áform um að
breyta þessu svæði í blandaða
byggð, þ.e. bæði íbúðar- og iðn-
aðarhverfi. Þarna hafa nú fast að-
setur u.þ.b. tvö hundruð einstak-
lingar, sem flestir eiga það
sameiginlegt að vilja sameina
vinnustað og heimili.
Íris Hera Norðfjörð athafnakona
er ein þeirra, en hún hefur fest
kaup á iðnaðarhúsnæði í Duggu-
vogi og breytt því í íbúð. Hún sér
marga kosti við það að búa í iðn-
aðarhverfi, en fáa ókosti, þó svo
ekki sé veitt sama íbúaþjónusta í
iðnaðarhverfi og í skilgreindu
íbúðahverfi. Almenningssamgöng-
ur eru góðar og strætó gengur
þarna eins og í önnur hverfi borg-
arinnar.
Henni finnst hverfið fallegt og
segir að það sé í raun algjör synd
að þessi góði staður skuli núna
vera nýttur undir þungaiðnað og
telur að þarna eigi að vera léttur
iðnaður og blönduð byggð. Fallegt
útsýni er út á Elliðavoginn og yfir
til Esjunnar. Á sínum tíma var
þetta hálfgert úthverfi, en eftir því
sem borgin hefur þanist út er
hverfið nú inni í miðri borg.
Búa í prentsmiðjuhúsnæði
Þar sem Íris og Brynja, 18 ára
dóttir hennar, hafa hreiðrað um sig
var áður prentsmiðjan Skáprent.
Þetta var heilt veggjalaust rými og
þar sem núna eru háir gluggar var
áður stór hleri með talíu sem stóð
út úr húsinu. Íbúðin er um 80 fer-
metrar en Íris er búin að stúka
hana niður í lítið anddyri, sameig-
inlega stofu og eldhús, lítið baðher-
bergi í miðju rýminu og tvö svefn-
herbergi, sem bæði eru gluggalaus.
Aðkoman að íbúðinni er
skemmtileg. Gengið er inn af götu
upp breiðan stiga þar sem lofthæð-
in nýtur sín til fulls, en efst við
stigapallinn hangir risastórt mál-
verk í sterkum litum. Íbúð Írisar
er innarlega á parketlögðum gang-
inum. Innandyra gætir bæði aust-
urlenskra og afrískra áhrifa í bland
við nýtískulegan stíl. Háir glugg-
arnir setja afar sérstakan svip á
rýmið og gefa góða birtu.
Draumur að búa
í iðnaðarhúsnæði
Íris segist hafa lagað húsnæðið
að sínum þörfum og hefur ekki far-
ið troðnar slóðir í þeim efnum.
„Það er gamall draumur að búa í
iðnaðarhúsnæði. Ég lét því slag
standa þegar ég rakst á þetta hús-
næði. Það voru þó ekki allir sem
sáu möguleikana sem húsnæðið
hefur upp á að bjóða, og móðir mín
varð t.d. alveg miður sín þegar hún
kom hingað fyrst og vildi fá mig til
að rifta kaupunum. Ég sá hins veg-
ar marga möguleika í stöðunni og
það sem mér finnst mest heillandi
var hve húsnæðið var opið svo það
gaf allt aðra möguleika til breyt-
inga en hefðbundið húsnæði. Þar
er t.d. oft meiri lofthæð og rýmið
er opið þannig aðmaður hefur al-
gerlega frjálsar hendur hvað varð-
ar innréttingar. Þetta var alveg
óskrifað blað en ég sá alveg fyrir
mér hvað ég gæti gert við þetta.
Það er gaman að geta hannað allt
sjálfur og skapað umhverfi í sínum
eigin stíl.“
Írisi hefur alltaf langað til að
geta sameinað vinnu og heimili.
Hún segist mikill tónlistarunnandi
og finnst það kostur að geta spilað
tónlist á þeim styrk sem henni
hentar án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af því að valda nágrönn-
unum ónæði.
Vildi vera skuldlaus
Svona breytingar taka aðeins í
pyngjuna, en Íris telur að kostn-
aðurinn sé þó minni en ef hún hefði
keypt sér hefðbundna íbúð.
„Draumurinn hjá mér var að geta
orðið skuldlaus. Ég vildi t.d. hafa
það frelsi að geta lokað dyrunum
heima hjá mér fyrirvaralaust og
skroppið til útlanda án þess að
vera bundin af skuldum hér heima.
Verð á iðnaðarhúsnæði er mun
lægra en á íbúðarhúsnæði, en það
er hins vegar ekki hægt að fá hús-
næðisstjórnarlán út á kaup á iðn-
aðarhúsnæði. Þess vegna mundi ég
ekki ráðleggja neinum að kaupa
Athafnakona í
iðnaðarhúsnæði
Það er nokkuð um það að
iðnaðarhúsnæði sé
breytt í íbúðir. Slíkt fyr-
irkomulag hentar gjarna
þeim sem vilja sameina
vinnustofu og heimili.
Guðlaug Sigurðardóttir
heimsótti Írisi Heru Norð-
fjörð sem hefur breytt
prentsmiðjuhúsnæði í
glæsiíbúð.
Morgunblaðið/Sverrir
Það fer vel um Írisi Norðfjörð og Brynju, dóttur hennar, í iðnaðarhúsnæðinu í Dugguvoginum.
Flísarnar á milli skáps og bekkjar eru hlutfallslega það dýrasta í íbúðinni.
Svefnherbergin eru gluggalaus, en Íris hefur látið setja loftræstitúður í loftin. Baðherbergið er kósí, en Íris á eftir að reka endahnútinn á ýmsan frágang.
Íris er með þessa kisu í pössun en tímir varla að láta hana frá sér aftur.