Morgunblaðið - 01.03.2004, Qupperneq 50
50 C MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Þinghólsbraut
Góð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjöl-
býlishúsi í Kópavogi. Lýsing: Gengið er
beint inn af götuhæð og komið inn í for-
stofu með eikarfataskáp. Stofa er með eik-
arparketi á gólfum og stórum gluggum.
Eldhús er með fallegri innréttingu úr kirsu-
berjavið og flísar á milli skápa og góðum
eldhústækjum. Baðherbergi er flísalagt í
hólf og gólf með hvítri baðinnréttingu og
sturtuklefa. Í svefnherbergi eru stórir fata-
skápar úr kirsuberjavið. Frá svefnberbergi er
gengið út á suðursvalir. Á íbúðinni er fallegt
eikarparket. Þvottaherbergi er í búðinni.
Verð 10,4 millj.
Holtsgata
Mjög mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð
vestast í Vesturbænum. Íbúðin, sem er á
jarðhæð, er með fallegri nýlegri eldhús inn-
réttingu. Rúmgott svefnherbergi með góð-
um skápum og parketi á gólfi. Barnaher-
bergið er mjög rúmgott með skáp. Stofan
stór og rúmgóð með fallegu parketi á gólfi .
Baðherbergi er með flísum og sturtu.
Þvottaherbergi er inni í íbúðinni. Hérna er
um smekklega og vel staðsetta íbúð að
ræða. Verð 12,9 millj.
Laufengi
Sérlega vel skipulögð og björt 3ja herbergja
íbúð á annarri hæð í litlu fjölbýlishúsi með
frábæru útsýni. Lýsing eignar: Komið er inn
í stórt hol sem hægt er að nýta sem sjón-
varpshol, fataskápur. Stórt barnaherbergi
með parketi á gólfum. Hjónaherbergi er
rúmgott með góðum skápum. Baðherbergi
er með flísum í hólf og gólf, baðkar og
sturtuklefi t.f. fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu
korkflísar á gólfum og borðkrókur. Stofa er
stór og björt með útgengi á stórar suður-
svalir með útsýni til allra átta . Sameign er
mjög góð sérgeymsla á jarðhæð. Verð 13,4
millj.
Raðhús
Engjasel
Raðhús við Engjasel 206,2, fm ásamt 33 fm
bílskýli. Húsið sem var byggt 1979 hefur
alltaf verið í góðu viðhaldi af eigendum.
Mikið hefur verið endurnýjað . Baðherbergi
er með flísum í hólf og gólf. Stofan er með
parket á gólfi. Garður er gróinn og með
nuddpotti. Tvennar svalir er vísa í suður.
Hérna er um ræða raðhús sem vert er að
skoða nánar. Verð 22,5 millj.
4ra herbergja
Unufell
4ra herbergja íbúð við Unufell . Íbúðin sem
er mjög upprunaleg er með dúk á gólfum
og upprunalegri eldhúsinnréttingu. Baðher-
bergi er með dúk á gólfi og eldri innrétt-
ingu, Stofa er rúmgóð með útgengi út á
stórar austusvalir. Svefnherbergi eru 3 með
rúmgóð með skápum. Íbúðin getur orðið
laus mjög fljótlega. Verð 9,9 millj.
3ja herbergja
Garðastræti
Á besta stað í hjarta borgarinnar stór 3ja til
4ra herbergja íbúð í virðulegu vel byggðu
steinhúsi. Á baði eru marmaraflísar á gólf-
um og veggjum. Eldhús er bjart með
glugga á tvo vegu, borðkrók, ljósri innrétt-
ingu með flísum á milli skápa. Húsið er í
góðu viðhaldi. Hér er um góða eign að
ræða á 101 svæðinu. Verð 16,9 millj.
Laufrimi
Afar falleg 3ja herb. íbúð með sérinng. í við
Laufrima í viðhaldslausu Permaformhúsi
byggðu 1994. Íb. sem er á jarðh. er með
sérgarði sem snýr vestur. Lýsing: Gengið er
inn í hol með dúk á gólfi. Í stóru hjónaher-
bergi eru góðir skápar og parket á gólfi. Í
stóru barnaherb. eru skápar og parket á
gólfi. Baðherb. er með dúk á gólfi og bað-
innr. Í eldhúsi er ljós innr. og dúkur á gólfi.
Fallegt merbau-parket er á gólfum íb.
Rúmg. þv.hús er í íb. Hiti er í gangstéttum.
Hér er stutt í alla þjóustu. Verð 13,9 millj.
2ja herbergja
Sóltún
Afar falleg og vel búin 2ja herb. íbúð á jarð-
hæð ásamt eigin garði og stæði í bíla-
geymslu. Anddyri með með góðum skáp-
um. Fallegt flísal. baðherb. með ljósum flís-
um og baðkari. Góðar innr. og t.f. þvottavél
og þurrkara. Björt stofa með útgengi á
hellulagða suðurverrönd og garð. Glæsilegt
eldhús með mahóní-innr. Sv.herbergi með
góðum skápum. Fallegt mahóní-parket á
allri íbúðinni. Húsið er klætt með varanlegri
klæðningu og er húsið með góða hljóðein-
angrun. Mjög snyrtileg sameign, dyrasími
með myndavél og öryggiskerfi. Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Íbúðin
getur orðið laus fljótlega. Verð 13,9 millj.
Til okkar hefur leitað fjársterkur aðili sem er að flytja heim frá Bretlandi og
óskar eftir rað-, par- eða einbýlishúsi í Grafarvogi að verðmæti allt að 25
milljónum.
Erna Valsdóttir Lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Guðmundur
Valtýsson
Björgvin
Ibsen
Páll
Höskuldsson
Sveinn
Skúlason
Erna
Valsdóttir
Stúdíóíbúð
Kárastígur
Stúdíóíbúð á besta stað við Kárastíg í Reykja-
vík. Hér er mikið endurnýjuð íbúð á annarri
hæð í 3ja hæða húsi. Búið er að endurnýja
nánast allt í íbúðinni m.a. gólefni, innrétt-
ingar rafmagn, gler o.fl. Eldhús er opið inní
stofu falleg innrétting með mósaeik flísum á
milli innréttinga. Björt og rúmgóð stofa/her-
bergi með fallegu gegnheilu parketi á gólfi.
Fallegir listar ásamt rósettum í loftum, góð
lofthæð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og
gólf. sturtuklefi t.f. þvottavél, skápar. Verð
8,1 millj.
Sími
515 0500
www.fasteignakaup.is
Ármúla 15 • Sími 515 0500 • Fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Norðlingaholt
Lækjarvað 2-14, 110 Reykjavík
Glæsileg hús í fallegu umhverfi
Um er að ræða íbúðir í 14 íbúða raðhúsi og með annarri hverri íbúð fylgir bílskúr.
Raðhúsin eru við Lækjarvað 2-14. Raðhúsin eru 7 talsins með tveimur íbúðum í hverju
húsi og er sérinngangur í hverja íbúð. Húsin eru timburhús á steyptri plötu, klædd ut-
an með álkæðningu og harðviðartimburklæðningu úr sedrusviði. Íbúðum er skilað
fullbúnum bæði utan og innan ásamt fullbúinni lóð með hita í innkeyrslu, göngustíg
að inngangi og tröppum. Húsin verða afhent með sérlega vönduðum innréttingum
og eldhústækjum. Fyrstu íbúðirnar afhendast í maí 2004. Verð 21,9 og 23,9 millj.
Arkitekt: Hallvarður Aspelund.
Byggingaraðili: Flott hús ehf.
Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fasteignakaupa
og www.fasteignakaup.is
Vantar
Þrír tónlistarmenn voru aðbúa sig undir að stofna tríósem átti að spila á dans-leikjum í Þjóðleikhúskjall-
aranum. Þetta var árið 1960 og tón-
listarmennirnir voru þeir Ólafur
Gaukur Þórhallsson, Hrafn Pálsson
og Kristinn Vilhelmsson. Á vegi
þeirra varð ung stúlka sem þeim
fannst tilvalið að fá í hljómsveitina.
Unga stúlkan var Svanhildur Jak-
obsdóttir og hafði aldrei sungið í
hljómsveit.
En hvernig mátti það vera að
reyndir tónlistarmenn völdu unga
og reynslulausa stúlku til að syngja
með sér? „Við vildum fá nýtt andlit
með okkur og punta upp á hljóm-
sveitina,“ segir Ólafur Gaukur.
„Ekki veitti nú af!“
Svanhildur Jakobsdóttir brosir
bara þegar Ólafur Gaukur talar um
að nauðsynlegt hafi verið að punta
upp á hljómsveitina en viðurkennir
að söngferill sinn hafi ekki átt neinn
aðdraganda. „Þessir þekktu tónlist-
armenn buðu mér bara að syngja
með sér og ég þáði það. Þetta var
náttúrlega algjör óskadraumur
ungrar stúlku, að vera skyndilega
farin að syngja með hljómsveit.
Kynni okkar Gauks hófust í þessari
hjómsveit og síðan höfum við fetað
brautina saman,“ segir Svanhildur
og hlær.
Húsnæði lá ekki á lausu
Samstarfið gekk svo vel að
þremur árum síðar giftu Svan-
hildur og
Ólafur
Fyrstaheimilið
Hafa fetað
brautina saman
Morgunblaðið/Eggert
Svanhildur Jakobsdóttir og Ólafur Gaukur hófu búskap í risíbúð í þessu
húsi við Bólstaðarhlíð 10. Síðan byggðu þau einbýlishús í Fossvogi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg