Morgunblaðið - 01.03.2004, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 C 53
Fellsás - parhús m/2 auka-
íbúðum Nýlegt 234 m2 parhús á tveimur
hæðum ásamt 33 m2 bílskúr, með glæsilegu út-
sýni yfir Mosfellsbæ, Reykjavík og Sundin. Keyrt
er að húsinu á efri hæð, þar er 3-4ra herbergja
sérhæð með rúmgóðum herbergjum, baðherbergi
m/hornbaðkari, fallegt eldhús og björt stofa. Á
neðri hæðinni hafa verið innréttaðar 2 íbúðir með
135 þús kr. leigutekjum. Verð kr. 29,5 m - áhv.
9,2 m húsbréf.
Markholt - 3ja herb. 81 m2, 3ja
herbergja íbúð í eldra fjórbýlishúsi við Markholt í
Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í 2 góð svefnherbergi,
stofu, eldhús með fallegri u-laga viðarinnréttingu,
flísalagt baðherbergi m/sturtu og rúmgott þvotta-
hús og geymslu. Þetta er rúmgóð og björt íbúð á
góðu verði. Verð kr. 10,5 m - áhv. 8,3 m.
Klapparhlíð 9 - nýjar íbúðir
Erum með þrjár 3ja herbergja íbúðir í 3ja
hæða fjölbýli við Klapparhlíð 9 í Mosfellsbæ.
Íbúðirnar eru 82-88 m2 að stærð og afhend-
ast fullbúnar, án gólfefna, en baðherbergi og
þvottahúsgólf verða flísalögð. Íbúðirnar eru til
afhendingar í desember 2004. Verð frá
12.930.000 - 13.790.000 kr.
Bugðutangi - stórt einbýli.
Glæsilegt 274 m2 einbýlishús á 2 hæðum ásamt
100 m2 kjallara rými. Á 1. hæð er möguleiki á
aukaíbúð. Mjög fallegur garður teiknaður af
landslags arkitekt, timburverönd með heitum potti
og stórt bílaplan steypt. Aðalhæð skiptist í stóra
stofu, borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, baðher-
bergi, gestasalerni og 5 svefnherbergi, en á neðri
hæð eru m.a. tvö stór unglingaherbergi, baðher-
bergi og billiardherbergi. Verð kr. 37,0 m.
Dalatangi - einbýli m/aukaíb.
361 m2 einbýlishús á 2 hæðum ásamt 52,5 m2
bílskúr, með möguleika á aukaíbúð. Aðalhæðin er
155 m2 auk bílskúrs og skiptist í eldhús, stofu,
sjónvarphol, 4-5 svefnherb., baðherb., gestasal-
erni og þvottahús. Kjallarinn er 207 m2 með sér-
inngangi og 4 herbergjum, baðherbergi m/sturtu,
stofu og stórri geymslu. Steypt bílaplan og ver-
önd með heitum potti. Verð kr. 33,5 m.
Klapparhlíð 9 - nýjar íbúðir
Erum með þrjár 4ra herbergja íbúðir í 3ja
hæða fjölbýli við Klapparhlíð 9 í Mosfellsbæ.
Íbúðirnar eru 97 - 101 m2 að stærð og af-
hendast fullbúnar, án gólfefna, en baðher-
bergi og þvottahúsgólf verða flísalögð. Íbúð-
irnar eru til afhendingar í desember 2004.
Verð frá 14.840.000 - 14.990.000 kr.
Hlíðarás - einbýli/tvíbýli Stórt og
mikið 407 fm einbýlishús á tveimur hæðum með
tvöföldum bílskúr. Fallegt einbýli í botnlanga við
óbyggt svæði með gríðarmiklu útsýni yfir Mos-
fellsbæ. Hugmyndir eru um að skipta húsinu í
tvær 150 m2 íbúðir auk 44 m2 bílskúrs og kjallara
undir bílskúr. Verð 29,5 m - áhv. 16,0 m.
Íbúðir fyrir 50 ára og eldri Erum
með í sölu 4 hæða lyftuhús með 20 íbúðum fyrir 50
ára og eldri í Klapparhlíð í Mosfellsbæ. Sérinn-
gangur er í hverja íbúð af svalgangi með glerskerm-
un. Innangengt er í bílageymslu með 16 bílastæð-
um. Húsið er einangrað að utan og klætt með báru-
málmklæðningu og harðvið. 2ja herbergja íbúðir 90
m2, verð frá kr. 13,3 m. 3ja herbergja íbúðirnar 107
-120 m2, verð frá kr. 15,4 m. Íbúðirnar verða af-
hentar í september 2004.
Sólbaðsstofa Mosfellsbæjar
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá rekstur Sólbaðsstofu
Mosfellsbæjar til sölu. Um er að ræða fyrirtæki
sem er eina sinnar tegundar í Mosfellsbæ og hefur
haft góða og mikla viðskiptavild. 5 Ergoline ljósa-
bekkir Stofan er vel tækjum búin með 5 Ergoline
ljósabekki og innréttingar og aðstaða eru til fyrir-
myndar. Fyrirtækið er staðsettt í 100 m2 leiguhús-
næði í hjarta Mosfellbæjar, góður leigusamningur
er fyrir hendi. Gott fyrirtæki, tilvalið fyrir hjón eða
tvo einstaklinga. Kaupleiga kemur til greina.
Skeljatangi - 4ra herb.
Erum með 4ra herbergja, 94 fm
Permaform-íbúð á 2. hæð í litlu fjór-
býli við Skeljatanga. Flísar á stofu,
eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og
forstofu, en eikarplastparket á hjóna-
herbergi og 2 barnaherbergjum. Frá-
bær staðsetning, stutt í skóla og leik-
skóla. Íbúðin getur verið til afhending-
ar mjög fljótlega.
Verð kr. 13,9 m.
Þverholt - 5 herbergja
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 159,9 fm,
5 herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja
hæða fjölbýli. Íbúðin er 113 fm að
grunnfleti en auk þess er 46,9 fm ris-
loft. 3 svefnherbergi, stórt eldhús, sér-
þvottahús, geymsla, borðstofa og
baðherbergi á aðalhæð en stór stofa
og svefnherbergi er á rislofti. Íbúðin er
björt og rúmgóð og stutt er í alla þjón-
ustu. Verð kr. 16,2 m. - áhv. 8,4 m.
(5,9 í byggingasjóð).
Blikahöfði - 4ra herb. með bílskúr
*NÝTT Á SKRÁ* Falleg og rúmgóð 115
fm, 4ra herb. íbúð á 3. hæð ásamt 28
fm bílskúr við Blikahöfða í Mosfellsbæ.
3 góð svefnherbergi, fallegt eldhús
með eikarinnréttingu, stór stofa og flí-
salagt baðherbergi með baðkari. Frá
stofu eru svalir í suður með mjög miklu
útsýni yfir til Reykjavíkur og út á Sund-
in. Skipti möguleg á 4ra herb. jarðhæð,
t.d. í Leirutanga eða Permaform. Verð
kr. 17,8 m. - áhv. 9,6 m.
Þverholt - 3ja herb.
*NÝTT Á SKRÁ* Stór og björt 99,6 fm,
3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 4ra
hæða fjölbýli við Þverholt. Íbúðin
skiptist í stóra stofu og eldhús með
mikilli lofthæð, 2 svefnherbergi og
baðherbergi með kari. Frá stofu eru
svalir í suðvestur með góðu útsýni.
Ýmis frágangur er eftir í íbúðinni, t.d.
gólfefni og baðherbergi. Verð kr. 11,7
m. - áhv. 5,5 í 4,9% láni.
www.fastmos.is
SE
LT
SE
LT
Við endurnýjun baðher-bergja þarf að samhæfavinnu múrara, pípulagn-ingarmanna, innrétt-
ingasmiða, málara, rafvirkja og
stundum trésmiða. Ég fæ því oftar
þessa spurningu varðandi baðher-
bergi en nokkur önnur rými heimilis-
ins.
1. Í fyrsta lagi þarf að ákveða hvað á
að gera og eins og í öllum verkleg-
um framkvæmdum þá skiptir und-
irbúningur miklu máli. Því betur
sem verkið er undirbúið og skil-
greint því betur gengur fram-
kvæmdin. Best er að leita til fag-
aðila og gefa sér góðan tíma í
hönnunina því oft þarf að sann-
reyna hugmyndir og athuga mögu-
leika á breytingum. Eftir að hafa
velt mismunandi tillögum fyrir sér
þarf að ákveða skipulag rýmisins,
þ.e. hvar hlutirnir eiga að vera.
Hafa þarf í huga notagildi, útlit og
kostnað. Í framhaldi af því eru
hugmyndir útfærðar. Þá er um-
fang og útlit innréttinga skilgreint
ásamt efnum, litum og áferð. Þeg-
ar þessu er lokið er leitað fastra
verðtilboða.
2. Við endurnýjun baðherbergja
hefjast framkvæmdir á niðurrifi.
Þá eru flísar og innréttingar fjar-
lægðar og pípari fenginn til að
fjarlægja hreinlætistæki.
3. Svo er hafist handa við uppbygg-
ingu. Fyrst er byrjað á allri gróf-
vinnu. Ef breyta á skipulagi þá
þarf e.t.v. að hlaða veggi t.d. í
kringum sturtu. Múrarar sjá um
það. Færsla á hreinlætistækjum
kalla á vinnu við pípulagnir og því
þarf að samhæfa þá vinnu við
vinnu múrara (ef hlaða þarf).
Einnig þarf að huga að raflögnum
því að ef breyta á staðsetningu inn-
réttinga þá þarf einnig að breyta
raflögnum. Ef setja á innfellda lýs-
ingu í loft þá þarf að kalla til tré-
smiði og rafvirkja á þessu stigi
framkvæmda.
4. Þegar lokið er við að staðsetja ný
hreinlætistæki (vinna pípara og
múrara við t.d. vegghengd vatns-
salerni) og setja upp nýja veggi og
pússa (múrarar) er hægt að hefja
flísalögn (múrarar). En fyrst þarf
þó að huga að málun. Ef ekki á að
flísaleggja upp að lofti þá á að mála
þann hluta veggja sem er fyrir of-
an flísar áður en flísalögn hefst.
Einnig á að mála þá veggi sem
ekki flísaleggjast og svo loft.
Þegar búið er að mála, flísalögn er
lokið og baðkar og sturta er komið
á sinn stað er hægt að hefjast
handa við uppsetningu innrétt-
inga. Þegar því er lokið er svo
hægt að ganga frá handlaugum,
setja upp ljós og ljúka annarri raf-
lögn. Ekki má gleyma speglunum
en uppsetning þeirra fer eftir
hvernig þeir tengjast öðrum hlut-
um baðherbergis. Speglar geta t.d.
verið á bak við innréttingar og eins
getur ljós verið fest utan á spegil.
Það er ljóst að þetta getur verið
nokkuð ruglingslegt því endurnýjun
baðherbergja kallar á samvinnu iðn-
aðarmanna á mismunandi stigum
verksins. Ferlið felur ekki í sér að
fyrst komi tiltekinn fagmaður að
verkinu og klári sinn hluta og þá
komi næsti að og klári sitt verk og
koll af kolli. Ég mæli því eindregið
með því að við upphaf framkvæmda
komi allir þeir aðilar sem koma að
framkvæmdinni saman á verkstað
ásamt hönnuði til að samhæfa sína
vinnu.
Baðherbergin flókn-
ustu rými heimilisins?
Góðráð
Í hvaða röð á að gera hlutina? Ég þarf að endurnýja bað-
herbergin hjá mér, þ.e. flísaleggja, setja ný tæki og innrétt-
ingu. Um er að ræða gestasnyrtingu og stærra baðherbergi.
Bæði herbergin eru með máluðum veggjum og flísum á
gólfi. Ég hef heyrt af fólki sem hefur lent í því að kalla til
„rangan“ iðnaðarmann, sem getur ekki unnið sína vinnu
fyrr en eitthvað annað hefur verið gert. Mig langar því að
spyrja hvernig er best að standa að slíkum breytingum.
Morgunblaðið/Þorkell
Halldóra Vífilsdóttir arkitekt faí
halldora@to.is
Morgunblaðið/Eggert
Endurnýjun baðherbergja kallar á samvinnu iðnaðarmanna.