Vísir - 09.05.1981, Page 4

Vísir - 09.05.1981, Page 4
4 VlSIR Laugardagur 9. mal 1981 - • ssggw •t^ww.'ww*»,y ■ ws• w ■ ■1 wwpgr Hver þekkir gosa, Bjarni Jónsson frá Vogi/ 1863-1926 Brfet Bjarnhéðinsdóttir/ 1856-1940. Þekkirðu þessa menn og konu? Við rákumst á þessar myndir i húsi einu hér í borg. Enginn veit uppruna hennar eða er það? Eftir þvi sem næst verður komist mun einhver teiknari hafa fengið það verkefni eða dottið sjálfum i hug að teikna spil sem kannski hafa átt að koma út i sambandi við AI- þingishátíðina 1930, en ekkert orðið úr. Mannsspilin áttu að vera þekkt andlit úr bæjarlifinu og meðal annars hefur verið leitað fanga i þingsölum, en hver er hver? Sigurður Eggerz, 1875-1945 Björn Kristjánsson, 1858- 1939 Jakob Möller, 1880-1955. Jón Þorláksson, 1877-1935 Hjartaþrenn- ingin - Bjarni frá Vogi, Bríet og Sigurdur Eggerz Jú, kóngurinn lengst til vinstri er Bjarni Jónsson frá Vogi. Hann var kennari við Lærða skólann og siðar Háskólann auk þess sem hann vann mikið að ritstörfum. Þá átti hann sæti á Alþingi 1908- 1926 og starfaði i ýmsum nefndum á vegum þess. Drottningin er Briet Bjarn- héðinsdóttir. Hún var ritstjóri Kvennablaðsins og átti sæti i bæjarstjórn Reykjavikur um nokkurra ára skeið, var á þeim fræga kvennalista, sem bauð fram 1908. Gosinn er Sigurður Eggerz, lög- fræðingur. Hann var sýslumaður á árunum 1904 til '45 meðal annars i Isaf jarðarsýslu og siðar i Eyjafjarðarsýslu og gegndi bæjarfógetaembætti á Isafirði og á Akureyri. Þá átti hann sæti á Alþingi 1911 til 1931 með smáhlé- um þó. Spaðaþrenn- ingin - Björn Kr., Jakob og Jón Þorláksson Kóngurinn i næstu röð fyrir neðan er Björn Kristjánsson. Hann nam skósmiði, gerðist siðar kaupmaður og enn siðar bæjar- gjaldkeri i Reykjavík. Hann varð bankastjóri Landsbankans 1909 og átti sæti á Alþingi 1900-1931 og var meðal annars fjármála- ráðherra um tima. Drottningin við hliðina á honum

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.