Vísir - 09.05.1981, Blaðsíða 23

Vísir - 09.05.1981, Blaðsíða 23
Laugardagur 9. maí 1981 VÍSIR Brúökaupsmynd af Sonju og Peter Sutcliffe. Þau giftu sig árið 1975. gaf fyrst upp rangt nafn, skipti siðan um skoðun og sagði rétt til sin. I ljós kom að númer bilsins var ekki i'samræmi við skirteinin. Hann var tekinn til yfirheyrslu á næstu stöð. Fleiri lögregluþjónar fóru á vettvang og leituðu um- hverfis bilinn. Þeir fundu hamar og hnif. Sutcliffe var yfirheyrður i tvo daga. Svo játaði hann allt saman. Á villigötum Það kom brátt i ljós, að lögregl- an hafi verið á villigötum i leit sinni að morðingjanum. Um 300 manns höfðu leitað en voru allir á rangri leið. Rödd Sutcliffe likist ekki röddinni á segulbandinu og rithönd hans er ekki á fyrrnefndu bréfi. Einhver hafði leikið á lögg- una. Morðiðá Joan Harrison, sem átti að hafa veitt bestu upplýsing- arnarum glæpamanninn reyndist ekki vera verk Sutcliffes. Sut- cliffe er að visu i blóðflokki B, en sæðið og munnvatnið sem fannst hafðt á liki Joan, gat ekki hafa komið frá Sutcliffe. Morðingi hennar er þvi enn ófundinn. Fögnuðurinn, sem greip um sig þegar Sutcliffe hafði játað, bar meiri vott um létti en stolt. Lög- regluforingjarnir létu hafa eftir sér að þeir hefðu náð morðingja þrátt fyrir að ensk lög banni að sakborningur sé þannig orðaður við glæp sinn áður en dómur er fallinn. „Fögnuður þeirra var þvi miður meiri en virðingin fyrir lögum landsins” sagði i bréfi frá innanrikisráðuneytinu til rit- stjóra dagblaðanna, sem höfðu haft upphrópanirnar eftir lög- regluforingjanum. Morðhugur greip um sig meðal almennings. Þegar Sutcliffe var færður Ur fangelsinu til yfir- heyrslu söfnuðust þúsundir manna saman fyrir utan réttar- salinn. „Hengið hann, hengið hann” hrópaði mannf jöldinn. Sut- cliffe hafði teppi yfir sér svo ekki sást f andlit hans. Þegar hann stóð frammi fyrir réttinum til að gera játningu sina, horfði hann * niður. Kona hans stóð við hlið hans og reyndi að taka i höndina á honum en hann hvarf frá henni og horfði enn sem fyrr fast niður á fætur sér. Þýtt, Ms. Morðhugur greip um sig meðal almennings b n"i 'lilF ITft W*? i. , P \ fl Jgr 'i* .»4 ! -■ 03 Lentr dfrttfg* m<Xíe/‘8f — , bá er tækferið núna að eignast Bf Þú ert y&leto '' . ötc' Bræðraborgarstlg 1 -Simi 20080- (Gengiðinn frá Vfesturgötu)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.