Vísir - 04.06.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 04.06.1981, Blaðsíða 12
Ertu oröln lelð ð baðföiun- um ðfnum? - Sé svo þá er hér sáraeinföld aöferð tll aö útvega önnur splunkuný Þaö er vist óþarfi að tilkynna fólki, að nú sé kominn timi til að taka fram baðfötin. Hins vegar getur einhver orðiö orðin leið á bikini-baöföt- unum sinum, eða þá aö þau gömlu eruoröin æði léleg. Sé svo, þá kemur hér upp í hendurnar á þeim sömu snið, sem sáraeinfalt er að sauma eft- ir. t þessi baðföt þarf ekki mikið efni og það má allt eins nýta afganga ef einhverjir eru fyrir hendi. Þess vegna er ráð aö huga að þeim, áður en farið eri búöarleiðangur. En vindum okkur I saumaskapinn. Það sem þarf er 55—75 cm. af bómullarefni. Einnig má nota önnur efni, t.d. sauma upp úr mjúkum snjáðum gallabuxum, sem hafa verið lagðar til hliðar. Þá þarf einnig 3.5 m snúru og 1 m teygju. Sniðið er tekið upp i þeirri stærð, sem viðkomandi þarf 34, 36, 38 eða 40. Siðan er pappirs- sniðið klippt út og mátað hvort stærðiner rétt. Þá er sniðið teikn- að á efnið, með 1 cm saumfari, og siðan klippt eftir þvi. Efri hlutinn saumaður Saumið fyrst sauminn upp i skálarnar. Brjótið 1 cm inn á hliðarnar og saumið. Leggið niður flipana efst og festið en gætið þess að lykkjurnar verði það víðar að snúran renni auðveldlega til i þeim. Faldið loks neðri kantinn og þræðið snúruna i. (sjá mynd!) Buxurnar saumaðar Faldið hliðarnar fyrst, eins og i fyrri hlutanum og munið eftir plássinu fyrir teygjuna. Þræðið 50 cm teygju i hvoru megin, og festið i báða enda. Saumið þvi næst sauminn á ofanverðum buxunum, brjótið inn flipana og festið. Dragið 25 cm langa snúru i hvoru megin. Nú eru baðfötin tilbúin. Fyrir þær sem vilja hafa sin frábrugðin að einhverju leyti, er ýmislegt hægtað gera. Það má t.d. sauma efnisræmur i öðrum lit á allar brúnir, sauma smáblóm á bux- urnar og sitthvað fleira, sem of langt yrði upp að telja. '

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.