Vísir - 04.06.1981, Blaðsíða 15

Vísir - 04.06.1981, Blaðsíða 15
VÍSIR Gunnar Thoroddsen fékk 39 Geir Hallgrimsson fékk 38 Albert Guömundsson fékk 11 atkvæöi. atkvæöi. atkvæöi. Skoðanakðnnun Vfsís um forystumál Sfálfstæðisflokksins: Um 36% óákveðnir - Gunnar Thoroddsen fékk stuðníng flestra en aðelns 1 atkvæði skildi Gunnar og Geir að Mikill hluti sjálfstæöismanna er óákveðinn i afstöðu sinni til þess hver eigi að gegna for- mannsembætti i Sjálfstæðis- flokknum samkvæmt visbend- ingum i skoðanakönnun Vis- is um forystumál flokksins. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra og varaformaður flokksins fékk stuðning 39 þeirra sem spurðir voru, Geir Hall- grimsson formaður flokksins fékk stuðning 38 en 68 voru óákveðnir. Þessi könnun fór fram um leið og Visir kannaði fylgi stjórn- málaflokkanna og skoðanir manna á rikisstjórninni. 1 þess- ari könnun sögðust 187 manns á landinu öllu kjósa Sjálfstæðis- flokkinn og voru þeir spurðir sérstaklega þessarar spurning- ar: Hvaöa menn ættu að þinu mati að skipa formanns- og varaformannsembætti i Sjálf- stæðisflokknum? Svör þeirra varðandi formannsembættið skíptust þannig: Atkv. % Gunnar Thoroddsen 39 20,8 Geir Hallgrimsson 38 20,3 Albert Guðmundsson 11 5,9 Aörir 17 9,1 Óákveöinn/ veitekki 68 36,4 Neita aö svara 14 7,5 Óákveönir og þeir sem neita að svara eru rétt tæp 44%, sem er of hátt hlutfall til þess að hægt sé að tala um skýrar linur. Hins vegar gefur það okkur vissar visbendingar að af þeim 68 sjálfstæðismönnum sem voru óákveðnir i afstöðu til for- mannsembættisins voru 42 (61,8%) óánægðir með rikis- stjórnina 10 (14,7%) voru ánægðir en 16 (23,5%) voru óákveðnir i afstöðu til rikis- stjórnarinnar. Aðrir sem voru nefndir til for- mannsembættisins voru: Ellert Schram (5 atkv.), Ólafur B. Thors (3 atkv.), Ragnhildur Helgadóttir (2 atkv.) og Kjartan Gunnarsson, Eggert Haukdal, Ölafur G. Einarsson, Davið Scheving og Sverrir Hermanns- son með 1 atkv. hver. Orslit i Reykjavik og Reykjanesi. Sjálfstæðismenn i Reykjavik og Reykjaneskjördæmi, 114 manns, svöruðu spurningunni um formannsembættið þannig: Atkv. % Geir Hallgrimss. 26 22,8 Gunnar Thorodds. 23 20,2 Albert Guöm. 5 4,4 Aörir 7 6,1 Óákveöinn/ veit ekki 45 39,5 Neita aösvara 8 7,0! Af þessum tölum má sjá með samanburði við úrslitin yfir landið i heild að Gunnar Thoroddsen nýtur meira fylgis úti á landsbyggðinni en á þétt- býlissvæðinu á Suðvesturlandi nýtur Geir Hallgrimsson meira fylgis. Þessar tölur ber þó að skoða með hliðsjón af þeim mikla fjölda sem er óákveðinn. Af þessum 45 sjálfstæðis- mönnum sem voru óákveðnir um val á formanni i Reykjavik og Reykjaneskjördæmi voru 6 ánægðir með rikisstjórnina (13,3%), 29 óánægðir (64,5%) og 10 óákveðnir (22,2%). Engin úrslit um vara- formann. í könnuninni var þátttakend- um ekki gefinn kostur á að til- nefna sama manninn bæði i for- manns- og varaformannsem- bætti. Margir slepptu þvi að svara til um varaformanninn. Niðurstöðurnar verða þvi ekki taldar marktækar. Þó skal það nefnt að i efsta sæti lenti Albert Guðmundsson en þétt á eftir komu Birgir Isleifur Gunnars- son og Friðrik Sophusson og þvi næst Daviö Oddsson. —KS í i m ll® 1 í íí ■ BF /h i Wf 5 \ F.ftir skoöanakönnun Visis aö dæma er stór hluti sjálfstæöismanna óákveöinn um hver eigi aö vera for- maöur Sjálfstæöisflokksins. Menn veröa væntanlega búnir aö gera upp hug sinn i haust þegar næsti landsfundur flokksins veröur haldinn. Fimmtudagur 4. júni 1981 Fimmtudagur 4. júni 1981 VÍSIR Sveigjanlegur vinnutfmi hjá starfsmönnum Abyrgðar: Koslirnir eru marglr en gallarnir engir Sveigjanlegur vinnutími hefur rutt sér mjög til rúms á undanförnum árum og hafa nokkur fyrirtæki hérlendis tekið þettafyrirkomulag upp.Hér er átt við, þegar starfsmenn fyrirtækja eiga þess kostað ráða að nokkru leyti vinnutíma sínum sjálfir, þeir mega hef ja vinnu mis snemma að morgni og vinna lengur eða skemur fram eftir degi. Sem dæmi má nefna að starfsmönnum gefst tækifæri á að mæta til vinnu ein- hvern timann á milli klukkan hálf átta og níu að morgni og hætta á tímabilinu hálf fjögur til sex síðdegis. Þannig geta þeir t.d. unnið annaðhvort frá 8 til 4 eða 9 til 5, allteftir því hvort þeim hentar betur. Tryggingafyrirtækið Ábyrgð er eitt þeirra fyr- irtækja, sem tekið hafa upp slíkt kerfi og til að kynnast því nánar heimsótti Visir skrifstofur fyr- irtækisins í Reykjavík. VinnukerflD h|á ábyrgð: Abyrgö tók upp sveigjanlegan vinnutima þegar árið 1975, eftir fyrirmynd frá sænska trygginga- félaginu „Ansvar”. Kerfið er i þvi fólgið aö hver starfsmaður skilar 38 stunda vinnuviku eins og á öðrum skrifstofum. Hinsvegar ræður starfsfólk hvenær það mætir á morgnana. í vetur gat það hafiö störf á timabilinu frá 7.30 til 9 og hætt á milli 16.30 og 18 siðdegis, en skrifstofan var þá opin frá 9 til 17. Siöan var klukku- tima matartimi einhvern timann á bilinu 11.30 til 14. 1 sumar veröur skrifstofan hinsvegar opin - Aukafrídagur mánaðarlega - Frjáls mætlngartfmi á morgnana - stimpllklukkan mikllvæg frá 8 til 16 og breytist mætingar- timinn þvi nokkuð. Starfsfólk Abyrgöar getur siöan safnað vinnustundum með viðbótarvinnu og hljóðar grundvallarreglan upp á allt að 10 stundum á mánuði. Þennan tima má starfsfólkið siöan taka út i frii. Þannig getur það aflaö sér einn fridag i mánuði. Einnig get- ur sú staða komið upp að þaö skuldi vinnutima þegar uppgjör er gert i lok hvers mánaöar. Leyfilegt er að skulda mest 10 stundir, sem verða þá á sama hátt að „greiðast” með meiri vinnu. Stimpilklukkan gegnir veiga- miklu hlutverki. Starfsfólk stimplar sig ávallt inn eða út þegar það kemur eöa fer og einnig skal það merkja inn á kortið i hvaða erindagjörðum það yfir- gefur skrifstofuna. Vikulega er staða hvers og eins birt, þ.e. timaskuldir og -inneignir, og get- ur starfsfólk hagað vinnu sinni samkvæmt þvi yfirliti. Allir starfsmenn Abyrgðar, sem rætt var við, lögðu mikla áherslu á aö slik vinnutilhögun gengi ekki til lengdar nema með mjög góöri samvinnu og samráði allra starfsmanna. — TT. „Kann mjöQ vel við hessa vbinuOlhögun „Þegar ég hóf hér störf árið 1978 hafði ég ekki kynnst slikri vinnutilhögun en ég kunni strax mjög vel við hana. Að visu er ég bundnari en aðrir starfsmenn þar sem ég sé um peningakassann,” sagði Gunnhildur Hauksdóttir, gjaldkeri, um sveigjanlega vinnutimann. „Ég verð að vera hér frá átta til fjögur nema sérstakar ráðstaf- anir séu gerðar. Ég get varla sagt að ég stefni sérstaklega á að safna fritimum, þeir safnast upp svona smátt og smátt og siðan tek ég þú út þegar ég þarf á þeim að halda. Þá er einnig erfiðara um vik fyrir mig yfir sumartimann þvi að þá er mun meira að gera. Annars sé ég enga galla á þessari vinnutilhögun svo framarlega sem starfsmenn hafa samráð hver við annan og sú er raunin hér,” sagði Gunnhildur. —TT Jóhann Björnsson, forstjóri Abyrgöar, (t.h.) og Siguröur Jónmundsson, skrifstofustjóri. „Lengrl biónuslutimi og betri starfsandi segja yfirmennirnlr „Ég get ekki komið auga á neina galla á þessu kerfi, hvorki frá sjónarhóli fyrirtækisins né starfsfólks,” sagði Jóhann Björnsson, forstjóri Abyrgðar, þegar Visir ræddi við hann og Sig- urð Jónmundsson, skrifstofu- stjóra, um sveigjanlega vinnu- timann. „Ef við litum fyrst á málið af hálfu fyrirtækisins þá er engin spurning að það nýtur góðs af sveigjanlegum vinnutima ekki siður en starfsfólkið. Til dæmis má segja að við veitum betri þjónustu en ella þvi hér er yfir- leitt einhver mættur fyrir átta á morgnana og ávallt er einhver til klukkan sex. Einnig má nefna að kerfið kemur til góða þegar vinnuálag er misjafnt. Þegar mikið er að gera vinna allir starfsmenn fullan vinnutima en þegar um hægist gefst fólki kost- ur á að taka sér fri. Abyrgð er að visu fremur litið fyrirtæki, hér vinna 15 manns, en slik kerfi ganga ekki siður i fjölmennri fyrirtækjum,” sagði Jóhann. Fyrir nokkrum áru... I.om til tals að öll tryggingafélögin tækju sig saman og samræmdu vinnu- tima starfsfólks með svipuðu sniði og tiðkaðist hjá Abyrgð en þær fyrirætlanir duttu upp fyrir. „Jú, það er rétt og mér finnst það miður þvi að sveigjanlegur vinnutimi býður upp á marga kosti fyrir starfsfólk,” sagði Sig- urður Jónmundsson. „1 heild má kannski segja að kerfið stuðli aö mun betri anda meöal starfs- manna. Nú kemur enginn of seint, enginn er of lengi i mat, enginn skreppur i bæinn á kostnað annars eða er að svindla á fyrir- tækinu þó hann skjótist i bankann eða heim til sin. Þá geta jieir morgunsvæfu mætt klukkan niu en morgunhanarnir eru komnir strax hálf átta. Starfsfólkið getur sem sagt hagrætt vinnudeginum fram eða aftur og þeir þurfa ekki að vera i baráttu við örfáar minútur. 1 ofanálag kemur siðan möguleiki á fridegi.” Abyrgð hefur einnig gert frek- ari breytingar á vinnutimanum, eins og fram hefur komið. Nú hefur verið tekinn upp svokall- aður sumaropnunartimi en þá er skrifstofan opin frá klukkan 8 til 4 i stað 9 til 5. Um þessa breytingu sagði Jóhann: „Þetta er nú bara tilraun hjá okkur en við vonum að hún eigi eftir að gefa góða raun. Starfsfólk hefur samþykkt að stytta matar- og kaffitima til að sleppa fyrr. Þess ber þó að geta að alltaf eru tveir starfsmenn við frá fjögur til fimm til að sinna neyðartilfellum eins og við segjum. Við höfum orðið varir við mikla ánægju meðal viðskiptavina okkar með þennan nýja opnunartima og aug- ljóst er að mörgum finnst þægi- legt að geta komið hér við á leið i vinnuna á morgnana,” sagöi Jó- hann að lokum. —TT. „Frl annan hvorn föstudag” „Það tók mig nokkurn tima að átta mig á þessu nýja kerfi þvi að maður vildi halda fast við gamla vinnutimann, en eftir að ég komst upp á lagið að nýta mér mögu- leika sveigjanlega vinnutimans vil ég ógjarnan skipta aftur,” sagði Reynir Sveinsson deildar- stjóri, en hann hefur unnið hjá Abyrgð um 8 ára skeið. „Mjög gott er að geta skroppið frá án þess að gera þurfi veður út af þvi. Og ekki siður er gott að geta ráðið mætingartimanum sjálfur.” Reynir kvað þaö vinsælt meðal starfsfólksins að safna fristund- unum og nefndi sem dæmi að sið- asta sumar hefði það getað komið þvi þannig fyrir að helmingur starfsmanna gat tekið sér fri ann- an hvorn föstudag. „Helsti gallinn á þessu kerfi snýr e.t.v. að viðskiptavininum ef hann ætlar að hitta einhvern ákveðinn starfsmann á opnunar- tima og viðkomandi er þá kannski farinn heim. Hinsvegar tel ég kerfið gallalaust gagnvart okkur starfsmönnum,” sagði Reynir. — TT. Guörún Matthiasdóttir.skrifstofustúlka. Verðum að hafa náin samráð hverl vfð annað” Gunnhildur Hauksdóttir, gjaldkeri. „Þar sem ég vinn aðeins hálfan daginn hef ég ekki jafn mikið af sveigjanlega vinnutimanum að segja eins og aðrir, sem hér vinna. Þegar ég vann hér fulla vinnu fyrir nokkrum árum kunni ég mjög vel við þetta kerfi og gat ekki fundið á þvi neina galla,” sagði Guörún Matthiasdóttir, skrifstofustúlka hjá Abyrgð. „Starfsfólk verðurað hafa náin samráð hvort við annað þvi ekki geta allir farið frá i einu. Ég held að samstarfið hafi tekist prýðis- vel I alla staði.” Guðrún sagði ennfremur að hún teldi það mikinn kost að geta safnað fritimum og þá helst að ná saman heilum degi. —TT. Reynir Sveinsson, deildarstjóri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.