Vísir - 27.06.1981, Page 7

Vísir - 27.06.1981, Page 7
nooK » * K \\ J W V' Laugardagur 2Í7. 'júní 1981 vtsni soirtjj f - WARNINO — » BVsuchiE^ * .^OFFENDED 1 Í í? 3HOUlDNot 1 Linda Lovelace í Soho: Vill láta banna þetta. Drottning myndanna vid bladi... Kannast einhver viö Lindu Lovelace? ófróöum tii upplýs- inga, þá var Linda Lovlace i eina tiö sannköiluö drottning kiám- myndanna — hún lék m.a. i kvik- myndinni alræmdu „Deep Throat”, sem var vist fyrsta bandariska klámmyndin, sem hlaut viöurkenningu sem lista- verk. Linda var nýlega i London, nánar tiltekið i Soho, miöstöö næturlifs og klámbransans i höfuöborg breska heimsveldisins fyrrverandi. En nú er komið ann- að hljóð i kerlu en var fyrir 7 ár- um, þegar hún gerði sig og garð- inn frægan sem drottning bláu myndanna. Fyrir sjö árum hneykslaði Linda Breta með þvi að mæta á gagnsærri blússu á As- cot veðreiðarnar, en þaö var þó i anda blámans sem einkenndi frægð hennar. Svo var Deep Throat bönnuð hjá breskum. Lamin i rúmiö Nú kemur i ljós að vesalings Linda meinti ekkert með þessu öllu saman. Þegar fólk hélt hana vera að brosa sem bliðast var hún i rauninni að bita á jaxlinn. Þetta var allt eiginmanninum að kenna, Chuck nokkrum Traynor. Hann lamdi hana ofan i rúmið hjá mót- leikurunum. Oft svo illa, að sminkdeildin mátti hafa sig alla við að púöra yfir marblettina á lærunum á Lindu. Sögu sina segir Linda sjálf i nýútkominni ævi- sögu, „Ordeal”, (Þolraun) hryll- ingssögu um það hvernig fórnar- lömb verða til, eins og segir i kynningu bókarinnar. Dóttir lögregluþjónsins Linda er dóttir lögregluþjóns frá Florida. Móðir hennar lamdi hana sem barn og frá mömmu fór Linda beint i fangið á Chuck — dæmigerð saga um barn sem elst upp við ofbeldi og misskilur það sem ástriki. Chuck gerði hana að stjörnu, að kyntákni, að drottn- ingu i rúminu. Stundum sat hann með skammbyssu i v^sanum og horfði á upptökur myndanna, Linda hringaði sig um hina og þessa karlmenn i hinu og þessu rúminu og þoröi ekki annaö af ótta við dólginn, eiginmanninn sinn. Skilin skiptum Lindu tókst þó að flýja frá Chuck og svo hitti hún Larry, tæknifræðing, sem gifti§t henni og þau eignuðust tvö börn og buru og búa i 500 ibúa þorpi á Long Island. Linda hefur snúist gegn klámi af sama eldmóði og hún bjóð það til áöur fyrr á árunum. „Þegar viö heyrðum að ætti að sýna klámmynd i biói þorpsins, tókum við okkur til og mótmælt- um og þeir urðu að hætta við að sýna myndina” segir hún i viðtali við enskt timarit nýlega. Viðtalið var tekið i Soho, innan um allar sexbúðirnar. „Ef ég ætti þessa verslun” segir Linda og bendir á itölsku nýlendurvöru- verslunina handan götunnar, „þá myndi ég hafa undirskriftarlista á búðarborðinu og biöja alla að skrifa undir mótmæli svo þessari búð — hún bendir á sex búð við hliöina — verði lokað.” Henni er sagt að á næsta ári gangi i gildi lög, sem banna gluggaútstillingar á dónalegum varningi, skilti og klámtimarit fyrir utan búðirnar. Gluggarnir verða að vera sómasamlegir og eigendur verslananna mega ekki auglýsa svo sjáist utan af göt- unni. Humor i svefnherbergið Þetta gleður Lindu. Hennar skoðun er að ef klám er ekki sjá- anlegt, þá hætti fólk að hugsa um það. Klám, i hennar augum, er allt sem viökemur likama og samförum. Jafnvel skrautleg nærföt eru klám. Hún hristir hausinn þegar Ann Summers, eigandi sexbúðarinnar, segist að- eins vera að auka húmorinn i svefnherbergjunum. Linda lærði frá Chuck, að skrokkurinn á sér væri söluvara. Stundum notaöi hann likama Lindu til að greiða reikninga meö — reikninga frá læknum, lög- fræðingum, pipulagningamönn- um. Þeir þáðu hann fegins hendi. (hendi?) Linda vissi að þessir menn voru heimilisfeður, sem gáfu konunum sinum blóm á brúökaupsdaginn og hún fyrirleit þá og það sem hún þurfti aö gera. Þeir höföu engar áhyggjur af þvi, þótt hún lifði sig ekki inn i leikina. Gagnrýnandi hefur sagt um bók hennar aö það dýrmætasta sem Chuck tók frá Lindu, hafi veriö hæfileikinn til aö sjá samfarir öðru visi en pislarvætti konunnar. Linda fær ekki séð að konur geti haft gaman af körlum, tekiö þátt i leiknum með þeim. Þvi gengur bláf Linda um gotur Soho og það fer hrollur um hana. Aörar konur ganga sömu götur og hlæja að þessu öllu saman. Þær geta jafn- vel helgiö að þessu með mannin um sinum. En ekki Linda. fa er sem sniðið fyrir islenskar aðstæður. Það hefur ekki ýmsan flókinn og dýran útbúnað sem fóik notar almennt ekki, en allt annað svosem: • Hraöspólun með mynd 0 Snertirofa 0 „Ilirect drive” 0Kyrrmynd 0 Fjarstýringu 0 Bein myndavélatenging 0 Og siöast en ekki sist, kerfi sem komin er á reynsla og hefur heimsútbreiðslu „BETA” kerfið ALLT ÞETTA AÐEINS KR: 16.500,- Greiðslukjör við allra hæfi. Myndaleiga á staðnum, Þú þarft ekki að kaupa dýrasta myndsegulbands- tækið á markaðinum, tii að allt sem þú þarft. JAPIS Brautarholti 2, sími 27133

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.