Vísir - 27.06.1981, Blaðsíða 19

Vísir - 27.06.1981, Blaðsíða 19
18 VlSIR Laugardagur 27. júní 1981 ,.Ég varð siálfur að gegna hlutvcrki búrakk- jj ans Afmælisviðtal við biskup Islands herra Sigurbjörn Einarsson Skrifað hefur * Oskar Magnússon Myndir tók Þórir Guðmundsson Þar reisti ég Skálholtsdóm- kirkju... ..leitandi, ósáttur og reikuli i ráöi... Ég var ungur mjög ákveöinn jafnaöarmaöur... Biskup islands/ herr r á9þri5|Udaginn arsson# verður s|0 9 ^ eyða með hon- kemur, 30. lun'-E?! -mili hans við Berg- um morgunstund a heim ^ Rona 0kk- staðastrætið. Þar tær «y hl hus. ur viðurgibrmng en hvarii s verka. Sitor taniM tór?agurwW var þráður ok.karS' l fiörur okkar. ups. Frávik rak si löngu gjörkunn- Biskup er la.n^r?um um jói og áramót, rÍð^aðuVslikur að ^ aðPverTþér, leKirKÍa^Íétí'aðtótá ión hans hlióma í orð- utn hans hér a eftir- „A annan dag jóla 1912 varð það slys aö eldur kom upp á bæ for- eldra minna og móðir min brenndist svo viö að bjarga okk- ur drengjunum og hún lést á nýj- ársdag. Ég var þá hálfs annars árs og bróðir minn þriggja vikna.” Ég haföi beöið Sigurbjörn að segja frá æsku sinni og upp- runa og bærinn, sem hér um ræöir var Efri-Steinshlið i Meðallandi. „Atvik voru þau, að eldur kom upp i bænum og faðir minn og móöir reyndu að bjarga okkur bræörunum. Faðir minn var ný- kominn inn úr hrakviðri þegar eldurinn kom upp, i blautum klæöum, en klæði móður minnar brunnu og hún hlaut þau sár, sem ekki var hægt að lækna viö þær aöstæöur sem þá voru. Faðir minn brá þá búi og fluttist til móður sinnar og hálfsystkina en ég var tekinn i fóstur af móöur- foreldrum minum.” Reiddur í gæruskinni „Afi minn reiddi mig i gæru- skinni suður aö Háu-Kotey þar sem hann bjó. Þar voru fyrir tólf börn þeirra hjóna. Ég fór svo til föður mins eftir aö afi og amma hættu búskap, þá átta ára gamall og var hjá honum eystra til fimm- tán ára aldurs. Arið eftir ferm- ingu mina fluttist faðir minn til Reykjavikur og þar tók ég inn- tökupróf i Menntaskólann. Faðir minn bjó i i Reykjavik i þrjú ár en fluttist siðan meö siðari konu sinni aö Iðu i Biskupstungum.” Frá Iðu sér til Skálholts. Vakn- aði áhugi þinn á Skálholti ef til vill á þessum árum? „Skálholt breiðir faðminn mjög hlýlega á móti manni þaðan en áhugi minn á Skálholti vaknaöi hins vegar ekki á Iðu. Þann áhuga hafði ég haft frá þvi ég man eftir mér vegna óbeinna áhrifa frá Jóni Vidalin, sem ég dáði mikið. Ég fékk mikinn áhuga á tslands- sögunni og mörg þau stórmenni. sem tengd voru Skálholti orkuðu mjög sterkt á mig.” ' ' Eigið Skálholt í þúfnamóa „Þaö var einmitt minnisstæður æskuleikur minn að byggja upp Skálholt. Ég átti mitt Skálholt i þúfnamóa austan túns i Lágu- Kotey. Þar reisti ég sem barn Skálholtsdómkirkju og mikinn garð i kring með stórri áhöfn, sem voru völur, kjálkar pg legg- ir.” En er Skálholt endurreist eft- ir þeim hugmyndum, sem dreng- urinn Sigurbjörn gerði sér i móanum? , „Ég býst ekki við þvj. Ég lifði náttúrlega i fortiðinni og þessir menn voru allir mjög i minum hugarheimi og þarna svifu hug- hrif frá þeim tima fyrir mér.” „Marxisti var ég aldrei" Þaö er kunnugt, aö á mennta- skólaárunum var biskup i sam- neyti við vinstri sinnaða hópa: „Ég varð ungur mjög ákveðinn jafnaöarmaöur og gekk i félag jafnaðarmanna þegar þaö var stofnað. Marxisti var ég aldrei og þegar ég var ákveönastur jafnað- armaður á unglingsárum var ég jafnframt eindregnastur kristinn maður og fannst það falla mjög vel saman.” Eitthvað hefur þér fundist þú fara út af sporinu á þessum árum ef litiö er til pistils sem þú ritar i Játningum, sem virðist vera ein- hvers konar uppgjör þitt? „Já, það er rétt. Ég hafði mikinn stjórnmálaáhuga á timabili og var jafnaðarmaður en haföi megna vantrú á kommúnisma. En hneigð min snerist öll meira að heimspekilegum efnum en stjórnmálum. Ég saknaði þess að sakna þess enn i dag að i skólan- um var engin uppfræðsla i heim- speki. Maður sá eitt og eitt nafn i mannkynssögunni og þar með bú- ið. ” „Ég var bæði leitandi og ósáttur..." „Ég var bæði leitandi og ósátt- ur á vissu skeiöi og reikull i ráði. A timabili var ég þó nokkuð upp- tekinn af Helga Pjeturs og um leið frábitinn kristinni trú. Þetta var stutt skeið i minu lifi og um- brotasamt. Þegar maður litur um öxl hefur það sennilega verið nauðsynlegt til þess að eitthvað gerjaðist innra með mér, sem þurfti að gerjast til þess að ég fengi aukin skilyröi til þroska.” Hingað og ekki lengra Ef hægt er aö henda reiður á einu atviki öðrum fremur sem orðiö hefur tilefni uppgjörs þins, má þá spyrja hvort það hafi verið þegar þú varst tilneyddur aö eyða nótt i tilteknu húsi viö Skóla- vöröustig? „Atvikin, sem til uppgjörsins lágu voru margvisleg og skrefin lika mörg en að þvi kom aö ég stóö i þeim sporum að við blasti: Hingað og ekki lengra. Þú ert kominn á leiöarenda. Þú skilur það og þú sérö það. Hér á þessari braut er ekki hægt aö finna það sem þú leitar aö. Ef þú heldur áfram á þessari braut þá niöist þú á sjálfum þér af þvi að þú ert að niðast á þvi, sem helgast er til innra meö þér og i tilverunni yfir- leitt.” „Þá er þetta alit ein regin- blekking" „Þessi reynsla og þessi viðhorf voru mjög ákveðið samfléttuð reynslu minni af Jesú Kristi, við þann vin bernsku minnar og hug- sjón æsku minnar. Hann varð ekki strikaður út úr lifi minu. Að þvi leyti var ég kannski róttækur i eöli minu, aö hans tilkall er svo stórt og áfgerandi að það er ekki Það þarf alltaf afi vera að vista menn á básum... Mér þótti viöbrögöin hér innan lands dálitiö uggvænleg. Þú ert kominn á leiöarenda... VÍSIR Sennilega hefur hann engan skammaö meira en mig.. Þú ert aö niöast á þvi sem helgast er... um að ræða nema annað hvort eða. Ef hann er ekki eitt og allt fyrir lif mannsins þá er hann ná- kvæmlega ekki neitt og þá er þetta allt ein reginblekking og firra.” ,Algjör ráðleysa var það' Eftir stúdentspróf frá Mennta- skólanum fór Sigurbjörn til Upp- sala i Sviþjóð til náms i heim- speki, grisku og trúarbragða- sögu: „Ég varð mjög var við raddir um aö þetta væri fánýtt flan. Bæði var ég efnalaus og eins var þetta óþarfi til að ná emb- ættisprófi i guðfræði, sem ég keppti að. Hins vegar fannst mér ég þurfa að afla mér góðrar und- irstöðu. Ég kvæntist Magneu Þor- kelsdóttur áður en ég fór út og hún hvatti mig mjög og studdi i þessari ráðleysu, algjör ráöleysa var það. Þarna púlaði ég i fjögur ár. Já, ég geri ráðfyrir að þær að- stæður sem við bjuggum við þættu litt forsvaranlegar nú á timum enda aðstæöur breyttar. Við lifðum þarna við þröngan kost hjónin.” „Nokkuð var það kalt hús' „Við vorum i eitt ár i kofa um itiu kilómetra fyrir utan Uppsali. Þar fengum við mjög ódýra vist- arveru en nokkuð var þaö kalt hús, gamall yfirgefinn bóndabær. Samt áttum við þar ágæta vist i prýðilegu nágrenni. Þegar yngri dóttir okkar knúði dyra i febrúar- lok 1936 höföu gengið miklar frosthörkur. Eftir þeim upplýs- ingum, sem fyrir lágu átti hennar stund ekki að vera komin. Við vorum óviðbúin eina kalda nótt þegar hún knúði dyra og vildi komast i heiminn. Ég fór og vakti bóndann i nágrenninu og hann spennti hest fyrir sleða. Þar bjuggum við um Magneu og ókum áleiöis til sjúkrahússins i Uppsöl- um.” „Ég var býsna uggandi" „Þetta var nokkuð ævintýraleg ferð og spennandi þessa frostnótt þvi auövitað herti á sóttinni við hreyfingar sleðans. Ég var býsna uggandi siðari hluta leiðarinnar og allt útlit fyrir aö ljósmóður- hlutverkið kæmi i minn hlut. Við þvi var ég litt búinn. En allt fór vel og við náðum til sjúkrahússins og á sömu stundu og Magnea var komin inn i rúm fæddist Rann- veig. Magnea dvaldist með mér i Uppsölum i tæp þrjú ár en þá sendi ég hana af höndum mér meö dæturnar tvær, til að hafa betra næði fyrir lokaprófin. Ég kom siöan heim aö loknum próf- um haustiö 1937 og settist þá i guðfræðideild. „Aðkoman að þeim litt fýsileg" ,,Nú var ekki um annaö aö gera en að ljúka guðfræðináminu sam- stundis þvi allt var um þrotið og meira en það. Ég lauk prófinu á einum vetri, en þess er að geta aö ég hafði mjög góða undirstöðu. Ekki var um mörg prestaköll að ræða aö prófum loknum og að- koman að þeim flestum litt fýsi- leg. Það varö úr að ég var vigður til Breiðabólstaöar á Skóga- strönd. Sá staður var óneitanlega niðurniddur og sveitin átti i erfið- leikum, meðal annars var mæði- veikin komin i sveitina. Það hefti mjög framtak hjá mönnum i sveitinni.” „Varð sjálfur að gegna hlutverki búrakkans" „Fyrsta voriö mitt varð ég aö vaka yfir vellinum viö prestssetr- ið þvi sem frumbýlingur átti ég ekki einu sinni hund til að verja túnið. Ég varö þvi sjálfur að gegna hlutverki búrakkans. Á meðan ég var á Breiöabólstað var ákveðiö að stofna nýja sókn i Reykjavik, Hallgrimssókn árið 1940. Það varð úr eftir töluverðar innri hriöir að ég sótti um þar. Mér varð þá ljóst, að ég varð að gera upp viö mig hvort ég ætti að verja kröftum minum til að byggja upp Breiöabólstað og búa um mig þar til einhverrar fram- tiöar eða leita aö öörum starfs- vettvangi. Breiðabólstaður var mér býsna kær og fólkið i sveit- inni lika. Ég er mikill sveitamaö- ur i eðli minu og saknaði staðar- ins mjög.” „Viö vorum samrýmdir" „Ég vildi geta umgengist hestinn minn daglega" „Ég hef ekki verið hestamaður siðan ég lét hann frá mér og hef haft takmarkaða löngun til að eiga hest hér i Reykjavik. Ég vildi geta stundað hann daglega einkanlega i húsi. Það tel ég vera skilyröi þess, aö þaö samband verði milli manns og hests, sem þarf að vera og sem ég kýs. Hér er ekki slik aðstaöa. „Það var náttúrlega önnur ráðleysan" Aftur aö framboöinu. Hvernig stóð á þvi að leitað var til litt þekkts prests á Skógaströnd til að fara i þennan slag? Og hann sigr- aöi. „Það var náttúrulega önnur ráöleysan af minni hálfu. En það gerist sitthvaö óvænt i kosning- um. Kannski hef ég unnið á þvi hvað ég var ungur og óþekktur. Það kemur fyrir að ungir menn hafa sterkari stöðu heldur en eldri. Þetta kom mér mjög á óvart og minir stuðningsmenn gerðu ekki ráð fyrir þessum úr- slitum. Það var litið skipulag á þessari kosningabaráttu af minni hálfu. Ég kom seint á vettvang og dæmalaust „Ég hef mjög gaman af að um- gangast skepnur, held sérstak- lega upp á kýr og hesta að ég nefni nú ekki ketti og hunda. Aft- ur á móti hef ég litlar mætur á refum. Mönnum var hér á sinum tima talin trú um að i refarækt- inni væri úrræði til þess að kom- ast i efni. Allt reyndist það nú frekar valt og óraunsætt.” Ég las einu sinni grein eftir þig um hest, sem þú áttir. Af grein- inni að marka þykir mér ósenni- legt að þér hafi getaö þótt jafn vænt um önnur dýr? „Ég hygg aö það sé rétt að mér hafi ekki þótt eins vænt um neina skepnu, sem ég hef kynnst og ég held að honum hafi þótt óvenjulega vænt um mig. Við vorum dæmalaust sam- rýmdir og áttum sálufélag saman sérlega náiö.” Þaö var þriðja ráöleysan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.