Morgunblaðið - 05.04.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 95. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tepokar og
gömul hús
Þórdís Þórðardóttir fer ekki
troðnar slóðir | Daglegt líf
Fasteignir og Íþróttir í dag
ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa er óvenju
lág og hefur myndast um 3–7% yfirverð á
bréfum, mismikið eftir flokkum. Ávöxtunar-
krafa í 40 ára húsbréfaflokknum (01/02), sem
er algengastur, var 4,23% á föstudag sem
þýðir um 7% yfirverð á bréfunum. Ástæðan
fyrir lækkuninni nú er að mati sérfræðings
Landsbankans aukinn áhugi erlendra fjár-
festa á húsbréfum.
Yfirverð myndast þegar ávöxtunarkrafan
fer undir 4,75% en hækki krafan umfram
það myndast afföll. Með yfirverði er átt við
að meira fáist fyrir bréfin en kaupverð segir
til um. Þetta þýðir að t.d. hámarks húsbréfa-
lán upp á 9,2 milljónir, er nú um 9,83 m.kr.
virði og íbúðakaupandi/seljandi hagnast um
630 þúsund krónur vegna yfirverðsins. Í
fasteignaviðskiptum er það oft samningsatr-
iði milli kaupanda og seljanda hvor nýtur
góðs af yfirverðinu, líkt og þegar afföll eru.
Í alþjóðlega uppgjörsmiðstöð
Ástæðan fyrir lækkuninni nú er að mati
Hreiðars Bjarnasonar, sérfræðings hjá
verðbréfasviði Landsbankans, að rafræn
hús- og húsnæðisbréf Íbúðalánasjóðs verða
nú skráð í hinni alþjóðlegu uppgjörsmiðstöð
Clearstream frá og með 5. apríl, en hún auð-
veldar erlendum fjárfestum að fjárfesta í
húsbréfum. Erfitt er að spá fyrir um hvort
ávöxtunarkrafan haldi áfram að lækka, að
sögn Hreiðars. „Það er erfitt að segja hvað
verður, en eins og kunnugt er verður hús-
bréfakerfið lagt niður 1. júlí nk.“
630 þúsund
krónur í
hagnað af
hámarksláni
7% umfram kaupverðið
fyrir 40 ára bréf Auk-
inn áhugi erlendra
fjárfesta á húsbréfum
MJÖG ungum börnum sem horfa á
sjónvarp er hættara við að þjást af
athyglisbresti þegar þau komast á
skólaaldur.
Kemur þetta fram í niðurstöðum
nýrrar, bandarískrar rannsóknar, er
benda til að sjónvarpið kunni að
örva heila barnanna of mikið og hafa
óafturkræf áhrif á þroska hans. Til-
raunin var gerð á tveim hópum
barna, eins og þriggja ára, og sam-
kvæmt niðurstöðunum leiddi hver
klukkustund sem þau horfðu á sjón-
varp til 10% aukinnar hættu á at-
hyglisbresti er þau voru orðin sjö
ára.
Þessar niðurstöður eru í samræmi
við útkomu fyrri rannsókna, er hafa
sýnt, að sjónvarpsáhorf getur dregið
úr einbeitingarhæfni. Styður þetta
tilmæli samtaka bandarískra barna-
lækna um, að ung börn séu ekki látin
horfa á sjónvarp. Greint er frá nið-
urstöðum nýju rannsóknarinnar í
aprílhefti tímaritsins Pediatrics.
Áhrif sjónvarps á ung börn
Aukin hætta á
athyglisbresti
Chicago. AP.
ENN sem komið er, að minnsta kosti, bendir
ekkert til að fleyg orð bandarísk-breska ljóð-
skáldsins T.S. Eliots, um að apríl sé „grimm-
astur mánaða“, ætli að verða að áhrínsorðum í
höfuðborginni þetta árið. Þótt hitinn væri
ekki mikill, rétt um fimm gráður undir hádeg-
ið, vel yfir meðallagi, skein sólin hin ljúfasta
og ekki einu sinni norðankulið dugði til að
nokkrum dytti í hug hin þekkta upphafslína
„Eyðilandsins“ eftir Eliot.
Ef maður klæddi af sér kulið, eins og menn,
börn og gæsir gerðu við Fjölskyldugarðinn í
Laugardal í gær, eða dýfði sér í hlýja Árbæj-
arlaugina, þurfti ekki skáldlegt ímyndunarafl
til að trúa því að sumarið – og þá ekki bara
sumardagurinn fyrsti – væri á næsta leiti.
Enda er það birtan, miklu fremur en hita-
farið, sem segir Íslendingum hvenær sumarið
er komið. Og í útlöndum var klukkum víðast
hvar flýtt um eina klukkustund nú um
helgina, þegar sumartími gekk í garð.
Mars síðastliðinn var sá hlýjasti í Reykja-
vík síðan 1964, fjórum gráðum yfir meðallag-
inu, og því ef til vill ekki svo langsótt að vænta
þess að apríl verði ljúfur líka. Samkvæmt
gögnum Veðurstofu Íslands var apríl í fyrra
með þeim heitustu sem mælst hafa, 6,2° með-
altalið í Reykjavík. Hver veit nema nú fari
eins og Eliot segir líka í Eyðilandinu, að
„sumarið komi okkur á óvart“.
Apríl hinn ljúfasti
Morgunblaðið/Sverrir
Það var margt um manninn og fuglinn við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardalnum í gær, en það var vissara að klæða af sér kulið.
Morgunblaðið/Golli
Börnin skemmtu sér í Árbæjarlauginni.
MEÐ sprengingunni sem varð
fimm meintum hryðjuverkamönn-
um að bana í Madríd í fyrrakvöld,
þar á meðal meintum höfuðpaur
hryðjuverkanna sem urðu 191 að
bana í Madríd í síðasta mánuði, er
„kjarni“ hópsins sem stóð að til-
ræðunum nú annaðhvort fallinn í
valinn eða kominn á bak við lás og
slá. Þetta kom fram í máli innan-
ríkisráðherra Spánar, Angels
Acebes, á fréttamannafundi í gær.
Sprengjur sem fundust í íbúð-
inni sem mennirnir voru í er þeir
sprengdu sig í loft upp bendla þá
einnig við tilraun til að vinna spell-
virki á hraðlestarteinum á föstu-
daginn og benda til að þeir hafi
ætlað sér að vinna fleiri hryðju-
verk, sagði Acebes enn fremur.
Síðdegis í gær kom í ljós að fimm
meintir hryðjuverkamenn höfðu
fallið í sprengingunni, en upphaf-
lega var talið að þeir hefðu verið
fjórir. Einn spænskur sérsveitar-
maður féll og 15 aðrir særðust.
Tveir eða þrír hryðjuverkamenn
kunna að hafa komist undan.
Meðal þeirra fimm sem
sprengdu sig í loft upp í íbúð í
Leganes, útborg Madrídar, á laug-
ardagskvöldið, var Sarhane Ben
Abdelmajid Fakhet, 35 ára Túnis-
maður, sem grunaður var um að
hafa skipulagt hryðjuverkin í
Madríd. Sprengdu hryðjuverka-
mennirnir sig þegar spænska lög-
reglan hafði setið um íbúðina í tvo
tíma og bjó sig undir að ráðast inn.
Fimmtán manns eru þegar í
varðhaldi vegna tilræðanna í
Madríd, þar af ellefu Marokkó-
menn.
„Kjarninn“ upprættur
Reuters
Spænskir björgunarmenn í rústum íbúðablokkarinnar í Leganes í gær.
Slóð hryðjuverkamannanna mun hafa verið rakin þangað er lögregla
fékk upplýsingar um að þeir væru að hringja þaðan úr farsíma.
Farsími kom lögreglu á sporið
Meintur skipuleggjandi hryðju-
verkanna í Madríd sprengdi
sig og félaga sína í loft upp
Madríd. AP.
SJÖ bandarískir hermenn féllu í
átökum við herskáa sjíta í Bagdad í
gær, að því er bandaríski herinn
greindi frá. Að minnsta kosti 25
hermenn særðust.
Átökin brutust út eftir að víga-
menn hliðhollir róttæka sjítaklerk-
inum Muqdata Sadr lögðu undir
sig lögreglustöðvar og aðrar opin-
berar byggingar í hverfi fátækra
sjíta í útjaðri Bagdad.
Sjö féllu
í Bagdad
Bagdad. AP.
„Skelfið óvininn“/12
Fasteignir | Þúsundir fasteigna til sölu Fríkirkjuvegur 11 Á til-
boði Greiðslumat Leðurmaður Grétu Íþróttir | Kolbrún Ýr og
Ragnheiður í ham Handbolti Knattspyrna Sund Badminton