Morgunblaðið - 05.04.2004, Blaðsíða 15
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 15
Spurning: Ég hef tekið aspirín í
mörg ár vegna hjartasjúkdóms en
fyrir stuttu las ég frétt í erlendu
tímariti að þetta lyf geti hindrað eða
læknað krabbamein. Er eitthvað til í
þessu og gildir það um skammtana
sem eru notaðir við hjartasjúkdóm-
um?
Svar: Aspirín gengur líka undir
nöfnunum acetýlsalicýlsýra og
Magnýl. Þetta lyf kom fyrst á mark-
að fyrir 100 árum með nafninu Aspir-
in. Vegna þess hvað nafn virka efnis-
ins, acetýlsalicýlsýru, er langt og
óþjált er nafnið aspirín oft notað sem
samheiti (samheitin eru skrifuð með
litlum staf en sérheitin með upphafs-
staf). Lyfið var lengst af notað sem
verkjalyf og gigtarlyf en segja má að
sú notkun sé úrelt. Aspirín hefur
hvað eftir annað komið á óvart og fór
að ryðja sér til rúms sem vægt sega-
varnalyf fyrir 25–30 árum og er nú
notað mikið
sem slíkt, m.a.
undir nafninu
Hjartamagn-
ýl. Þessi notk-
un byggist á
því að aspirín
dregur úr
hættu á blóðtappamyndun í heila og
hjarta. Talsverður munur er á
skömmtum eftir notkun og í venju-
legum Magnýltöflum eru 500 mg í
hverri töflu og við verkjum er hæfi-
legt fyrir fullorðna að taka 1–2 töflur
í senn. Í Hjartamagnýl eru hins veg-
ar aðeins 75 mg í töflu og teknar eru
ein eða tvær töflur á dag, þ.e. 75–150
mg. Á síðustu árum hafa verið gerð-
ar rannsóknir sem benda til þess að
aspirín hafi verndandi áhrif fyrir
krabbameini. Ástæðan er talin geta
verið sú að aspirín og önnur bólgu-
eyðandi verkjalyf (t.d. íbúprófen og
naproxen) hafa hamlandi áhrif á
efnahvata í líkamanum sem heitir
COX-2. Þessi efnahvati er nauðsyn-
legur fyrir vöxt sumra krabbameina
og virðist m.a. örva nýmyndun æða
sem er nauðsynleg fyrir illkynja
vöxt. Sem dæmi voru búnar til erfða-
breyttar mýs sem voru með óeðlilega
mikið magn af COX-2 í líkamanum.
Þegar framkallað var krabbamein í
mjólkurkirtlum þessara músa óx
krabbameinið og dreifði sér mun
hraðar en í eðlilegum músum. Rann-
sóknir í dýrum og fólki benda til þess
að aspirín hafi viss verndandi áhrif
gegn krabbameini í brjóstum, ristli,
vélinda og eggjastokkum. Hins veg-
ar hefur nýleg rannsókn á rúmlega
88 þúsund konum sýnt aukna hættu
á krabbameini í briskirtli hjá þeim
sem tóku aspirín reglulega í langan
tíma borið saman við þær sem ekki
notuðu aspirín. Nokkrar rannsóknir
eru í gangi sem eiga að skera úr um
hugsanlegt gagn af aspiríni og skyld-
um lyfjum í baráttunni við krabba-
mein og þegar niðurstöður þeirra
liggja fyrir verður vonandi hægt að
fá niðurstöðu í málið. Fram að þeim
tíma er ekki hægt að ráðleggja neitt
með vissu og einnig ríkir óvissa með
þá skammta sem þyrfti að gefa.
MAGNÚS JÓHANNS-
SON LÆKNIR SVARAR
SPURNINGUM
Kemur aspir-
ín í veg fyrir
krabbamein?
Rannsóknir
benda til að
aspirín hafi
verndandi
áhrif fyrir
krabbameini